Helgarpósturinn - 09.05.1996, Blaðsíða 9
RMMTUDAGUR 9. MAI1996
9
\
AU6LYSIN6
„Ég hef ekkert að fela ea marot að gefa'
- segir Astþór Magmísson.
Sem kunnugt er hefur Ástþór Magnússon,
stofnandi Friðar 2000, látið gamminn
geisa á vettvangi friðarmála hér á landi á
undanförnum vikum. Svo rammt kveður
að auglýsingum á hans vegum að þær eru
orðnar heitasta umræðuefni manna á með-
al, í heitu pottunum og á hornunum. En
hann er sagður vera rétt að byrja.
Um þessar mundir er verið að dreifa inn á
heimili landsmanna bókinni „Virkjum
Bessastaði“ eftir Ástþór Magnússon, stofn-
anda Friðar 2000. Meðal þeirra sem hlerað-
ir hafa verið hefur bókin vakið mikla at-
hygli og finnst mönnum mikið til um hug-
myndaauðgi höfundar. Ástþór kemur víða
við og virðist ekki hlífa neinum. I bókinni
nálgast höfundur af býsna mikilli rökfærni
þau vandamál sem að heiminum steðja.
Hann segir Sameinuðu þjóðirnar hafa verið
blekkingarvef frá fyrsta degi samtakanna og
vitnar m.a. í orð dr. Mahububs ul Haq máli
sínu til stuðnings, þar sem hann segir efnis-
lega að aldrei í sögu mannkyns hafi valdaaf-
sal almennings gengið jafnskjótt fyrir sig og
þegar SÞ voru stofnaðar. Sá ljóður hafi hins
vegar verið á að SÞ urðu þegar í upphafi
klúbbur ríkisstjórna í stað þess að verða
samtök fólksins. Þannig hafi ekki verið
hægt að ætlast til neins raunhæfs friðarvilja
af hálfu þeirrar stofnunar. Höfundur segir
mannkynið hreinlega vera um borð í hring-
ekju dauðans og ef ekkert verði að gert sé
ekki von til að komandi kynslóðir kembi
hærurnar hér í heimi.
En það sem kannski vekur enn meiri at-
hygli í bókinni en fyrrgreind gagnrýni er
það að Ástþór kemur með raunhæfar tillög-
ur til úrbóta. Meðal annars vill hann að
byrjað verði á að banna kjarnorkuvopn með
alþjóðlegum lögum, að einstakar þjóðir
heims hætti hernaði og stofnaðar verði frið-
arsveitir undir alþjóðlegri stjórn; að þeim
fjármunum og mannafla sem sparast við
breytt fyrirkomulag verði varið til þróunar-
hjálpar og öllum jarðarbúum verði með al-
þjóðlegum sáttmála tryggð jöfn mannrétt-
indi og farsæld í ómenguðu umhverfi.
Embætti forseta tekjulind
I bókinni kemur Ástþór að Bessastöðum
og forsetaembættinu, sem hann vill virkja
til friðar í heiminum. Hann heldur því
fram að forsetaembættið sé ekki að neinu
leyti nýtt sem skyldi og að þjóðin hafi allar
görur hingað til fremur litið til þess í vali
sínu á forseta hver sómi sér best á Bessa-
stöðunr en hver geti gerr raunhæft málefna-
legt gagn. Hann bendir á að forsetaembætt-
ið á sextán ára glæsiferli frú Vigdísar Finn-
bogadóttur hafi kostað þjóðina tvo millj-
arða króna. „Fámenn þjóð sem telur aðeins
um 94.000 heimili hefur vart efini á slíkunr
fjárúrlátum í eitthvert stofustáss á Bessa-
stöðum. Þess utan þarf sterkan einstakling í
þerta embætti sem getur unnið landi og
þjóð fylgi um allan heim. Annað slagið hef-
ur bólað á slíkum tiljrrifum, en alltof sjald-
an og ómarkvisst.“ Á öðrum stað segir hann
um embætti forseta: „Eg held því fram að
embætti forseta Islands geti orðið ein
stærsta tekjulind landsins. Eg vil sjá það
skila beinhörðum tekjum í ríkissjóð. Island
hefur slíka sérstöðu hvað varðar legu þess
og sögu þjóðarinnar, að með frjóum huga
Yogesb K. Gamlhi, forseti Gandhi-stofnunarinnar og einn af ættingjum hinsfræga indverska leiðtoga,
og Ástpór Magnússon fóru á fund forseta íslands, frú Vigdísar Finnbogadóttur, í ársbyrjun 1996 og
skoruðu á forsetann að beita sérfyrirþví að Ísland leiði heirninn til friðar.
Afundi með Oscar Arias, fyrrverandi forseta Costa Rica og handhafa friðarverðlauna Nóbels, en
hann hefur nýlega gerst aðili að ráðgjafarnefnd Friðar 2000. Costa Rica lagði niður herinn eftir
heimsstyrjöldina síðari. Forsetinn er helsti frumkvöðull að því að fá aðrar þjóðir til að gera slíkt hið
sama, og hefur nýlega tekist að fá Panama og Haití til að fylgja fordæmi Costa Rica og leggja niður
herinn.
Worid
population
arranged
by incomo Distribution of income
Each liwizofitól t»nd 2.3% <rt income
>ecreserts sn oqual lifth
of the wctlds poopie
i 9% oí inccme
The poorest fifth recoives
1.4% of total woríd incorne
Ofangreind mynd sýnir hvernig auður heimsins
skiþtist milli jarðarbúa. Þeir sem tilheyra hójn
þeirra 20% auðugustu njóta nú 82,7%
jarðarauðsins meðan þeir sem titheyra hóþi
þeirra 20% fátækustu njóta 1,4%. (SÞ)
Hvaóa heimsmynd vilt þú ?
Þessi mynö sýnir eyðslu þjoða íieims i vopn og hernað nær þúsund
billjónir bandaríkiadala. i hlutfaH við þá Ijarmurii sem parl w að leysa
mörg vandamál heimsirts.
og útsjónarsemi má skapa ýmsa starfsemi
tengda embættinu, án þess að það tapi
neinu af þeirri virðingu sem því ber. Sé rétt
á málum haldið getur forseti Islands orðið
aflvaki mikils átaks til eflingar á jákvæðri
stöðu lands og þjóðar. Þetta mun skila sér í
gjaldeyristekjum um leið og virðing emb-
ættisins mun aukast um heim allan.“
ísland að leiðarljósi heims
I bókinni rekur Ástþór áfram þá mögu-
leika sem landið hefur í heimsumræðunni
um frið. „Með flutningi alþjóðastofnana til
Islands má reikna með milljarðatekjum fyr-
ir stofnun eins og Póst og síma, flug- og
flugvallarekstur, hótelrekstur, ferðaþjónustu
og ráðstefnuhald. Þessu fylgdu að auki fleiri
þúsund vel launuð störf. I raun þarf ekki
stóran hluta slíkrar starfsemi hérlendis til að
bæta stórlega afkomu almennings."
Enn bætir Ástþór við: „Á síðustu árum er
ísland í auknum mæli að verða vettvangur
alþjóðlegra samskipta. Það er mikil ein-
feldni að halda því fram að við slíkar breytt-
ar aðstæður sé það vænlegur kostur að hafa
embætti forseta Islands í óbreyttri mynd.
Slíkt leiðir aðeins til þess að hagsmunir ís-
lensku þjóðarinnar verði undir. Þess í stað
eigum við að virkja Bessastaði og grípa
tækifærið og tryggja að forseti íslands verði
fyrstur þjóðhöíðingja til að brjóta niður
veggi „diplómatanna" og geri Island að leið-
arljósi heimsins í átt til friðar. Slíkt mun
skapa umfangsmikla starfsemi hérlendis
sem mun koma þjóðinni og heimsbyggð-
inni allri til góða um ókomna tíð. Við virkj-
uðum orkuna í náttúru landsins og breytt-
um henni í rafmagn og hita. Nú eigum við
að virkja Bessastaði, embæti forseta Islands
og breyta því í embætti friðarhöfðingja með
alþjóðlega skírskotun."
Lætur verkin tala
Ljóst má vera að Ástþór Magnússon er
maður hugsjóna, maður sem vill koma þjóð
sinni í skilning um þá nauðsyn sem friður á
jörðu er öllu mannkyni. Hann ræðir þau
mál ekki í kokkteilsamkvæmum, heldur
lærur hann verkin tala meðal almennings
svo um munar. Hann virðist vera reiðubú-
inn að fórna öllu því sem hann hefúr aflað
fram að þessu til að láta gott af sér leiða,
enda getur enginn skynsamur maður hafin-
að því sem hann ber á borð. Ef af forseta-
framboði af hans hálfu verður er hann enn
sem komið er sá eini sem hefur málstað í
farteskinu annan en þann að verða fallegt
stofustáss á Bessastöðum.
Símar rauðglóandi og fundir vel sóttir
Strax eftir að bókin kom út munu við-
brögð almennings ekki hafa látið á sér
standa. Símar Friðar 2000 hafa verið rauð-
glóandi síðan á mánudag þar sem fjöldinn
allur hefur lýstyfir ánægju sinni með þetta
þarfa framtak Ástþórs Magnússonar. Hjá
hinu verður ekki horft að öfundarmenn
reyna hver um annan þveran að gera hann
tortryggilegan í augum almennings og hafa í
frammi dylgjur af ólíklegasta toga. Sjálfur
segir Ásrþór: „Eg hef ekkert að fela.“
Þess má geta að viðbrögð almennings hafa
ekki einvörðungu birst í upphringingum
heldur hafa fundir Friðar 2000 verið fádæma
vel sóttir. Þegar hafa tveir fundir verið haldn-
ir á Hótel Borg, einn í Deiglunni á Akureyri
og í gærkvöldi var fimdur á Reyðarfirði. Fólk
sýnir þessu máli mikinn áhuga, sem best sést
á því hversu virkir og spurulir menn eru á
fundum. Ef mark má taka á fundinum á
Hótel Borg, þar sem salarkynni voru þétt
setin og góður jákvæður andi ríkti, hefur fólk
beðið eftir því málefni sem Ástþór Magnús-
son hefur fram að færa í orði og verki.