Veðráttan - 01.01.1924, Blaðsíða 1
YEÐRATTAN 1924
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIN Á VEÐURSTOFUNNI
Fyrir árin 1920—23 gaf veðurfræðideild Löggildingarstof-
unnar út Veðurfarsbók og voru í heiuii daglegar veðurathug-
anir þrisvar á dag frá 4—6 stöðvura og mánaðaryfirlit yfir
veðráttuna á öðrum veðurathugunarstöðvum. Með því nú að
dráttur getur á því orðið, að framhald Veðurfarsbóknrinnar
komi út, þá hefir þótt rjett að biita fyr mánaðaryfirlit yfir
veðráttuna. Þessi mánaðaryfirlit koma öll i einu lagi fyrir árið
1924, en úr því er búist við, að þau komi út mánaðarlega.
Vegna þess að póstferðir eru strjálar og póstur lengi á
leiðinni frá stöðvum á Norður- og Austurlandi, fær Veðurstof-
an mánaðarskýrslurnar frá veðurathugunnrmönnum oft eigi fyr
en 40—50 dagar eru liðnir frá þeim mánuði, er skýrslan er um.
Mánaðaryfirlitið yfir veðráttuna getur því alla jafna eigi birtst
fyr en tveim mánuðum á eftir þeim mánuði, er það nær yfir.
Aðaltaflan um veðráttu hvers mánaðar þarf litilla skýringa
við, þó skal hjer gerð lítilsháttar grein fyrir sumu, sem þar
stendur.
í fremsta töludálki er meðaltal loftvægisins, eins og það
hefði orðið niður við sjó, og með öllura leiðrjettiugum. Meðal-
hiti loftsins í næsta dálki, er eigi leiðrjettur vegna hæðar
stöðvarinnar yfir sjávarflöt. 3. dálkur „Vik frá raeðallagi" sýn-
ir, hve mikið meðalhiti þess mánaðar, sem um er verið að
ræða, var yfir eða undir meðallagi. Þegar mánuðurinu hefir
verið í kaldara lagi (undir meðallagi), er þetta „Vik" negatift,
eða mínus (—) á undan tölunni.
Næstu 3 dálkar eru um hámark hitans, fyrsti dálkur sýnir
meðaltal af hámarkshita hvers dags í mánuðinum, miðdálkur-
inn hæsta hámarkið, og síðasti dálkurinn mánaðardaginn, er
það var. — Næstu 3 dálkar sýna lágmark lofthitans á sama
hátt. Þá kemur í sjerstökum dálki meðalhitinn í yfirborði sjáv-
arins. Þrír næstu dálkar eru um úrkomu-hæðina og er hún
talin í millímetrum. í fyrsta dálki er úrkoman samanlögð allan
mánuðinn, þá mesta úrkoma á einum sólarhring og síðast, hvern
mánaðardag sú úrkoma var mæld. Úrkoman er jafnan mæld
kl. 8 að morgni, og hefir því úrkoman verið mest nóttina á
undan þeim degi, sem tilgreindur er í dálknum eða daginn þar
Framhald á bls. 26
(1)