Helgarpósturinn - 09.05.1996, Qupperneq 22
22
FIMMTUDAGUR 9. MAÍ1996
Fjöldi listviöburða verður á Listahátíð í Reykjavík sem hefst
um næstu mánaðamót og þar koma fram nokkrir heims-
þekktir listamenn. Miðasala er hafin og þegar er að verða
uppselt á nokkur atriði hátíðarinnar. Sæmundur Guövinsson
spjallaði við Signýju Pálsdóttur, framkvæmdastjóra Listahátíðar,
um hina fjölbreyttu dagskrá hátíðarinnar.
Sinfóníur og
sígaunasirlois
Miðasalan fer vel af stað
og það er til dæmis
langt komið að selja alla
miða á einleikstónleika
Evgenís Kissin, enda þykir
hann besti píanóleikari
heims í dag. Þá er mikill
áhugi á tónleikum Bjarkar
og auk sölu hér innanlands
er mikið um fyrirspumir er-
lendis frá varðandi þessa
tvo listamenn, enda um að
ræða nöfn sem allir virðast
þekkja. Þá er að verða upp-
selt á tónleika Davids
Bowie, mikil sala á tónleika
þýsku sinfóníunnar,
Heimskórsins og píanóleik-
arans András Scliiff,“ sagði
Signý Pálsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Listahátíðar,
í samtali við Helgarpóstinn.
Listahátíð verður haldin í
Reykjavík í sumar og stendur frá
1. júní til 2. júlí, en slík hátíð er
haldin cinnað hvert ár. Miðasala
hófst fyrir viku og hægt að velja
úr miðum á tuttugu tónleika,
tvær danssýningar, þrjár leik-
sýningar, fjölleikahús, fjöllistar-
sýningu, ljóðakvöld og nýja ís-
lenska óperu, auk þess sem 25
myndlistarsýningar verða og
nokkrir bókmenntaviðburðir.
Fjölbreytnin er ótrúleg og mörg
óvenjuleg og framandi atriði.
Af innlendum viðburðum á
Listahátíð sagði Signý að frum-
flutning íslensku óperunnar
Galdra-Lofts eftir Jón Ásgeirs-
son bæri einna hæst. Frumsýn-
ingin verður 1. júní í íslensku
óperunni undir stjórn Garðars
Cortes og í leikstjórn Halldórs
E. Laxness. Einsöngvarar í aðal-
hlutverkum verða Elín Ósk Ósk-
arsdóttir, Þóra Einarsdóttir,
Þorgeir Andrésson og Bergþór
Pálsson. Einnig nefndi Signý
frumflutning Islenska dans-
flokksins á verkinu „Féhirsla
vors herra“ eftir Nönnu Ólafs-
dóttur og Siguijón Jóhannsson
í Borgarleikhúsinu 4. júní. Yrkis-
efnið er sótt til þekktra atburða
og einstaklinga á þjóðveldisöld,
einkum Guðmundar góða Hóla-
biskups.
„Það er tvennt sem ber lang-
hæst af erlendum viðburðum
hvað varðar stærð. Það er
þýska sinfóníuhljómsveitin í
Berlín, Deutsches Symphonie-
orchester Berlin, sem kemur
hingað og leikur undir stjórn
Vladimirs Ashkenazy. Það er
mikið fyrirtæki að flytja hljóð-
færaleikarana og hljóðfærin til
og frá landinu og þarf til þess
tvær flugvélar. Það vill svo ein-
kennilega til að hljómsveitin get-
ur ekki leikið hér nema 29. júní,
daginn sem þjóðin kýs sér for-
seta. Við ákváðum að helga frú
Vigdísi Finnbogadóttur forseta
þessa hljómleika og þeir verða
haldnir henni til heiðurs. Vigdís
hefur verið verndari Listahátíð-
ar mestalla sína forsetatíð og
þarna gefst því tækifæri til að
kveðja hana um leið og hlýtt er á
hljómleikana," sagði Signý.
,Annar stærsti viðburðurinn
er tónleikar Heimskórsins, sem í
eru 350 manns, fjögurra ein-
söngvara og Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands. Einsöngvararnir eru
ekki af verri endanum. Það eru
baritónsöngvarinn Dmitri Hvo-
rostovskí, sem kallaður er Pava-
rotti baritónsöngvaranna. Ten-
órsöngvarinn er Keith Ikaia-
Purdy. Hann er frá Hawai en er
nú fastráðinn við Vínaróperuna.
Hann er stjarna á hraðri uppleið
og syngur nú á móti Carreras í
tveimur óperum. Þá er það
sópransöngkonan Olga Ro-
manko sem er nýfarin að syngja
í öllum stærstu óperuhúsum
heimsins og er á hraðri uppleið.
Fjórði einsöngvarinn er Rann-
veig Fríða Bragadóttir mess-
ósópran sem öll þjóðin þekkir.
Þessir tónleikar verða í Laugar-
dalshöll 8. júní,“ sagði Signý
ennfremur.
Sígaunasirkus
Svo farið sé út í aðra sálma
má nefna að belgíski leikhúss-
irkusinn Circus Ronaldo slær
upp skrautlegum búðum með
sígaunavögnum og tjaldi í
Hljómskálagarðinum þar sem
sýningar verða 11. til 16. júní.
„Það er heilmikið fyrirtæki að
flytja hingað heilan sirkus með
fjóra stóra sirkusvagna, svona
gamla sígaunavagna. Þetta er
svo sannarlega alvörusirkus.
Ég sótti sýningu hjá þeim í fyrra
og það var eins og að fara inn í
Ævintýrasirkusinn eftir Enid
Blyton. Þau búa í vögnunum
allt sumarið og þessir flæmingj-
ar hafa stundað sirkus í átta
eða níu kynslóðir. Fólkið vinnur
í leikhúsum á veturna og núver-
andi sirkusstjóri er leikari. Árið
1971 safnaði hann saman öllum
sígaunavögnunum úr fjölskyld-
unni og endurreisti sirkusinn,"
sagði Signý Pálsdóttir.
Það kom fram í máli Signýjar
að svo virtist sem um 20 þús-
und gestir sæktu viðburði
Listahátíðar að jafnaði. „Það er
erfitt að segja nákvæmlega til
um gestafjöldann. Gestir á
myndlistarsýningum á Listahá-
tíð eru til dæmis fjölmargir en
við erum ekki með aðgang að
þeim tölum. Þá seljum við á
sum atriði hátíðarinnar en ann-
að er selt af leikhúsunum eða
öðrum. Við gerum hins vegar
ráð fyrir því í fjárhagsáætlun að
selja aðgöngumiða fyrir um 20
milljónir króna,“ sagði Signý.
Listahátíð er með heimasíðu
á Internetinu og það hefur orð-
ið til þess að mjög margar fyrir-
spurnir hafa borist að utan um
ýmsa viðburði Listahátíðar.
Nokkuð af fólki hefur þégar
ákveðið að koma til íslands á
Listahátíð. Signý sagði að einn-
ig hefðu ferðaaðilar dreift bæk-
lingum á ensku og þýsku frá því
í desember. Áberandi væri hve
margir Þjóðverjar og Banda-
ríkjamenn ætluðu að koma til
landsins meðan á hátíðinni
stæði. Þá yrðu fimm stórar ráð-
stefnur hér á landi í júní, til
dæmis um þrjú hundruð
manna læknaráðstefna, og bú-
ast mætti við að gestir á þess-
um ráðstefnum sæktu ein-
hverja viðburði Listahátíðar.
Þó væri hátíðin fyrst og fremst
fyrir íslendinga og þeir væru
um 90% gesta.
Listahátíð verður með Loft-
kastalann við Seljaveg til ráð-
stöfunar fyrstu tvær vikurnar í
júní og mörg atriðanna á hátíð-
inni verða í leikhúsi Loftkastal-
ans. Þar verður einnig Klúbbur
Listahátíðar til húsa og verður
hann opinn alla daga frá klukk-
an 17 og fram á nótt. í leikhúsi
Loftkastalans munu til dæmis
bandaríska dansmærin Maure-
en Flemíng og félagar hennar
sýna EROS, margmiðlunarsýn-
ingu sem bandaríska verð-
launaleikskáldið David Henry
Hwang hefur samið texta við.
Dans Fleming er margrómaður.
Hún sameinar hina japönsku
butoh-danshefð og klassískan
dans. Sýningar verða 2. og 4.
júní.
Lokaatriði Listahátíðar verða
alþjóðlegir popptónleikar í
Laugardalshöll þriðjudaginn 2.
júlí þar sem breska hljómsveit-
in Pulp mun trylla lýðinn.
Hörpuútgáfan hefur sent frá
sér bókina Vötn þín og
vœngur eftir Mattliías Joliannes-
sen. Þetta er sautjánda Ijóöabók
Matthíasar, en sú fyrsta, Borgin
hló, kom út 1958. Eftir hann hef-
ur komið út fjöldi annana bóka;
smásögur, leikrit, ritgerðir, viötals-
bækur og ævisögur. í fyrra gaf
Hörpuútgáfan út eftir hann smá-
sagnasafniö Hvildarlaus ferö innf
drauminn. Vötn þín og vængur er
meöal stærstu og veigamestu
Ijóöabóka Matthíasar Johannes-
sen og sú bók hans sem sýnir
einna best helstu yrkisefni hans
og listræn tök. Bókin er 175 blað-
síður og skiptist í átta flokka sem
nefnast Um vindheim víöan, Hug-
mynd okkar um jörö, Inní enn einn
draum, Vötn þín og vængur, Huld-
unnar rísandi dagur, „Hið eilífa
þroskar djúpin sín“, í næn/eru
tímans og Kumpánlegt olnboga-
skot. Prentvinnsla er unnin í Odda
og kápumynd er eftir RAXI..
Stórsöngvarinn
ViðarGunn-
arsson veröur
meöal söngvara í
óperu Jóns Ás-
geirssonar,
Galdra-Lofti, sem
islenska óperan
frumsýnir í sam-
starfi viö Listahátíö
í Reykjavík 1. júní.
Viöar kemur sérstaklega til lands-
ins til aö syngja hlutverk Gott-
skáiks biskups, en hann hefur frá
frá síöasta hausti veriö fastráöinn
hjá Aalto Theater í Essen. Aöeins
sex sýningar veröa á Galdra-Lofti
og þegar er uppselt á tvær
þeirra...
Nbrrænum lesendum gefst
brátt kostur á aö kynnast
einni athyglisveröustu skáldsögu
sem samin hefur veriö á flnnsku,
Alastalon salissa eftir Volter
Kilpi. Rithöfundurinn Tliomas
Warburton hefur nýlokiö viö aö
þýöa bókina á sænsku og er þýö-
ingin, lsalen pa Alastalon, talin
mikið afrek. Volter Kilpi var uppi
1874 til 1933 og gaf út þetta
tveggja binda verk sama ár og
hann lést eftir aö hafa unnið aö
því í sex ár. Á rúmlega 900 síöum
er sagt frá því þegar bændur í
sókn einni í skerjagarðinum koma
saman til aö þinga um aö smíöa
skip. Máliö á sögunni er svo erfitt
aö þýöandi einn sagöi nýlega aö
verkiö væri óþýöandi á ensku.
Skáldsagan Alastalon salissa var
viö atkvæðagreiðslu 1992 talin
athyglisveröasta bókmenntaverk
sem samið heföi veriö á finnsku
frá því aö landið öölaðist sjálf-
stæöi...
A sunnu-
JLJudags-
kvöld veröur
síöasta sýn-
ing á Trölla-
kirkjunni í
Þjóðleikhús-
inu. Þórunn
Sigurðar-
dóttir vann
leikgeröina
upp úr skáld-
sögu Ólafs
Gunnars-
sonar, en
leikstjóri er
Þórhallur
Sigurðs-
son...
Tónlistar-
hátíðinni
ErkiTíö96,
sem staöiö
hefur yfir á
Sölon ísland-
us þessa
viku, lýkur á
laugardagskvöldið. Aðalstef hátíö-
arinnar nú er annars vegar ís-
lensk samtímatónlist og hins veg-
ar ný erlend tónlist. í kvöld,
fimmtudagskvöld, eru kammer-
tónleikar klukkan 20 og á sama
tíma á föstudagskvöld leikur
Caputhópurinn. Á laugardaginn
klukkan 16 eru söngtónleikar. í
lok hverra tónleika er efnt til pall-
borösumræöna þar sem tónskáld
og aðrir viöstaddir bera saman
bækur sínar. Aögangur er ókeyp-
is...
Pjöldi bókatitla sem gefnir voru
út 1990 og 1991 nam um
1.600 hvort ár. Áriö 1992 var
fjöldi útgefinna titla 1.740, fækk-
aði í 1.520 áriö eftir og niður í
1.427 áriö 1994. Fjöldi tímarita
hefur stóraukist undanfarin ár
eöa úr 562 áriö 1990 í 629 áriö
1993 og í 938 áriö 1994. Þessar
upplýsingar koma fram í skýrslu
fjármálaráðherra um áhrif 14%
viröisaukaskatts á bóka-, blaða-
og tímaritaútgáfu...
Nú fer hver aö veröa síöastur
aö sjá íslensku mafíuna í
Borgarleikhúsinu. Aukasýning
veröur á föstudagskvöld og þaö er
jafnframt allra síðasta sýning.
Sérstakt tiiboö er á veröi aö-
göngumiöa og fást tveir miöar á
veröi eins. Höfundar íslensku
mafíunnar eru þeir Kjartan Ragn-
arsson og
Einar Kára-
son, en þeir
unnu verkiö
upp úr
tveimur bók-
um Einars...
INýlistasafninu standa yfir sýn-
ingar á verkum Tuina Magnús-
sonar, Stefáns Rohners, Magn-
eu Þórunnar Ásmuudsdóttur og
Illuga Eysteinssonar. Sýningarn-
ar eru opnar daglega klukkan 14
til 18...
Mmel „ gF
ing hefur im
sent frá sér
SkáldSÖg- nuoskiiiicA
una Hugs- H,rt*
anlega
hœfir eftir
danska J
rithöfundinn
Peter
Hoeg, höfund metsölubókarinnar
Lesið ísnjóinn sem kom út hér
fyrir tveimur árum og náöi gífur-
legum vinsældum. Hugsanlega
hæfir kom fyrst út í Danmörku
haustið 1993 og hlaut afar já-
kvæöar móttökur. Höfundur fékk-
hin eftirsóttu verölaun danskra
gagnrýnenda árið 1993 fyrir sög-
una og hún trónaöi mánuöum
saman á metsölulistum. Eygló
Guðmundsdóttir þýddi bókina
en Alda Lóa Leifsdóttir geröi
kápuna...