Helgarpósturinn - 09.05.1996, Side 31
FIMMTUDAGUR 9. MAÍ1996
31
[nútímakvennprófið
Þessa dagana stendur yfir mikil leit aö íslensku nútímakonunni: Hver er
hún, hvaöa hugmyndir hefur hún um sjálfa sig og ekki síst um hið gagn-
stæöa kyn? Lætur hún barnsfeður (einn eöa fleiri) passa fyrir sig? Er
hún töffari eöa bleyða? Fyrstartil aö spreyta sig á nútímakvennaprófi
HPeru þær stöllur Sóley Elíasdóttir leikkona og Jóhanna
Vilhjálmsdóttir nemi, þula og flugfreyja. En þaö er bara byrjunin...
Þulan vann leikkonuna
1. Hvort finnst þér meira um vert aö fá karl
eöa konu í embætti forseta íslands?
2. Hvaða kynslóð karlmanna heillar þig mest; yngri en
þú, jafnaldrar þínir eða karlmenn eldri en þú?
3. Hvort finnst þér skemmtilegra að þvo upp eða ryk-
sjúga?
4. Kaupirðu þér alltaf að minnsta kosti eina flfk í
mánuði?
5. Aflarðu meiri mánaðarlauna en þú getur eytt?
6. Læturðu barnsföður þinn „passa“ fyrir þig?
7. Leyfirðu þér oft að sofa út?
8. Hefur karlmaður farið „illa með þig“?
9. Ferðu í kvennaferðir til útlanda eða innanlands?
10. Saknarðu mannsins í lífi þínu þegar þú ert
T burtu frá honum meira en tvo daga?
1. SE „Mér finnst kynið ekki skipta máli, bara manneskjan." (1)
2. SE „Karlmenn á aldrinum 25 tii 35 ára; eldri, yngri og jafnaldrar
mínir, en þó hvorki börn né gamaimenni." (0)
3. SE „Mér finnst mun skemmtilegra að þvo upp.'1 (0)
4. SE „Já, að minnsta kosti eina í mánuði." (1)
5. SE „Nei, síður en svo.“ (1)
6. SE “Ég get ekki sagt að Hilmar passi börnin sin. Ég bið hann að
minnsta kosti aldrei um það.“ (1)
7. SE “Nei, en samt alveg mátulega oft.“ (0)
8. SE “Nei, ég leyfi karlmanni aidrei að fara illa með mig.“ (1/2)
9. SE „Já, að minnsta kosti tvisvar til þrisvar á ári, þar af fer ég
einu sinni á ári á Hótel Búðir á hestbak með lcvenfélaginu
Hrólfi.“ (1)
10. SE „Já, svona í og með, en mér finnst samt ægilega gott að
vera ein þessa dagana á meðan maðurinn minn er í leikferð í út-
iöndum.“ (0)
1. JV „Er einhver munur á? Ég er orðin þreytt á þessu tali um kon-
ur annars vegar og karla hins vegar. Ég vil bara hæfa manneskju
sem forseta. Gildir einu hvort það er karl eða kona.“ (1)
2. JV „Ég verð að viðurkenna að ég er ekki ennþá „dottin í yngri
kynslóðina*' — enn sem komið er hafa jafnaldrar og eidri kyrislóðin
heillað mig mest.“ (-1/2)
3. JV „Það er erfitt að svara þessari spurningu, því hvorugt er f
mínum verkahring á heimilinu.“ (1)
4. JV „Já. Og ef það líður einhver tími án þess að ég kaupi flík, þá
kaupi ég mér bara því íleiri í næsta skiptí.“ (1)
5. JV „Ég hef aldrei átt í erfiðleikum með að eyða laununum mín-
um, þannig að ég verð að svara þessari spurningu neitandi." (1)
6. JV „Nei, ekki frekar en hann lætur mig „passa“ fyrir sig.“ (1)
7. JV „Jájájájá..." (1)
8. JV „Það myndi enginn komast upp með það. Þar fyrir utan
er ég svo heppin að hafa einungis Öðlings herramenn í kringum
míg.“ 1/2)
9. JV „Ég er í nokkrum saumaklúbbum, þar sem ekki hefur sést nái
í tíu ár, en við í æskuvinkvennaklúbbnum höfum haft það fyrir
reglu að fara góða innanlandsreisu að minnsta kosti einu sinni á
ári. Það er síðan á planinu að fara eina góða utanlandsferð með
Ítalíuklúbbnum áður en langt um líður.“ (1/2)
10. JV „Þetta er algleymi þar sem söknuður fyrirfinnst ekki.“ (1)
Úrslit: Jóhanna Vilhjálmsdóttir náði að merja Sóleyju Elíasdóttur með 7 og 1/2 stigi gegn 5 og 1/2, sem er dágott skor hjá þeim báðum. Þær eru báðar sannar nútímakonur, þótt Jóhanna sé ívíð nútímalegri en Sóley.
af líkama og sál
Mariya
Strazhnikova
er ofurkona..
að eru ekki ýkja mörg ár síðan aðeins
allra sigldustu Vesturlandabúar þekktu
nokkur orð í rússnesku fyrir utan nöfnin á
helstu kommúnistaleiðtogunum: glasnost,
vodka, perestrojka og Lada... 0, jæja. Hugsan-
lega hefur ástandið lítið skánað hvað rússnesku-
þekkinguna varðar, en nú geta menn í öllu falli
bætt Mariya Strazhnikova við orðaforðann. Hin
sláandi stórglæsilega Mariya starfar nú sem fyrir-
sæta á meginlandi Evrópu og hefur á skömmum
tíma skapað sér sess meðal þeirra fremstu.
Verkefnaskráin og „mappan" fræga þykja þannig
ótrúlega miklar að vöxtum miðað við þann stutta
tíma sem hún hefur verið að í bransanum. Og
ekki skemmir tiltölulega framandi uppruninn fyrir.
Mariya hefur þó enn aðsetur í London þar sem
hún fékk fyrstu verkefnin ekki alls fyrir löngu.
Gælunafn gyðjunnar, sem er einungis 20 ára að
aldri, er Masha — líkt og útsendarar fyrirsætu-
skrifstofu einnar voru fljótir að komast að þegar
þeir uppgötvuðu hana þar sem hún stundaði
nám við Moskvuháskóla. Masha segist sjálf hins
vegar ekki hafa flust til London til að slá í gegn í
fyrirsætubransanum. „Nei, alls ekki. Ég kom
hingað fyrst og fremst til að læra ensku, því í
framtíðinni ætla ég að búa í Moskvu og vinna í
utanríkisþjónustunni. Það er draumur sem ég hef
í hyggju að láta rætast." Það vantar ekki metnað-
inn. En hvað skyldi hún hafa annað á afreka-
skránni en að vera eldklár, metnaðarfull og gull-
falleg? „Ég spilaði til dæmis blak með rúss-
neska landsliðinu á sínum tíma.“ Landsliðskona
í blaki... — í alvörunni? „Maður þarf ekki að vera
svo mjög hávaxinn til að ná færni í blaki, en það
hjálpaði mér þó vitaskuld talsvert. Aftur á móti
var ég númer eitt, tvö og þrjú þekkt fyrir slag-
kraftinn og fastan leik.“ Saknar hún æskustöðv-
anna í Moskvu? „Já, svo sannarlega. Ég get ekki
afborið þá tilhugsun að vera mjög lengi að heim-
an. Ég sakna hundanna minna of mikið." -sd