Dagblaðið - 02.06.1977, Síða 16
16
Dj\GBLAÐIÐJIMMTIIDAGimi^Jmiian.
I
Iþróttir
Iþróttir
Íþróttír
Iþróttir
Hér spjaila þeir saman seinni dag keppninnar, Horður Gunnarsson,
formaður GS og enski atvinnumaðurinn Roger Mace. DB-mynd R. Lár.
Stórmikil breyting á
íslenzkri knattspvmu
Jú, jú, — íslenzkir knatt-
spyrnumenn eru orðnir miklu
betri en þeir voru i þau tvö skipti,
sem ég hef leikið hér áður, sagði
Alan Bail, heimsmeistari 1966,
með sínum skræka málróm, þegar
við náðum tali af honum eftir
ieikinn í gær. Hann iék hér áður
bæði með Arsenal og Everton —
og hann bætti við. Það eru margir
bráðefnilegir knattspyrnumenn í
íslenzka liðinu. Sérstaklega var
ENGINN FOR HOLUIHOGGI
EN EINN DATT í LUKKUPOn
Að vanda voru verðlaun í opnu
Dounlopkeppninni, sem haldin
var í Leirunni um hvitasunnu,
hin glæsilegustu. En tlestir þátt-
takendurnir munu þó hafa
hugsað það sama er þeir bjuggu
sig undir upphafshöggin á par-
þrjú brautunum. Það er að segja
„skyldi mér takast það í þetta
sinn? Skyidi mér takast það
ótrúlega, að slá holu í höggi?“
Það var til mikils að vinna.
Dunlop-umboðið á ísiandi,
Austurbakki hf. hafði tilkynnt
það við upphaf keppni að þeim
sem tækist að slá holu í höggi í
keppninni skyldi verða boðið til
Englands i suiiiar og miði á
Úrslit í 2. deild
Haukar fengu Þrótt R. i
heimsókn á Kaplakrikavöll í gær-
kvöld í 2. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu. Haukar sigruðu 2:1.
Mörk Hauka skoraði Guðjón
Sveinsson bæði i f.h. og var hann
jafnframt einn bezti maður
liðsins.
Stefáni Stefánssyni tókst að
minnka mun Þróttar í 2-1 í s.h.
Ilalldór Arnason leikmaður
Þróttar fékk að sjá gula spjaldið.
A ísafirði léku ÍBl og KA.
Akureyringar sigruðu 1-0. hjóns.
DUNLOP-OPEN en sú keppni
þykir með þeim merkustu á ári
hverju.
En það hafði enginn heppnina
með sér í þetta sinn. Margir fóru
nærri, en enginn gat hrósað
happi..og þó.
Árni Árnason, forstjóri Austur-
bakka hf. tilkynnti i mótslok, að
hann hefði ákveðið að láta ekki
verðlaunin falla niður og til-
kynnti að Herði Gunnarssyuni,
formanni Golfklúbbs Suðurnesja
væri hér með boðin þessi ferð,
enda ætti hann það margfalt
skilió fyrir frábæra frammistöðu
sína i þágu Golfklúbbs Suður-
nesja og golfíþróttarinnar i heild.
Það mátti heyra á dynjandi lófa-
taki viðstaddra að þeir voru á
sama máli og Árni.
Atvinnumaðurinn enski, Roger
Mace, tók til máls í mótslok og
kvaðst mjög ánægður með fram-
kvæmd, mótsins, gólfvöllinn i
Leiru og síðast en ekki sízt kvað
hann það hafa komið sér á óvart
hve Islendingar ættu góðum
kylfingum á að skipa. Hann sagði
það engum vafa undirorpið að
meðal þeirra væru efni í atvinnu-
menn og bauðst til að hjalpa þeim
sem áhuga hefðu að kynna sér
atvinnumennskuna sem bezt
hann gæti og væru þeir vel-
komnir til sín til Englands.
Áhugamaðurinn vann atvinnurnanninn:
UNGUR KYLFINGUR
EN EKKIÓREYNDUR
Kylfingurinn ungi sem sigraói
árezka atvinnumanninn Roger
Mace á opnu Dunlop-keppninni
um hvítasunnuna er aðeins tví-
tugur að aldri, verður 21 árs í
sumar. Hann heitir Magnús
Halldórsson og er félagi i Golf-
klúbbnum Keili.
Magnús sagði fréttam. DB að
keppni lokinni að hann hefði
Tvö mörk Kenny Dalglish og
skailamark Gordon McQueen
gáfu Skotum öruggan sigur gegn
Norður-írum í brezku meistara-
kcppninni i gær. Leikið var í
Glasgow. Dalglish skoraði fyrsta
markið eftir 9 mín. eftir mistök
Alan Hunter. Síðan skoraði
McQueen eftir aukaspyrnu
Masson, og Dalglish skoraði
síðasta markið undir lokin eftir
góðan leik Lou Macari, sem kom
inn sem varamaður fyrir Jordan.
Norður-írar leika hér i Reykjavik
11. júní.
Búlgaría sigraði Irland í 5. riðli
HM í Evrópu 2-1 i Sofia í gær.
Áhorfendur 65 þúsund. Panov
skoraði fyrir Búlgaríu á 14. mín.
Don Givens jafnaði á 47. min. en
Zhelyazkíiv skoraði sigurmarkið á
76. min. Staðan i riðlinum.
Búlgaría 2 110 4-3 3
Frakkland 3 111 4-3 4
írland 3 1 0 2 2-4 2
Fjórir leikmenn voru reknir af
velli á 15 síðustu mín. leiksins.
Martin og Campell hjá írlandi, en
Zhelyazkov og Borissov frá
Búlgaríu en mikil taugaspenna og
skaphiti einkenndi leikinn.
notið þess að leika á móti svo
góðum golfleikara sem Roger
Mace. Það hefði veitt sér mikið
aðhald og krafizt fyllstu ein-
beitni. Magnús er svo sem enginn
nýliði í golfíþróttinni og þetta
mót var ekki fyrsta opna mótið
sem hann vinnur. 1975 vann hann
opnu Uniroyal-keppnina og sama
ár vann hann Replogle-cup. Þegar
Magnús var spurður hvort hann
hefði áhuga á að gerast atvinnu-
maður kvaðst hann ekki hafa
hugsað það mál en hann mundi
heilsa upp á Roger Mace, ef hann
yrði einhverntíma á ferð í Eng-
landi. -rl.
Magnús Halldórsson eins og
Ragnar Lár sá hann i keppninni.
Einnig bauð hann Herði Gunnars-
syni að dvelja hjá sér á meðan
Englandsdvöl hans stæði yfir og
leika á þeim golfvöllum, sem
hann væri í tengslum við.
Eins og fram hefur komið í
fréttum, varð Roger Mace í öðru
sæti í Dunlop-keppninni, ásamt
Þórhalli Hólmgeirssyni. Roger
sagði að erfiðast yrði fyrir sig að
sTtýra það fyrir eiginkonu sinni
þegar heim kæmi hvernig hann
hefði farið að því að tapa fyrir
eskimóa í golfi. -rl.
ég hrifinn af þessum stóra,
hrokkinhærða (Gísli Torfason).
Geta íslenzku knattspyrnu-
mannanna kom mér talsvert á ó-
vart. Það hefur orðið hér ntikil
breyting frá því ég lék hér með
Tottenham gegn Keflvíkingum í
Evrópukeppninni, sagði Ralph
Coates, hinn viðfelldni utherji,
sem oft sýndi góða takta í leikn-
um með sitt flaksandi.þunna hár.
Við áttum ekki möguleika gegn
þessum strákum eins og í pottinn
var búið. Það er útilokað að gpta
ekki hitað upp fyrir leik.
Jú, ég lék hér með Liverpool
1965, sagði Ian Callaghan, annar
af Evrópumeisturum Liverpooi.
íslendingar leika mun betri
knattspyrnu nú en þá, en fleira
gátum við ekki fengið upp úr
Callaghan. Hann var greinilega
ekki sáttur við tapið. Kannski
skiljaniegt eftir hina miklu sigur-
göngu Liverpool á leiktímabilinu.
____________________ -hsim.
Danir unnu
Danir sigruðu Norðmenn í
landsleik í knattspyrnu í gær I
Osló 0-2 Flemming Lund og Jan
Sörensen skoruðu mörk Dana.
Áhorfendur 8.700. Norðmenn
leika hér í Reykjavik 30. júní.
b ■ ■■ ■ r ■ Þriðja mark lisins skoraði Sören
Afll nfif* C|fft|<}l|‘ Lindsted. t heimaleik Holbæk þar
■ Wl wIlVI Hl á undan sipraði liðið Randers
Atii Þór Héðinsson, fyrrum
miðherji KR, hefur gert það gott
með Holbæk í 1. deildinni dönsku
að undanförnu. Verið fastamaður
í liðinu og skorað talsvert af
mörkum. A sunnudaginn sigraði
Holbæk Fredrikshavn 3-1 á
heimavelli. Atli Þór skoraði
fyrsta mark leiksins á 18. min.
Fredrikshavn jafnaði á 57. mín.
Skömmu síðar brauzt Alti Þór í
gegn, en var felldur aftan frá
innan vitateigs. Vítaspyrna, sem
Jörgen Jörgensen skoraði úr.
á undan sigraði liðið Randers
Freja með 2-0. Preben Olsen og
Atli Þór skoruðu mörk Holbæk.
Eftir umferðina á sunnudag, þá
elleftu í 1. deild, er Holbæk um
miðja deild með tíu stig. Óðins-
vé.aliðið OB er efst með 20 stig og
hefur komið mjög á óvart. Unnið
9 leiki, gert tvö jafntefli. Randers
er i öðru sæti með 15 stig, og
Kaupmannahafnarliðið B1903 i
þriðja sæti með 14 stig ásamt
AGF, Arósum. Neðst er B1909,
Óðinsvéum og AaB, Alaborg, með
sex stig.
£*> Handboltapunktar
í'ísTon frá V-Þýzkalandí
3'
Axel
Axelsson
Úrslitaleikurinn sá mest
spennandi sem um getur!
Dankersen í maí
Geysileg fagnaðarlæti
brutust út meðal leikmanna og
áhangenda GW Dankersen að
loknum úrslitaleiknum gegn
TV Grossvallstadt, sem leikinn
var í Dortmund. A meðan
leikmenn Dankersen dönsuðu
striðsdans á fjölum iþrótta-
hallarinnar horfóu leikmenn
Grossvallstadt örvilnaðir og sár-
óánægðir hver á annan. Þeir
höfðu svo sannarlega ástæðu til
þess. Eftir að hafa leitt mest
allan leikinn var sigrinum
hreinlega stolið frá þeim á
siðustu sekúndunum. Vítakast
réð úrslitum þessa leiks. Víta-
kast, sem flestir aðdáenda
Grossvallstadt voru ósáttir við
og að ieik loknum ruddist
drukkinn lýðurinn að dómur-
unum tveimur og áttu þeir fullt
í fangi með að verjast ágangi
fólksins.
Fyrir undirritaðar var hér um
réttlátan dóm að ræða. Brotið
var gróflega á fyrirliða Danker-
sen, Hans Kramer, þegar hann
stökk inn úr horninu þrjátíu
sekúndum fyrir leikslok. Hátt á
áttunda. þúsund áhorfendur
voru í Dortmund-höllinni.
Flestir frá Minden og Gross-
vallstadt. Sjónvarpið var sér-
staklega gagnrýnt. Það hafði
auglýst með þriggja vikna fyrir-
vara að sjónvarpað yrði beint
og vafalaust hefur það dregið
úr aðsókn frá Dortmund og
nágrenni.
Þessi síðasti „alvöru" úrslita-
leikur í sögu þýzks handknatt-
leiks — næsta ár verður
Bundeslígan sameinuð — var
að margra áliti sá mest
spennandi, sem um getur.
Dankersen tók forustuna til að 1
byrja með og hélt henni fyrstu
15 mínúturnar. Grosvallstadt
tók þá við forustuhlutverkinu.
Komst yfir i 6-5. Yfirleitt
skildu 1-2 mörk liðin að — en
alls var þó 13 sinnum jafnt i
leiknum. Þegar 13 mín. voru til
leiksloka virtust úrslit ráðin.
Grossvallstadt var 15-13 yfir og
Buddenbohm vísað af leikvelli
í fimm mínútur. Dankersen
tókst þá að verjast vel þennan
kafla og halda jöfnu 2-2. Jafnað
var síðan í 17-17 og eftir það
skildi eitt mark liðin að upp í
20-20 eða þar til Dankersen
tókst að komast framúr og
sigra.
Stærstu tromp Grossvallstadt
í þessum leik voru Kliihspiess
og Sinsel. Þeir félagar skoruðu
fjórtán af tuttugu mörkum
liðsins. Dankersen-liðið átti
ekki sinn bezta dag að þessu
sinni. Sérstaklega var varnar-
leikurinn slakur og ekki bætti
úr skák, að markvörðurinn Nie-
meyer náði aldri að sýna sitt
rétta andlit. I sóknarleiknum
ber helzt að nefna Gerd Becker,
sem átti sennilega sinn bezta
leik með Dankersen. Hann hélt
liðinu alveg á floti á þýðingar-
miklum augnablikum i síðari
hálfleik.
Að leik loknum varlandsliðs-
þjálfarinn Vlado Stenzel
auðvitað i sviðsljósinu. Haft var
sjónvarpsviðtal við kappann
beint frá höllinni, en því varð
að hætta í miðju kafi, þar sem
mannfjöldinn ruddi Stenzel um
koll. Hann hafði þó þetta að
segja um leikinn: — Dankersen
vann þennan leik fyrst og
fremst vegna þeirrar reynslu
sem liðið hafði frá úrslita-
leiknum í fyrra. Leikmenn
liðsins höfðu hreinlega sterkari
taugar en leikmenn Grossvall-
stadt á lokamínútunum og því
varð Dankersen Þýzkalands-
meistari 1977.
Auf Widersehen
Axel Axelsson.
Af einhverjum ástæðum
tafðist þetta bréf í pósti.
-hsím.
Grund, Dankersen, fer ómjúkum tökum um Sinsel, Gross-
vallstadt. Waltke til hægri.