Helgarpósturinn - 09.05.1996, Blaðsíða 24
24 ,
RMIVmJDAGUR 9. MAÍ1996
í sumar veröur Stone Free eftir Jim Cartwright frumsýnt hér á landi. Plata með tónlistinni úr leikritinu kemur út
í næsta mánuði og er upptökustjórinn Ken Thomas. Sá hefur unnið með nokkrum helstu poppstjörnunum:
Bowie, McCartney, Stevie Wonder ogSex Pistols. Eiríkur Bergmann Einarsson spjallaði við kappann...
íslenskar hljómsveitir
á barmi heimsfrægðar
Enski upptökustjór-
inn Ken Thomas
var staddur hér á landi
fyrir skemmstu við upp-
tökur á tónlistinni
úr leikriti eftir Jim
Cartwright sem á frum-
málinu nefnist Stone
Free. Þetta er í áttunda
skipti sem Ken Thomas
kemur til landsins í
slíkum tilgangi, en áður
hefur hann meðal ann-
ars unnið með Hilmari
Erni Hilmarssyni,
Bubba, Sykurmolunum,
Nýdanskri, Unun og
Kolrössu krókríðandi.
Thomas hefur einnig
unnið með nokkrum
helstu stórstjörnum
poppheimsins ytra og
skal þar fyrstan nefna
David Bowie, auk
Stevies Wonder og
Pauls McCartney,
ásamt hljómsveitunum
Stranglers og
Sex Pistols — svo
eitthvað sé nefnt. HP
átti við Thomas
snaggaralegt spjall
áður en hann hélt af
landi brott.
Hvað er það eiginlega sem
dregur þig til Islands trekk í
trekk?
„Ég byrjaði að vinna með
Sykurmolunum og Hilmari
Erni Hilmarssyni á Englandi.
Það var svo fyrir tilstuðlan
Hilmars og forsvarsmanna
Japis að ég kom hingað til að
taka upp plötu fyrir Bubba.
Síðan hef ég komið hingað átta
sinnum. Það er eitthvað við
landið sem dregur mig hing-
að.“
Er ekki mikill munur á
því að vinna með hljómsveit-
um á íslandi og stórböndum
úti á Englandi og víðar?
„Ég hugsa ekki um málið á
þann hátt. Hljómsveit er bara
hljómsveit og í grunninn er
þetta allt það sama. Ég vinn
lftir aö hafa starfaö af krafti
Jmeö Leikfélagi Akureyrar í
vetur hefur Snigillinn Skúli
Gautason tekiö upp á aö stofna
nýtt fyrirbæri í íslensku tónlistar-
og skemmtanalífi. Þaö er þriggja
manna hljómsveitin Rjúpan, sem
einkum flytur viökvæmnislegar
og hugljúfar laglínur með stór-
undarlegum textum, aö sögn.
Meö Skúla, sem syngur og leikur
á gítar, eru þeir Friðþjófur Sig-
urösson bassaleikari og Kari
Olgeirsson sem þenur
og pikkar á harmónikku.
Rjúpan leggur mikiö upp
úr „nánu" sambandi viö
áheyrendur, sem hafa
tillögurétt um hvernig
fara skuli með texta og
lag. Sveitin leggur auk
þess mikla áherslu á að
vera smekklega klædd
án þess þó aö áheyrend-
um sé leyfilegt aö skipta
sér af því...
Eins og Morgunblaöiö
hefur eftir ábyggileg-
um heimildum og reynd-
ar HP eínnig ætlar Björk okkar
Guðmundsdóttir aö ganga upp
aö altarinu á hausti komanda. Er
sá lukkulegi breskur jungle-tón-
listarmaöur og kærasti til nokk-
urs tíma, Goidie aö nafni. Hann
starfar sem sólisti og einnig meö
hljómsveitinni Metalheadz, sem
mun hita upp fyrir Björk á Lista-
hátíö í Reykjavík í Höllinni 21.
júní. En þaö er ekki nóg meö aö í
undirbúningi sé brúökaup aldar-
innar, heldur hefur HP einnig
fregnaö aö Björk hafi fjárfest í
myndarlegu glæsihúsi í Hamp-
öörum orðum hinn knái tónlistar-
maöur Bjöm Jörundur Frið-
björasson. Eins og kemur fram
annars staðar í blaöinu ætlar
Björn aukinheldur aö spila með
Scobie og Stefáni Hiimarssyni
á vínveitingahúsum víöa um land
í sumar...
sted, sem er friðsælt sveitaþörp
í miöri London. Þar verða Björk ■
og Goldie væntanlega í félags-
skap hins fræga fólksjns í
London...
*l\ /Teira um Bowie-tónleikana,
JLVLsem svo margir bíða meö
óþreyju,- Heyrst hefur aö nýveriö
hafi veriö ákveðið hver veröur
kynnir á tónleikunum í Laugar-
dalshöil 20. júní. Sá hinn sami
og upphaflega stóð til að myndi
hita upp meö nýrrí hljómsveit áð-
ur en goöið stígur á svið; meö
bara með þeim sem ég fíla. Að
vísu er það þannig þegar mað-
ur er að vinna með hljómsveit-
um sem eru í raun bara risa-
fyrirtæki að öll vinna verður
miklu erfiðari fyrir vikið. Það
verður allt að vera svo full-
komið og dauðhreinsað. Þeir
heimta endalausar endurupp-
tökur og þess háttar og dæla
endalausum peningum í þetta.
Ef illa gengur síðan jáá er
stjórnandinn rekinn, þannig
að það getur verið erfitt að
halda slíkum mönnum ánægð-
um og andrúmsloftið verður
stundum leiðinlegt."
Getur verið að það sé
meira skapandi að vinna
með litlu böndunum hér en
erlendum risaböndum?
„Já. Það má segja það. En
það er andrúmsloftið hér sem
heillar mig frekar en tónlistin.
Ég finn að landið togar alltaf í
mig. Ef ég þarf að velja milli
tveggja verkefna — hérna eða
annars staðar — þá vel ég hik-
laust að koma hingað. Það er
allt svo ferskt hérna og gest-
risnin með eindæmum. Hljóm-
sveitirnar hérna eru líka mjög
góðar og ekkert síðri en mörg
risaböndin. Fagmennska hér
er til dæmis meiri en erlendis
ef eitthvað er. Hæfileikarnir
eru það miklir á íslandi að sá
tími hlýtur að koma að heim-
urinn taki eftir því. Það þarf
bara smáheppni til.“
Heldurðu að frœgð og
frami Bjarkar hafi rutt ein-
hverja slóð sem aðrar ís-
lenskar hljómsveitir geti fet-
að?
„Já, tvímælalaust, en það
hefur þó alltaf verið til slóð
fyrir íslenskar hljómsveitir inn
á heimsmarkaðinn. Þetta er
aðeins spurning um viðskipta-
leg klókindi. En tilkoma Bjark-
ar hjálpar mikið til og hún hef-
ur gert ísland að fn-landi í
Evrópu. Og það þarf að nýta
þetta. Það er bara spurning
um hvenær stíflan brestur."
Menn hafa spáð því að
Unun gœti slegið í gegn er-
lendis. Ertu samþykkur því?
„Já. Unun hefur alla burði til
þess. Þau hafa þegar fengið
mikið af plötutilboðum, en
þau verða að fara varlega í
þetta."
Finnurðu einhvern tiltek-
inn og séríslenskan hljóm
hjá hljómsveitum hér?
„Já, maður finnur hann
greinilega. í tónlist íslenskra
hljómsveita má yfirleitt finna
mikla gleði og sköpun, — það
er einhver neisti í þeim sem ég
fíla. Og uppbygging laganna er
tíðum óútreiknanleg og fólki
líkar þess háttar yfirleitt vel.
Samanber Björk.“
Að lokum Ken. David Bo-
wie heldur tónleika hér í
sumar, geturðu sagt okkur
eitthvað frá kauða?
„Það er nú þó nokkuð um
liðið síðan ég vann með Bo-
.wie, en ólíkt flestum súper-
stjörnum var hann mjög við-
kunnanlegur og vingjarnlegur í
garð okkar upptökumann-
anna. Til dæmis gerði hann
sér sérstaka ferð til mín eftir
að upptökum lauk og þakkaði
mér samstarfið. Ég held að
þetta sé einsdæmi meðal stór-
stjarna. Bowie er einn fárra
sem skilja mikilvægi mann-
legra samskipta. Flestar súper-
stjörnur hugsa ekki um neitt
annað en eigin rass og. skilja
ekki að aðrar manneskjur eru í
kringum þá. Munurinn er
kannski sá að maður vinnur
fyrír súperstjörnur en rneð litl-
um hljómsveitum og mér líkar
hið síðarnefnda mun betur.“
f