Frjáls verslun - 01.02.1952, Blaðsíða 7
Vélsmiðjan HAMAR h.f.
HAMARS S.lAlA VIRKlJ
OLlUKYNDINGARTÆKI,
eru framleidd bæði fyrir diesel-
oiiu og jarðolíu (Fuel-oil).
HAMARS SJALFVIRKU
OLlUKVNDINGARTÆKIN,
hafa þegar verið sett í nokkur
stórhýsi i Reykjavik og reynast
ágætlega.
Athugið vel að með þvi að nota
HAMARS SJALFVIRKU
OLlUKYNDINGARTÆKIN,
sem brenna jarðoliu, þá sparið
bér um 35% í eldsneytiskostnaði
miðað við að brenna dieselolíu.
Tækin eru tll sýnis i Vélsmiðj-
um Hamars og ailar frekari upp-
lýsingar veittar þar.
Við höfum í þjónustu vorri
mann, sem hefur verið í Eng-
landi til þess að kynna sér upp-
setningu og meðferð olíukynd-
ingartækja.
Hringið í sima 1695, ef þér þurí-
ið að fá gert við oliukyndingu
yðar.
AÐALFUNDUR
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélags íslands, verður haldinn í fundarsalnum í húsi
félagsins í Reykjavík, laugardaginn 7. júní 1952 og hefst kl 1,30 e. h.
D AGSKRÁ:
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfs-
tilhöguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar
endurskoðaða rekstursreikninga til 31. desember 1951 og efnahagsreikning með athuga-
semdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endur-
skoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiftingu ársarðsins.
3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra sem úr ganga samkvæmt samþykkt-
um félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda.
5. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrif-
stofu ielagsins í Reykjavík, dagana 3.—5. júní næstk. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð
til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík. Oskað er eftir að ný umboð og
afturkallanir eldri umboða séu komin skrifstofu félagsins í hendur lil skrásetningar, ef unnt er
10 dögum fyrir fundinn, þ. e. eigi síðar en 27.maí 1952.
Reykjavík, 4. febrúar 1952.
S T J 0 R N I N.