Helgarpósturinn - 09.05.1996, Qupperneq 4
4
wm
FIMMTUDAGUR 9. MAÍ1996
Eyftrheyrsla
HP spyr Stefán Trausta-
son, framkvæmdastjóra
Bílastæöasjóðs, hvernig
standi á hinni gífurlegu
fjölgun stöðumælasekta.
- Er þetta ekki gengið út í
öfgar?
Helmings-
aukning
stöðumæla-
sektaá
3árum
*
Eg hef nú heyrt þessu haldið
fram, en ég veit það ekki.
Það er nú einu sinni svo að til-
efnin til álagningar þessara
gjalda gefast nú býsna mörg
þegar ntaður gengur um bæ-
inn, en þetta er bara spurning
um hvernig eigi að haga þess-
um máluin. Ég lield þó að það
sé ekki nein sérstök harka í
álagningunni."
„Það virðist þó vera meiri
harka íþessu núita, þar sem
engin leið er lengur að fá
stiiðumœlaverði til að hœtta
að skrifa út sekt þólt maður
komi að þeim. Fyrir nokkr-
um árum var manni sleppt
með áminningu. Gáfuð þið
út einhverja fyrirskipun um
þetta?“
„Nei, í rauninni ekki. Það
sem hefur breyst er að tölu-
verð endurnýjun hefur orðið í
starfshópi stöðumæiavarða og
það hefur verlð reynt að vanda
vaiið. Að það sé frambærilegt
og sérstaklega vinnusamt fólk
og eigi auðvelt með mannleg
samskipti. Það getur verið að
þetta fólk sé miklu vinnusam-
ara og ákveðnara í álagningu
en þeir sem fyrir voru, en þess
ber að geta að tilefnum til
álagningar hefur síst fækkað."
Er þetta ekki bara gróða■
spursmál sem rœður ferð-
inni? Hvað hefur tilfellunum
fjölgað mikið
„Það er ekkert launungarmál
að sektum hefur fjölgað. Á síð-
ustu þremur árum hefur þeim
fjöigað um fimmtíu prósent,
enda hefur umferð og nýting á
stæðum aukist til muna. En
það hefur ekki orðið aukning í
starfsliði."
Nú hefur maður tekið eftir
því að lenging gjaldskyldu-
tímans fram á laugardaga
hefur leitt til aukins ölvuna-
raksturs, þegar fólk upp-
götvar það eftir drykkju að
bílnum var lagt í gjaldskylt
stœði og ef hann er ekki
fœrður þá hrúgast á hann
sektir daginn eflir. Er þetta
ekki áhyggjuefni fyrir ykk-
ur?
„Aðvitað er það áhyggjuefni
þegar fólk er að aka bílum und-
ir áhrifum áfengis og ég vænti
þess að þú hafir tilkynnt lög-
reglu þessi skipti sem þú tekið
eftir, eins og góðum borgara
sæmir. En bíiastæðasjóður
íinnur ekki til ábyrgðar gagn-
vart áfengisakstri. Lengíngin
var nú bara metin þannig að
laugardagar væru að verða
meiri verslunardagar og til að
miðbærinn gæti staðið sig sem
verslunarsvæði yrði að sjá til
að viðskiptavinlr hefðu aðgang
að skammtímastæðum.“ - EBE
Stjórn Lífsvogar segir
svör Ólafs Ólafssonar
landlæknis við athuga-
semdum hennargjör-
samlega ófullnægjandi.
Öllgögn
á borðið
Enn hefur Hallvarður Einvarðsson ríkissaksókn-
ari ekki tekiö ákvöröun um framhald biskupsmála.
Nokkuö er um liðið síðan Rannsóknarlögregla
ríkisins geröi hlé á rannsókn sinni á méintum
meiöyrðum og röngum sakargiftum nokkurra
kvenna í garö biskups. Fróöir menn segja Ijóst
aö Hallvarður ætli ekki aö flana aö neinu hvaö
varöar framhald málsins...
Við teljum mikið skorta á að
Ólafur Ólafsson leggi öll
gögn á borðið í grein sem hann
birti í HP og átti að vera svar
við viðtali blaðsins við okkur
um starfsemi samtakanna.
Hann segist hafa fengið „að-
eins“ 33 mál frá okkur, en þau
eru mun fleiri. Þá birtir land-
læknir engar upplýsingar um
aðgerðir embættisins gegn
heilbrigðisstarfsfólki eftir árið
1993 og væri fróðlegt að fá
skýringu á því.“
Þetta sögðu tvær af stjórnarkonum
Lífsvogar, Guðrún M. Óskarsdóttir for-
maður og Ásdís Frímannsdóttir, meðal
annars í samtali við. HP. Samtökin Lífs-
vog voru stofnuð fyrir rúmu ári með
það að markmiði að styðja við bakið á
fólki sem telur sig hafa orðið fyrir
læknamistökum. í viðtali við Helgár-
póstinn fyrir skömmu sögðu ■ stjórnar-
konur Lífsvogar að um 300 manns hefðu
leitað þar aðstoðar og greindu frá ýmsu
er varðar læknamistök, jafnframt því
sem þær kvörtuðu undan því hvað illa
gengi að fá meint mistök rannsökuð.
Þær töldu brýna þörf á að stofnað yrði
embætti umboðsmanns sjúklinga til að
tryggja rétt þeirra. í svari landlæknis er
ekki vikið að þessu atriði.
„Frá síðustu áramótum höfum við
gætt þess að eiga eingöngu skrifleg sam-
skipti við embætti Iandlæknis. Það er
því líklegt að hann telji bara þessi skrif-
Íegu mál þegar hann segist hafa fengið
33 mál frá okkur. Við viljum eindregið
hvetja fólk sem þarf að bera upp kvört-
un við landlækni til að gera það skrif-
lega. En fyrir áramót var búið að láta
hann vita af mörgum öðrum málum. Þá
segir hann að þrjú þeirra mála sem
hann hafi fengið frá Lífsvog séu fyrnd.
En hvenær telur landlæknir að mál sé
fyrnt? Eitt af málunum sem við fórum
með til hans og hann úrskurðar sem
Aðalfundur Rithöfundasambands íslands veröur
haldinn laugardaginn 18. maí. Ingibjörg Har-
aldsdóttir gefur kost á sér áfram
sem formaður og ekkert mótfram-
boö kom fram. Þaö er því Ijóst aö
Ingibjörg verður sjálfkjörin á fundin-
um. Þau Ólafur Haukur Símonar-
son og Steinunn Jóhannesdóttir
áttu einnig aö ganga úr stjórn en
gefa kost á sér áfram. Sömu sögu
er aö segja af Guðjóni Friðriks-
syni sem sæti á í varastjórn. Auk
þess gefur Erlingur E. Halldórs-
son kost á sér til meðstjórnanda. Aðrir í stjórn Rithöfundasambandsins
voru kjörnir til aðalfundar á næsta ári, en það eru Hjörtur Pálsson,
Kristín Steinsdóttir og Egill Egilsson varamaöur...
læknamistök er 18
ára gamalt, eins og
fram kom í viðtali
við okkur í HP. Allir
hljóta því að eiga
sama rétt og ófært
að sum mál teljist
fyrnd en önnur
ekki,“ sögðu þær
Guðrún og Ásdís.
Guðrún M. Óskarsdóttir og Ásdís Frímannsdóttir segja
landlækni gefa loðin svör við athugasemdum Lífsvogar.
Aðgerðir gegn
læknum
í grein Ólafs Ól-
afssonar landiækn-
is í HP birtir hann
upplýsingar um að-
gerðir gegn heil-
brigðisstarfsfólki á
árunum 1976 til
1993. Á þeim tíma
hafi sex læknar
verið sviptir leyfi,
fjórir verið látnir
hætta störfum,
leyfi þriggja tak-
markað, fjórir
kandídatar ekki
fengið leyfi og þrír
hjúkrunarfræðing-
ar sviptir leyfi.
Þetta finnst Guð-
rúnu og Ásdísi ekki
fullnægjandi svar.
„Það vantar allar
tölur frá 1993 í Jietta svar landlæknis.
Hann segir einnig að það séu gamlar
gróusögur að landlæknir láti það óáreitt
ef honum berist til eyrna að læknir sé
drukkinn við læknisstörf. Við höfum
undir höndum upplýsingar um nöfn 36
lækna sem sakaðir hafa verið um
drykkjuskap eða dópneyslu í starfi og
fyrir kynferðislega áreitni á árunum
1976 til 1993, en kannski landlæknir vilji
ekki fara nánar út í þá sálma. Hvaða
rannsókn hefur farið fram í málum þess-
ara lækna og ef rannsókn fór fram til
hvers leiddi hún?“ spurðu Guðrún og
Ásdís. Þær vilja að hlutlausir aðilar séu
fengnir til að rannsaka meint læknamis-
tök.
Landlæknir spurður
Þær Guðrún M. Óskarsdóttir og Ásdís
Frímannsdóttir óskuðu jafnframt eftir
því að Helgarpósturinn birti efnislega
bréf sem stjórn Lífsvogar ritaði land-
lækni í marsmánuði.
í bréfinu er spurt hvar úrskurðar-
nefnd heilbrigðismála sé til húsa
og hverjir skipi þá nefnd. Hvaða
nefndir séu að störfum við að fjalla um
siðferðileg læknisfræðileg álitamál á ís-
landi. Hvað einn læknir þurfi að fá marg-
ar aðfinnslur til þess að fá alvarlega
áminningu. Ennfremur hvað einn læknir
þurfi að fá margar alvarlegar áminning-
ar til þess að verða sviptur starfsleyfi.
Hvað þurfi til að læknir fái aðfinnslu og
hvað þurfi til þess að læknir fái áminn-
ingu. Einnig hvað þurfi til þess að lækn-
ir sé sviptur starfsleyfi.
- SG
æskuhetjan
A • Þorgils Ottar Mathiesen
Ur boltanum í bankann
Það eru ekki ýkja mörg ár síðan landslið
okkar í handbolta var tvímælalaust
með bestu liöum heimsins. Þetta var gull-
aldarliö sem ýtti mjög undir áhuga á hand-
bolta og efldi þjóðarstoltið. Ein af skær-
ustu stjörnum landsliðsins á síöasta ára-
tug var Þorgils Óttar Mathiesen í FH.
Hann var fyrirliði landsliðsins 1986 til
1990, að hann hætti í liöinu. Óttar lék
fjölda landsleikja auk þess að spila meö
FH og var valinn handknattleiksmaður árs-
ins 1985 og 1989. Hann lék í landsliðinu
sem tók þátt í Ólympíuleikunum í Los
Angeles 1984 og í Seoul 1988. Þorgils
Óttar var líka með á heimsmeistaramótinu
í Sviss 1986 og í Tékkóslóvakíu fjórum ár-
um síöar. Þá má ekki gleyma því að hann
er gullverölaunahafi meö landsliöinu í
B-heimsmeistarakepþninni í Frakklandi
1989 og var valinn í heimsliöið í hand-
knattleik sama ár. Með handboltanum
stundaði Þorgils Óttar nám við Háskólann
og útskrifaðist þaöan sem viðskiptafræö-
ingur. Hann starfar nú í íslandsbanka og
við spuröum hvaö hann væri að fást við
þar.
„Ég er forstöðumaöur reikningshalds- og
áætlunardeildar bankans. Þaö felur meöal
annars í sér aö ég er yfir uppgjörum bank-
ans, áætlunargerö og vaxtamálum. Ég
kann mjög vel við mig hér í íslandsbanka."
Hafa vinnufélagar þínir einhvern
áhuga á handbolta?
„Já, já. Þeir hafa margir hverjir áhuga á
handbolta og að ræða um boltann. Sjálfur
fylgist ég alltaf meö FH-liðinu og landslið-
inu.“
Hvað finnst
þér um stöðu
landsliðsins
núna?
„Undanfarin ár
hafa átt sér staö
ákveðin kyn-
slóöaskipti í liö-
inu. Þar hefur
verið sambland
af mönnum sem
voru byrjaöir í
„gamla“ liðinu,
svo sem Júlíus, Geir og Valdimar. Nú er
að koma nýr hópur sem náöi þriöja sæti í
heimsmeistarakepþni leikmanna 21 árs
og yngri í Egyþtalandi. Þessir strákar taka
væntanlega við landsliöinu á næstunni og
ég hef engar áhyggjur af liöinu,“ sagði Þor-
gils Óttar Mathiesen.
- SG