Helgarpósturinn - 09.05.1996, Blaðsíða 25
-j- RMIVmiDAGUR 9. MAÍ1996
25
Lítið hefur spurst til Eiríks Haukssonar frá því hann flutti til
Noregs fýrir átta árum. Um næstu mánaðamót kemur hins vegar
út ný breiðskífa með „þungarokkspopparanum“ og nokkrum
félögum hans! Eiríkur var staddur á landinu í nokkra daga fýrir stuttu
og náði Guðbjartur Finnbjömsson ta\\ af honum í hljóðverinu Stöðinni
þar sem hann var í óða önn að syngja sitt síðasta á plötuna.
„Ef hárið gránar
fer ég bara í kántríið“
■
. '
Lítíð hefur farið fyrir
þungapoppsrokkar-
anum rauðhærða Eiríki
Haukssyni síðustu árin
hér á landi, en hann
flutti til Noregs fyrir
átta árum. Ástæðan fyr-
ir flutningnum var
norska þungarokks-
hljómsveitin Artch, sem
hafði háar hugmyndir
um frægð og frama.
Meðlimir sveitarinnar
höfðu heyrt Eirík
syngja og fengu hann út
til að prófa. Prufan
gekk svo vel að Eiríkur
ákvað ásamt fjölskyldu
sinni að flytja út til Nor-
egs og freista gæfunnar
með Artch. Gefin var út
breiðskífa sem fékk að
sögn Eiríks gríðarlega
góða dóma í tónlistar-
tímaritum í Englandi og
Bandaríkjunum og seld-
ist ágætlega. Gengi
næstu breiðskífu var
einnig ágætt, en við-
brögð útgefanda við
framhaldinu voru lítil.
Þeim var lofað gulli og
grænum skógum, tón-
leikaferðum og popp-
myndböndum — en allt
var svikið. Á endanum
lagði hljómsveitin upp
laupana, eða eins og
Eiríkur segir: „Þetta
Qaraði allt saman út.“
En Eiríkur hafði langt því frá
sagt skilið við tónlistargyðj-
una við andlát Artch, því þá
fór hann að syngja með söng-
kvartett sem kallaði sig Just
for Fun. í kvartettnum var
meðal annars söngkonan
Hanne Krogh, annar helming-
ur dúettsins BobbySocks, sem
vann Eurovision um árið. Sam-
starfið blómstraði um tíma og
gefnar voru út tvær breiðskíf-
ur, sem voru vinsælar í Nor-
egi. Eftir að kvartettinn logn-
aðist hins vegar út af fyrir
nokkrum árum hefur megin-
iðja Eiríks verið að spila á
pöbbum og rokkklúbbum
ásamt tveimur félögum. Eins
hefur hann hlaupið í kennslu
annað slagið.
„Ég hef alltaf lifað á tónlist-
inni og haft svo kennsluna
með sem aukatekjur. Ég hef
alltaf gaman af því að kenna.
Þetta er skemmtilegt áhuga-
mál,“ segir hann og brosir þar
sem blaðamaður HP hefur hitt
hann að máli í hljóðverinu
Stöðinni. Eiríkur var staddur á
iandinu í nokkra daga fyrir
skemmstu og blaðið fregnaði
að erindið væri meðal annars
að leggja lokahönd á nýja
breiðskífu sem Eiríkur sendir
frá sér ásamt nokkrum félög-
um um næstu mánaðamót.
En aftur að Noregsdvölinni:
„Pöbbamenningin í Noregi er
allt öðruvísi en hér á íslandi.
Helmingurinn af prógramminu
okkar er róleg lög. Það er ekki
sami æsingurinn þar og hér.
Mér skilst að ef ekki er verið
að dansa uppi á borðum hér
þá fari iólk eitthvað annað þar
sem fjörið er. Þetta er meira
eins og tónleikar úti. Stór hluti
er að fylgjast með tónlistinni
pg það er klappað á milli laga.
Ég gæti ekki hugsað mér að
stunda þá atvinnu hér, en úti
er hún þó örlitlu metnaðar-
fyllri og skemmtilegri."
Ekki á leiðinni heim
„Það hefur stundum hvarfl-
að að mér að flytja heim. Kon-
an var á tímabili mikið að
ræða um að flytja áður en við
myndum alveg festast þarna
úti, en svo var það eiginlega
hún sem vildi kaupa íbúð í
Noregi og selja íbúðina okkar
hér heima. Okkur líkar ákaf-
lega vel þarna úti og erum ekki
á leiðinni heim. Að minnsta
kosti ekki í nánustu framtíð.
Veðrið er auk þess mun betra
þarna en á Islandi. Við fáum
sumar og það er ekki langt á
ströndina þaðan sem við bú-
um. Annars finnst mér mann-
lífið í Noregi vera nokkuð svip-
að og á íslandi. Við kíkjum nú
alltaf í heimsókn af og til til ís-
lands, helst einu sinni á ári.
Annars eru reyndar tvö ár síð-
an öll fjölskyldan kom síðast.
Við komum heim í sumar því
ég ætla að fylgja þessari plötu
eftir."
Af hverju kemurðu með
plötu á Islandsmarkað nú
eftir svona langan tíma?
„Maður að nafni Björn
Björnsson fluttist í nágrenni
við mig úti,“ segir Eiríkur.
„Hann sagðist vera að spá í að
gera plötu og væri að leita að
manni sem gæti útsett hana.
Ég kíkti á lögin hans og fór að
vinna við þau í rólegheitum —
„Ég renni alveg blint í sjóinn með þetta dæmi
því ég hef búið erlendis í átta ár og þekki
þennan bransa ekki lengur. Það er þá helst að
einhver muni eftir Gaggó Vest og nenni að
koma að hlusta á mig. Menn gleymast fljótt í
þessum bransa og ég er nokkuð spenntur fyr-
ir hvaða viðtökur platan muni fá í sumar. Nú,
og ef menn hafa gleymt mér þá er bara að
kynnast mér aftur!“
án þess þó að ég hefði trú á að
það myndi nokkuð ganga. Ég
hef kynnst fjöldanum öllum af
draumórakenndum íslending-
um gegnum tíðina og þeir eru
margir hverjir miklir hug-
myndasmiðir sem verður lítið
úr verki. Mér leist hins vegar
bara nokkuð vel á það sem
Björn var að gera og úr varð
að við gerðum plötu með
þessu efni og bættum við
þremur lögum eftir mig. Þetta
er því engan veginn sólóplata
mín, þótt margir muni trúlega
líta á hana sem slíka. Það
muna nefnilega allir hverjir
syngja lögin, en fáir hverjir
semja þau. Ég kom síðan sér-
staklega til landsins núna til
að vinna við plötuna, en hún á
að koma út í byrjun júní. Ég
var að vonast til að geta lokið
við verkið áður en ég færi, en
svona er þetta nú stundum.
Maður setur sér tímamörk
sem sjaldan standast. En plat-
an er nokkurn veginn tilbúin.
Ég fer út í nótt — í þetta
skemmtilega „morgunflug“ —
þannig að ég er að ljúka við
minn hluta núna. Ég á eftir að
syngja eitt lag og spila ein-
hverja gítara. Síðan er ég far-
inn til Noregs. Upphaflega var
meiningin að vinna plötuna
úti, en þar sem ætlunin er að
fylgja plötunni eftir í sumar
hér á landi og setja saman
hljómsveit ákváðum
við að nota sömu
mennina á plötuna
og í hljómsveitina.
Fjárhagslega kemur
það ekkert verr út að
taka plötuna upp
hérna. Er maður ekki
að styrkja íslenskan
iðnað í Ieiðinni?"
Hver man ekki
eftir Gaggó
Vest?
„Ég er sennilega
þekktastur fyrir að
hafa sungið lagið
Gaggó Vest sem og
að hafa tekið þátt í
Eurovision; bæði fyr-
ir hönd íslands og
eins Noregs fyrir
nokkrum árum. Það
lag gekk ósköp svip-
að og Gleðibankinn,
var meira að segja
ekkert ósvipað lag.
Það hljómaði vel á
plötu, en hentaði illa í lifandi
flutningi. Mig minnir að það
hafi lent í sama sæti og Gleði-
bankinn, því sextánda. En nýja
platan verður ekki í neinum
Eurovision-stíl heldur frekar í
ætt við Gaggó Vest. Gott,
skemmtilegt og ekki of þungt
gítarrokk. Tveir, þrír þrusu-
rokkarar verða á plötunni, en
annars verður léttleikinn ráð-
andi og ætti platan að mínu
mati að vera nokkuð aðgengi-
leg fyrir almenning.“
Eins og áður sagði kemur
platan út í byrjun júní. Þá
verður farið í að fylgja henni
eftir. „Ég hef hugsað mér að
vera kominn aftur að minnsta
kosti fyrir sautjándann,“ segir
Eiríkur. „Vonandi komumst
við að einhvers staðar í bæn-
um þann dag. Þrátt fyrir að
enn sé snemma vors skilst
mér að við séum nokkuð seint
á ferðinni hvað varðar bókanir
á böll og útihátíðir í sumar.
Allir bestu staðirnir og bestu
dagarnir eru löngu uppbókað-
ir. Eg renni alveg blint í sjóinn
með þetta dæmi því ég hef
búið erlendis í átta ár og þekki
þennan bransa ekki
lengur. Það er þá helst að ein-
hver muni eftir Gaggó Vest og
nenni að koma að hlusta á
mig. Menn gleymast fljótt í
þessum bransa og ég er nokk-
uð spenntur fyrir hvaða við-
tökur platan muni fá í sumar.
Nú, og ef menn hafa gleymt
Eiríkiir Hauksson lætur hvergi bilbug á sér finna þrátt fyrir að vera kominn langleið-
ina með 37 æviár: „Þungarokk er nú einu sinni það sem ég hef mest gaman af að
glíma við, þótt maður sé kominn á gamals aldur. Málið er að ég hef og mun trúlega
alltaf hafa gaman af að semja og syngja. Tónlistin verður mitt ævistarf. Og ef hárið
gránar fer ég bara í kántríið og geri það gott þar.“ Myndir: ef
mér þá er bara að kynnast mér
aftur!“
Stefni á Þýskalands-
markað
„Mér líst vel á Reykjavík í
dag. Það er alltaf að verða fal-
legra og fallegra hérna. Sér-
staklega göturnar. Ég vann nú
í malbikinu hérna í gamla daga
og tek eftir því að gatnakerfi
borgarinnar hefur batnað.
Mannlífið blómstrar með öll-
um þessum matsölustöðum
og krár virðast spretta upp
eins og gras á vori. Umferðin
er alltaf jafn brjáluð. Ég tók vel
eftir því fyrsta daginn sem ég
keyrði bíl hérna. Það er alltaf
sami hraðinn og stressið á
löndum mínum.“
Eiríkur segist ekki hafa
fylgst mikið með því sem er að
gerast í íslensku popplífi frá
því hann fluttist út. „Ég fæ nú
alltaf einhverjar fréttir af því
sem er að gerast heima. Ég
veit til að mynda að Bubbi
heldur sig nokkurn veginn á
toppnum. Ég hef samt ekki
heyrt Bubba syngja lögin sem
Haukur frændi söng. Og ég hef
ekki heyrt nýja Eurovision-Iag-
ið. Það eru sem sagt nokkur ár
í að ég hafi íslensku poppsög-
una á hreinu."
Hann er alltaf sami gamli
rokkarinn: „Þungarokk er nú
einu sinni það sem ég hef mest
gaman af að glíma við, þótt
maður sé kominn á gamals
aldur. Ég hef verið að vinna
með nokkrum strákum úti og
er framtíðaráætlunin að reyna
að komast inn á Þýskalands-
markað. Englandsmarkaður-
inn er svo að segja harðlæstur
og sá bandaríski hreinlega of ■
stór. Málið er að þótt ég sé að
verða þrjátíu og sjö ára þá hef
ég og mun trúlega alltaf hafa
gaman af að semja og syngja.
Tónlistin verður mitt ævistarf.
Og ef hárið gránar fer ég bara í
kántríið og geri það gott þar,“
segir Eiríkur og hlær.
HUGSKOT
Ljósmyndastofa
Nelhyl 2 Sfmi 587-8044
NY ÞJONUSTA
Framköllun og kópering á
35mm litfilmum.
Kynningarverð:
24 mynda kr. 1000
36 mynda kr. 1360
Ný 24 mynda Fuji-
litfilma innifalin
-f