Dagblaðið - 17.09.1975, Qupperneq 9
Dagblaðið. Miftvikudagur 17. september 1975.
9
hann sjálfur segir frá. Hann
þurfti tlma til að hugsa sig um,
hugsa um stöðu sina innan
heimsmyndarinnar og hvað
hann gæti gert. Afréð hann þvi
að segja konu sinni að hann ætl-
aöi sér ekki að vinna I nokkur ár
og hiin tók þvi vel. Settust þau
hjönin að i Chicago og sáu
tengdaforeldrar og vinir fyrir
þeim.og á þessu ári hefst köllun
Buckminsters Fullers.
Þrautseigja
Af mikilli þrautseigju hóf
hann að kynna sér tæknilegar
nýjungar i verkfræði, eðlisfræði
og fleiri greinum og komst að
þvi að eins og á stóð væri þörfin
mest fyrir einhvers konar ódýr
og góð hibýli. Um leið datt
honum i hug: „hvers vegna
fjöldaframleiða þeir ekki hús
eins og bila og flugvélár?”
Hann hugsaði lengi um á-
stæður og forsendur allar i
þessu máli.Hvers vegna skyldi
hús ekki vera létt en samt
sterkt? Fuller datt þá sérstak-
lega loftskipin gömlu i hug.Þau
voru létt og það var spenni-
kraftur fremur en massi sem
hélt þeim saman.En hús hans
yrði að gera úr einhvers konar
málmi og stál var of þungt.En
þá voru að koma fram
léttmálmar, en þeir voru þá
aðeins notaðir i smáhluti eins og
borðbúnað.Léttmálmar voru
það sem Fuller þurfti, — og þar
kemur fram sá hugsunarháttur
sem markað hefur feril hans æ
siðan: að gera meira með
minna. Léttmálmur var að
sjálfsögðu léttari en stál, —
minna fór fyrir honum og hann
gat i vissum tilfellum gert
meira.
Dymaxion-húsið
Fuller teiknaði þetta hús sitt
vegar ekki heyra það nefnt,
minnugir fjöldamorða Indó-
nesiustjórnar á kommúnistum
eftir fráhvarf Súkarnós á sið-
asta áratug. Leiðtogarnir hafa
hvað eftir annað lýst þvi yfir, að
þeir muni heldur berjast til sið-
asta manns og láta lifið en að
gefast upp fyrir innrásaröflum.
Benda þeir jafnframt á, að
engin ástæða sé fyrir Indónesa
til að gera innrás i austurhluta
Timor — og einstaka frétta-
maður segist sér virðast sem
Fretilin hafi dregið heldur úr
sjálfstæöiskröfum sinum að
undanförnu.
Stewart Richmond, frétta-
maður Reuters, sem um helgina
var I Dili, stærsta bæ á Timor,
segist hafa hitt fanga Fretilin.
Hafði hann eftir þeim, að allir
sem vettlingi gætu valdið, ungir
sem aldnir störfuðu að kartöflu-
rækt vegna matarskortsins.
A blaðamannafundi, sem
Fretilin hélt i Dili (Ibúar 30 þús-
und) I siðustu viku, sögðu leið-
togar hreyfin'garinnar, að bar-
dagar væru nú einvöröungu
bundnir við afmörkuð svæði.
Einn helzti herforingi Freti-
lin, Rogerio Lobato, sagði hóp
stuðningsmanna Apodeti og
UDT, sem greinilega hefðu tek-
ið höndum saman, hafa verið
umkringdan og liðsmenn hand-
tekna i Atsabe nærri indónes-
isku landamærunum.
Þá gat. Lobato einnig um
sem sexhyrning, það mátti færa
á milli héraða eða landa og það
framleiddi sitt eigiö rafmagn og
eyddi eigin sorpi á kemiskan
hátt. Vatn mátti nota aftur og
aftur. Hús þetta nefndi Fuller
,,Dymaxion”-húsið, úr orðunum
„dynamic” og „maximum”, —
en hann er frægur fyrir ást sina
á flóknum orðum, sem jafn-
framt gerir bækur hans mesta
torf á köflum.
í þann mund sem Dymaxion
hús Fullers kom á markaðinn
hófst kreppan mikla, 1929, og
enginn vildi lengur lita við hug-
myndum hans.Um skeið bjuggu
þau hjón I New York og Fuller
gaf út timarit með fjárhagsað-
stoð konu sinnar, þar sem hann
gerði tilraun til að breiða út
hugmyndir sinar um arkitektúr.
En brátt gleymdi hann sér er
hann sá hinn ömurlega raun-
veruleika i kringum sig.
Þúsundir manna sváfu á
götunum á meðan fjöldi
gamalla húsa stóð auður, og
hann og vinir hans hófu mikla
herferð fyrir þvi að endurbæta
það húsnæði, sem til staðar var,
og um skeið virtist áætlun
Fullers ætla að standast.En eins
og áður skemmdi skilningslaust
og seinvirkt skrifstofubákn fyrir
og áfram svaf fólk á götum New
York-borgar.
Dymaxion-bíllinn
Er versta kreppan virtist hafa
gengið yfir hóf Fuller aftur til-
raunir til endurbóta, — i þetta
sinn á bifreiðum.Hann notaði nú
hina gömlu hugmynd sina um
straumlinulögunina og teiknaði
bil með straumlinulagi og þrem
hjólum.t það sinnið fékk snjall
tæknifræðingur áhuga á málinu
og 1933 sást fýrsti Dymaxion-
billinn á götum.Lengi vel virtist
20—30 manna hóp vel vopnaðra
hermanna, sem náðst hefði til
nærri AtsabeJívað hann þá hafa
verið indónesiska hermenn.Máli
slnu til stuðnings sýndi hann
vopn, sem hann sagði hermenn
sina hafa tekið i sina vörzlu eftir
að nokkrir indónesiskir her-
menn höfðu flúið aftur yfir
landamærin.Tvær tegundir voru
bandariskar og ein itölsk.
Fréttamennirnir komu einnig
til bæjarins Maubisse, sem er i
miðhálendi nýlendunnar. Sögðu
fréttamennirnir, að sveitir eyj-
arinnar hefðu verið kyrrlátar og
friðsamlegar og að ibúar i þorp-
um og bæjum hefðu allir sem
einn rétt upp kreppta hönd sina i
stuðningi við Fretilin.
Forseti Fretilin, Francisco do
Amaral, sagði á áðurnefndum
blaðamannafundi, að UDT-
fangarnir væru látnir vinna til
hjálpar alþýðu landsins. Sagði
hann þá fást við að endurbyggja
hús stuðningsmanna Fretilin,
sem UDT-mennirnir höfðu
brennt og eyðilagt.Flest þeirra
húsa, sem enn standa i Mau-
bisse, þar sem mestu bardag-
arnir fóru fram, eru hús UDT-
manna.
„Við vildum ekki brenna
þeirra hús i hefndarskyni,”
sagði forsetinn, „þvi það heföi
einungis þýtt að við þyrftum að
byggja helmingi fleiri hús en
ella: ’
Fangar Fretilin sögðu frétta-
mönnum með aöstoð túlks, aö
gæfan blasa við Fuller og al-
menningur sýndi þessum nýja
bil gifurlega athygli. Hann var
rennilegur, hraðskreiður og auk
þess var hægt að leggja honum i
mjög litlu plássi.^n sem oftar
elti ógæfan Fuller, — ekið var á
bilinn á ferð og létust þeir sem i
hinum bilnum voru. Þegar
blaðamenn komu á vettvang
var þar aðeins að sjá
Dymaxion-bilinn, beyglaðan og
blóðugan, og þeir voru fljótir að
draga þá ályktun að hann væri
hættulegur.
Um skeið var Fuller aftur at-
vinnulaus. En ekki voru allir
jafnhræddir við hugarflug hans
og var hann ráðinn til Dodge-
bilaverksmiðjanna sem tækni-
legur ráðunautur um skeið.Þar
endurbætti hann bremsuborða
Dodge-bilanna stórlega, en
jafnframt vann hann heima hjá
sér við vandamál sem sótti æ
meir á hann með hverjum degi
sem leið, þ.e. sóun orkugjafa
heimsins sem gætu séð fyrir öllu
mannkyni. Þessar hugleiðingar
sinar gaf Fuller út I bók sem
nefndist „Nine Chains to the
Moon” árið 1938 og leggur hann
rika áherslu á að hin einu sönnu
auðæfi heimsins séu orka, ekki
gull eða silfur.
Bókin vakti ekki mikla athygli
og vonbrigði Fullers, ásamt
andrúmsloftinu við Dodge-
fyrirtækið olli þvi að hann lét af
störfum þar.Þá fékk hann starf
sem ráðunautur við hið virta
timarit „Fortune” og það leið
ekki á löngu uns það timarit
féllst á að Fuller skrifaði grein
um það sem lá honum næst
hjarta, orkumál.Og hann tók sig
til og lagði saman hversu mikla
orku væri að finna i heiminum
og skipti henni niður eftir
heimsálfum og löndum.Þessar
upplýsingar taldi hann að
maðurinn yrði að hafa, ætti
hann að nýta heimsorku til
framfara með aðstoð visinda.
Með nákvæmum útreikningi
fann hann einnig, að Evrópubú-
ar og Amerikumenn ættu sér
mun fleiri orkueiningar á mann
en Asiu- og Afrikulönd, og siðan
hannaði hann heimskort sem
sýndihvar helstu orkugjafa var
að finna og hvernig mætti best
nýta þá á hverjum stað.I beinu
framhaldi af þessu hannaði
Fuller nýtt heimskort sem hægt
var að nota flatt án rangfærslu á
hlutföllum landa og nefndi að
sjálfsögðu „Dymaxion”-kortið.
Það kort gaf „Life”-timaritið út
1943.
En 1940 hafði Fuller lika með
fjárhagsaðstoð kunningja sins,
fengiðfyrirtæki, sem framleiddi
sivalar korngeymslur úr létt-
málmi, til að framleiða
Dymaxion-hús með örlitlum
breytingum á steypumótum.
Bandariski herinn fékk nú
áhuga á slikum húsum og i
þeir fengju góða meðferð en
vantaöi mat.Fangaverðir þeirra
sögðu þá fá sama mat og aðrir
Blaðamennirnir fengu venju-
legan, alþýðlegan mat: hris-
grjón, kjöt og kartöflur.
Hvar sem áströlsku frétta-
mennirnir fóru um fagnaði fólk
þeim innilega og tók þeim sem
vinum, enda hefur ævinlega
verið gott samband á milli
Ástraliu og Timor.
Do Amaral, sem fór meö
fréttamennina um eyna, stanz-
aði við minnismerki, sem
Astraliustjórn færði ibúum
Timor i þakklætisskyni fyrir að-
seinni heimsstyrjöldinni voru
þau framleidd og send um allan
heim sem hibýli fyrir hermenn
i heitu loftslagi þar eð Fuller
hafði hannað þau með mjög full-
komna loftkælingu fyrir augum.
En er striðinu lauk og Fuller
vonaðist til að hús hans yrðu
notuð viðar, varð hann enn fyrir
vonbrigðum. Herinn ákvað að
einbeita sér að fjöldafram-
leiðslu litilla flugvéla fyrir fyrr-
verandi flugmenn, fremur en
húsa.
Geodesic-hvelfingin
En Fuller lét ekki bugast og
sökkti sér nú niður i stærðfræði
og geómetriu. Um 1947 hafði
hann lagt grundvöllinn að til-
raunum sinum með
„Geodesic”-hvelfinguna með
þvi að reikna út eðlisstrúktúr
mólekúla og spennuhlutföll i
uppbyggingu þeirra.Með þvi aö
hugsa um heiminn sem kúlu,
sem hægt væri að skipta niður i
jafnstóra þrihyrninga i utan-
máli, og jafnframt að frumhi-
býli mannsins voru i raun hálf-
kúlur, eins og meðal eskimóa,
indiána og margra
svertingjaþjóðflokka, — þá
taldi Fuller sig hafa uppgötvað
einhvers konar eðlilegt sam-
ræmi milli alheims og smæstu
eininga hans, sem hann taldi
eitt sönnunargagnið enn fyrir
þvi að veröldin væri ein órjúfan-
leg heild.Fuller reiknaði sömu-
leiðis út að hálfkúla, gerð úr
jafnhliöa þrihyrningum, gæti
spennuhlutfallanna vegna verið
léttasta og sterkasta bygging
sem hægt væri að hugsa sér, —
og einnig sú fljótbyggðasta.
Þarna hafði Fuller aftur tekist
að hugsa fyrir þvi hvernig
„mikið mætti gera með minna!’
Fuller gerði sjálfur tilraunir
með „Geodesic”-hálfkúlur i
kringum 1950 og tókst að reisa
þær samkvæmt áætlun. En i
nokkur ár gerðist ekkert,
arkitektar voru annaðhvort
vantrúaðir eða trúðu alls ekki —
en orðstir Fullers var mikill
meðal yngri kynslóðarinnar og
yngri arkitektúrnema.
Loksins, vinsældir
Loksins árið 1952 þurfti Ford-
fyrirtækið kringlóttan sýningar-
skála. Fuller kom á vettvang og
á fjórum mánuðum reisti hann
hálfkúlu af risastærð. Bygging
þessi vakti þegar heimsathygli
og betlidagar Buckminsters
Fullers voru á enda. Nú kom
NATO einnig til sögunnar og
þurfti hibýli þvert yfir norður-
hvel jarðar, sem hægt væri að
reisa á svipstundu, e.t.v. i 20
stiga frosti. Fuller kom til
hjálpar og hannaði 10 metra há
og 18 metra breið kúluhýsi sem
hægt var að setja saman á 14
stundum og stöðust vetrar-
stoð þeirra i siðari heimsstyrj-
öldinni.,,Nú beinum við augum
okkar til Ástraliu og biðjum um
hjálp,” sagði hann.
Fréttamennirnir sögðu einnig
frá þvi, að margir hefðu spurt á
bjagaðri ensku hvar áströlsk
hjálp væri nú, þegar þörf væri
fyrir hana.
Rafmagn, vatn, skolp og
simalinur eru i góðu lagi á
Timor en skortur á nauðsynja-
vörum verður mjög aðkallandi
vandamál áður en langt um
liður.
Astraliumaður nokkur, Frank
Favarro, sem hefur veriö i Dili
Flóttamenn frá Tfmor munu nú vera orönir um 4000. Hafa þeir not-
aö ýmsar aöferöir til aö flýja, m.a. smföaö litia pramma, rænt flug-
vél og svo framvegis. Flestir komu þó til Darwin i Ástralfu meö
norska flutningaskipinu Lloyd Bakke, alls 1155.
storma sem hvinu yfir á 160 km
hraða, — og þó voru þau úr áli
og plasti.
Hálfkúla Fullers breiddist nú
um veröldina eins og eldur i sinu.
1954 vann hún gullverðlaun
International Design-sýningar-
innar i Milanó og á vörusýning-
unni i Kabúl, Afganistan 1956
reisti Fuller sýningarskála
Bandarikjanna á tveim dögum,
með aðstoð ólærðra og ólæsra
verkamanna, — en sú hálfkúla
var 10 metra há og um 33 metr-
ar á breidd.
Heimspekingur og spá-
maður
Á sextugsaldri hafði
Buckminster Fuller loks tekist
að gera mannkyni gagn. Nú
hefði maður haldiö að hann
hefði getað dregið sig i hlé.En
það var langt frá þvi.
Hann hóf nú fyrirlestra-
ferðir um öll Bandaríkin og all-
an heim og lagði áherslu á að
hitta ungt fólk.Boðskapur hans
var: „varist að sérhæfa ykkur
um of, lærið að læra i
samhengi”, og jafnframt hvatti
hann ungt fólk til að beita öllum
sinum krafti til þess að vernda
umheim sinn, — og má þvi telja
Fuller einn af feðrum vistfræð-
innar. Hann hvatti ungt fólk og
vísindamenn til að hefja rann-
sóknir á framþróun mannsins á
jarðkringlunni sem heild, ekki
eftir löndum, þvi hann taldi að
með æ fullkomnari flugvélum
og samgöngum væri það gamal-
dags að hugsa aðeins i eining-
unni ,,land”. Hann hvatti unga
visindamenn til að einbeita sér
að endurbótum á heiminum
fremur en að gera vopn full-
komnari, — og sem oftar tók
hann sjálfan sig sem dæmi um
meðalmann sem hefði einbeitt
sér og gert hluti, og þvi ætti hver
maður að geta hjálpað til við að
bæta heimsmyndina. Maðurinn
átti umfram allt að vera ábyrg-
ur gagnvart umheiminum.
Og enn er Buckminster Fuller
á ferðinni, stjórnandi sinni eigin
„Heimsorkustofnun” sem gefur
út skýrslur af og til, hannandi
nýja heimsborg og siskrifandi
fræðibækur eða þá skáldskap.
Það eru menn eins og
Buckminster Fuller sem heim-
urinn þarfnast, ekki hershöfð-
ingjarnir og stjórnmálamenn-
irnir.En hvenær skyldi heimur-
inn skilja þá staðreynd?
Aöalsteinn Ingólfsson
Helstu heimildir:
Hugh Kenner — Bucky,
a guided tour of Buckminster
Fuller.
Sidney Rosen — Wizard of the
Dome
Alden Ilatch — Bucký, an
intimate biography
Buckminster Fuller — Ideas
and Integrity
siðan átök hófust þar, segir að
áður en langt um liði verði al-
gjör skorturá eldsneyti og mat-
vöru.
Fréttamaður Reuters skýrði
einnig frá þvi, að á yfirborðinu
virtist Dili tiltölulega óskemmd
borg þrátt fyrir bardagana, en
þó væru svæði, þar sem stór-
skotahrið eða eldur heföi lagt
hús i rúst.Þá munu einnig sjást
CCÖ7
merki um stórfellda þjófnaði úr
yfirgefnum húsum og verzlun-
um.
Og raunveruleg stjórn lands-
ins, portúgalska stjórnin. Hvað
um hana? Landstjórinn er flú-
inn ásamt helztu samstarfs-
mönnum sinum og i Lissabon
hafa menn of mikiö að gera til
að geta hugsað að nokkru gagni
um eldgamla nýlendu, sem að
auki hefur kostað um 320 millj
isl.króna árlega.