Helgarpósturinn - 09.05.1996, Síða 32
HELGARPOSTURINN
9. MAÍ 1996 18. TBL. 3. ÁRG. VERÐ 250 KR.
Eigandi pizzustaöarins Eldsmiðjwmar á Bragagötu freistar
þess nú aö stööva notkun allt annars pizzustaðar á Eld-
smiðjunafninu. Sá staöur er við Leirubakka og margir standa í
þeirri trú aö um sama fyrirtæki sé að ræöa, en svo er ekki.
Eldsmiðjunni á Bragagötu berast nokkrar kvartanir á dag frá
óánægöum viöskiptavinum sem segjast ekki par hressir með
pizzuna sem þeir pöntuðu, en þá kemur í Ijós aö þeir hafa
skipt við Eldsmiðjuna viö Leirubakka. Á Bragagötunni hafa
menn fengiö sig fullsadda af þessum misskilningi og fengið
máliö í hendur lögfræðingi, enda hefur Eldsmiðjan einkarétt á
nafninu...
Af og til berast sögur af fólki sem sagt er iöið við aö mjólka
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar. Nýjasta dæmið
sem okkur barst til eyrna er þess efnis aö nokkrir nemar við
lönskólann í Reykjavík séu á styrk frá Féló til þess að losna við
aö taka námslán. Seljum ekki dýrar en viö keyptum...
Pyrir skömmu greindum viö frá því aö allir þingmenn krata
nema Jón Baldvin hefðu flutt tillögu til þingsályktunar um
rannsóknir á beitukóngi. í greinargerö meö tillögunni er farið yf-
ir víöan völl og meðal annars sérstakur kafli um Jón lærða
Guðmundsson sen uppi var á fyrri hluta sautjándu aldar, og
var vitnað í þann kafla. Útgerðarmaöur einn hafði samband við
blaöiö og sagöi aö í fréttina heföi vantaö þann kafla greinar-
geröarinnar þar sem Jón lýsir kuöungaáti og skal úr því bætt:
„Meistarar nýta það og fleira af vorum ætum kuðungum, aö
þeir brenna þá með fiskinum svo glóandi veröi og slökkvi í uxa-
þvagi, og láti neyta í mat og drykkjum svo að hún eöa hann
ekki viti. Þaö varnar píku karlmannafari og svo
lauslætismönnum óhóflegri kvensemi." Útgeröar-
maöurinn kvaö þetta heillaráð og benti jafnframt
á aö í greinargerðinni væri þess getið að Jón
læröi hefði á köflum verið meira en smáskrítinn,
„svo sem títt er um góöa vísindamenn". Taldi
maðurinn þetta eindregið benda til að Össur Skarphéðinsson
væri höfundur margnefndar greinargeröar...
Ekkert lát er á áhuga manna á að opna veitingastaði í mið-
borginni. Fyrir skömmu sótti Kári Þórisson um leyfi til
byggingarnefndar til að breyta notkun fyrstu hæöar og kjallara
hússins í Lækjargötu 6B úr verslun og skrifstofu í veitingahús
og gistirými. Nefndin frestaði því að afgreiða erindið, en benti
umsækjanda á að sækja þyrfti um veitingaleyfi til lögreglu-
stjóra...
Leiklistarháskólinn í Malmö í
Svíþjóð frumsýndi fyrir skömmu
Kirsuberjagarðinn eftir Tjekov í
leikstjórn Kjartans Ragnarssonar,
sem einnig gerði leikmynd og bún-
inga. Sýningin hefur hlotið góða
dóma og verður á fjölunum til 18. maí. Fyrir tveimur árum setti
Kjartan upp leikritið Ég - meistarinn eftir Hrafnhildi Hagalín
Guðmundsdóttur í Gdansk í Póllandi. Sú sýning gengur enn
fyrir fullu húsi...
Þeir sem standa daglangt viö spilavélar Happdrættis Há-
skólans I von um skjótfenginn gróða eru vægast sagt orðn-
ir óhressir með það hve eigendur staða sem hýsa slíkar vélar
eru duglegir við að hirða stærstu vinningana. Fyrir skömmu féll
liðlega 10 milljóna króna gullpottur á veitingahúsinu Ránni í
Keflavík. Sá sem þar sankaði að sér milljónum er Bjöm Vífill
Þorleifsson, eigandi staðarins. Þetta er eitt dæmi af mörgum
þar sem eigendur spilastaöa vinna sjálfir háa vinninga og
finnst sumum spilurum sem þetta sé ekki einleikið. Forsvars-
menn Háskólahappdrættisins segja hins vegar að engin leið
sé að svindla á spilavélunum...
Vinhverjir helstu sérfræðingar landsins um
valdsviö forseta íslands, félagar í Félagi
stjórnmálafræðinga, standa fyrir þriggja funda röð
í tilefni komandi forsetakosninga. Fyrsti fundur-
inn, sem fram fer í stofu 101 í Odda í kvöld, ber
yfirskriftina „Forseti íslands: Farandsendiherra
eða héraöshöfðingi?" Á fundinum flytja stjórnmálafræðingarnir
Ólafur Þ. Harðarson og Herdís Þorgeirsdóttir framsöguer-
indi og svara fyrirspurnum, auk þeirra Valgerðar Sverrisdótt-
ur framsóknarþingmanns og Jóns Baldvins Hannibalssonar
Alþýðuflokksformanns. Félag stjórnmálafræöinga hefur þegar
lagt fáeinar sþurningar fyrir framsögumenn sem þeim finnst
nauösynlegt að svarað sé fyrir komandi kosningar. Þær varða
fjóra meginþætti embættisins sem eru: pólitískt hlutverk for-
seta, erlend samskipti, sameiningartákn þjóöarinnar og fram-
tíöarsýn embættisins...
RETTINGfiR
AUÐUNS
Nýbýlavegi 10
200 Kópavogi
Sími 554 2510
Vönduð vinna
unnin aðeins .
af fagmönnum
Þjónustuaðili fyrir ®)TOYOTÁ,
Seljum 5ÍkkEn5
hágœda lökk og undirefni.
Einnig SAQÖLA sprautukönnur
á mjög hagstœðu verði.
Setjum alla liti
á spraybrúsa.
Talaðu við okkur um
BÍLARÉTTINGAR
BÍLASPRAUTUN
CAFF
SóLON ISLANDUS
Nu þu
smellt oftar af!
D i s k I i n g a
Ljósmyndir settar i tölvutækt form hjá
Hans Petersen
Hans Petersen kynnir nýjung sem gefur áhugafólki um Ijósmyndun
spennandi tækifæri til aö vinna áfram meö Ijósmyndir sínar eftir
að þær hafa verið framkailaðar. Disklingasmellir!
Þú kemur með myndir þínar eða filmu til Hans Petersen og við
setjum þær yfir í tölvutækt form. Þú færð í hendurnar diskling með
allt að 40 myndum og tekur til við að smella á ný - nú í tölvunni
þinni!
Þegar myndin er komin í tölvuna eru möguleikarnir margir: Þú getur
prýtt ritgerðina, skýrsluna, sendibréfið eða aðrar ritsmíðar með
myndum inni í ritvinnslu- eða umbrotsforriti.
Einnig er hægt að leyfa hugarfluginu að ráða för með því að vinna
myndirnar áfram í teikniforriti, og þessi þjónusta hentar þeim sem
vilja gleðja vinina með mynd í tölvupósti.
Ekki síst er hér komin leið til að setja upp hið fullkomna.
fjölskyldualbúm!
Fyrsti smellurinn er ekki lengur sá síöasti
þegar IJósmyndun er annars vegar.
Smelltu þér til okkar og kynntu þér máliö!
Hans frmsE\
STOFNAÐ 1907 • GÆÐI ERU OKKUR HUGLEIKIN
Þjónusta þessi fer fram hjá Hans Petersen Laugavegi 178, en tekið er við myndum og filmum í öllum verslunum okkar.
4