Helgarpósturinn - 09.05.1996, Qupperneq 6
6
FIMMTUDAGUR 9. MAI1996
,
„Hef engan frið
fyrir fólki sem
óskar eftir því að
ég bjóði mig
fram til forseta.“
Eg fæ engan frið fyrir fólki
sem óskar eftir því að ég
bjóði mig fram til forseta. En ég
hef ekki tekið ákvörðun ennþá
og segi ekki meira um málið í
bili,“ sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson, formaður Alþýðu-
flokksins, í samtali við Helgar-
póstinn í gær. Samkvæmt
traustum heimildum blaðsins
gaf Jón Baldvin það hins vegar
sterklega í skyn á fundum með
þingflokki Alþýðuflokksins og
framkvæmdastjórn síðastliðinn
mánudag að yfirgnæfandi líkur
séu á að hann láti slag standa
og bjóði sig fram. Tilkynningar
þar um sé að vænta í næstu
viku. Ætlunin mun hafa verið
að bíða með yfirlýsingu um
framboð þar til framboðsfrest-
ur rennur út 24. maí, en ólíklegt
er að menn geti setið á sér svo
lengi. Hann hafi fundið fyrir
mjög breiðum stuðningi fólks
sem er það mjög á móti skapi
að Ólafur Ragnar Grímsson
hirði forsetaembættið fyrir-
hafnarlaust eins og nú eru líkur
á og sjálfur megi hann ekki til
þess hugsa. „Jón Baldvin hefur
bókstaflega misst úr svefn við
tilhugsunina um að Ólafur
Ragnar verði forseti," segir
samstarfsmaður Jóns til fjölda
ára. Vitað er að andstæðingar
Ólafs Ragnars úr öllum flokkum
hafa að undanförnu leitað að
frambjóðanda sem þeir gætu
sameinast um. Þeim þyki Ijóst
að Guðrún Pétursdóttir, Guð-
rún Agnarsdóttir og Pétur Kr.
Hafstein muni ekki veita Ólafi
Ragnari neina raunhæfa
keppni. Nafn Jóns Baldvins hafi
komið æ oftar upp í umræð-
unni og hann sé talinn eini mað-
urinn sem eigi möguleika á að
sigra fyrrverandi formann Al-
þýðubandalagsins. Smiðir sam-
særiskenninga halda því fram
að Össur Skarphéðinsson sé að
espa formanninn upp í framboð
og ætli sér síðan formannsstól-
inn í Alþýðuflokknum. Þessu
neitaði Óssur eindregið í sam-
tali við blaðið.
Staðan snarbreyttist
Innan Alþýðuflokksins eru
skiptar skoðanir um það hvort
formaðurinn eigi að fara í fram-
boð eða ekki. Sumir telja brýnt
að Jón Baldvin leiði flokkinn
enn um sinn og fari því ekki í
framboð. Aðrir segja að þrátt
fyrir að það yrði mikill missir
fyrir flokkinn og stjórnmálabar-
áttuna yfirleitt ef Jón Baldvin
færi fram og næði kjöri sem for-
seti, þá verði að líta til þess að
hann sé öllum þeim kostum bú-
inn sem prýða mega forseta.
Þetta er meðal annars skoðun
Gunnars Inga Gunnarssonar,
læknis og formanns Alþýðu-
flokksfélags Reykjavíkur.
„Það er í sjálfu sér mikill
missir fyrir íslenska pólitík að
Fréttaskýri
Öllum að óvörum er komin upp
ný og gjörbreytt staða í framboðs
málum til embasttis forseta íslands.
Síðustu daga hefur mjög verið þrýst á
Jón Baldvin Hannibalsson, formann
Alþýðuflokksins, um framboð. Þegar
Sæmundur Guðvinsson skoðaði
málið kom í Ijós að niðurstaðan
virðist vera augljós...
Jón Baldvin
œtlar á
Bessastaði
sjá á eftir Jóni Baldvini. Hins
vegar hef ég ekki hitt nokkurn
mann sem efast um hæfileika
hans til þess að gegna forseta-
embættinu. Hann hefur allt sem
þarf í það og ég mundi styðja
hann í það starf,“ sagði Gunnar
Ingi í samtali við HP.
„Jón Baldvin hefur ekki svar-
að því hvort hann muni gefa
kost á sér. Það eru blendnar til-
finningar sem bærast með okk-
ur sem stöndum með honum í
pólitík og höfum mikið álit á
honum sem stjórnmálamanni.
Annars vegar að sjá á eftir hon-
um úr pólitíkinni en hins vegar
að sjá hann á leið á Bessastaði
sem næsti forseti íslands. Ef
Jón Baldvin gefur kost á sér er
ég viss um að mikill fjöldi fólks
mun fylkja sér um hann og stað-
an í kosningabaráttunni snar-
breytist. Ég tel að Jón Baldvin
eigi mikla möguleika á sigri, ef
af framboði hans verður," sagði
Gunnar Ingi Gunnarsson.
Gegn Olafi Ragnari
Áhrifamaður í Sjálfstæðis-
flokknum kvaðst í samtali við
blaðið hafa áhuga á framboði
Jóns Baldvins svp fremi sem
hann gæti skákað Ólafi Ragnari.
„Sjálfstæðismenn kjósa þann
sem getur sigrað Ólaf Ragnar.
Ýmsir úr okkar hópi hafa stutt
framboð Guðrúnar Pétursdótt-
ur eða Péturs Kr. Hafstein.
Þetta fólk þarf því ærna ástæðu
til að hlaupast undan merkjum.
Sú ástæða verður hins vegar
fyrir hendi ef skoðanakannanir
sýna að hvorugt eigi möguleika
á sigri en Jón Baldvin sé líkleg-
ur til að vinna Ólaf Ragnar. Þá
munu fjölmargir sjálfstæðis-
menn styðja Jón Baldvin Hanni-
balsson, enda hefur hann þá
hæfileika sem þarf í þetta emb-
ætti og er vel kynntur á alþjóð-
legum vettvangi," sagði þessi
viðmælandi blaðsins.
Leðjuslagur
Samstarfsmaður Jóns Bald-
vins í Alþýðuflokknum, sem
ekki á sæti á Alþingi, sagði
þessa umræðu um framboð for-
mannsins koma sér á óvart.
Hann hefði haldið að Jón Bald-
vin hefði engan áhuga á emb-
ættinu, enda væri hann stjórn-
málamaður af hugsjón og á
Bessastöðum væri ekki hægt
að stunda stjórnmál.
„Það sem af er þessari viku
hefur gosið upp mikil umræða
um forsetaframboð Jóns Bald-
vins. Maður heyrir fólk úr öll-
um flokkum tala á jákvæðum
nótum um þetta. Persónulega
hugnast mér betur að kjósa Jón
Baldvin sem forseta heldur en
Ólaf Ragnar. Hins vegar vil ég
sjá hann áfram sem formann
flokksins og veit ekki hvaða af-
leiðingar það gæti haft fyrir Al-
þýðuflokkinn ef formaðurinn
fer í framboð. Þó ber að líta á
það að ekki verður hann for-
maður til eilífðar. En það er að
minnsta kosti ljóst að ef Jón
Baldvin fer fram gegn Ólafi
Ragnari þá verður það leðju-
slagur, því báðir eru kunnir að
öðru en því að láta hlut sinn í
neinu,“ sagði þessi krati.
Annar háttsettur flokksmað-
ur kvaðst vera algjörlega and-
vígur forsetaframboði for-
mannsins. Fylgi við flokkinn
væri mjög bundið persónu Jóns
Baldvins og flokkurinn þyrfti á
honum að halda. „Það getur
hvaða peð sem uppfyllir lág-
markskröfur gegnt starfi for-
seta, enda valdalaust skraut-
embætti. Það væri sóun á hæfi-
leikum Jóns Baldvins að hann
settist í helgan stein á Bessa-
stöðum á besta aldri og skaði
fyrir íslensk stjórnmál. Auk
þess yrði framboð af hans hálfu
honum sjálfum og flokknum til
skaða, því ég hef ekki trú á að
hann næði kjöri. Þetta mál veld-
ur nú þegar titringi í flokknum.
Jón Baldvin á það til að vera
fljótfær en ég vona að hann
flani ekki að neinu í þessu máli
og láti skynsemina ráða,“ sagði
þessi flokksbróðir Jóns.
Framboð líklegt
Á göngum Alþingis er hugs-
anlegt framboð Jóns Baldvins
mjög til umræðu. Einn af þing-
mönnum Framsóknarflokks
sagði í samtali við blaðið að
það væri svo sem eftir öðru að
Jón Baldvin ryki í framboð þótt
ekki væri nema til þess að kom-
ast í góðan hasar í nokkrar vik-
ur. Þingmaðurinn vildi hins
vegar engu spá um gengi Jóns
Baldvins í baráttunni um Bessa-
staði, en taldi ljóst að þar yrði
um að ræða einvígi milli hans
og Ólafs Ragnars. Það væri
óneitanlega nokkuð einkenni-
leg staða eftir að búið væri að
fullyrða árum saman að þjóðin
vildi ekki stjórnmálamann á
Bessastaði. Helgarpósturinn
náði tali af Össurí Skarphéðins-
syni alþingismanni í gær og
spurði hvort hann yrði var við
mikinn áhuga á því að Jón Bald-
vin bjóði sig fram til forseta.
„Það er töluverður ófriður af
þessum framboðshugleiðing-
um Jóns Baldvins í mínu dag-
lega lífi. Það vill svo til að við
höfum skrifstofur á sama gangi
og síðustu daga hefur verið lítill
vinnufriður fyrir alls konar fólki
sem er að leita að Jóni Baldvini
til að þrýsta á hann um fram-
boð. Það væri því mjög farsælt
ef ákvörðun í málinu lægi fljót-
lega fyrir svo hann geti þá sett
upp skrifstofu úti í bæ en ég
haldið áfram að vinna að lög-
gjafarstörfum,“ sagði Össur.
Hann kvaðst verða var við
talsverðan áhuga hjá fólki
kringum hugsanlegt framboð
Jóns Baldvins. „Það stafar
kannski af því að íslendingar
eru keppnismenn og um nokk-
urra vikna skeið hefur virst sem
úrslit væru ráðin. Ólafur Ragn-
ar hefði þetta í hendi sér og
aðrir frambjóðendur ekki náð
því flugi sem menn töldu fyrir-
fram. Af því Ólafur er búinn að
vera að skrönglast á toppinum
svo iengi hafa margir á tilfinn-
ingunni að hann sé búinn að
vera forseti í áratug og kominn
tími til að skipta um forseta.
Þessar kringumstæður skapa
frjóan jarðveg fyrir óvæntum
frambjóðanda. Mér þykir ekki
ólíklegt að svo fari að reyndur
stjórnmálamaður gefi kost á sér
á næstu dögurn," sagði Össur.
Aðspurður hvort hann ætti við
Jón Baldvin svaraði hann því
játandi.
Össur þvær hendur sínar
Eins og vikið var að í inngangi
að þessari samantekt heyrast
þær raddir að Össur Skarphéð-
insson sé þess mjög hvetjandi
að Jón Baldvin fari í forseta-
framboð. Þá opnist leið fyrir
Össur að taka við formennsk-
unni. Össur var spurður hvort
þetta væri rétt.
„Jón Baldvin er fulltíða mað-
ur og hefur reynslu og þroska
til að taka ákvörðun um þetta
algjörlega á eigin spýtur. En ég
held að hann mundi sóma sér
vel sem góður forseti. Slægð
mín í pólitískum efnum er hins
vegar mjög orðum aukin. Ég er
eins og barn í samanburði við
þessa refi sem eru hér í þinginu
og hef hvorki greind né útsjón-
arsemi til að láta mér koma til
hugar að ýta Jóni Baldvini vini
mínum í framboð til forseta ein-
ungis til að geta orðið formaður
Alþýðuflokksins. Ef Jón fer í
framboð og segir af sér for-
mennsku þá tæki Guðmundur
Ámi Stefánsson varaformaður
við. Ég hef marglýst því yfir að
ég hef engan áhuga á að verða
formaður Alþýðuflokksins. Eftir
því sem árin færast yfir mig og
ég hníg að aldri taka önnur
áhugamál, eins og skriftir bóka
um Þingvallaurriðann og löngu
látna presta, auk áherslu á
barnauppeldi, allan þann tíma
sem ég hef aflögu frá löggjafar-
störfum hér á samkundunni,"
sagði Össur. Hann bætti síðan
við og gætti angurværðar í
röddinni:
„Ef svo fer að það verður þörf
á nýjum formanni Alþýðu-
flokksins innan skamms þá
mun ég ekki blanda mér í þá
baráttu. Þess í stað mun ég
hokra að mínu á lítilli skrifstofu
í hálfrökkri og skrifa um ástalíf
urriðans í Þingvallavatni og
sálma sem séra Bjöm Halldórs-
son, prófastur í Sauðlauksdal,
orti á ofanverðri átjándu öld.“
Pressa á báða bóga
Af samtölum við ýmsa má
ráða að það er pressað á Jón
Baldvin á báða bóga. Annars
vegar af þeim sem vilja að hann
fari í forsetaframboð og hins
vegar af þeim sem vilja ekki að
hann fari fram. Síðdegis í gær
hélt Jón Baldvin vestur til Isa-
fjarðar. Krati þar á bæ sagði í
samtali við blaðið að mjög
skiptar skoðanir væru um
hugsanlegt framboð Jóns. Sjálf-
ur var þessi maður þess ekki
fylgjandi að Jón Baldvin færi
fram, en sagði það út af fyrir sig
ánægjuefni að Isfirðingar þættu
helst koma til greina í embætt-
ið. En ef Jón færi fram mætti
hann eiga vísan stuðning
flestra flokksmanna og mikinn
almennan stuðning þjóðarinn-
ar. Almennt búast menn við að
Jón Baldvin tilkynni ákvörðun
sína í næstu viku, en framboðs-
frestur rennur út 24. maí.