Vísir - 12.06.1973, Síða 3
Vlsir. Þriöjudagur 12. júni 1973.
3
mennasamböndum þeim sem
stóöu að mótinu.
18 kamrar á 5 þús.
manns
Blaöamaður spuröi Sigurð,
hvaöan mótsstjórnin heföi þá
tölu, að 18 kamra þyrfti fyrir 5
þúsund manns. Sigurður sagði, að
varla væri þarna um að ræða
neinn staðal, en hann hefði ekki
orðið var við, að ástandið væri
slæmt á kömrunum, a.m.k. hefði
ekki myndazt örtröð við þá, þótt
aðsókn hefði verið jöfn og þétt.
Á laugardagskvöldið var dans-
að á tveimur stöðum, og þrátt
fyrir kuldann virtust menn
skemmta sér hið bezta. Drykkju-
skapur var áberandi, en lítið var
um slagsmál eða önnur leiðindi.
Lögreglan gekk um og tók
flöskur af þeim, sem veifuðu
þeim opinberlega og hellti niður á
staðnum. Jón Guðmundsson yfir-
lögregluþjónn á Selfossi sagði, að
I heildina hefðu 150 flöskur verið
teknar af mönnum, og mörgum
hellt niður. 30 menn voru teknir
úr umferð fyrir ölvun eða hnupl
úr tjöldum, og voru nokkrir
þeirra sendir til Reykjavikur,
aðallega þeir, sem voru grunaðir
um þjófnað. Jón sagði, að nokkuð
hefði verið um kvartanir vegna
hvarfs á útilegubúnaði. 8 bilstjór-
ar voru teknir fyrir ölvun við
akstur á svæðinu.
Vaktaskipti hjá fylliröft-
um og hinum
Jón sagði, að sér hefði fundizt
þessi samkoma ósköp skikkanleg
I alla staði og þótt hér væri fjöld-
inn allur af fólki ölvaður, þá væru
sennilega færri staddir á svæðinu
ölvaðir, heldur en fjöldi ölvaðra á
venjulegu laugardagskvöldi i
Reykjavik.
Um klukkan átta á morgnana
urðu nokkurskonar vaktaskipti
hjá samkomugestum. Þá héldu
fylliraftarnir til svefns, en um
svipað leyti fór venjulegt fólk á
fætur. Um hádegisbilið fór svo að
bera á þeim, sem höfðu verið
hvað galsafengnastir kvöldið áð-
ur. Voru flestallir grúttimbraðir
og illa til reika.
Þegar leið á daginn fóru menn
að jafna sig, og var þá tekið til við
að blanda á ný.
Eins og áður sagði var frekar
kalt í veðri á mótinu, og kom
meira að segja snjómugga á
sunnudagskvöld.
„Jákvætt viðhorf hjá
yfirvöldum”
Strax á sunnudagsmorgun fór
fólk að tygja sig heim á leið, og
gekk á þvi allan þann dag og i
gær, en þá lauk mótinu.
Hjálparsveitir skáta sáu um
sjúkragæzlu á mótssvæðinu og
þegar blaðamaður talaði við þá á
sunnudag höfðu rúmlega 300 til-
felli verið skráð, en meirihlutinn
af þvi voru smáskrámur og
verkjapillur.
Tveir læknar voru þarna til að
meðhöndla stærri áverka, þeir
Þorsteinn Gislason og Karl
Haraldsson. Þeir sögðu að þeir
heföu átt frekar náðuga daga, og
ekkert alvarlegt hefði komið
fyrir. Aðeins einn var fluttur i bæ-
inn til meðhöndlunar, en hann
rotaðist. Annað sem kom fyrir
var, að fólk var að skera sig eða
meiðast á annan hátt.
Hjálparsveitir skáta voru með
um 50 manns á sinum vegum, og
sögðu þeir, að þeir ættu frekar
náðuga daga.
Þeim sem blaðamaður hitti á
mótinu lfkaði ágætlega að vera
þar en höfðu yfir ýmsum smá-
Ilvar sem litið var mátti sjá rusl og aftur rusl, og var þaft scrstaklega áberandi seinasta daginn.
atriðum að kvarta eins og von
var. Fannst mörgum sem of mik-
iö skipulagsleysi væri á svæðinu,
og margir höfðu enga hugmynd
um, hvenær skemmtidagskráin
átti að fara fram. Þá fannst
mörgum kamrarnir vera hin
mestu „skitapleis”, eins og einn
orðaði það, og fóru menn ekki
þangað nema i „ýtrustu” neyð.
Að öðru leyti voru menn ánægð-
ir, og fannst það vera jákvætt við-
horf hjá viðeigandi yfirvöldum að
reyna að gera eitthvað fyrir fólkið
um þessa helgi.
Þegar fólk fór að tinast i bæinn
ofan úr Þjórsárdal, hitti blaða-
maður nokkra mótsgesti á Um-
ferðarm istöðinni og spurði,
hvernig þeim hefði likað dvölin.
Fjórar ungmeyjar urðu fyrst fyr-
ir svörum. Þær sögðu, að þær
hefðu skemmt sér virkilega vel og
það sem hefði nú aftallega haldið
uppi skemmtuninni hefði verið að
syngja og spila fyrir sjálfan sig.
Einnig sögðu þær, að ekki hefði
spillt fyrir, að Bakkus var ekki
með i ferð hjá þeim.
Tveir Vestmannaeyingar sátu
og hvildu lúin bein.
„Fylliriið þarna uppfrá var nú
eiginlega verra en gerðist á þjóð-
hátiðum hjá okkur”, sagði annar
þeirra. Hann sagði, aö drykkju-
skapur hefði verið mun meira
áberandi en hann hefði kynnzt
fyrr á útiskemmtunum. „Og
sóðaskapurinn var alveg óstjórn-
legur”, sagði hinn. Hann sagði, að
drasliö hefði aukizt jafnt og þétt
allan timann, og þegar þeir fóru,
var það oröið dreift um allt svæð-
't> . —ÓH
Sá gamli reið þá ungu af sér
Kommafélagið er kennt við kommu, ekki "komma
Vafalaust hefur 1500 m hlaup
stökkhesta verift mest spennandi
á kappreiftum Fáks á annan I
hvitasunnu. Gráni, eigandi Gisli
Þorsteinsson, knapi: Guftmundur
Pétursson, tók strax forystuna,
en hljóp út undan sér á miöri leift
að hestaréttinni og átti knapinn i
erfiðleikum vift aö koma honum
inn I hlaupið aftur. Þaö tókst, en
þó var hann orðinn einum 20-30 m
á eftir hinum, þó tókst honum
mjög fljótlega aft ná hinum hest-
unum og varö aftur langfyrstur.
Þegar hestarnir nálguöust
markift fór Lýsingur, eigandi
Baldur Oddson, knapi: Oddur
Oddson, aft draga á hann og ekki
óliklegt, ef hann heffti byrjaft
fyrr á endasprettinum, aft hann
heföi unniö. Timi Grána var 2.17.3
sek., en Lýsingur hljóp á 2.17,5
sek. Þetta er erfitt hlaup og sýndi
Gráni þarna mjög mikift þrek.
Skeiðið var einnig mjög
spennandi, þar vildu hestarnir
mikið hlaupa upp og erfitt var að
halda þeim i skeiðinu. Sigurveg-
ari þar var Óðinn og hann sat elzti
knapinn i mótinu, hátt á áttræðis-
aldri og mjög vel þekktur hesta-
maður, Þorgeir Jónsson, Gufu-
nesi, og er hann jafnframt eig-
andi hestsins. Timinn var 25.4
sek. og aðeins sjónarmunur var á
næsta hesti, Randver, eigandi
Jónina Hliðar, knapi: Sigurfinnur
Þorsteinsson.
Kerruaksturinn var ekki nógu
spennandi, hestarnir ekki nóg
æfðir og hlupu upp. Sigurvegari
með yfirburðum var Kommi,
eigandi Kommafélagið. Knapi:
Einar Karelsson á 3.16,0 sek. og
nr. 2 varð Sleipnir. Eigandi Aðal-
steinn Aðalsteinsson, knapi:
eigandi.
Við spjölluðum við Einar og
spurðum hvers vegna félagið,
sem ætti hestinn héti Komma-
félagið. „Ja, það er nú bara af þvi
að hesturinn hefur kommu á
enninu, og félagið, það er nú
bara við þrir, sem eigum
hestinn.” Annars er hesturinn úr
Húnavatnssýslu og keypti fyrri
eigandi hans hann undan hnifn-
um,semfolald i Borgarnesi, litill
hestur, en knár.
Þorgeir Jónsson, Gufunesi aö vinna skeiftift á óftni.
Þeir eru ákveftnir i aft vinna Kommi og Einar Karelson og gerftu þaft
lika.
önnur úrslit voru þau að i góð-
hestakeppninni var i A-flokki nr.
1. Eyrar-Rauður, eigandi Halldór
Eiriksson, knapi Aðalsteinn Aðal-
steinsson, i B-flokki Sómi, eigandi
Þórdis Jónsdóttir, knapi Halldór
Sigurðsson.
1 unghrossahlaupi 250 m , nr. 1,
Óðinn, eigandi: Hörður G.
Albertsson, knapi: Sigurbjörn
Bárðarsson á 20,0 sek.
Stökkhestar 350 m, nr. 1,
Hrimnir, eigandi Matthildur
Harðardóttir, knapi Sigurbjörn
Bárðarson.
Stökkhestar 800 m , nr. 1
Stormur, eigandi Oddur Oddson,
knapi, eigandi.
Annars var mesta furða hve
margir voruá kappreiðunum, þvi
noröan garri var og margir orðnir
rauðnefjaðir af kulda.
Dregið hefur veriö i happ-
drættinu. Vinningar komu á nr.
844 — gæðingur, og nr. 3164,
Mallorkaferö.
-EVI
Ny pils,
nýjor síðbuxur,
nýjar peysur
og nýjar
blússur
verzlun ungu
nnar Kirkjuhvoli
i H114NL