Dagblaðið - 25.11.1975, Page 9
Pagblaðið. Þriðjudagur 25. nóvember 1975.
9
TELGDIEG FORÐUM
TRÉ MEÐ EGG
um bók dr. Kristjóns
Eldjórns „Hagleiksverk
Hjálmars í Bólu".
Helgafell, 136 bls.,
með fjölda Ijósmynda
Nú eru islenskir bókmennta-
fræðingar farnir að gefa gaum
ýmsum minni háttar skáldum
aftan úr öldum, i þvi skyni að fá
breiðari yfirsýn yfir bók-
menntastarfsemi á hverjum
tima. En ennþá er stór hluti is-
lenskrar listsögu litt kannaður
af isl. fræðimönnum, eink-
anlega tréskurðurinn sem þó
stóð i blóma i hartnær þrjár ald-
ir i landinu. Dr. Kristján Eld-
járn er sá fræðimaður hérlendis
sem hvað mest hefur lagt af
mörkum hvaðþetta snertir, þótt
itarlegustu ritgerð um islenskan
tréskurð hafi að visu skrifað
danskur fræðimaður, Ellen
Marie Mageröy. Nú hefur dr.
Kristján enn bættúFiávöntuninni
islendinga megin með hinni
vönduðu bók sinni um tréskurð
Hjálmars Jónssonar frá Bólu.
Viðsvegar um landið eru
geymdir útskornir gripir, sem
kenndir hafa verið við Hjálmar,
og dr. Kristján skýrir frá þvi að
löngu fyrir 1960 hafi hann ihug-
að að safna þeim saman i eina
bók og gera grein fyrir hand-
bragði skáldsins. Þessi útgáfa
hefur dregist þar til nú og telur
dr. Kristján sig geta skilgreint
heildarsvipinn á hagleiksiðju
Hjálmars af þeim 55 gripum
sem hann hefur náð til, þótt
hann telji liklegt að fleiri verk
hans eigi eftir að koma i leitirn-
ar.
Vel rökstudd
Bók dr. Kristjáns er ekki
stássleg myndabók til flettingar
yfir kaffibolla, heldur vel rök-
studd fræðileg ritsmið, sam-
tengd góðum ljósmyndum, og
hefur Erna Ragnarsdóttir séð
um smekklegt útlit. En dr.
Kristján gæti ekki ritað þurrt og
leiðinlegt mál þótt hann reyndi
og lifgar þvi hinn knappi og
kjarnmikli ritháttur hans upp á
„corpus” skrá bókarinnar.
i stuttum inngangi rekur hann
tilurð þessarar bókar, fjallar
vill eigna Hjálmari og kemst að
þeirri niðurstöðu sem mér sýn-
ist rétt, — þ.e. að öll einkenni,
auk uppruna, bendi til handa
Hjálmars. 30 hluti i viðbót eign-
ar dr. Kristján svo Hjálmari og
eru þær ályktanir sömuleiðis
byggðar á ströngu stilfræðilegu
prófi og athugunum á uppruna
og eru niðurstöður höfundar i
hæsta máta sannfærandi. Að
visu freistast lesandi til að efast
um höfund verka eins og nr. 24,
41 og 53, þvi i þeim tilfellum eru
heimildir óljósar og stillinn
mjög frábrugðinn öðrum verk-
um Hjálmars. En þar sem höf-
undur hefur skoðað þessa gripi
náið, stendur hann mun betur að
vigi en við sem verðum að not-
ast við ljósmyndir. Einnig hefði
fávis lesandi gjarnan viljað fá
nánari útlistun á Nordalskistl-
unum svonefndu, en þeir eru
stór hluti af framleiðslu Hjálm-
ars. Var hann sá eini sem skar
kistla með þessu fyrirkomulagi,
þ.e. þrem láréttum bekkjum á
skreyttu flötunum fimm? Gam-
an hefði einnig verið að sjá
myndir af þeim tréskurði sem
liklegt er að Hjálmar hefði i
æsku getað lært eitthvað af.
Síðasti
alþýðutréskerinn
Vil ég að lokum vitna i lokaorð
dr. Kristjáns um stöðu Bólu-
Hjálmars i islenskri listsögu:
„Segja má að þjóðleg islensk
tréskurðarlist liði undir lok upp
úr miðri 19. öld og er þá merki-
legt skeið á enda runnið. Hjálm-
ar i Bólu var einn hinn siðasti
alþýðutréskeri sem var i órofn-
um tengslum við list sina sem
fornan feðraarf og tókst að gera
ágæta hluti i anda hinnar æva-
gömlu stilhefðar, ósnortinn með
öllu af nýjum erlendum áhrif-
um.” Vonandi mun dr. Kristján
finna tima til þess að gera nán-
ari grein fyrir þessari hefð.
um ævi Hjálmars og greinir sið-
an markvisst frá heimildum um
hagleik skáldsins i tré og járn.
Bróðurpartur bókarinnar er sið-
an skrá yfir verkin og i yfirliti
eftirá gerir dr. Kristján grein
fyrir ályktunum sinum.
1 skránni kemur fram að ekki
er til nema eitt verk, þ.e. Vida-
linsskápurinn i Þjóðminjasfni,
sem merkt er Hjálmari, en 14
aðrir gripir eru siðan traustlega
raktir til hans.
að Hjálmar fylgdi i flestu fornri
hefð útskurðar i notkun sinni á
teinungum og fléttum, en eins
og aðrir sjálfmenntaðir trésker-
ar fyrri alda var hann litt fyrir
mannsformið, eins og kemur
fram i skurði hans á „Syndafall-
inu”. En náin rannsókn á verk-
unum 15 leiðir i ljós nokkur per-
sónuleg einkenni Hjálmars, sem
eru til að mynda tið notkun á
hringflötum i enda teinunga og
skýrt, grunnt rist höfðaletur.
Hefðbundinn Siðan athugar dr. Kristján þá 10
Höfundur sýnir siðan fram á hluti til viðbótar sem sögusögn
BATÍK í BOGASAL
um batíksýningu Katrínar H. Ágústsdóttur
í Bogasal Þjódminjasafnsins
Batiklist er ekki ýkja gömul
hérlendis, en þó eru hér nokkrar
listakonur sem náð hafa um-
talsverðum árangri tæknilega
séð. Hins vegar hafa þær enn
verið mjög hefðbundnar i
myndefni sinu, litir þeirra hafa
jafnan jaðrað við sætleikann og
maður hefur haft það á tilfinn-
ingunni að möguleikar þessarar
listgreinar hafi enn sem komið
er ekki verið fullnýttir hér á
landi.
Á sunnudag lauk sýningu
Katrinar H. Ágústsdóttur á
batik i Bogasal Þjóðminjasafns-
ins. Sýndi hún 36 verk alls og
var framlag hennar að mörgu
leyti ánægjulegt, þótt ekki hafi
það að öllu verið laust við þá
galla sem nefndir eru hér að of-
an.
Gaman var að sjá batikkonu
takast á við efni eins og vél-
menningu, umferð, bila, há-
spennustaura og þ.u.l., og er
Myndlist
myndbygging Katrinar nokkuð
traust og teikningin sæmileg
þótt vart sé hún einstæð. At-
hyglisvert var einnig hvernig
myndefni hennar nálgast hið ó-
hlutbundna, eins og i nr. 1, 6, 7,
13, 14 o.fl., en þá leið finnst mér
að batikin ætti að fara oftar.
Aðrar myndir Katrinar voru
einnig vandlega útfærðar en all-
hefðbundnar, þótt stöku sinnum
brygði fyrir frumlegheitum,
eins og t.d. i „Flyðrur” (nr. 2).
Litum sinum heldur Katrin
yfirleitt i skefjum, en þó má inn
á milli sjá sætlegan viðkvæmn-
isblæ. Kannski að batik krefjist
lita sem slikra? Um það veit ég
ekki nægilega mikið.
Leiðrétting
Með grein Aðalsteins Ingólfs-
sonar um FfM sýninguna sið-
astliðinn laugardag var fyrir
mistök birt röng mynd. Hlutað-
eigendureru beðnir afsökunar á
þessum mistökum.
aumnoN
á^a
LEYNIVOPNIÐ UNDIR VÉLARHLÍFINNI
er nýtt sett af Championkertum. Fáið úr vélinni
þá orku sem henni er ætlað að gefa.
, Laugavegi 118 - Sími 22240
EGILL VILHJALMSSON HF
••••
TANDBERG
Ævintýraleg fullkomnun.
Um allan helm er Tandberg
segulbandstækjum
hrósað upp f hástert.
Enda bjóða þau upp á marga
möguleika, svo sem
sound-on-sound, ekkó o.fl.
en fyrst og fremst tóngæðl.
HAFNARSTRÆTI 17
SÍMI 20080
••••
TANDBERG
Ævintýraleg fullkomnun.
. Fjarstýrlng fyrlr elektrónlsku
Tandberg segulbandstækln.
HAFNARSTRÆTI 17
SÍMÍ 20080
••••
TANDBERG
Ævintýraleg fullkomnun.
Geymist þar sem lltlu börnln
ná ekkl til.
HAFNARSTRÆTI 17
SÍMÍ 20080