Vísir - 20.09.1975, Síða 1
65. árg. — Laugardagur 20. september 1975 — 214. tbl.
JÖFNUN KOSNINGA-
RÉTTAR MILLI ÞÉTT-
BÝLIS OG DREIFBÝLIS
- SJÁ LEIÐARA
BLS. 6
ALÞINGI KVATT
SAMAN 10. OKT.
%
Alþingi hefur verið kvatt saman til fundar föstudaginn 10.
október. Þingsetning verður að lokinni guðsþjónustu i Dómkirkj-
unni, er hefst klukkan 13:30. —
Flokksvaldið
vildi ekki
sjálfstœða
bókaútgáfu
- Sjá í DEIGLUNNI bls. 7
Krossgáta bls. 8
POPP bls. 12
Litmyndasögur í opnu
ÍÞRÓTTIR í OPNU
Hafa viljað verk-
fallsrétt i 33 ár
— nú setur BSRB þessa kröfu á oddinn,
og vill fá réttinn á þessu ári
„Við teljum lögin frá 1915 sem
banna opinberum starfsmönnum
verkföll úrelt og ranglát. Það hef-
ur veriðá stefnuskrá BSRB i 33 ár
að fá verkfallsrétt, og nú er þessi
krafa sett á oddinn,” sagði
Kristján Thorlacius, formaður
Bandalags starfsmanna rikis og
bæja, i viðtali við Vísi i gær.
BSRB hefur ákveðið að efna til
53funda fyrir félagsmenn sina til
að kanna hug þeirra til kröfunnar
um verkfallsrétt þegar á þessu
ári. Fundirnir verða haldnir um
allt land milli 3. og 11. október.
Vfsir spurði Kristján hver við-
brögð rikisvaldsins væru við
þessari kröfu. .
„Nefnd var skipuð til að ræða
við fjármálaráðherra og talaði
hiin við hann 26. ágúst. Ráðherra
hefur verið erlendis siðan þannig
að við höfum ekkert heyrt aftur
frá honum,” sagði Kristján.
„Kjör opinberra starfsmanna
hafa verið mismunandi gegnum
árin. Við höfum mjög oft dregizt
aftur úr. Fram til 1962 fengu opin-
berir starfsmenn laun samkvæmt
launalögum. Þá höfðu kjör þeirra
dregizt svo langt aftur úr að fólk
var hætt að leita eftir störfum hjá
þvi opinbera. En 1962 fengum við
samningsrétt. Siðan þá hefur
ástandið verið þannig, að annað
slagið sigum við aftur úr, miðað
við kjör annarra lauþega. Nú
hefur þróunin verið sú, að við höf-
um dregizt langt afturúr,” sagði
Kristján ennfremur.
Á fundunum sem BSRB efnir
til,greiða félagar atkvæðium hug
sinn til verkfallsmálsins. Forysta
BSRB, þ.e. bandalagsstjórn, 50
manna samninganefnd og fleiri,
munu siðan vega og meta útkomu
þessarar skoðanakönnunar. Vilji
BSRB er sá að verkfallsrétturinn
fáist þegar á þessu ári.
—ÓH
„Ekki meira gos, takk,” virðist vera boðskapur Tröiikerlingarinnar þar sem hún réttir fram lúkuna i
átt að Eldfelli i Vestmannaeyjum.
Tröllkerlingin er verk Ásmundar Sveinssonar sem fiskvinnslustöðvarnar I Eyjum gáfu bænum I
sumar. Hvort hugsunin bak við uppsetningu listaverksins hafi verið sú að kerlingin bægði frá allri óár-
an, vitum við ekki, en óneitaniega hljóta náttúruöflin að hugsa sig tvisvar um áður en þau senda nokkuð
á svona vigalega kerlingu. Ljósm. VIsis: Jim.
„Nei takk, ekki meira gos!"
Könnun hjú
fyrirtœki:
Allt að 8,4% fjarvistir
Könnun, sem gerð var innan
eins af stærstu fyrirtækjum
landsins, leiddi I ljós, að fjar-
vistir starfsmanna þess eru að
meðaltali allt að 8,4%.
Könnunin tók til fjarvista af
öllum orsökum, svo sem veik-
inda, slysa, skróps og annars.
Fjarvistahlutfall þetta jafn-
gildir þvi, að af vinnandi stétt-
um landsins séu um 16.000
manns frá vinnu daglega og að
vegna fjarvista tapist um fjórar
milljónir vinnudaga á ári.
Fjarvistahlutfall þetta er
meir en tvöfalt hærra en meðal-
fjarvistir reiknast hérlendis.
Benda má á, að ef hlutfall
þetta gilti um ráðherra, myndi
að jafnaði rúmlega hálfur ráð-
herra vera veikur á dag. —-HV