Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2002, Qupperneq 29
FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2002
29
Rafpóstur: dvsport@dv.is
Roy Makaay, leikmaður Deportivo La Coruna, fagnar hér einu af þremur mörk-
um sem hann geröi hjá Oliver Kahn, markverði Bayern Munchen. Reuters
Loksins mark hjá Forlan
David Beckham, vftaskytta Manchester United, aumkaöi sig yffir
Úrúrgvæann Diego Forlan og leyföi honum aö taka vítaspyrnuna sem
Manchester United fékk á 89. mínútu í leiknum í gær. Forlan skoraöi úr henni
og fyrsta mark hans í 27 leikjum fyrir Manchester United var staöreynd
Roy Makaay:
Enski bottinn
x par5emtrvgQ^^3S
Skora
hjáKa
Hollenski framherjinn Roy
Makaay, sem leikur með Deportivo
La Coruna, var heldur betur á skot-
skónum þegar lið hans mætti
Bayem Miinchen á Ólympíuleik-
vanginum í Miinchen. Hann skoraði
þrennu fram hjá markverðinum frá-
bæra, Oliver Kahn, og tryggöi
Deportivo dýrmætan sigur, 3-2.
Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayem
Miinchen, var allt annað en ánægð-
ur í leikslok.
„Það þýðir lítið að gefa jafn
sterku liði og Deportivo tvö mörk.
Það er ávísun á tap og við fengum
nákvæmlega það sem við áttum
skilið. Við verðum heldur betur að
taka okkur saman í andlitinu ef við
ætlum að eiga möguleika á að kom-
ast upp úr riölinum,“ sagði Hitzfeld.
Javier Irureta, þjálfari Deportivo,
var himinlifandi eftir leikinn.
„Við áttum þennan sigur skilinn
og það er stórkostlegt að vinna eitt
besta félagslið heims á heimavelli
þeirra. Keppnin er hins vegar rétt
að byrja og menn verða að koma sér
fljótlega aftur niður á jörðina,"
sagði Irureta.
Lélegt hjá Leverkusen
Bayer Leverkusen komst yfir
gegn Olympiakos í Grikklandi en
síðan hrundi liðið eins og spilaborg
og tapaði að lokum, 6-2.
Klaus Toppmöller, þjálfari Bayer
Leverkusen, gagnrýndi menn sína
harkalega eftir leikinn.
„Við byrjuðum ágætlega en síðan
virtist sem krafturinn og baráttu-
andinn hyrfi úr liöinu. Við töpuðum
reyndar fyrir mjög góðu liði en við
verðum að gera meiri kröfur en
þetta til okkar. Ég vona bara að við
náum liðsandanum, sem var svo
mikilvægur í fyrra, upp á nýjan
leik. Ef það gerist hef ég engar
áhyggjur. Við erum ekki úr leik í
þessum riðli þrátt fyrir þetta tap,“
sagði Klaus Toppmöller, þjálfari
Bayer Leverkusen sem gengur illa
bæði í þýsku deildinni og meistara-
deildinni. -ósk
Valsmenn styrkjast í körfunni
Körfuknattleiksdeild Vals er að ganga frá samningi við Bandaríkjamann
fyrir timabilið sem hefst í næsta mánuði. Sá heitir Laverne Smith og er 189
cm skotbakvörður frá Arkansas-Little Rock háskólanum í Bandaríkjunum.
Hann kláraði skólann árið 2001 en hann var með 12,4 stig, 3,2 fráköst og 1,7
stoðsendingar á lokaári sínu í skóla. Valsmenn hafa fengið Bjarka
Gústafsson aftur frá Haukum og Ólaf Má Ægisson frá KR. Þá eru ágætis
líkur á því að Hinrik Gunnarsson taki fram skóna aftur en Hinrik lék lengi
með Tindastóli og einnig með KR og Val. -Ben
keppni i hverju orði
Brynjar til Gróttu/KR
Karlalið Gróttu/KR í handknattleik
hefur fengið liðsstyrk því að homamað-
urinn Brynjar Öm Hreinsson, sem leik-
ið hefur með Þór á Akureyri undanfar-
in ár, hefur ákvaö aö ganga til liðs við
félagið.
Brynjar, sem sleit krossbönd í sumar
og verður ekki klár til að spila fyrr en
um áramót, skrifaði undir þriggja ára
samning við Gróttu/KR. Hann skoraði
47 i 93 skotum fyrir Þór í fyrra en það
er 51% skotnýting. -ósk
Meistaradeild
Evrópu
Fyrstu umferð riðlakeppninn-
ar í meistaradeild Evrópu lauk í
gærkvöld þegar leikið var í fjór-
um seinni riðlunum.
E-riðill
Dynamo Kiev-Newcastle .... 2-0
1-0 Maksim Shatskikh (17.), 2-0
Aleksandr Khatskevich (62.).
Feyenoord-Juventus ......... 1-t
0-1 Mauro Camoranesi (32.), 1-1 Pi-
erre van Hooijdonk (75.).
F-riðiII
Man. Utd-Maccabi Haifa .... 5-2
0-1 Yaniv Katan (8.), 1-1 Ryan Giggs
(10.), 2-1 Ole Gunnar Solskjær (35.),
3-1 Juan Sebastian Veron (46.), 4-1
Ruud Van Nistelrooy (54.), 4-2 Rafi
Cohen (85.), 5-2 Diego Forlan, víti
(89.).
Olympiakos-B. Leverkusen . . 6-2
0-1 Bemd Schneider (22.), 1-1 Thom-
as Kieine, sjálfsm. (27.), 2-1 Stylianos
Giannakopoulos (38.), 3-1 Predrag
Djordjevic (44.), 4-1 Predrag Djor-
djevic, víti (64.), 5-1 Predrag Djor-
djevic (73.), 5-2 Bemd Schneider, víti
(78.), 6-2 Per Zetterberg (87.).
G-riðill
Bayern Munchen-Deportivo . . 2-3
0-1 Roy Makaay (12.), 0-2 Roy
Makaay (46.), 1-2 Hasan Salihamidzic
(57.), 2-2 Giovanni Elber (54.), 2-3 Roy
Makaay (77.).
AC Milan-Lens...............2-1
1-0 Filippo Inzaghi (57.), 2-0 Filippo
Inzaghi (61.), 2-1 Daniel Moreira (75.).
H-riðill
Barcelona-Club Briigge......3-2
1-0 Luis Enrique (5.), 1-1 Timmy
Simons, víti (22.), 2-1 Gaizka Mendi-
eta (40.), 3-1 Javier Saviola (44.), 3-2
Gaetan Englebert (85.).
L. Moskva-Galatasaray.......0-2
0-1 Mohammed Sarr (72.), 0-2 Arif Er-
dem (81.).
-ósk
16 fara til
Englands
íslenska kvennalandsliðið í
knattspyrnu heldur á morgun
áleiðis til Englands þar sem það
mætir Englendingum í seinni leik
liðanna í umspili um sæti á HM í
Kína á næsta ári á St. Andrews-
vellinum í Birmingham á sunnu-
daginn.
Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari
liðsins, valdi í gær 16 manna hóp
til fararinnar en í liðinu hafa verið
18 stúlkur á meðan æfmgar hafa
staðið yfir hér á landi. Tvær yngstu
stúlkumar í liðinu, Björg Ásta
Þórðardóttir úr Breiðabliki og Dóra
Stefánsdóttir úr Val, sem báðar eru
sautján ára, fara ekki með til Eng-
lands. Hópurinn er skipaður eftir-
töldum leikmönnum:
Markverðir
Þóra B. Helgadóttir...............KR
María B. Ágústsdóttir, .. Stjömunni
Aðrir leikmenn
Eva S. Guðbjömsdóttir, . Breiðabliki
Margrét Ólafsdóttir,.... Breiðabliki
Guðlaug Jónsdóttir ...............FVK
Erla Hendriksdóttir...............FVK
Laufey Ólafsdóttir,...............ÍBV
Katrín Jónsdóttir,............Kolbotn
Ásdís Þorgilsdóttir................KR
Ásthildur Helgadóttir..............KR
Edda Garöarsdóttir,................KR
Elín Jóna Þorsteinsdóttir........KR
Guðrún Gunnarsdóttir...............KR
Olga Færseth.......................KR
Ásgerður H. Ingibergsdóttir, ... Val
Rósa J. Steinþórsdóttir...........Val
-ósk
\
t
v.