Vísir - 02.03.1972, Page 1
vism
62. árg. — Fimmtudagur 2. marz 1972 — 52. tbl.
Nekt í því konunglega
Hann Flemming Flindt er væntanlegur til tslands i sumar til að
skemmta með listdansflokki sinum á listahátiðinni. Ekki vitum við
hvort hann sýnir hér ballettinn sinn, Sigur dauðans, en hann er sýndur
i Konunglega leikhúsinu i Kaupmannahöfn, og þar dansar flokkurinn
allsnakinn i tveim atriðunum. — Sjá bls 4
Hvað á barnið
að heita?
Það gerist sifellt sjaldgæfara
að prestar þurfi að hugsa sig
um oftar en tvisvar áður en
þeir gefa barni nafn, en hér á
landi gilda ströng lög, liklega
þau ströngustu í heimi, um
nafngiftir. En áður fyrr kom
það fyrir að fólk kom með
börn og vildi láta skira nafni
eins og t.d. Einsinagróa —
Sjá bls. 2
■ ■■■■■■■■■■■■■■■«■■■
„Líf og limir :
ganga fyrir" \
Sextiu kaupsýslumenn i 2
Kópavogi standa i ströngu ■
þessa dagana. Mótmæla þeir J
harðlega hvernig vegamál ■
kaupstaðarins hafa leikið JJ
stóran hluta stéttarinnar eft- ■
ir að gjáin mikla skildi verzl- ■
anir eftir uppi á gjárbarmin- ■
um, en siðan er það helzt fyr- ■
ir fuglinn fljúgandi að heim- “
sækja búðirnar. „Lif og limir ■
borganna eru sett öllu öðru 2
ofar”, segja yfirvöldin. — ■
Sjá bls. 16 2
Þeir spýta illum
öndum í
hrákadalla
í Kína
Óviöa finnast hrákadallar i
dag, — en árvökul augu
fréttamanna, sem verið hafa
i Kina undanfarna daga,
hafa séð að Kinverjar nota
slikt enn. Það er gamall og
góður kinverskur siður að
spýta hressilega og með þvi
móti losa þeir sig við illa
anda úr skrokknum. — Sjá
bls 6
„Ekkert brezkt,
takk," segja
þeir í Ameríku
Bandarikjamenn eru ekki
hrifnir af stefnu Breta i
Norður-trlandi. Mikil her-
ferð er hafin i Bandarikjun-
um, þar sem fólk er hvatt til
aö kaupa ekki brezkar vörur,
og flutningaverkamenn hóta
að afgreiöa ekki brezk skip
eða flugvélar. — Sjá bls. 5
„Ekki hœgt að loka fyrir
umferð um Laugaveginn!"
— segja koupmenn og ráðgera fund með SVR. — Vilja fleiri bílastœði og
betra gatnakerfi í nágrenni Laugavegar áður en til lokunar kemur
„Það getur hugsazt.að það komi
sér betur, að loka fyrir umferð
annara en strætisvagna um
Laugaveginn, en það er þó fráleitt
að gera það á meðan gatnakerfið I
nágrenni Laugavegar er eins og
það er I dag og bilastæðin ekki
fleiri”, sagði kaupmaður einn i
viðtali við Visi i gær, i tilefni af
þeirri hugmynd, sem forstjóri
SVR hefur varpað fram um
minnkun umferðar á Lauga-
veginum. Hafði hann lika að orði,
að það gæti allt eins verið hug-
mynd, að vikja strætisvögnunum
af Laugaveginum eins og einka-
bflunum.
Það fannst aftur á móti Hirti
Jónssyni, formanni Kaupmanna-
samtakanna, ekki beinlinis ráö-
legt, er Visir náði tali af honum.
„Við kaupmenn viljum nú fæstir
missa af strætisvögnunum,”
sagði hann. „Þaö hefur nefnilega
sýnt sig, að þær verzlanir, sem
liggja næst viðkomustööum
strætisvagnanna eiga einna
mestrar „aösóknar” að njðta.
Viðskiptin hafa lika mikið færzt i
verzlanirnar viö ofanveröan
Laugaveginn eftir að enda-
stöðvarnar voru fluttar af Læk-
jartorgi og upp á Hlemm”.
Hjörtur benti lika á, að nær-
liggjandi götur, eins og t.d.
Grettisgatan og Njálsgatan væru
engin strætisvagnaleiö. „Raunar
ekki heldur boðlegar einkabif-
reiðum og ljóst er að upp á þær
götur veröur að lappa allverulega
eigi þær að taka við umferðinni af
Laugaveginum i framtiöinni,”
sagði formaðurinn og skirskotaði
til „skipulagsins”, sem á að vera
komið á 1983, en þar er gert ráð
fyrir, að Laugavegurinn sé lokuð
gata.
„Það er lika nauðsynlegt”, hélt
Hjörtur áfram, „að nú þegar
veröi fariö að svipast um eftir bif-
reiðastæöum. A þeim er geysi-
legur hörgull i dag. Það verður að
fara aö ryðja niður gömlum
húsum hér i nágrenninu og eins
að nýta betur opin svæöi, ja... eins
og t.d. barnaleikvöll, sem er við
Grettisgötuna og önnur slik
svæði.”
Loks gat Hjörtur þess, að
Kaupmannasamtökin hefðu
valið i viðræðunefnd kaupmenn af
Laugaveginum,sem lofaðhafa að
eiga frumkvæði að viðræðum við
stjórn SVR um umferð um
Laugaveginn.
„Þeir kvarta yfir þvi að
strætisvagnarnir séu lengi að
komast niður Laugaveginn. Ég
segi: Gefið þeim þá bara betri
tima”, sagði Hjörtur aö lokum.
„Lokun Laugavegarins er stór-
mál, sem verður að fara varlega
i, eigi verzlanafjöldinn viö götuna
ekki að biða tjón af”.
—ÞJM
MHH 1' 4
lí^*ÉLák Is Sm'i: aL Æm
„EINS OG GAPANDI
FALLBYSSUKJAFTUR"
— segir Jónas um andstœðinginn
„Mister Linch er eins og gap-
andi fallbyssukjaftur, — si-
malandi um herskipin sín”,
sagði Jónas Arnason um Aust-
in Linch. Vakti þetta mikinn
fögnuð hjá blaðamönnum á
blaðamannafundi hjá Jónasi
Arnasyni, alþingismanni i
Hull. Linch boöaði blaða-
mannafund um leiö og Jónas
og hafði með sér þekktan
landhelgisbrjót, Taylor, sem
var dæmdur á Litla-Hraun
m.a. fyrir barsmiöar á lög-
reglunni á Isafirði. Voru þeir
félagar fremur rólegir á fund-
inum, en fóru með róg um
málstað íslands að sögn
fréttaritara VIsis i London,
Astþórs Magnússonar.
„Ég hef mikinn áhuga á að
fara til Grimsby og ræða þar
við bátasjómenn. ÍJtgerðar-
menn báta og bátasjómenn
hér eru velviöjaöir okkar mál-
stað, en á þá heyrist aldrei
minnst, um máliö er ekki rætt
viö þá”, sagði Jónas I gær. —
SJA NANAR UM HINA UM-
DEILDU FÖR JÓNASAR TIL
ENGLANDS A BLS. 3
r
FINNAR FYRSTU MOTHERJAR
ISLENDINGA A SPANI Sjá íþróttir í opnu
Flugfreyjur
samþykktu
— og flotinn þarf
ekki að stöðvast
Flugfreyjur samþykktu
samningana á félagsfundi i
gærkvöldi. Að meginstofni
voru samningarnir geröir á
grundvelli almennra samn-
inga og nær samningstimabil-
iðtil 1. nóvember 1973. Aðalat-
riði samninganna var almenn
hækkun um 18 1/2 %, en slð-
asta kauphækkunin er i mai
1973.
Flugfélögin geta þvi haidiö
sinu striki, en verkfali flug-
freyja heföi þýtt stöðvun far-
þegaflutninga flugfélaganna
tveggja.
Myndin var tekin I gær-
kvöldi, þegar flugfreyjur sátu
fund og ræddu samkomulagið,
sem siðan var einróma sam-
þykkt. — SB—