Dagblaðið - 10.01.1980, Page 4
4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 1980.
FLUGVÉLAMÓDEL
ny-
komin
Fokker Friendship
Boeing 707
Boeing 707
Boeing 727
Boeing 737
Boeing 747
Vickers VC 10
Douglas DC-9
Douglas DC 10
Airbus A 300
Concorde
Lockheed Tristar
Boeing 747
Douglas C—47, DC—3
1/72 2.980
1/125 3.370
1/144 2.240
1/144 3.450
1/144 1.250
1/144 3.450
1/144 2.240
1/144 1.250
1/144 3.450
1/125 5.885
1/144 3.770
1/144 3.770
1/125 5.885
1/48 13.970
módclbúöinl
SUÐURLANOSBRAUT 12 SÍMI 32210 ■
—MÁLASKÓLI 26908—
• Danska, enska, þýzka, franska, ítalska,
spænska og íslenzka fyrir útlendinga.
• Innritun daglega ki. 1—7 e.h.
• Kennsla hefst 14. janúar.
26908 HALLDÓRS
Næst síðastí innrrtunardagur.
Allar viðgerðir bíla og stillum bflinn með
fullkomnustu tækjum.
Pantið tima I tima.
Einnig bjóðum við Ladaþjónustu
LYKILL"
Bifreiðaverkstæði
Sími 76650. Smifljuvagi 20 - Kóp.
STEINSTEYPUEININGAR í
/
EININGAHÚS
7) BTGGIK6ARIIJAH Hl
í ✓ Sfmi 36660 Pósthólf 4032.
11 Breiðhöfða 10,124 Reykjavfk.
Njörður „ekki HreykiniT:
Deilur um mynd
listina / lista-
hátíðamefnd
— aðrir þættir ákveðnir
Nú virðist ljóst að á næstkomandi
Listahátíð verður enga meiri háttar
myndlistarsýningu að Tinna, en þá
ályktun má draga af ummælum
ýmissa starfsmanna hátíðarinnar.
„Rétt er það — eg er ekki hreyk-
inn af því hvernig myndlistarmálin
hafa gengið fyrir sig,” sagði Njörður
P. Njarðvík, formaður hátíðarinnar.
,,Hins vegar er allur annar undirbún-
ingur kominn vel á veg. Til dæmis
hefur öll tónlist á hátíðina verið
ákveðin. Að myndlistinni undanskil-
inni, erum við betur stödd í undir-
búningi en aðrar Listahátíðir hafa
verið í áraraðir”.
Norræna húsið eitt hefur skipulagt
sína myndlist fyrir hátiðina, þ.e.
sýningu á teiknaranum Storm P. sem
varla verður talinn til merkari mynd-
listarmanna þótt skemmtilegur sé. En
þær stofnanir sem atkvæðamestar
hafa verið á þessu sviði undanfarin
ár, Kjarvalsstaðir og Listasafn
íslands, hafa hvorugar tekið
ákvarðanir um listsýningar.
Nú eru u.þ.b. fimm mánuðir til
stefnu og eru allir málsmetandi menn
á þessu sviði sammála um það að
vegleg myndlistarsýning, sérstaklega
ef hún á að marka einhverja stefnu,
þurfi a.m.k. árs aðdraganda og
undirbúningsvinnu, þ.á m. vinnslu
Njörður P. Njarflvik: „Allt skipulagt
nema myndlistin.”
sýningarskráa og annarra gagna.
„Allt annað en handarbakavinna”
sagði einn viðmælenda blaðsins.
Eins og kunnugt er, stóð til um
tíma að sýna verk Diters Rot að Kjar-
valsstöðum á hátíðinni, en sú tillaga
var endanlega felld í byrjun desem-
ber. Undirbúningur þeirrar sýningar
virðist hafa einkennzt bæði af skipu-
lags-og sambandsleysi, ef marka má
samtöl DB við hina ýmsu aðila sem
Hildur Hákonardóttir — „Mikil and-
staða gegn sýningu Diters.”
að henni áttu að standa. Vísuðu þeir
hver á annan varðandi ábyrgð.
Er Hildur Hákonardóttir vefari,
sem vann að því að fá sýningu Diters
hingað til lands, var að þessu spurð,
kvað hún þyngst á metunum að mjög
sterk andstaða hefði verið gegn sýn-
ingu hans frá upphafi meðal hinna
ýmsu nefndarmanna.
-AI.
Norræna menningarritið F 15 Kontakt:
HELGAÐ ÍSLENZKRI
MENNINGU 0G LISTUM
M . p 15 KONTAKT ■ Sept. 1979 • Smtm. UUad
„Dagblaðið hefur gerbreytt hefð-
bundinni íslenskri blaðamennsku og
sýnt að fjöldi fólks vill gjarnan blað
sem er pólitískt frjálst. Blaðið er óháð-
frjálslynt, byggir að miklu leyti á
andsósíalískum skoðunum, græðir ekki
á ofbeldi og klámi, en höfðar til les^
enda fyrst og fremst með vökulli, —
ákveðinni og gagnrýnni pólitískri
blaðamennsku, ekki án skilnings á
pólitískum hneykslismálum sem hingað
til hafa mikið til verið bannhelgir hlutir
að hreyfa við. Blaðið gefur framlagi
lesenda gott rúm ásíðum sínum.”
Þannig m.a. kynnir Ivar Eskeland,
fyrrum forstjóri Norræna hússins,
Dagblaðið í grein sinni um „Dagblöð á
íslandi — barn vorra tíma” í norska
ritinu F 15'Kontakt. Síðasta blaðársins
1979 er helgað íslandi að öllu leyti,
fyrst og fremst íslensku lista- og
mennfngarlífi.
Útgefandi blaðsins er Galleri F 15 i
Moss. Ritstjórinn heitir Lars Brand-
strup en honum til aðstoðar við útgáfu
blaðsins var fjöldi Tslendinga sem
þekkingu hafa á málunum. Má þar
nefna Hörð Ágústsson, Braga Ásgeirs-
son listmálara, Svein Einarsson leik-
hússtjóra, Aðalstein Ingólfsson menn-
ingarritstjóra DB, Arnar Jónsson leik-
ara, Þóru Kristjánsóttur forstöðumann
Kjarvalsstaða, Ólaf Kvaran list-
fræðing, Erik Sönderholm forstöðu-
mann Norræna hússins, Kristínu H.
Pétursdóttur bókasafnsfræðing,
Þorkel Sigurbjörnsson tónskáld, Hall-
veigu Thorlacíus kennara, Einar
Hákonarson skólastjóra Myndlista- og
handíðaskólans, Ingu Huld Hákonar-
dóttur blaðamann DB og Harald
Gústafsson sem starfar við Sagnfræði-
stofnun Stokkhólmsháskóla.
Meðal efnis í blaðinu er grein um
stöðu kenna á íslandi eftir lngu Huld
Hákonardóttur. Greinin byggist upp á
viðtali við Silju Aðalsteinsdóttur
rauðsokku og Ernu Ragnarsdóttur
arkitekt og virkan meðlim í Sjálf-
stæðisflokknum. Þær skiptast á
skoðunum um kvennabaráttuna.
Þá skrifar Ragnar Arnalds, fyrrum
menntamálaráðherra, inngangsorð að
blaðinu og segir þar m.a. að sjálfstæði
tslands byggist fyrst og fremst á
íslenskri menningu. ARH