Tíminn - 13.04.1966, Síða 12
12
TÍMINN EWf-fTWTOB
MEÐVIKUDAGUR 13. april 1966
YFIRLYSI
gp
Eftirfarandi yfirlýsingu hcfur
fA sént íþróttasíðunni og þyMr
okkur eftir ástæðum rétt að birta
hana athugasemdalaust:
„Vegna frétta, er öðru hvoru
Ihafa verið að birtast í dagMöð-
unum í Reykjavík og nú sáðast
í Morgunlblaðinu 22. marz sl., varð
andi hugsanleg félagaskipti Ey-
leifs Hafsteircssonar, vill stjóm
íþróttabandalags Akraness taka
fram eftirfarandi:
— Að tilstuðlan ÍA, var Ey-
leifi komið í rafvirkjanám hjá
Sementsverksmiðju ríkisins eftir
að hann kom frá Skotlandi, þar
sem hann lagði stund á knatt-
spyrnuæfingar. Tii Skotíands fór
Eyleifur fýrir milligöngu ÍA og
Knattspymuráðs Akraness, enda
naut hann fjárhagslegs. stuðnings
frá þeim aðilum til fararinnar.
Hjá Sementsverksmiðjunni á
Akranesi er öll aðstaða til að
veita þá beztu kennslu í rafvirkj-
un, sem um er að ræða hér á
landi, að öðra leyiti en því, er
viðkemur nýlögnum í hús. Eyleifi
var því strax á fyrstu mánuðum
námstímans komið fyrir hjá við-
urkenndum rafvirkjameisfcara til
að kynnast þeirri gnein.
f þjónustu Sementsverksmiðj-
unnar vinna úrvals rafvirkjar og
er yfirverkstjórinn talínn með
færustu mönnrum í sinni grein.
Þá viljum við tafca það fram,
að aidrei hafa farið fram neinar
viðræðnr mífE stjóma ÍA og KR
tnn þetta mál.
Mál Eyleifs hefur aldrei verið
tfl umræðu innan síjómar KSÍ,
enda er henni málið algerlega
óviðkomandi, að öðm leyti en
Framhald á 14. síðu.
Guðjón Magnússon skrifar um Polar C
Naumursigur
gegn Dönum
íslenzka Esðsð hlaut þriðja sæti
Svanberg Þórðarson, Ólafsfirði, íslandsmeistari í stökki.
Herlev, 10. 4. 1966.
í dag, páskadag lauk liér í Her
lev 3. Polar Cupsmótinu, sem
jafnframt er Norðurlandameistara
mót. Náðu íslendingar ágætum ár
angri á þessu móti, lentu í 3.
sæti eftir hörkujafnan og spenn-
andi leik við Dani er lauk 68:67,
eftir framlengingu. Leiknir voru
Siglfiröingar unnu flestar
greinar á Skíðalandsmótinu
Skíðalandsmótið á ísafirði um páskana heppnaðst mjög vel.
GS-Isafirði.
Siglfirðingar hlutu flesta fs-
landsmeistara á Skíðalandsmótinu
Skortir ekki dómgreind,
vantar bara hæfileika!
Vinur minn, Einar Bjöms-
son, formaður Knattspymu-
ráðis Reykjvfkur, hefur tekið
þann kostinn að halda áfram
að auglýsa hið einstæða fram-
lag Knattspymuráðs Reykja-
víkur til „Herferðarinnar gegn
hungri“ með langloku, sem birt
ist á íþróttasíðu Alþýðublaðs-
Ins sl. fimmtudag, undir fyrir-
sögninni, „Hafa skal það, er
sannara reynist.“
Út af fyrir sig, er langloka
Einars svo nauðaómerkileg, að
það tekur varla að svara henni.
En vegna þess, að Einari láð-
ist með öllu að láta það koma
fram, sem sannara átti að
reynast (þrátt fyrir nærri 2ja
dálka grein) ætla ég að gerast
svo djarfur að taka það ómak
af honum. f langloku sinni seg-
ir Einar mig fara með ósann-
indi, þegar ég í grein um að-
alfund KRR lét svo ummælt,
að Ólafur Jónsson, gjaldkeri
KRR hefði látið þau orð falla,
að KRR-menn skorti dóm-
greind tfl að gera upp á milli
hinna mörgu líknarstofnana,
sem leita til KRR.
Þetta er rétt að vissu marki.
Ólafur sagði ekki berum orð-
um að KRR-menn skorti dóm-
greind, en hann sagði hátt og
skýrt, svo allir á fundinum
gátu heyrt, að KRR-menn
skorti hæfiieika til að gera
upp á milli líknastofnana, eða
með öðmm orðum, ættu erfitt
með að dæma um, hvaða aðili
hefði mesta þörf fyrir slíkan
leik hverju sinni. Einar Björns
son hefur því misskilið góð-
æmi mína, þegar ég taldi það
heppilegra (fyrir KRR) að orð
ið dómgreind væri notað í
staðinn fyrir hæfileikaskort.
Og fyrir bragðið er mér borið
á brýn að vera ósannindamað-
ur. En nú mega sem sé allir
vita, að það er allt í lagi með
dómgreind þeirra KRR-manna,
þá vantar bara hæfileika!
Og áður en ég lýk þessari
stuttu svargrein, ætla ég að
biðja formann KRR að fyrir-
gefa, hafi ég sært hann með
því að minnast á afrekaskrá
þeirra KRR-manna í funda-
setu. Auðvitað er gott og gilt
að halda því saman hve marga
fundi menn sitja í ráðum og
nefndum, en hingað til hefur
það þótt betri siður að birta
greinagóðar skýrslur um þau
verk, sem unnin eru í þeim,
því eftir þeim eru menn dæmd
ir, en ekki eftir því hvort þeir
hafi setið 800 fundi eða fleiri.
„Sanngjörn og málefnaleg
gagnrýni er sjálfsögð og nauð-
synleg fyrir íþróttahreyfing-
una,“ segir Einar Björnsson
undir lokin í langloku sinni.
Þarna hitti formaður KRR
naglann á höfuðið og er þetta
í algjöru samræmi við upphafið
á langlokunni, þar sem hann
telur, að skrif mín um áður-
nefnt mál, stafi af því, að ég
hafi látið skapið hlaupa með
mig í gönur (af því að alf er
svo ungur!) Þannig birtist
„málefnaleg" gagnrýni for-
manns KRR í verki. Ég læt
svo aðra um að dæma hve mál
efnaleg skrif Einars Björnsson
ar eru.
-alf.
sem háð var hér um páskana, sigr-
uðu í 5 greinum. Gestgjafarnir,
ísfirðingar, unnu í 3 greinum, Ak
ureyringar í 2. og Ólafsfirðingar
unnu í 3 greinum, Akureyringar
í 2 og Ólafsfirðingar í 1 grein.
í heild heppnaðist mótið vel, veð-
ur alla mótsdagana mátti heita
gott, og engin slys urðu á mönn-
um. Skíðaþingið var háð á föstu-
daginn og voru mættir á það for-
seti ÍSÍ og framkvæmdastjóri sam
bandsins.
Milli 500 og 600 manns voru
gestkomandi á ísafirði þessa daga,
sem mótið stóð yfir. Hér á eftir
verður getið um helztu úrslit:
15 km ganga 20 ára og eldri:
1. Þórhallur Sveinsson S 1:22,14
2. Birgir Guðlaugsson S 1:28,06
3. Haraldur Erlendsson S 1:28,27
10 km. ganga 17—19 ára:
1. Skarphéðinn Erlendsson S 51,30
2. Skarphéðinn Guðm. S 53,02
3. Magnús Kristjánss. í 1:03,13
Stökk: Meistarakeppni 20 ára og
eldri.
1 Svanberg Þórðarson Ó 221,8
2. Sveinn Sveinsson S 220,5
3. Björn Þór Ólafsson Ó 209,6
Norræn tvíkeppni:
1. Þórhallur Sveinsson S 434,80
2. Haraldur Erlendsson S 420,46
3. Birgir Guðlaugsson S 418,97
Stórsvig karla. (16 ára og eldri):
1. fvar Sigmundsson A 2:06,61
2. Reynir Brynjólfsson A 2:12,34
3. Björn Olsen S 2:13,25
Boðganga 4x10 km:
1. Sveit Siglufjarðar 2:14,25
2. Sveit Fljótamanna 2:17,57
3. Sveit ísafjarðar 2:19,37
Stórsvig kvenna:
1. Karólína Guðmundsd. A 70,71
2. Árdís Þórðard. S 72,13
3. Sigríður JúMusdóttir S 75.00
Svig kvenna (16 ára og eldri):
1. Árdís Þórðardóttir S 90,16
2. Sigríður Júlíusdóttir S 97,54
3. Jóna E. Jónsdóttir f 104,78
Svig karla (16 ára og eldri):
1. Árni Sigurðsson í 105,61
2. Reynir Brynjólfsson A 107,71
3. Ágúst Stefánsson S 108,60
Alpatvíkeppni karla:
1. Árni Sigurðsson í 32,96
2. Reynir Brynjólfsson A 36,86
3. Kristinn Benediktsson f 57,92
Sveitasvig:
1. Sveit fsafjarðar 446,74
2. Sveit Reykjavíkur 521,58
3. Sveit Akureyrar 530,78
Bæjarstjórn ísafjarðar bauð öll-
um keppendum og starfsfólki til
lokahófs í Góðtemplarahúsinu. Hóf
inu stýrði Bjarni Guðbjörnsson,
forseti bæjarstjórnar. Einar B.
Ingvarsson, mótsstjóri, afhenti sig
urvegurum verðlaun og öllum far-
arstjórum fánastöng, áletraða
Skíðamót fslands 1966, og fylgdi
fáni með, en á honum var merki
ísafjarðarkaupstaðar. — Næsta
Skíðalandsmót verður háð á Siglu
firði og unglingamót í Reykjavík.
4 leikir á föstudag, tveir á Iaug
ardag og fjórir á sunnudag.
Föstudagur.
Fyrsti leikur mótsins var fs
land-Noregur. Hófst hann að lok-
inni setningaratböfn og þjóðsöngs
um hinna fimm landa. Var þettí
fyrsti landsleikur Norðmanna en
15. hjá íslandi. Norðmenn náðí
góðri byrjun og höfðu forystuna
framan af en fyrir atbeina Einars
Matthíassonar komust fsl. yfir 16:
11. Þetta gerði gæfumiminn hjf
íslenzka liðinu sem nú færðist 1
aukana og vann fyrri hálfleik 32:
19. Höfðu íslendingar einnig tögl-
in og hagldirnar í síðari hálfleik.
Eftir 5 mín. var staðan orðin 48:
23. Hélzt sá munur en leiknum
lauk með stórum sigri fslendinga
74:39. f þessum leik lék nýliðinn
í landsliðinu Hallgrímur Gunnars-
son og stóð sig vel. Beztur var
Einar Mattbíasson með 15 stig en
einnig áttu góðan leik Þorsteinn
með 16 stig og Kolbeinn með
15 stig.
Beztur Norðmanna var Terge
Holm með 13 stig.
Leikinn dæmdu Arvu Jantuniu
og Viggo Bertram, en öll löndin
nema Noregur lögðu til einn milli
ríkjadómara, nema Danmörk sem
lagði til tvo. íslenzki dómarinn,
Guðjón Magnússon dæmdi flesta
leiki á mótinu ásamt finnsba dóm
aranum Arvu Jantunen, alls 5
leiki.
Aðrir leikir þennaan dag fóru
þannig: Finnland—Noregur (62:
18)) 109:39, Danmörk—Fmnland
(19:47) 50:103.
Síðasti leikurinn þennan dag var:
Svíþjóð—ísland.
Hér var um ójafna keppni að
ræðá hvað stærð viðkom. Höfðu
Svíar í liði sínu tvo leikmenn,
er voru tveir metrar á hæð. Réðu
ísl. leikmennirnir ekkert við þá.
Komust Svíast strax í 16:6 en Ein
ar Matt skorar síðan átta stig í
röð og er staðan stuttu seinna
23:17. Taka þá hinir risavöxnu
leikmenn Svía af skarið og lag-
færa stöðuna í 43:29 og var þann-
ig í hléi. Eftir hlé tók ekki betra
við. Tveggja metra mennimir
Hans Albertsson og Jörgen Hans-
son lagfærðu enn stöðuna nú í
56:39 og lauk leiknum með örugg *
um sigri Svía 85:62.
fsl. liðið gaf aldrei eftir allan
leikinn en máttu sín lítils gegn
hæðarmismuninum. Beztir, Þor- '
steinn með 19 stig, Einar Matt
18 stig og Kolbeinn með 11 stig.
Víta'hittni var 50%. Albertsson og
Hansnon hinir risavöxnu Svíar
skoruðu 38 og 26 stig hvor eða
Framhald á 14. síðu.
Landsliðsnefnd kemur á óvart
Alf.-Reykjavík. — Annað kvöld,
fimmtudagskvöld, mætir ísl. lands
Iiðið í handknattleik Frökkum í
landsleik í Laugardalshöllinni. ísl.
landsliðið hefur nú verið valið, og
að þessu sinni kemur landsliðs-
nefnd nokkuð á óvart með þvi að
setja Auðun Óskarsson og Karl
Jóhannsson út úr liðinu, en fyrir
þá koma þeir Birgir Björnsson og
Stefán Jónsson.
Einnig víkur Hjalti Einarsson
úr markinu og í hans stað kem-
ur Jón Breiðfjörð Ólafsson, Val,
og er hann eini nýliðinn í lið-
inu. Er sjálfsagt að reyna Jón,
en deila má um það, hvor hafi
frekar átt að víkja úr markinu,
Hjalti eða Þorsteinn.
Annars er liðið þannig skipað:
Þorsteinn Björnsson
Jón Breiðfjörð Ólafsson
Geir Hallsteinsson
Gunnlaugur Hjálmarsson, fyrirl.
Hermann Gunnarsson
Hörður Kristinsson
Ingólfur Ósbarsson
Sigurður Einarsson
Stefán Jónsson
Stefán Sandholt.