Dagblaðið - 01.04.1981, Síða 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. APRÍL 1981.
Hákon Björnsson, forstjóri Kísiliðjunnar:
„ Vil átelja vinnubrögð
Heilbrigðiseftirlitsins”
—fyrirhvernig
staðiðvar
að birtingu
mengunar-
skýrslunnar
„Ég var fyrst að fá skýrsluna í
hendur í dag og vissi reyndar ekki að
birting hennar væri vaentanleg fyrr en
rétt áður en byrjað var að lesa upp
úr henni í ríkisfjölmiðlunum.
Vinnubrögðin við birtinguna vil ég á-
telja. Það virðist svo sem forráðamenn
Heilbrigðiseftirlitsins hafi varðað
mestu að koma óorði á fyrirtækið með
því að gefa okkur ekki kost á að skoða
skýrsluna áður en hún var birt opinber-
lega.”
Hákon Björnsson framkvæmda-
stjóri Kísiliðjunnar hafði þetta að segja
í gær um margumrædda skýrslu
Heilbrigðiseftirlits ríkisins um mengun
í verksmiðjunni.
„Ég ræddi við Hrafn V. Friðriksson
forstöðumann Heilbrigðiseftirlitsins
fyrir skömmu og starfsmaður þess var
hér á ferð á fimmtudaginn. Hvorugur
minntist á það einu orði að til stæði að
fara að gefa út þessa mengunarskýrslu.
Ég ætla síður en svo að halda því
fram að hér sé allt í himnalagi í
mengunarmálum. En á síðastliðnum
þremur árum hafa verið gerðar umtals-
verðar umbætur til að hindra
rykmengun. Staðhæfingar í skýrslunni
virðast hins vegar byggjast á allt að
þriggja ára gömlum upplýsingum.”
Hákon sagðist búast við að stjórn
Kísiliðjunnar myndi senda frá sér at-
hugasemdir við skýrsluna að lokinni
yfirferð yfir hana.
Sigurður Rúnar Ragnarsson,
starfsmaður í Kísiliðjunni:
„Erum hneykslað
ir og svekktir”
„Starfsmenn eru hneykslaðir og
svekktir yfir að fá þetta framan í sig
eftir að hafa, ásamt stjórnendum fyrir-
tækisins, lagt sig fram um að koma í
veg fyrir mengun. Heilbrigðiseftirlitið á
að vera okkar sverð og skjöldur, en
eftir að hafa séð þetta verður lítið mark
tekið á plöggum frá þeirri stofnun í
framtíðinni,” sagði Sigurður Rúnar
Ragnarsson starfsmaður í Kísiliðjunni í
Mývatnssveit í gær. Hann var lengi
trúnaðarmaður Verkalýðsfélags Húsa-
víkur á staðnum og situr í stjóm
Kísiliðjunnar.
Talsvert fjaðraflok hefur orðið út af
mengunarskýrslu Heilbrigðiseftirlits
ríkisins um Kísiliðjuna í Mývatnssveit,
en eins og sagt var frá í frétt DB í gær
telur stofnunin að forráðamenn fyrir-
tækisins hafi staðið illa í stykkinu við
við að bæta úr slæmu mengunará-
standi af völdum starfseminnar.
Leggur Heilbrigðiseftirlitið til að
starfsleyfi verksmiðjunnar verði endur-
skoðað af þessum sökum. Eyjólfur
Sæmundsson forstöðumaður Vinnu-
eftirlits ríkisins andmælti í sjónvarps-
viðtali um síðustu helgi meginniður-
stöðum Heilbrigðiseftirlitsins og taldi
þær byggjast á úreltum upplýsingum.
Fyrir daga Vinnueftirlitsins vann
Eyjólfur m.a. að því á vegum
Heilbrigðiseftirlitsins að rannsaka
mengunarmálin í Kísiliðjunni og síðan
á vegum Vinnueftirlitsins.
„Það tekur því tæplega að gagnrýna
efnislega einstök atriði í skýrslunni, svo
fráleit er hún,” sagði Sigurður Rúnar
starfsmaður Kísiliðjunnar.
„Nægilegt er að vísa til ummæla
Eyjólfs Sæmundssonar.”
Á árunum 1977 og 1978 voru aö
sögn Sigurðar gerðar umfangsmiklar
mengunarmælingar í Kísiliðjunni í
samvinnu við sænska vinnueftirlitið.
Kom í ljós að rykmengun var langt yfir
leyfilegum mörkum. Við útskipun
framleiðslunnar í Húsavíkurhöfn
reyndist mengun vera allt að
fimmtánfalt meiri en hættumörk
leyfðu, en í verksmiðjunni allt að tífalt
meiri en hættumörk leyfðu.
„Að þessum niðurstöðum fengnum
var ráðizt í dýrar mengunarvarnir og
starfsháttum breytt til að ráða bót á
þessu. Starfsmenn sjálfir eru
sannfærðir um að mikill árangur hafi
náðst. í maí næstkomandi er ætlunin
að gera hliðstæðar mælingar og 1978
til að kanna hvort sú sannfæring fáist
ekki staðfest,” sagði Sigurður Rúnar
Ragnarsson. -ARH.
Ríkisskip annast
strandflutninga
fyrir Hafskip
Nýverið gerðu Ríkisskip og
Hafskip h.f. með sér sérstakan
þjónustusamning sem felur í sér að
Ríkisskip sér að mestu leyti um alla
strandflutningaþjónustuHafskipsh.f.
Á síðastliðnum 3—4 árum hefur
verið unnið að endurskipulagningu
og eflingu strandferðaþjónustu
Ríkisskips. Höfuðmarkmið þess er
að bjóða landsmönnum upp á ódýra
en markvissa flutningaþjónustu
innanlands og greiða þannig fyrir
lágu vöruverði, segir í frétta-
tilkynningu frá Ríkisskip og Hafskip
h.f.
Samstarfssamningurinn við Haf-
skip h.f. er mikilvægur áfangi á þess-
ari leið og einnig stærsti flutninga-
samningur sem Ríkisskip hefur gert
til þessa.
Ríkisskip er nú með þrjú skip, sem
annast strandflutningaþjónustu,
Esju, Heklu og Coaster Emmy.
Með þessu nýja fyrirkomulagi
eykst þjónusta við viðskiptaaðila
Hafskips hf. á landsbyggðinni til
muna.
Það er mat Ríkisskips og Hafskips
hf„ að sú verkaskipting, sem í
samningnum felst hafi þjóðhagslegt
gildi og umtalsverðan sparnað í för
með sér sem svarar milljónum
nýkróna.
-S.M.
„Umtalsverðar umbætur til að hindra rykmengun á siðustu þremur árum,” segir
framkvæmdastjóri Kísiliðjunnar við Mývatn. Myndin er af starfsmönnum við út-
skipun kisilgúrs frá verksmiðjunni. DB-mynd: EÓ.
Þegar ný lög um hollustuhætti og
aðbúnað á vinnustöðum tóku gildi um
áramótin síðustu færðist um leið eftirlit
með innri mengun í Kísiliðjunni, þ.e.
sem varðar vernd sjálfs starfsfólksins,
frá Heilbrigðiseftirliti til Vinnueftirlits
ríkisins. Eftir sem áður fylgdist
Heilbrigðiseftirlitið með ytri mengun,
frárennsli, útblæstri, og þvílíku.
Hákon taldi að forstöðumanni
Heilbrigðiseftirlitsins væri „ekkert um
nýja fyrirkomulagið gefið”. Það gæti
verið ástæðan fyrir þvi að ákvörðun
var tekin um að „hreinsa borðið” í
Heilbrigðiseftirlitinu með skýrslunni.
-ARH.
Áskrrftarsími
Eldhúsbókarinnar
er 2-46-66
PANTAIMIR OSKAST
SÓTTAR SEM FYRST
ÚDÝR EINANGRUN
Nú bjóðum við einnig upp á
mjög góða hijóðeinangrun í
ti/sniðnum mottum í stærðinni
31/2"x 57 cm x243 cm.
Hih vinsæia
6"og3 1/2
g/eruliar-
einangrun
m/áipappa
komin aftur
HUSEINANGRUN
Sound Control Batts
AUÐBREKKU 44-46. SÍMI 45810. (Ekifl inn frá Nýbýlavegi).
FBONSK FYRIRTÆKI
LLHTAÐ
ÍSLPKKUM
UMBOPSMOMNUM!
Vörukynningar miðvikudaginn 1. apríl kl. 14-17 og
fimmtudaginn 2. april kl. 14-20 í Kristalssal, Hótel