Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1917, Page 28
32 Ársrit Ræktunarfjeiags Norðuriands.
í búnaðarmálanefnd þessa voru kosnir:
Sigurður Ein. Hlíðar.
Einar Jósefsson.
Stefán Stefánsson.
Björn t5. Víkingur.
Sigtryggur Vilhjálmsson.
4. Rætt um umferðaplægingar. Var því máli vísað til
búnaðarmálanefndar til frekari athugunar.
Pá var fundi frestað til næsta dags.
Laugardaginn 22. júní var fundinum haldið áfram á
sama stað. Fundarstjóri setti fundinn kl. 9 árd. Var þá
mættur nýr fulltrúi, Björn læknir Jósefsson, úr Norður-
Pingeyjarsýslu.
Var þá tekið fyrir:
5. Reikninganefnd hafði nú lokið störfum, og kom fram
með svo hljóðandi tillögu til úrskurðar:
»Vjer, sem kosnir höfum verið til að athuga reikn-
inga fjelagsins, höfum yfirfarið þá og ekkert fundið
við þá að athuga, og leggjum því til að þeir verði
samþyktir með 1. og 3. athugasemd endurskoðenda.
En að fengnum upplýsingum leggjum vjer til að at-
hugasemd 2 falli niður. Tillagan samþykt með sam-
hljóða atkvæðum.
6. Búnaðarnefnd lagði fram svo hljóðandi nefndarálit:
a. Kynbœtur d búfje innan fjelagssvœðisins.
Nefndin telur ásigkomulag það, sem búpenings-
ræktin hjer á Norðurlandi er í, óviðunandi og
verður að kenna það að nokkru leyti yfirstjórn
kynbótamála landsins. En á meðan þessi mál eru
í höndum Búnaðarfjelags íslands, teljum vjer hag-
kvæmara, að Ræktunarfjelagið snúi sjer til Búnað-
arfjelagsins með áskorun um að það ráði sjerfróða