Dagblaðið - 07.07.1976, Page 12
12
DAGBLAÐIÐ — MIÐVIKUDAGUR 7. JULl 1976
Heilladísirnar ekki
hliðhollar Skaganum
— Skagamenn ferðast til Tyrklands, Keflavík fœr v-þýzka liðið
Hamborg og Fram lenti gegn Slovan Bratishva f rá
Tékkóslóvakíu í Evrópukeppnunum þremur, en drogið var í gœr
Gæfan hefur ekki verið hlið-
holl Skagamönnum þegar dregið
hefur verið í Evrópukeppni.
Skagamenn hafa þurft að ferðast
til Möltu og Kýpur, Kænugarðs —
og nú til Tyrklands. Já, hún brá
ekki út af vananum — Skaga-
menn drógust gegn tyrknesku
meisturunum Trabzonspor í
Evrópukeppni meistaraliða.
Keflvíkingar fá — eins og áður
— verðuga mótherja. Það er v-
þýzka liðið Hamborg SV í Evrópu-
keppni bikarhafa. A síðasta
Keppnin
í kvðld
Karlottkeppnin heldur áfram í
kvöld og möguleikar á íslenzkum
sigrum miklir. Klukkan 17 hefst
sleggjukast og stangarstökk. Kl.
18.30 hcfst 100 metra grinda-
hlaup kvenna og kúluvarp karla.
Síðan tekur ein greinin við af
annarri og mótinu lýkur með
boðhlaupum —4x400 metra
boðhlaupum karla og kvenna.
Ekki er að efa að áhorfendur
munu fjölmenna á Laugardals-
völlinn í kvöld. Talsvert var af
áhorfendum í gærkvöld og tóku
þeir þátt í mótinu af lífi og sál
enda keppnin jöfn og spennandi.
Það má því búast við földa
áhorfenda hvetjandi landann
áfram. Hvert sig er mikilvægt og
möguleikar á fyrsta sætinu í
mótinu, rétt eins og í Tromsö,
talsverðir.
st., Island 136 stig og Sv'iþjóð 126
stig. 1 kvennagreinum var
Noregur efstur með 72 stig,
ísland og Svíþjóð hlutu 70 stig, og
Finnland 63 stig. 1 karlagreinum
voru Finnar hins vegar jafnastir
— hlutu 81 stig, Norðmenn 72,
íslendingar 66 og Svíar 56 stig. I
kvöld heldur keppnin áfram —
keppni um sekúndubrot og senti-
metra.
Veður var ekki hagstætt til
keppni, þegar Kalott-keppnin
hófst — talsverð gola af suð-
austan og ekki sérlega hlýtt. Áföll
urðu hjá íslenzka liðinu. Stefán
Hallgrímsson gat ekki keppt í 400
m grindahlaupinu — grein, sem
hann hefði leikið sér að sigra í
eins og í fyrra — og Friðrik Þór
Öskarsson gat heldur ekki keppt í
langstökki vegna meiðsla. Vegna
þessara forfalla varð ísland af
mörgum stigum.
Fyrstu tvær greinarnar, 400 m
grindahlaup karla og kvenna,
voru ekki beint uppörvandi fyrir
hina íslenzku áhorfendur. Þó
fjórða og fimmta sæti þeirra Jóns
Sævars Þórðarsonar og Þorvaldar
Þórssonar — en í kvennahlaup-
inu voru íslenzku stúlkurnar
langsíðastar. Fyrsta skipti, sem
keppt er í 400 m grindahlaupi
kvenna á Kalott-leikum og þar
fengu hinar þjóðirnar sjö til tíu
stiga forskot á ísland.
En það birti fljótt tii. pjarni
Stefánsson og Sigurður Sígurðs-
son voru í tveimur fyrstu sætun-
um í 200 m hlaupi — Erna Guð-
mundsdóttir og Ingunn Einars-
dóttir i tveimur fyrstu sætunum í
100 m hlaupinu. 1 fyrri riðlinum,
sem lngunn hljóp í, áttu
keppendur í nokkrum erfiðleik-
keppnistímabili í Þýzkalandi var
það Hamborg sem veitti meistur-
unum Borussia Mönchengladbach
mesta keppni og hafnaði í öðru
sæti í þýzku Bundeslígunni.
með Hamborg — þar er í farar-
broddi júgóslavneski landsliðs-
maðurinn Oblak.
Framarar geta ekki kvartað
undan slökum mótherjum — þeir
mæta Slovan Bratislava frá
Tékkóslóvakíu í UEFA keppn-
inni. Nýlega urðu Tékkar Evrópu-
meistarar landsliða þannig að í
dag'eru Tékkar ,,fremsta“ knatt-
spyrnuþjóð Evrópu. Margir þeir
leikmenn er tryggðu Tékkum
Evrópumeistaratitilinn leika ein-
mitt með Bratislavaliðinu.
Öll íslenzku liðin eiga heima-
leikinn fyrst, um miðjan septem-
ber og leika síðan ytra í lok sept-
ember.
Evrópumeistararnir Bayern
Munchen fengu létta mótherja
— dönsku meistarana Köge.
Liverpool, ensku meistararnir
drógust gegn írska liðinu
Crusaders.
I UEFA keppninni drógust
mörg fræg lið saman — Man-
chester liðin United og City fengu
bæði erfiða mótherja. United fær
fyrrum Evrópumeistarana —
Ajax frá Amsterdam, City lenti
gegn Juventus frá Italíu. QPR
leikur gegn Brann, Noregi. Liðið
hans Atla Þórs Héðinssonar í
Danmörku, Holbæk ferðast yfir
landamærin til Þýzkalands —
leikur gegn Eintracht Brauns-
schweig.
Það var hrífandi að horfa upp i
stúkuna á Laugardalsvellinum i
gærkvöld, þegar hlaupararnir
geystust í mark í síðustu grein-
inni — 4x100 m boðhlaupinu .
Um þúsund áhorfendur voru allir
staðnir á fætur og hvöttu Bjarna
Stefánsson, sem hljóp lokasprett-
inn fyrir ísland, af öllum lífs og
sálar kröftum. Þegar Bjarni sleit
marksnúruna vel fyrstur var
fögnuðurinn innilegur — slík
stemmning hefur ekki verið á ís-
landi á frjálsíþróttamóti síðan á
gullöld íslenzkra frjálsiþrótta
fyrir rúmum 25 árum. Já,
hrifning var mikil á Laugardals-
vellinum — Kalott-keppnin er
ljúf keppni, hrífandi fyrir áhorf-
endur og keppendur. íslenzku
áhorfendurnir höfðu líka oft
tækifæri til að fagna. í sex
greinum af 16 sigruðu íslend-
ingar — og fimm þeirra sigra
voru í hlaupum — Finnar unnu í
fjórum greinum, Norðmenn og
Svíar í þremur greinum.
Þrátt .fyrir flesta sigra eru ís-
lendingar þó ekki efstir í stiga-
keppninni eftir fyrri daginn.
Noregur og Finnland hafa 144
Bretland, Kanada og Pólland
háðu landskcppni í frjálsum
íþróttum um helgina. Keppnin
fór fram á Crystal Palace í
Lundúnum — Bretland sigraði
bæði í karla og kvennagreinum.
Þó var fátt um fína drætti —en
keppnin skemmtileg. Kanada-
maðurinn Dave Hill kom talsvert
á óvart með sigri sínum í 1500
metra hlaupi — sigraði þar eina
helztu von Breta á Olympíu-
leikunum, Brendan Foster.
Hill fékk tímann 3.41.92 í 1500
metrunum, Foster 3.42.93. Þess
ber þó að geta að Foster hleypur
ekki í þessari grein í Montreal
heldur 5000 og lOOOO metrunum.
Englendingurinr. Geoff Capes
sigraði örugglega í kúluvarpinu,
varpaði kúlunni 20.83 — rúmum
tveimur metrum lengra en
keppinautar hans.
Pólverjinn Bronilav
Malinowski sigraði í 3000 metra
hindrunarhlaupinu — hann
sigraði Bretann Tony Staynings
örugglega í steikjandi sólinni.
Malinowski fékk tímanrt 8:22.48,
Staynings 8:28.48.
I þrístökkinu sigraði Bretinn
Alan Moore — stökk 16.41,
tveimur sentimetrum lengra en
Pólverjinn Jocchimowski —
16.39.
Bretar sigruðu Pólverja 106-103
í karlagreinum, fyrsti sigur
þeirra gegn Pólverjum. Þess ber
þó að geta að Pólverjar voru ekki
með sitt sterkasta lið. Kanada-
menn sigruðu Bretarnir með 127-
101. í innbyrðiskeppni Póllands
og Kanada sigruðu þeir fyrr-
nefndu með 1,31-71.
í kvennagreinum sigruðu
brezku stúlkurnar þær pólsku
með 74‘/4 gegn 7114 og þær kana-
dísku með 71-64. Kanadísku
stúlkurnar sigruðu þær pólsku
með .70-65.
Ingunn Einarsdóttir, IR, var mesti yfirburðasigurvegarinn i keppninni í g*r —
íslandsmet hjá Ingunni, sem hijóp á 56.6 sek., þrátt fyrir mikinn mótvind sióar
sek. Á DB-mynd Bjarnleifs að ofan sést Ingunn koma i mark — hreint Atrúlegi
Stemmning e
öld íslenzkra
— í Kalott-keppninni á Laugardalsvelli í gœrkvöld
Sigurinn kom mér
skemmtilega á óvart þar
sem ég hef ekkert getað æft
kúluvarp i tæpt ár, sagði
Guðrún Ingólfsdóttir frá
Hornafirði en hún sigraði í
kúluvarpi á Kalottkeppn-
inni í gærkvöld. Hún
varpaði kúiunni 11.48 og
skaut þeim Emmu Grönmo
og Pirjo Keraenen aftur
fyrir sig.
Ég hef ekkert getað æft í
tæpt ár vegna vinnu minnar.
Eins er aðstaðan á Horna-
firði ákaflega bágborin.
Hins vegar er ég ákveðin í
að æfa í vetur. Ég mætti á
æfingu í gær hjá Guðmund;
Þórarinssyni og varpaði þá
tæpa tólf metra. Það kom
mér mjög á óvart.
Ég bjóst þó ekki við sigri,
reiknaði með að Emma
Grönmo frá Noregi myndi
sigra.
I ^ ^ ^ ^
Guðrún Ingólfsdóttir -
ir sigurinn í gær.
DB-mynd Bjarnleifur.
í Kerlingarf jöllin
Skíðamarkaður:
Skíðafatnaður, 10% afsl.
Skíðaskór á börn frá kr.
3.000,-
Skíðaskór á fullorðna frá kr.
6.000.-
Moonboats kr. 3.900 (40%
afsl.)
20% afsl. af sumum
skíðagcrðum.
Parablack og
skíðastopparar
og margt, margt fleira.
Komméráóvort
Góðir sigrar Breta