Dagblaðið - 24.07.1981, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ1981.
12
1
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Iþróttir
DB á Evrópumeistaramóti unglinga í golfi á Grafarholtsvelli í gærdag:
ísland náði „aðeins 9.
sæti þrátt fyrir framfarir
—f lestar þjóðimar bættu sig geysijega f rá fyrri deginum, en aðeins þremur
höggum munaði að ísland kæmist í A-riðílinn
Þrátt fyrir að islenzka sveitin bœtti
árangur sinn um fjögur högg i gær frá
fyrri degi höggleikskeppninnar á
Evrópumeistaramóti unglinga i golfi í
Grafarholtinu dugði það ekki til. Hinar
þjóðirnar bættu sig fiestar miklu meira
LOKA
■ ■
1. Svíþjóð 744 högg
2. írland 748 —
3. V-Þýzkaland 760 —
4. Ítalía 767 —
5. Spánn 769 —
6. Frakkland 775 —
7-8. Danmörk 777 —
7-8. Noregur 777 —
9. ísland 780 —
10. Sviss 789 —
11. Finnland 811 —
12. Holland 813 —
13. Austurríki 817 —
14. Belgía 828 —
Fjóra undir
eftirfjórar
Það var e.t.v. ekki að undra þótt A.
Hogan frá írlandi léki völlinn á 69
höggum í gær jafn frábærlega og hann
fórnúaf stað.
Hann sló inn á flöt á l. braut og lék
hana á tveimur höggum — „eagle”.
Aðra og þriðju braut lék hann á pari en
náði svo aftur „eagle” á 4. brautinni.
Var því kominn fjórum höggum undir
pari eftir 4 brautir. Lék þær 14 sem
eftir voru á tveimur yfir pari og þau
högg komu strax á 5. brautinni — lék
hanaáó, par4braut.
Allir undir 80!
Svíarnir voru með langjafnasta liðið
af öllum i höggleikskeppninni. Þeir
voru eina þjóðin þar sem allir keppend-
urnir, 6 að tölu, léku undir 80 höggum
báða dagana.
■ i— inrap—w——
og þegar upp var staðið i gær kom i ljós
að ísland hafnaði I 9. sæti — þremur
höggum á eftir Norðmönnum og
Dönum. Sárgrætilegt eftir góða
frammistöðu.
Það hefði nægt íslandi að vera jafnt
Dönum og Norðmönnum að högga-
fjölda, 777 högg, því lakasti
Norðmaðurinn og Daninn voru lakari
en Gunnlaugur Jóhannsson sem átti
lakasta árangur íslendinganna. Það
hefði gilt ef öll liðin hefðu orðið jöfn.
Daninn hefði þá orðið í 9. sæti og
Norðmaðurinn í 8. ísland þá í 7. sæti.
En það var þetta gamla og um leið
mikilvæga ef, sem öllu skipti og því
Mikið frafár greip um sig hjá v-
þýzku fararstjórninni á mánudag, er
einn keppendanna, Jung að nafni,
fannst ekki á flugvellinum en hann
komst ekki til landsins fyrr en þá.
Flugleiðir hafa oft gert mönnum
grikk og að þessu sinni var vélin á
var ekki að heilsa i gær. ísland verður
því að sætta sig við að leika um bezta
sætið í lakari hópnum. Óneitanlega
nokkur vonbrigði eftir það sem á
undan vargengið.
Það fór fljótlega kliður um gesti í
Grafarholtinu er í ljós kom að
Frakkinn J.C. Gassiat kom inn á nýju
vallarmeti, 69 högg, á sama tíma og
fyrsti íslendingurinn, Gylfi Kristinsson
kom inn á 79 höggum. Þar voru 10
högg farin í baráttunni við Frakkana.
Vonflestra brást er Sigurður
Sigurðsson, GS, kom inn á 82 og var
„saltbrældur”yfir frammistöðu sinni.
„Eg lék bara alls ekki vel,” sagði hann
undan áætlun aldrei þessu vant. Fóru
þeir því á mis, Jung og Þjóðverjarnir
sem ætluðu að taka á móti honum.
Stráksi lét það engin áhrif hafa á sig og
komst af eigin rammleik upp í Grafar-
holt og var byrjaður að æfa úti á velli
er forráðamenn þýzka liðsins komu
þangað stormandi i öngum sinum.
og bætti svo við snemma dags: „Ég
vona bara að ég verði með lakasta
skorið.
Honum varð ekki að ósk sinni því
Gunnlaugur Jóhannsson náði sér ekki á
strik og kom inn á 83 höggum og þá
þyngdist brúnin á flestum enn frekar.
„Ég náði alls ekki að pútta
almennilega," sagði Gunnlaugur og
var greinilega ekki ánægður með spila-
mennsku sína.
Sigurður Pétursson, sem undi.r-
ritaður fylgdist með 18 holurnar i gær,
kveikti neistann á ný er hann lauk 18
holunum á 74 höggum eftir að hafa
verið á pari vallarins eftir fyrri 9
holurnar.
Magnús Jónsson lék mjög yfirvegað
allan timann og lét ekkert á sig fá og
þegar hann hafði lokið við að einpútta
á 16. flöt kváðu við öskur og klapp á
12. flötinni þar sem Sveinn Sigurbergs-
son náði „fugli” með snilldarpútti.
Sveinn var aðeins 2 yfir pari eftir 12
holur og Magnús var 6 yfir parinu og 2
holur eftir. Vonir manna fengu byr
undirbáðavængi.
Magnús lauk 17. og 18. brautinni á
pari af öryggi og Sveinn hélt sínu striki,
þar til á 17. braut. Þar þurfti hann 4
högg á brautina, sem er par 3, og á
18. braut varð hann að taka víti eftir að
hafa lent á gersamlega ósláanlegum
stað í teighögginu. Notaði 5 högg á
hana og kom inn á 76 höggum.
Menn biðu í ofvæni í tæpar 20
mínútur eftir niðurstöðunni og
vonbrigðin voru augljós er hún kom í
ljós. ísland ekki á meðal átta efstu
þjóðanna. Það er þó engin ástæða til
að vera óánægður með 9. sætið, því
upphaflega var stefnan sett á 9.—11.
sæti og flest bendir til þess að sá
árangur náist.
-SSv.
Árangur
íslendinganna
— Sigurður Pétursson
beztur
Árangur íslenzku kylfinganna i
höggleikskeppninni varð sem hér segir:
högg
Sigurður Pétursson, GR 77 + 74=151
Magnús Jónsson ,GS 78 +77 =155
Gylfi Kristinsson, GS 77 + 79 = 156
Sveinn Sigurbergsson, GK 82 + 76 = 158
Sigurður Sigurðsson, GS 80 + 82=162
Gunnl. Jóhannsson, NK 80 + 83=163
Siggi Pé. átti aldrei
möguleika gegn McHenry!
— írinn lék af frábæru öryggi allan tímann, þrátt fyrir harða keppni Sigurðar Péturssonar
Það blés ekki byrlega fyrir Sigurði
Péturssyni i gær er hann hafði lokið við
fyrstu þrjár brautirnar. Hann var þá 2
höggum yfir pari, en írinn McHenry
var þá einu undir pari. ,,Ég hef bara
ekki fengið „bogey” á fyrstu brautina i
mörg ár,” sagði Sigurður forviða í
gær. DB fylgdist með þeim köppum 18
holurnar á enda.
Báðir náðu auðveldu pari á 22.
braut en á 3. brautinni missti Sigurður
annað högg er hann lék á 5. McHenry
á 4. Sigurður lék síðan 4. brautina á
„fugli” en írinn gerði sér lítið fyrir og
fór á „eagle” og var þremur undir pari.
Báðir fóru 5. brautina á parinu, en á 6.
braut náöi Siguröur fram hefndum frá
deginum áður.
Báðir slógu þeir inn á í teighöggi en
Sigurður einpúttaði á sama tíma og
McHenry þripúttaði. í raun hans einu
mistök allan hringinn. Sigurður á pari,
McHenry 2 undir.
Óheppnin elti Sigurð á 7. braut.
Teighöggið lenti í sandgryfju. Hann sló
upp úr mjög laglega en bara til að fara
ofan í þá næstu. Lék á 5 en írinn á
parinu, 4. Sigurður náði fallegum
„fugli” á 8. braut og var því aftur á
parinu, en frinn hélt sínu striki og lék á
parinu og var 2 undir áfram. Sigurður
náði síðan höggi af McHenry á 9.
braut. Lék á parinu, 4 en írinn á 5.
Sigurður á pari, McHenry 1 undir.
Báðir náðu pari á 10. eftir að hafa
verið utan flatar í teighöggi. Á 12.
braut varð Sigurður að taka víti er
teighöggið brást og hafnaði utan
brautar. Það kostaði „bogey” en írinn
náði „fugli”, 4. Báðir léku 13.
brautina á pari án erfiðleika, en
Sigurður hafnaði á ný utan brautar á
14. braut. Sló í grjót í 2. höggi sinu og
beygði 9-járnið sitt fyrir vikið. Missti
af parinu— lék á 5, en frinn hélt sínu.
Sigurður 2 yfir, McHenry 2 undir.
Fimmtánda brautin var meistara-
smíð Sigurðar á hringnum. Innáskot
hans var „perfect”. Boltinn hafnaði
aðeins um fet frá holu af 80 metra færi.
frinn hafnaði einum 5 fetum frá.
Sigurður náði „fugli”, en frinn tók
parið. Sigurður missti síðan unnið högg
á næstu braut efdr misheppnað inná-
skot. írinn lék hins vegar á pari að
vanda.
Óheppnin elti Sigurð svo á 17.
braut. Hann hafnaði á erfiðum stað i
teighöggi og varð að slá þvert á
brautina í öðru höggi vegna grjóts fyrir
framan hann. Fór þó á 4, en McHenry
á parinu. Báðir náðu svo átakalausu
pari á 18. brautinni. Lokastaða.
Sigurður Pétursson 74 högg, McHenry
69.
-SSv.
írinn A. Hogan lék á 69 höggum og jafnaði vallarmet GassiaL
DB-mynd HK.
FRAMFARIR
— allar þjóðimar bættu sig
Framfarir þjóðanna frá
fyrra degi höggleiksins voru
hreint ótrúlegar. ísland náði
að bæta sig um ein 4 högg,
en það var aðeins smáræði I
samanburði við flestar
hinna þjóðanna.
Svíar bættu sig um 6
högg, írar um 14, V-
Þjóðverjarnir um 24, ítalir
um 17 og Spánverjar um
heil 37 högg!! Frakkar um
23, Norðmenn um 7, Danir
um 17, Sviss um 1, Finnar
jm 23, Hollendingar um 9,
Austurríkismenn um 15 og
Belgar um 24, en höfnuðu
samt langneðstir.
Svflnn Antevik
var sterkastur
— varð höggi á undan A. Hogan
Það varð Sviinn Antevik
sem náði beztum
samanlögðum árangri báða
dagana i Grafarholtinu.
Hann lék 36 holurnar á 143
höggum og það er sama
skor og bezti maðurinn, J.
Rassmussen frá Danmörku,
lék á i Þýzkalandi í fyrra.
A. Hogan frá írlandi
kom næstur með 144 högg,
þá Frakkinn J. C. Gassiat
ásamt íranum McHenry á
146 höggum. Þessir þrír
síðasttöldu léku allir á 69
höggum í gær sem er vallar-
met. Göran Knutsson frá
Svíþjóð kom næstur á 148
höggum og síðan
Þjóðverjinn van der Schalk
á 150höggum.
Sigurður Pétursson var
beztur íslendinganna á 151
höggi í 12.-15. sæti ásamt
ekki ófrægari mönnum en
Walton frá írlandi og
Dananum Rasmussen og
Þjóðverjanum Jung.
Vallarmet!
Frakkinn J.C. Gassiat
setti vallarmet i Grafar-
holtinu i gær er hann lék á
69 höggum. frinn McHenry
jafnaði það svo nokkru
síðar og annar íri, A.
Hogan, gerði svo einnig
siðar í gær.
'■/T'l'M'ó,
y> '?* '
■
Magnús Jónsson lék yfirvegað allan tfmann og athugar hér
púttlinuna.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 24. JÚLt 1981.
21
D
Iþróttir
jþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Fram sló Keflvíkinga út f bikarkeppni KSI:
Sigur bikarmeistaranna
hékk á bláþræði f lokin
„Þetta var spennandi leikur og
betra liðið sigraði, þó tvisýnt væri i
lokin. Ég á ekkert óskalið i undanúr-
slitum. Bæði liðin úr 2. deild, Fylkir og
Þróttur, hafa náð góðum árangri, þar,
en ég vona að Fram leiki við Vest-
mannaeyinga i úrslitum keppninnar,”
sagði Hólmbert Friðjónsson, þjálfari
Fram, eftir að iið hans hafði slegið
Keflvíkinga út i keppninni á
Fögruvöllum i gærkvöld. Fram sigraði,
1—0 og likur á að Hólmbert verði að
ósk sinni með mótherja i úrslitum..
Eftir leikinn var dregið i undanúrslitin.
Fram og Vestmannaeyingar leika við
liðin i 2. deild i undanúrslitum.
í hörku-skemmtilegum leik Fram og
Keflavíkur munaði sáralitlu að Kefl-
víkingum tækist að koma knettinum í
mark Fram og komast i framlengingu.
Spennan var hreint ótrúleg síðustu fimm
mínúturnar. Keflvikingar lögðu allt i
að reyna að jafna og tvívegis bjargaði
markvörður Fram, Guðmundur
Baldursson, af snilld. Fyrst komst Óli
Þór Magnússon frír inn fyrir vörn
Fram. Guðmundur lokaði marki sínu
með úthlaupi og varði skot Óla Þórs.
Og á lokaminútunni vann Guðmundur
mesta einstaklingsafrek leiksins.
Ragnar Margeirsson átti hörkuskot á
markið rétt undan markteig efst í
markið en á einhvern undrahátt sveif
Guðmundur upp og sló knöttinn yfir.
Glæsilegt — og nokkrum sekúndum
síðar voru Keflvíkingar hársbreidd frá
því að jafna. Áhorfendur náðu vart
andanum, svo mikil var spennan.
Framliðið sterkara
En ekki var gangur leiksins þannig
yfir höfuð, síður en svo. Fram-liðið
lengstum sterkara og verðskuldaði
sigur, jafnvel þó svona litlu hafi munað
i lokin eins og áður er lýst.
Leikurinn byrjaði strax af miklum
krafti. Mikill hraði og aldrei gefið eftir.
Varnirnar þéttar hjá báðum liðum og
því ekki mikið um opin tækifæri. En
leikurinn var skemmtilegur fyrir
Óskadráttur
stórliðanna
Það var sannarlega óskadráttur 1.
deildarliðanna i gær, þegar dregið var
til undanúrslita i bikarkeppni KSÍ.
Bikarmeistarar Fram komu fyrstir úr
hattinum, síðan Reykjavikurmeistarar
Fylkis. Fram-Fyikir ieika því saman
annars vegar en Þróttur, Reykjavik,
fær Vestmannaeyjar. Nafn Þróttar
kom á undan svo leikurinn verður í
Reykjavik. Undanúrslitin eiga að fara
fram 5. ágúst en þar sem báðir leikirnir
verða í Reykjavík verður annar
leikurinn annað hvort þriðjudaginn 4.
ágúst eða fimmtudaginn 6. ágúst.
Ef að líkum lætur verða það Fram
og Vestmannaeyingar, sem ieika til úr-
slita i bikarkeppninni 30. ágúst.
Leikmenn þessara liða vanmeta þó
örugglega ekki mótherja sina í
undanúrslitum. Bæði Fylkir og Þróttur
hafa slegið út lið úr 1. deild, Fylkir,
Breiðablik og Þróttur FH. -hsim.
fjölmarga áhorfendur og ekki laust viö
að þeir væru fleiri, sem studdu við
bakið á Keflvíkingum. Fram þó
sterkara liðið, það fór ekki á milli
mála. Á 20. mín. átti Pétur Ormslev,
bezti útspilari Fram, hörkuskot á mark
Keflavíkur, sem Þorsteinn landsliðs-
markvörður Bjarnason varði mjög vel.
Sló knöttinn yfir. Á 28. min. slapp
mark Keflvíkinga ótrúlega vel. Eftir
hornspyrnu Péturs skallaði Sverrir
Einarsson knöttinn yfir Þorstein og
boltinn virtist á leið í fnarkið. En hann
lenti í neðanverða þverslána og skall
niður á völlinn. Þar tókst varnarmanni
að spyrna frá á síðustu stundu.
Þá fengu Keflvíkingar sitt eina
opna færi í fyrri hálfleiknum. Spyrnt
var inn í vítateig Fram. Ragnar stökk
hæst og hafði markið opið fyrir framan
sig. Knötturinn kom aðeins við varnar-
mann og fór rétt framhjá stöng. Mark
lá íloftinuogFramskoraði.
Guðmundur Steinsson átti allan
heiður af þvi. Fékk knöttinn á
vinstri kaiiti, lék upp að enda-
mörkum og þar á tvo varnarmenn
Keflavikur, og síðan inn að
markinu, meðfram endamörkunum
og þegar hann var kominn vel inn i
vftateiginn spyrnti hann aftur til
Péturs Ormslev, sem var aiveg frir
innundir markteignum. Pétur lét
ekki slikt tækifæri fara framhjá
sér. Skoraði með föstu skoti sem
Þorsteinn, frábær markvörður, átti
ekki möguleika á að verja.
Síðari hálfleikurinn var tíðinda-
minni lengi framan af. Aldrei þó neitt
gefið eftir en þeir yfirburðir, sem Fram
hafði haft í fyrri hálfleik, voru ekki
lengur fyrir hendi. Þó var sókn þeirra
þung um tíma, hornspyrna eftir
hornspyrnu, en Keflvíkingar komust
hjá marki. Svo fóru þeir að koma
meira inn í myndina. Reyndar hafði
Fram í lok fyrri hálfleiks átt að ná
tveggja marka forustu. Snögg sókn og
Trausti Haraldsson og Marteinn Geirs-
son voru allt í einu orðnir fremstu
menn. Fengu knöttinn frá kantinum,
Trausti gaf á Martein en þetta tók það
langan tíma, að Sigurði Björgvinssyni
tókst að komast fyrir spyrnu Marteins.
Um miðjan síðari hálfleik var
Ómari Ingvarsson klaufi að jafna ekki
fyrir Keflavík. Komst einn inn fyrir
vörnina efdr snögga sóknarlotu.
Aðeins Guðmundur markvörður tii
varnar en Ómar skaut laust og illa
framhjá markinu. Hinum megin var
hætta, þegar Guðmundur Steinsson var
allt í einu frír innan vítateigs, en Þor-
steinn hirti knöttinn af tám hans. Svo
kom hinn æsandi lokakafli, sem áður
er lýst. Spennan í hámarki en
herzlumuninn vantaði hjá Kefl-
víkingum að jafna.
Skemmtilegur leikur
1 heild var leikurinn með
skemmtilegri leikjum sumarsins og 2.
i deildarlið Keflvíkinga reyndi svo
sannarlega á taugar bikarmeistaranna.
En Keflavík er heldur ekkert 2. deildar-
lið á íslenzkan mælikvarða, þó örlög
þess hafi verið að falla niður í fyrra-
haust. Sigurður Björgvinsson bezti
maður liðsins. Hreint frábær í þessum
leik. Þorsteinn var öryggið sjálft í
markinu þó honum tækist ekki að koma
í veg fyrir mark Péturs. í framlínunni
bar Ragnar af en naut alltof lítillar
aðstoðar. Gisli Torfason er traustur
varnarmaður, þó æfingin sé ekki hin
1 sama og áður eftir langa fjarveru. Óskar
Færseth gerði góða hluti sem bakvörður.
Pétur
Fram.
Ormslev, skoraði sigurmark
Keflavík hlýtur að leika í 1, deiid
næsta keppnistímabil.
Fram lék sinn 12. bikarleik í röð án
taps og lék mjög yfirvegað og vel
lengstum í gær. Pétur Ormslev yfir-
burðamaður og Guðmundur
markvörður sýndu snilli sína í lokin,
þegar mest reið á. Guðmundur Steins-
son alltaf hættulegur í framlínunni,
Marteinn traustur í vörninni og Sverrir
Einarsson, sem lék við hlið hans, átti
sinn bezta leik með Fram. Gunnar
Guðmundsson dugnaðarforkur að
venju, og sama er að segja um Hafþór
Sveinjónsson. Var bókaður í leiknum
— eini leikmaðurinn sem fékk að sjá
gulaspjaldiðhjá VillaÞór. -hsím.
Frábær árangur á stúdentaleikjunum í f r jálsum íþróttum:
Kínverji með mótsmet
í þrístökki —17,32 m
Hreint frábær árangur hefur náðst í
frjálsíþróttakeppninni á 11. stúdenta-
leikjunum í Rúmeníu. Mest á óvart
hefur komið árangur Kínverjans Zou
Zhengaib í þrístökki. Hann sigraði og
stökk 17.32 metra, sem er nýtt móts-
met á stúdentaleikum. Gamla metið
átti Willie Banks, USA, 17.23 m, sett á
le>unum í Mtxíkóborg fyrir tveimur
árum.
Banks meiddist i forkeppninni nú
og gvt ekki keppt i úrslitum. Tv.Jr
kappar, Volkov og Polakov, báðir
Sovétríkjunum, reyndu við nýtt heims-
met í stangarstökki, 5.82 metra, en
tókst ekki. Polokov felldi 5.75 m i
fyrstu tilraun, lét hækka í 5.80, siðan
5.82 m og átti eina tilraun við hvora
hæð. Var alls ekki iangt frá því að fara
yfir. Volkov, sem haiói tryggt sér
gullið, beið á meðan og reyndi síðan
við 5.82 m.
Kinverjar hafa komiö mjög
á óvart á stúdentaleikunum. Hlotið sex
guliverðlaun i hinum ýmsu greinum.
Rúmcnar hæstir með 10 gull og hefur
Nadia Comaneci hiotið fern í
fimleikum. Þá eru það úrslitin í frjálsi-
þróttakeppni karla:
Þrístökk
1. Zou Zhengxiab, Kína, 17.32
veir reyndu við nýttl
2. Bela Bakosi, Ungverjal. 16.97
3. Keith Connor, Bretlandi, 16.88
4. Alex. Beskrovny, Sovét. 16.87
5. Adrian Ghioroaie, Rúmeníu, 16.55
6. Vladimir Chernikov, Sovét, 16.53
Hástökk
1. Leo Williams, USA, 2.25
2. Zhu Jianhua, Kína, 2.25
3. Gerd Nagel, V-Þýzkalandi 2.25
4. Daniel Temin, Júgóslavíu, 2.22
5. Josef Hrabal, Tékkóslóv. 2.27
6. Alexey Demyanyuk, Sovét, 2.18
1500 m hlaup
1. Said Ouita, Marokkó, 3:38.43
2, Vinko Pokratic, Júgósl. 3:39.83
3. Amar Brahimia, Alsír, 3:39.85
1. Jim Spivey, USA, 3:40.12
5. Ab. Morcelli, Alsír, 3:40.42
6. Andreas Hauch, A-Þýzkal. 3:40.62
100 m hlaup
1, Mel Lattanyk USA, 10.18
2. Calvin Smith, USA, 10.26
3. Ernest Obeng, Chana, 10.37
4. Nikolai Sidorov, Sovét, 10.40
5. Istvan Nagy, Ungverjal. 10.45
6. Theo Nkounkoo, Kongó, 10.45
400 m grindahlaup
1. David Lee, USA, 49.05
2. Smitry Shkarupin, Sovét, 49.52
3. Antonio Ferreira, Brasilíu, 50.04
Róbert ökklabrotnaði
í leik með 1. flokki
— Miðvörðurinn sterki hjá Víking leikur varla meir á þessu
keppnistímabili
Einn af þekktustu knattspyrnu-
mönnum Víkings, Róbert Agnarsson,
miðvörður og fyrírliði meistarafiokks
fyrir tveimur árum, brotnaði á ökkla i
leik Vals og Vikings i 1. flokki fyrir
nokkrum dögum. Litlar likur að
Róbert leiki meira á þessu sumri. Valur
sigraði 3—2 f leiknum sem var úrslita-
leikur miðsumarsmótsins.
Róbert, 23ja ára viðskiptafræðinemi
í háskólanum, hefur verið afar óhepp-
inn tvö síðustu árin hvað meiðslum
viðkemur. Þetta mun vera í fimmta
skipti sem hann beinbrotnar. Ekki
alvarleg brot en þó slæm. Fyrir þau var
hann einn af máttarstólpum Víkings-
liðsins og lék með íslenzka landsliðinu
1978.
í fyrrasumar gat Róbert lítið leikið
vegna meiðsla en var þó orðinn fasta-
maður í liðinu á ný undir lok leiktíma-
bilsins. Hann lék með liði sinu í fyrstu
leikjum Reykjavíkurmótsins i vor en
brotnaði þá á svipuðum stað og nú.
Var þó alveg að ná sér af þeim meiðsl-
um og var reiknað með að hann kæmi
inn í Víkingsliðið í 1. deild nú á næst-
unni. Brotið fyrr í vikunni hefur sett
strik í þann reikning eins og stundum
áður hjá þessum geðfellda íþrótta-
manni á knattspyrnuferli hans. Hann
varð íslandsmeistari með Víking innan-
hússívetur. -hsím.
4. Nikolai Vasiliev, Sovét, 50.11
5. David Patrick, USA, 50.40
6. Krank Csioska, V-Þýzkal. 50.84
Stangarstökk
1. Konstantín Volkov, Sovét, 5.75
2. Vladimir Polakov, Sovét, 5.70
3. Philippe Houvion, Frakkl. 5.65
4. Thierry Vigneron, Frakkl. 5.60
5. Jurgen Winkler, V-Þýzkal. 5.40
6. Anton Paskalev, Búlgaría 5.40
Kringlukast
1. Armin Lemme, A-Þýzkal. 65.90
2. Wolfg Warnemunde, A-Þýzk.63.54
i. loi' Zamfirache. kum ■•m, 63.40
4. Jmitry Kovtsun. Sové,. 61.92
5. G. Kolnootschenko, Sovét, 61.56
6. Rolf Danneberg, V-Þýzkal. 57 60
100 m grindahlaup
1. Larru Cowling, USA, 13.65
2. Pall Palffy, Rúmeníu, 13.73
3. Georgy Shabanov, Sovét, 13 87
4. Tony Campbell, USA, I3.8t>
5. Romuald Giegiel, Pólland, IJ.yi
6. Arto Bryggare, Finnlandi, 13.94
Róbert Agnarsson miðvörðurinn hávaxni.
___________í_____
DB-mynd Einar Ölason.