Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.2002, Page 9
FIMMTUDAGUR 4. APRIL 2002
9
py___________________________________________________________________________________________________________________________________Viðskipti
Umsjón: Viöskiptablaöið
HEILDARVIÐSKIPTI 3.295 m.kr.
Hlutabréf 577 m.kr.
Bankavíxlar 1.233 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
; Búnaðarbankinn 242 m.kr.
Össur 86 m.kr.
"Hslandsbanki 55 m.kr.
MESTA HÆKKUN
O íshug 2,7%
© Búnaðarbankinn 1,5%
©Oa 1,5%
MESTA LÆKKUN
© Kögun 5,6%
Qfsl. fiársjóðurinn 3,2%
©ísl. hlutabr.sj. 2,7%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.302 stig
- Breyting © 0,40%
Hagvöxtur á 4.
ársfjórðungi 4,6%
Samkvæmt frétt frá Þjóðhagsstofn-
un óx landsframleiðslan á síðasta
fjórðungi ársins 2001 um 4,6% á milli
ára þrátt fyrir að innlend eftirspum
hefði dregist saman um 7,3%. Ástæða
þessa mikla vaxtar er verulegur vöxt-
ur i útflutningi en hann jókst á tíma-
bilinu um 13,5%. Samdráttur er í
einkaneyslu og fjámiunamyndun, sem
og innflutningi. Einkaneyslan dróst
saman um 6,5%, fjármunamyndunin
um 11,5% og innflutningur imi 18,8%.
Samkvæmt endurskoðuðum tölum er
nú áætlað að hagvöxtur síðasta árs
hafi numið 3,0% í stað 2,2% í fyrri
áætlun. í spá Þjóðhagsstofhunar fyrir
þetta ár er gert ráð fyrir 0,5% sam-
drætti i landsframleiðslu á milli ára.
Verðbréfasjóðir
fjárfesta í hluta-
bréfum
Samkvæmt nýju yfírliti frá Seðla-
bankanum námu hrein kaup verðbréfa-
sjóða á hlutabréfum um 800 milljónir
króna í febrúar. Með hreinum kaupum
er átt við breytingar á eignastöðu milli
mánaða að frádreginni verðhækkun.
Febrúar var þar með fimmti mánuður-
inn i röð þar sem verðbréfasjóðir voru á
kauphhðinni á innlendum hlutabréfa-
markaði. Áður höfðu sjóðimir verið
seljendur hlutabréfa í 13 mánuði í röð.
Hegðun sjóðanna hefur því endurspegl-
að vel verðþróun á hlutabréfamarkaði á
undanfómum misserum.
. 2002 kl. 9.15
KAUP SALA
Bfijpollar 99,030 99,540
tíSsPund 142,250 142,980
g*lltan. dollar 62,220 62,600
“jDönsk kr. 11,7360 11,8010
3~ÍNof»kkr 11,4220 11,4850
CSSwnkkr. 9,6140 9,6670
Sviss. franki 59,6700 60,0000
[*>p.yen 0,7487 0,7532
Hecu 87,2231 87,7472
SÐR 123,9900 124,7300
Arðgreiðslur fyrirtækja á VPÍ:
Aukast um 60% milli ára
- þrátt fyrir að færri fyrirtæki greiði arð
Auknar aörgreiðslur
Fyrirtæki á VÞÍ greiddu 6,7 milljarða króna í arð síðasta rekstrarár á móti
4,2 milljörðum árið áður.
Fyrirtæki á VÞÍ greiða um 6,7 millj-
arða króna í arð fyrir síöasta rekstr-
arár en greiddu 4,2 milljarða króna
fyrir síðasta ár. Aukningin nemur
60% á milli ára en frá þessu var sagt í
Viðskiptablaðinu sem kom út í morg-
un. í Morgunpunktum Kaupþings
kemur fram að íslandsbanki mun
greiða stærstu arðgreiðsluna en félag-
ið hyggst greiða út 13% arð af hlutafé
sem gerir um 1300 milljónir króna. í
öðru sæti kemur síðan Landssími Is-
lands með 844 milljónir og í þriðja
sæti Landsbankinn með 685 milljónir.
Sömu fyrirtækin voru með hæstu arð-
greiðslumar i fyrra en islandsbanki
og Landssími íslands höfðu sætaskipti
þar sem Landssíminn greiddi út 565
milljónir króna en íslandsbanki hálf-
an milljarð. Landsbankinn greiddi út
445 milljónir i fyrra.
Færri fyrirtæki greiða þó út arð á
þessu ári. í ár greiða 37 fyrirtæki út
arð, eða tæplega 2 af hverjum þremur,
en hlutfallið var 71% í fyrra. Af þeim
fyrirtækjum sem greiddu út arð nam
arðurinn 184 milljónum króna að
meðaltali sem er töluverð hækkun frá
þvi í fyrra, þegar arðurinn nam ein-
ungis 104 milljónum. Hjá þeim félög-
um sem greiddu út arð á þessu ári var
meðaltalið 8,1% sem er lítið eitt
hærra en arðgreiðsluhlutfallið í fyrra
sem var 7,7%. Arðgreiðslan sem hlut-
fall af hlutafé hefur þvi hækkað á
milli ára.
Það fyrirtæki sem greiddi út hæsta
hlutfallið af heildarhlutafé á þessu ári
er Samherji en hann greiðir út sem
svarar 30% af hlutafé. í fyrra var arð-
greiðslan einnig myndarleg en þá
greiddi félagið út 15% arð. Samherji
ber höfuð og herðar yfir önnur sjávar-
útvegsfyrirtæki hvað arðgreiðslur
varðar en meðaltal arðgreiðslna sjáv-
arútvegsfyrirtækja á þessu ári var að-
eins 7,5%, þrátt fyrir að afkoma sjáv-
arútvegsins hefði verið með miklum
ágætum í fyrra. Arðgreiðslan var þó
snöggtum betri en í fyrra, þegar hún
nam aðeins 4,6% að meðaltali.
Greiningardeild Kaupþings telur
ekki ólíklegt að fjármálafyrirtækin
muni breyta sínum áherslum hvað
varðar arðgreiðslustefnu á næsta ári.
Þá munu þær snúast frekar um að
greiða arð út frá hlutfalli hagnaðar
fremur en hlutfalli af hlutafé. í Morg-
unpunktum Kaupþings kemur fram
að æ fleiri fyrirtæki séu farin að
marka sér stefnu hvað arðgreiðslur
varðar og telur greiningardeild Kaup-
þings það vera æskilegt. Greiningar-
deild Kaupþings telur að arðgreiðslur
séu famar að skipta fjárfesta meira
máli en áður og væntanlega muni fjár-
festingarákvarðanir í framtíðinni
taka aukið mið af þeim.
Sætanýting Flugleiða versn-
ar um 5,7 prósentustig
Farþegum Flugleiða á leiðum til og
frá íslandi fækkaði um 5,1% í febrúar í
samanburði við síðasta ár, en farþegum
sem flugu yfir hafið milli Bandarikj-
anna og Evrópu, með stuttri viðkomu á
íslandi, fækkaði hins vegar um nær
helming, eða 48%. Mjög hefur verið
dregið úr sætaframboði þannig að sæta-
nýting var 5,7 prósentustigum lakari en
á sama tíma í fyrra og er 1,4 prósentu-
stigiun lakari frá áramótum.
I frétt frá Flugleiðum um farþega-
fjölda og flutninga í febrúarmánuði
kemur fram að farþegum í millilanda-
flugi Flugleiða fækkaði um 25% í febrú-
Lokið er áreiðanleikakönnun
vegna kaupa Delta hf. á danska sam-
heitalyfjafyrirtækinu United Nordic
Pharma (UNP). Stjóm Delta hefur
samþykkt kaupin og hafa samning-
ar veriö undirritaðir.
Eins og fram hefur komið í fyrri
kynningu Delta er UNP markaðsfyr-
irtæki sem starfað hefur á dönskum
lyfjamarkaði frá árinu 1990. Fyrir-
tækið hefur keypt lyf frá ýmsum
framleiðendum samheitalyfja og sel-
ur undir eigin merkjum til apóteka
í Danmörku. Starfsemin hefur geng-
iö vel og var velta á árinu 2001 um
240 milljónir króna. Framkvæmda-
stjóri UNP, sem jafnframt er fyrrum
eigandi fyrirtækisins, mun starfa
Har í samanburði
við sama mánuð á
síðasta ári. Þeir
voru 56.965 nú en
75.950 í febrúar
2001. Farþegum
sem áttu erindi til
íslands eða frá ís-
landi fækkaði um
5,1%, en þeim sem fljúga yfir Norður-
Atlantshafið um tsland fækkaði um
48%. Farþegum á almennu farrými
fækkaði um 25,9% en á viðskiptafar-
rými fækkaði farþegum um 13,8%.
í frétt Flugleiða er bent á að félagið
áfr£un að rekstrinum ásamt þeim
starfsmönnum sem unnið hafa að
uppbyggingu félagsins. Stefnt er að
því að styrkja innviði og rekstur
enn frekar með öflugri fjármála-
stjóm og eflingu markaðsstarfs.
Fyrirsjáanlegt er að vöxtur UNP
verður umtalsverður á næstu árum
og hefur félagiö þegar tryggt sér
markaðsleyfi fyrir fjölda nýrra lyfja
og mun hefja markaðssetningu á
um 20 samheitalyfjum á þessu ári.
UNP mun einnig hefja markaðssetn-
ingu annars staðar á Norðurlöndum
á næstu misseram. Kaupverð UNP
er um 300 milljónir króna. Þar að
auki mun núverandi eigandi UNP
öðlast helming af EBITDA-framlegð
hefur lagað framboð sitt að minnkandi
eftirspurn og í febrúar minnkaði sæta-
framboð Flugleiða um 22,3% og salan
um 29,5%, sem leiddi til þess að sæta-
nýting var í mánuðinum 5,7 prósentu-
stigum lakari en í febrúar 2001. Hún var
55,4% í janúar í ár, en 61,1% á síðasta
ári.
Farþegum í innanlandsflugi Flugfé-
lags íslands, dótturfyrirtækis Flugleiða,
fækkaði í febrúarmánuði um 17,1%, úr
20.510 farþegum í fyrra í 17.009 í ár. Þá
fækkaði fluttum tonnum hjá Flugleið-
um-Frakt, dótturfyrirtæki Flugleiða, um
18,7%.
næstu 3 árin, að hámarki 417 millj-
ónir.
Delta hefur kynnt þá stefnu sína
að sækja lengra inn á samheitalyfja-
markaöinn á þeim mörkuðum þar
sem það samrýmist hagsmunum fé-
lagsins. Hingað til hefur Delta ekki
selt lyf undir eigin vörumerki á er-
lendum mörkuðum og nær ein-
göngu selt lyf til markaðsfyrirtækja.
Eru kaupin því mikilvægt skref í
framþróun markaðsstarfs Delta.
Áætlanir Delta-samstæðunnar, sem
nú telur Delta hf., Omega Farma,
Pharmamed á Möltu, UNP og önnur
dótturfélög, munu verða kynntar ít-
arlega í aprílmánuði.
Tölvusala
framar
vonum
Tölvusala á heimsvísu mun
aukast um 3% árið 2002, þannig að
seldar verða 125,5 milljónir tölva á
árinu. Þetta er meiri vöxtur en áður
hafði verið spáð, en búist hafði ver-
ið við 1,8% söluaukningu milli ár-
anna 2001 og 2002 í fyrri spám.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
rannsóknafyrirtækisins IDC. Þar
segir að í öllum heimshlutum að
Asíu undanskilinni hafi verið meiri
vöxtur en búist haíði verið við á
fjórða ársfjórðungi síðasta árs og að
aukinn stöðugleiki í efnahagslífi
muni ýta undir tölvusölu á þessu
ári.
Árið 2001 minnkaöi tölvusala um
5,2% frá árinu 2000, en þá höfðu ver-
ið seldar 128,5 milljónir tölva um
allan heim. Ekki er útlit fyrir sam-
drátt á næstunni ef marka má sér-
fræðinga IDC, því þriggja prósenta
vexti á þessu ári mun síðan fylgja
10,9% vöxtur á árinu' 2003 sam-
kvæmt spám þeirra, en þeir búast
við því að 139,2 milljónir tölva verði
seldar í heiminum það ár.
Gengið frá kaupum á United Nordic Pharma
SUPREME PIZZA
áleggstegundir:
ostur, sósa, pepperoni, ítölsk
pylsa, nautahakk, laukur,
græn paprika og sveppir.
Fákafeni 11, 108 Reykjavík