Vísir - 12.06.1973, Qupperneq 9
Visir. Þriðjudagur 12. júni 1973.
cTVIenningannál
GO H H[B)S GARÐASTRÆTI 11
IQLILIIIKF S/M/ 200 80
OFAN UR SVEIT,
UTAN FRÁ SJÓ
bækur Bókaforlags Odds Björns-
sonar, og með alveg óvenjulega
skemmtilegum myndum eftir
bróður höfundarins, Odd Björns-
son.
Skyldi Vigfús Björnsson hafa
gengið á kúskinnsskóm þegar
hann vár að alast upp? Varla:
hann er fæddur árið 1927. Voru
ekki allir komnir á gúmmiskó upp
úr þvi? Hvað sem um það er þá
gætu frásagnir hans i bókinni
efnisins vegna mætavel verið
sannar sögur að stofni til. Og það
er vitaskuld réttlæting hinnar
rikulegu fastheldni við sveitalifs-
lýsingarnar, að þar sé til að
dreifa efnivið lifs og reynslu sem
höfundar þeirra þekki bezt til og
sé nærtækast að láta uppi i skáld-
skap, sjálfum þeim i fersku minni
eigin bernskuára.
En gamansamlegar frásagnir
þessarar bókar af strákalifi i
gamla daga, i sveitinni, eru
óvenju vel stilaðar sögur i barna-
bók, einkar læsilegar i látleysi
sinu ef ekki beinlinis vegna þess.
Hafi Gestur Hannson haldið
áfram sem horfði i þessari bók
ætti hann að vera orðinn æði góð-
ur rithöfundur i sinum seinni sög-
um.
bóka séu kennarar að mennt og
starfi. Af þeim ellefu bókum sem
vikið hefur verið að i þessum
greinum eru lika sex þeirra eftir
kennara, og er þó enn ógetið okk-
ar fremsta höíundar i þessari
sagnagrein Stefáns Jónssonar.
Skyldi þessi einhæfni vera að
öllu leyti æskileg þó hún sé ósköp
skiljanleg? 1 þessum töluðum
orðum tek ég minnsta kosti eftir
þvi að þær bækur i syrpunni sem
bezt hafa fallið i minn smekk eru
allar eftir fólk utan kennarastétt-
ar, Ragnar Þorsteinsson, Gest
Hannson, Magneu frá Kleifum.
En engin þeirra verður heldur,
vel að merkja, auðkennd sem
iönáðarvara eins og ýmsar hinna
og svo alltof margar barnabækur
á markaði.
1 sögu Ragnars A. Þorsteins-
sonar, Röskir strákar i stórræð-
um er komið að ofur-kunnuglegri
sögugerð. 1 slikum sögum er skóli
og kennari jafnan i sjónarmiðju
verksins, þeirrar heimsmyndar
sem sagan dregur upp, þeim er
jafnan einkar annt um iðni, sið-
prýði, framfarir sögufólksins og
þá væntanlega lesendanna lika,
og einatt eru þær sagðar með ivið
ibyggilegum, settlegum bókmáls-
hætti þar sem skammt er i siða-
predikun og jafnvel beinar
umvandanir við heiðraðan les-
ara.
Þar fyrir þurfa þetta engan
veginn að vera neitt slæmrar
bækur, og svo er aldeilis ekki um
bók Ragnars A. Þorsteinssonar
þótt hún hafi öll þau auðkenni
sem nú var lýst. Umgerð efnisins
er tilkoma nýs kennara i þorpið
þar sem hún gerist, skólastarf,
félagslif og iþróttaiðkanir drengj-
anna i sögunni undir forustu hans,
og henni lýkur með þeim gleði-
boðskap að kennarinn hyggist
festa ráð sitt og staðfestast til
frambúðar i þorpinu. Eh innan
þessa ramma segir sagan mjög
svo trúverðuglega frá lifi og leikj-
um drengja i þorpi fyrir einhverj-
um árum eða áratugum siðan —
eins og fleiri barnasögur gerist
þessi frekar utan við timann og
heiminn en á neinum tilteknum
stað eða stundu. Strákarnir i sög-
unni eru ógn og skelfing góðir og
vandaðir drengir, enda fer flest
þeim vel úr hendi og vel fyrir öllu
i sögunni. En eins og stundum áð-
ur er torvelt að meta, að óreyndu,
hversu sagan notast sinum tilætl-
uðu lesendum sem skáldskapur,
uppeldi — eða uppeldi til afnota
skáldskapar.
Hvað sem þvi liður er það
áreiðanlega eitt gagn skáldskap-
ar að hann opnar heim fyrir
lesendum sinum, nýja heima,
þennan heim... Bókmenntir barn-
anna eiga og mega til að opna
lesendum sjón út fyrir dyr og
veggi skólastofunnar, sitt eigið
þrönga umhverfi, upp eða niður,
aftur eða fram, en út yfir sjálf sig.
Það er ef til vill athugaverðara en
neitt sem þær i raun og veru gera
að mikill fjöldi barnabóka hreyfir
ekki hönd eða fót til þessara
verka.
Iðni, siðprýði, framfarir
Röskir strókar
1 stórrcedum
Fróðlegt væri ef einhverntima
væri hugað að stétt og stöðu is-
lenzkra rithöfunda: velflestir
þurfa þeir sem kunnugt er að
framfleyta sér af öðrum störfum
en ritverkum sinum. En eng-
um mun þá á óvart koma að flest-
ir höfundar barna- og unglinga-
Sjósókn og syndafall
Það er sama sagan: jafnan er
skammt i seriusnið á barnabók-
um. Það er að sjá að Gestur
Hannson hafi haldið áfram að
segja „strákasögur” i seinni bók-
um sinum. Ragnar A. Þorsteins-
son heldur i Röskir strákar i stór-
ræðum áfram frásögn af sama
strákahóp i sjávarþorpi og hann
hefur áður samið um skáldsögu.
Og fátt er liklegra en nafni hans,
Ragnar Þorsteinsson hafi áður og
eigi enn eftir að semja fleiri sögur
um tviburana Silju og Sindra. En
allt um það eiga þessar bækur all-
ar sammerkt i þvi að þær stand-
ast efnislega einar sér, þurfa ekki
á stuðningi að halda af öðrum
sögum til að efni þeirra komist til
skila.
Hitt er athugaverðara að hinn
siðarnefndi Ragnar hefur fundið
sig tilknúinn að auka i sögu sina,
Upp á líf og dauða, samkvæmt
markaðstizkunni, fáránlegum
þætti um eitthvert eiturlyfja-
drullubras i helli vestur á fjörð-
um, útlenda bófa á hraðbát. En
sagan er miklu betri en svo að
hún þurfi á að halda, eða megi þá
við,svona löguðum bellibrögðum.
I þessari sögu er komið ofan úr
sveit og niður til sjávarins, og
sagan gengur út á sjósókn i stað
landbúskapar. Bara það er bless-
uð tilbreytni! Svo stranglega kyn-
ferðisbundin sem hlutverkaskip-
an jafnan er i barnasögum — sbr.
Arna og Rúnu i Hraunkoti, önnu
Heiðu og Indriða i fyrrgetnum
sögum — er þó enn meiri upplyft-
ing i þvi að i þessari sögu er það
systirin Silja sem forustu hefur á
hendi,hinn upplagði sjósóknari af
þeim tviburunum. Sindri bróðir
sem minna lætur yfir sér, hefur
þar fyrir sina verðleika til brunns
að bera, svo að ekki hallast á með
þeim systkinum að sögulokum.
En mest er um það vert að
Ragnar Þorsteinsson sýnir sig i
þessari bók burtséð frá syndafalli
hans í reyfaragerð, leikinn og
lipran rithöfund. Saga hans af
sjávarháska, þrekraunum og
giftusamlegri björgun Silju og
Sindra er ljómandi vel skrifuð
saga, spennandi atburðarás úr
raunsæislegu efni gerð, með
skýrum mannlýsingum, lifandi
náttúru- og landsháttalýsingu.
Þegar að þessum efnum kemur,
sjónum og sjósókn, börnunum
sjálfum, leysast markaðsformúl-
ur barnabókanna brátt upp i vind
og reyk. Sem betur fer.
ÞÚ SPARAR RRfiRG
HRÖRG ÞÚSUNR KRÚNUR
Hátalara-box sem hægt er aö fullgera heima. í einum
kassa færð þú hátalara og tóndeilir, teikningar og
fullkomnar upplýsingar hvernig samsetning á að vera.
Hægt er að smíða t. d.: 40-70 watta hátalara-box,
4-8 ohm, 28-35.000 HZ, 40 lítra, eða 50-70 watta
hátalara-box, 8 ohm, 20-20.000 HZ, 80 lítra.
Hringið eða skrifið og leitið nánari upplýsinga. Svo
er verzlunin auðvitað opin og þar getur að líta meðal
annars stereo-hljómtæki og útvörp.
eftir
Ólaf Jónsson