Frjáls verslun - 01.04.1962, Side 7
r
H.f. Eimskipafélag Islands
AÐALFUNDUR
Aðalfundur hlutafélagsins Eimskipafélags íslands verður hald-
inn í fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugardaginn
2. júní 1962 og hefst kl. 1.30 eftir hddegi.
1. Stjórn félagsins skýrir frd hag þess og framkvæmdum d
liðnu starísári og frá starfstilhögun á yfirstandandi ári, og
ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endur-
skoðaða rekstursreikninga til 31. des. 1961 og efnahags-
reikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum stjórn-
arinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðendum.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu árs-
arðsins.
3. Kosning fjögurra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra
sem úr ganga samkvæmt samþykktum félagsins.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins
varaendurskoðanda.
5. Tillögur til breytinga á samþykktum íélagsins (ef tillögur
koma fram).
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna
að verða borin.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða aíhentir hluthöfum og um-
boðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dag-
ana 29.—31. maí næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð
fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins
í Reykjavík. Óskað er eftir að ný umboð og afturkallanir eldri
umboða séu komin skrifstofu félagsins í hendur til skráningar,
ef unnt er, viku fyrir fundinn.
Reykjavík, 9. janúar 1962
STJÓRNIN
FRJÁLS VERZLUN