Dagblaðið - 04.11.1978, Qupperneq 24
í GÆZLU, GRUNAÐ-
UR UM STÓRFELLD
TRYGGINGASVIK
Forstjóri fiskvinnslufyrirtækisins kveðinn upp hjá bæjarfógetaembætt- tryggingasjóði. Nefndar eru milljónir i Jón Eysteinsson, bæjarfógeti í
Heimis i Keflavik var í gær inu í Keflavik. Það var í fyrradag að sambandi við þetta mál. Keflavík, vildi ekki tjá sig um málið,
úrskurðaður í allt að tíu daga gæzlu- Rannsóknarlögreglu ríkisins barst Hallvarður Einvarðsson, vísaði á Hallvarð Einvarðsson og vildi
varðhald vegna gruns um stórfelld málið frá fógetaembættinu í Keflavik. rannsóknarlögreglustjóri rikisins, engar tölur nefna í sambandi við þetta
svik hans tengd atvinnuleysis- staðfesti í samtali viö DB í gærkvöld meinta svikamál.
tryggingasjóði. Lék grunur á að útgerðarmaðurinn að úrskurður þessi hefði verið kveðinn -ÓV/ASt
Gæzluvarðhaldsúrskurðurinn var hefði svikið stórfé út úr Atvinnuleysis- Upp
Málverkakaup sendiherrans:
„Ég bjargaði
myndinni frá að
lenda á uppboði”
— segir Ingvi S. Ingvarsson, sendiherra í
Stokkhólmi, um kaupin á Kjarvalsmyndinni
Á borgarstjórnarfundi í fyrrakvöld
var frá þvi sagt, að Kjarvalsmálverk
sem hússtjórn Kjarvalsstaða hefði
samþykkt að kaupa, hangi nú á vegg
sendiherra Islands í Stokkhólmi, sem
ætlað hefði að kaupa verkið fyrir
Kjarvalsstaði en síðan keypt það
sjálfur.
„Þetta er nú málum blandið,” sagði
lngvi S. Ingvarsson í samtali við DB
frá Stokkhólmi. „Ég skal útskýra þetta
mál, sem er einfalt. í mars eða april í
vor kom til mín sænsk kona, sem hafði
verið á íslandi og eignazt þar mynd
eftir Kjarval. Nú var hún í fjárþröng
og vildi því selja myndina. Ég skrifaði
utanrikisráðuneytinu heima og benti á
að verkið væri til sölu og hvort ráðu-
neytið vildi kanna áhuga opinberra
aðila á Islandi á kaupum á verkinu.
Svo gerist það nokkuð löngu seinna,
að listráð Kjarvalsstaða sýnir þessu
áhuga. Þeir báðu um upplýsingar
varðandi verð og annað þvi að lútandi
og einnig myndir af málverkinu. Þetta
fengu þeir. Seljandinn var síðan alltaf
að reka á eftir málinu, en að heiman
bárust mér engin svör, enginn áhugi.
Um miðjan október keypti ég svo
myndina, því annars hefði hún lent á
uppboði og hver veit þá hvar hún
hefði lent.
Af minni hálfu og ráðuneytisins
heima var talsvert rekið á eftir þessu
máli, en það bar engan árangur.
Annars vissi ég ekki að það væri frétt-
næmt, þótt menn keyptu sér mál-
verksagði sendiherrann.
„En hvað kostaði svo þetta
málverk?”
„Það fer ég ekki að segja þér,” sagði
Ingvi S. Ingvarsson. -ÓV.
Féll5metra L
niður í lest V
Tuttugu og tveggja ára gamall maður ofan af þilfari niður I lest, alls um 5
var I gser lagður I gjörgæzludeild metra fall. í fallinu slengdist höfuð
Borgarspítalans eftir slys i sambandi við mannsins i gám á millidekki og hlaut
uppskipun i Sundahöfn. hann af mikið höfuðsár. Ekki var hægt
Lngi maðurinn var við vinnu við að fá upplýsingar um meiðsli mannsins
Múlafoss. Gekk hann aftur á bak og féll áður en DB fór i prentun. Sv.Þ/ASt.
fáfclAílita
Fannst látinn
í fangaklefa
— hafði hengt sig íbelti sínu, sem ekki hafði
verið tekið af honum
Tuttugu og fimm ára gamall maður,
sem lögreglan handtók í fyrrinótt
vegna ölvunar, fannst í gærmorgun
látinn í fangaklefa í lögreglustöðinni
við Hverfisgötu. Til að stytta líf sitt
hafði maðurinn notað belti sitt að
sögn lögregluyfirvalda.
Njörður Snæhólm yfirlögreglu-
þjónn hjá RLR og Bjarki Elíasson yfir-
lögregluþjónn í Reykjavík staðfestu
báðir í samtali við DB að óvenjulegt
væri að menn sem settir væru í fanga-
geymslu á Hverfisgötu fengju að hafa
belti sitt með í fangaklefana. Væri það
þó tiðkanlegt þegar lögreglumenn
þekktu til fanga og teldu þá „rólega”
menn. Svo var í þetta sinn. Maðurinn
var handtekinn um klukkan 2 í fyrri-
nótt, var einn i stórum klefa um
nóttina, en fannst látinn er fanga-
verðir huguðu að föngum í gær-
morgun. -ASt.
frfálst, úháð dagblað
LAUGARDAGUR 4. NÓV. 1978.
Fundurfhússtjórn
Kjarvalsstaða:
Listamenn
mættu
ekki
Fundur var haldinn I gær um hádegið
í hússtjórn Kjarvalsstaða. Fulltrúar
Félags islenskra myndlistarmanna
höfðu verið boðaðir á hann til þess að
ræða bann það sem sett hefur verið á
húsið. En listamennirnir létu ekki sjá sig.
Ómögulegt reyndist I gær að ná í
fulltrúa þeirra til þess að skýra frá hvers
vegna.
Á fundinum voru einnig lagðar fram
þær umsóknir sem borizt hafa um stöðu
listfulltrúa við húsið. Enginn fulltrúi úr
hússtjóminni var hins vegar viðlátinn er
DB reyndi að ná í þá, til þess að vita
hverjir sóttu um en DB hefur fregnað að
ómögulegt reynist að fá fulltrúana til að
skýra frá þvi, jafnvel þó náist í þá.
-DS.
Sýningf
Menningarstofnun:
Hinn
amerfski
eldhús-
draumur
Bandaríska sendiráðið og samband
islenskra innflytjenda og heildsala
gangast I næstu viku fyrir vörusýningu í
húsnæði Menningarstofnunar Banda-
rikjanna á Neshaga 16 í Reykjavík.
Sýningin verður opnuð á þriðjudaginn
og stendur í þrjá daga. Opið verður milli
kl. lOog 16.
Á sýningunni, sem verður fólgin í
sýningu á sýnishornum, sjónvarps-
myndum og kynningarbæklingum, sýna
tuttugu og sjö bandarísk fyrirtæki
heimilistæki af ýmsu tagi.
Ameríkanar eru frægir fyrir ýmis
hugvitsamleg hjálpartæki til heimilis-
nota. Verða slík tæki uppistaðan í
sýningunni. Sýnd verða rafmagns-
heimilistæki, ýmsir hlutir til nota við úti-
veru, punt af ýmsu tagi, borðbúnaður,
baðherbergistæki, baksturs'- og eldunar
„græjur” og fleira í þeim dúr. Fjölmörg
bandarísku fyrirtækjanna vilja í leiðinni
ná sér í umboðsmenn á íslandi.
-ÓV.
Kaupið^V
TÖLVUR. í
I* OGIÖLVI
BANKASTRÆTI8