Vísir - 28.07.1973, Síða 8
8
Vísir Laugardagur 28. júll 1973.
Hin umdeildo Seðlobankabygging:
Hér sjáum vift svo Seðlabankabygginguna eins og hiin kemur til meö að Hta út
séð frá Sölvhólsgötu. I baksýn er Alþýðuhúsið við Hverfisgötu. Neðst sjáum við
efri kjallarann, en þar verða meðal annars bilastæði. Raufirnar i kjallaranum
eru gluggar. Neöri kjallarinn er alveg niðurgrafinn.
Húsið verður byggt
grýti og stendur á
3000 fermetra lóð
úr íslenzku
um það bil
— Á teikningu arkitektonna er gert
ráð fyrir hvíldarherbergi,
sjúkraherbergi og sauna.
Ákveðið hefur venð
að halda áfram fram-
kvæmdum við bygg-
ingu Seðlabankans við
Arnarhól. Verður það
eflaust sárt fyrir
suma, sem dyggilega
hefðu viljað berjast
gegn þeirri byggingu.
En þrátt fyrir skoðana mis-
mun manna, þá er bygging
þessi óneitanlega nokkuð
glæsileg I sjón, að minnsta
kosti eftir teikningum og
likönum aö dæma. Vfsismenn
fengu að lfta á teikningar af
húsinu og viröa fyrir sér það
sem i blgerö er að hafa þar
innan dyra, en þaö eru þeir
Guömundur Kr. Guðmunds-
son og Ólafur Sigurðsson
arkitektar, sem teiknað hafa
húsið.
Byggingin er fjórar hæðir og
siðan tveir kjallarar. Er
annan kjallaranna niður-
grafinn. Húsið er ekki ýkja
hátt, aö minnsta kosti er það
þó nokkuð lægra en Alþýðu-
húsið við Hverfisgötuna, svo
að miðað sé við eitthvað.
Hins vegar má gera ráð
fyrir þvi, að minnsta kosti
eftir framtiðarskipulagi
Reykjavfkurborgar. að
Ingólfur blessaður og Arnar-
hóllinn hans veri ekki jafn
tignarlegur og áður
Arnarhóllinn verður næstum
þvi kvos eða aðeins þúst,
þegar fullbyggð hefur verið
vörugeymsla sú, sem liggur
við Kalkofnsveg gegnt fyrir-
hugaðri Seðlabankabyggingu,
hvort og hvenær, sem það
veröur gert...
En það gamla veröur vist að
vfkja fyrir hinu nýja, en nóg
um þaö. Viö skulum reyna aö
draga upp mynd af Seölabank
anum eins og hann kemur til
meö aö lita út. Aö öllum
likindum veröur reynt aö nota'
Islenzkt grýti I byggingu húss-
ins. Er þaö þá einna helzt um
blágrýti aö ræöa, en húsiö
veröur þvi hvorki málaö né
pússaö aö utan. Viö súlur inni i
húsinu verður lfklega einnig
reynt aö losna viö málningu
sem mest, en reynt aö nota
grýtiö.
Aö ööru leyti ætti innrétting
aö veröa i flestu svipuð og
venjulegt skrifstofuhúsnæöi.
þ.e. teppi á gólfum léttir
veggir og annaö slikt.
Byggingin mun standa á um
það bil 3000 fermetra lóð. Þar
af veröa þó nærri tveir þriðju
hlutar bflastæöi. Neðri kjall-
arinn, þar er aö segja sá
niðurgrafni, er 2,940 fer-
metrar aö stærð.
Þar eru bilastæði meðal
annars, og er ekið inn i þau úr
efri kjallaranum. I kjöll-
urunum eru svo neyðarút-
gangar, sem um leið verka
sem loftræsting, enda veitir
sizt af þvi á bflastæðunum.
I þessum neðri kjallara er
annars gert ráð fyrir, aö verði
fjárhirzlur, pökkun, brennsla,
talning, lyfta, rafmagn, kaffi-
herbergi, götun og fleira. í
byggingunni er gert ráð fyrir,
að Reikningsstofnun allra
bankanna verði til húsa og
verður einhver tæknibúnaður i
neöri kjallaranum. Er gert
ráö fyrir að bankarnir sameini
að einhverju leyti reikninga
sina, og verður tækni-
búnaöurinn á um þaö bil 300
fermetra svæöi.
.. ' ’ M f
,'nái'v
. ’h K »
• ' í>. • ; ;
* "'í " t' i
„Arnarhóll veröur næstum eins og kvos eöa litill hóll, ef fyrirhuguö vöruskemma rfs upp....” — Guö-
mundur Kr. Guömundsson arkitekt sem teiknaöi Seölabankann ásamt Ólafi Sigurössyni arkitekt.
A teikningu þeirra Guð-
mundar og Ólafs er gert ráö
fyrir sauna, hvildarherbergi,
sjúkraherbergi og dágóöu
baöi. Guömundur tók það þó
skýrt fram að hér væri ein-
göngu um að ræöa hugmyndir
þeirra, þar sem þessu svæði
væri aö nokkru óráöstafað.
1 báöum kjöllurunum sam-
tals er gert ráö fyrir 150 bila-
stæðum, en 20 stæðum i port-
inu, sem er fyrir framan
fyrstu hæðina. En vikjum aö
efri kjallaranum. Efri kjall-
arinn er 2756 fermetrar að
stærö.
(I kjallarnum eru meöal
annars sk jalageymslur,
öryggisgaröur og varzla, taln
ing, teljarar, kaffistofa, setu-
stofa skrifstofufólks, fundar-
herbergi, matstofa og fleira
ásamt bilastæðum.
Gluggar þessa kjallara eru
all nokkuð öðru visi en við
eigum aö venjast. Þeir eru
aðeins mjóar háar ræmur,
rétt eins og rennilásar. Ekið
er inn i bilastæðin i efri kjall-
aranum frá Sölvhólsgötu á
tveimur stööum. Er önnur
innkeyrslan ætluö starfsfólki
eingöngu.
Fysta hæð hússins er 527
fermetrar. Þegar gengið er
inn, Ingólfsstrætis megin, er
komiö inn i stóran sal. Gengt
inngöngudyrunum eru tvær
lyftur, en siðan tveir stigar i
sitt hvoru horninu. A fyrstu
hæðinni eru erlend viðskipti,
afgreiðsla fundarsalur, aðal
féhirðir, lán og verðbréf,
ávisanaviðskipti og forsalur.
önnur hæð byggingarinnar
er 631 fermetrar. Á annarri
hæð er endurskoðun, bókhald,
rikisábyrgðarsjóður, gjald-
eyriseftirlit, og svo fyrrnefnd
Reikningsstofnun, sem aö
öllum likindum mun fá að-
stöðu á þessari hæð.
A þriðju hæðinni, sem er 740
fermetrar, eru fundarher-
bergi, hagfræðingar, lög-
fræðingar, bankaeftirlit, iön-
þróunarsjóður og fleira.
A fjórðu hæðinni er svo
stjórn bankans, en fjórða
hæöin er 901 fermetri. Þar
kemur til meö aö veröa mynt-
safn og bókasafn. Einnig
verða þar bankastjórn,
bankaráö, ritarar, aðstoöar-
bankastjóri, biðstofa, aðal-
skrifstofa og formaður banka-
ráðs.
Dagsljósiö nær að skina
alveg niöur á fyrstu hæöina I
byggingunni I gegnum miöju
hússins. Þar verður opiö á
milli 1.-2. hæðar. ekki má svo
gleyma salernum, sem verða
á hverri hæb.
Athyglisvert er þaö, að þrátt
fyrir þessa byggingu við
Arnarhólstúnið, á litil sem
engin aukning sér stað á
starfssemi bankans. Starfs-
fólki fjölgar til aö mynda
ekki, en starfsfólk bætist þó
við i sambandi við Reiknings-
stofnunina. —EA