Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.1956, Page 12
112
r LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
grænmeti entist frain undir iö sið-
afita. Og eftir að fór að veiðast var
fiskur alltaf á borðum. Hver mað-
ur fær fjórar bjórfiöskur í ferð,
og eru honum afhentar þær sólar-
hring eftir að farið er frá Hull.
Annars er ekkert áfengi um borð
— nema í vetrarferðunum, því að
þá fær hver maður hálfa flösku
af rommi til ferðarinnar. Og hver
maður getur fengið tollfrjálst tóbak
og sígarettur, áður en lagt er úr
höfn.
Meðan á veiðum stóð vorum við
alltaf um 25 sjómflur norðaustur af
Bjarnarey, en við vorum svo sem
ekki einir. Þar voru um 50 aðrir
togarar, brezkir, færeyskir, fransk-
ir, þýzkir, hollenzkir, norskir og
rússneskir.
Rússar eru nýlega byrjaðir á því
að veiða á djúpmiðum. En síðan
stríðinu lauk hafa þeir eflt mjög
fiskiflota sinn. Þeir hafa eigi að-
eins smíðað togara sjálfir, heldur
hafa þeir látið smíða togara fyrir
sig í Þýzkalandi, á Norðuriöndum
og í Englandi. Rússar ætla sér að
veiða 750.000 smálestir af fiski ár-
lega á Hvítahafsmiðum. Og vegna
þess að þeir vilja ekki hafa áðra
þar, hafa þeir á þessu ári takmark-
að mjög veiðisvæði fyrir togara
okkar.
Árið 1951 ákváðu Norðmenn að
hafa hjá sér 4 mflna landhelgi, og
er landhelgislínan dregin fyrir ut-
an öll nes. Þannig er erlendum tog-
unxm bannað að veiða inni í fjörð-
um, enda þótt þeir gæti verið þar
margar mflur frá sjálfri ströndinni.
Og svo komu íslendingar og færðu
út landhelgi sína í maí 1952, og það
sárnar skipstjórum okkar mest af
öllu.
Íslendingar settu hjá sér 4 mílna
lanc|helgi i stað þriggja áður, og
þeir drógu landhelgislínuna þvert
yfir firði, nesjanna á milli, og af
því leiðir að þar nær landhelgin
sums staðar 25 sjómílur út frá
ströndinni. Þessi nýa landhelgi
flæmir okkur frá mörgum ágæt-
um fiskimiðum, svo sem í Faxaílóa,
Breiðafirði og Húnaflóa, þar sem
Englendingar tóku fyrstir manna
upp veiðar.
Sjómenn vorir eru mjög gramir
út af veiðibanninu og inum háu
sektum, sem íslendingar hafa á-
kveðið. Sjómennimir benda sér-
staklega á, að brezkum togurum
sé ekki leyfilegt að hleypa undan
ofviðri iim fyrir landhelgi, nema
því aðeins að öll veiðarfæri séu
búlkuð. Þess vegna kjósa brezkir
togarar heldur að hafast við úti á
hafi, þótt fárviðri sé, heldur en eiga
á hættu að vera sektaðir um 3000
sterhngspund og láta gera upptæk
öll sín dýrmætu veiðarfæri.
Brezkir togaraeigendur hafa
svarað þessu með því að banna ís-
lenzkum togurum að setja fisk á
land í Englandi, og hafa þar með
svift þá helzta fiskmarkaði þeirra.
En þeir eru fúsir til að afnema
þetta bann, ef íslendingar vildu að-
eins hverfa frá inum ströngu veiði-
takmörkunum.
En það sem brezkir togaraeig-
endur vilja, er að sett sé alþjóða
ákvæði um sanngjarna landhelgi
og veiðireglur alls staðar.
Svo mörg eru þau orð. En
skrítið er hve fáum orðum er farið
um 12 mílna landhelgi Rússa, en
býsnast út af 4 mflna landhelgi ís-
lendinga, og með rangfærslum.
SAMANBURÐUR
Maðurinn er 100 sínnum stærri
en salamandra; salamandra er 100
sinnum stærri en gerill; gerill er
100 sinnum stærri en mænusóttar-
sýldlhnn, og hann er aftur 100 sum-
um stærn heldur en atom.
Skjaldbökuiell
í FYLKINU Alberta í Kanada er fjaU
nokkurt, sem nefnist Skjaldbökufell,
eða aðeins Skjaldbaka, Nafnið er kom-
ið frá Indíánum, þeir sögðu að fjallið
mjakaðist hægt áfram, eins og skjald-
baka. Og aldrei þorðu þeir að tjalda
í nánd við það þegar þeir voru á ferða-
lagi þarna, vegna þess, sögðu þeir, að
fjallið mundi detta.
Ekki er nú gott að vita hvað Indíán-
ar hafa haft fyrir sér i þessu, en árið
1903 varð þarna ógurlegt skriðuhlaup.
Stór hluti fjallsins — sjötíu milljónir
smálesta, gizka menn á — hljóp fram
og hentist niður í dalinn. Þar var þá
kolanámuþorp, sem Frank hét og áttu
600 menn þar heima. Hrap fjallsins
kom beint á bæinn og kaffærði hann
gjörsamlega, en 89 menn fórust og
fjölda margir hlutu mikil meiðsl. —
Kolanáman og járnbraut, sem þar var
hurfu undir grjótdyngjuna og einnig
300 hektarar af ræktuðu landi.
Nokkrum árum seinna var þorpið
endurreist á öðrum stað skammt það-
an. Og nú eru menn hræddir um að
sömu ósköpin muni endurtaka sig. —
Hafa að undanförnu heyrzt dunur og
dynkir i fjallinu, og stundum hefir
verið óhugnanlegur rykmökkur efst í
því, en það er 4000 feta hátt. Þorps-
búar eru því ekki í rónni, og vegna
ótta þeirra hafa jarðfræðingar verið
sendir þangað til þess að athuga hvort
hætta sé á ferðiun, en varðmenn úr
riddaraJögreglunni (Royal Canadian
Mounted Police) hafa haldið vörð þar
dag og nótt, til þess að geta aðvarað
þorpsbúa, ef nokkur hætta er á ferð-
um. —
GIFTINGAR OG BÖRN
Það er um að gera að fólk giftist
snemma, ef það vill eiga börn, segir
dr. Fred A. Simmons við Harvard
háskólann. Rannsóknir sýna þetta
líka.' Af fólki, sem giftist innan
24 ára, eru aðeins 4% af hjónabönd-
unum barnlaus. En svo breytist
þetta. Af fólki sem giítist á aldrin-
um 25—29 ára eru 10% af hjóna-
böndunum barnlaus, á aldrinum
30—34 ára er talan 16%, á aldrinum
35—39 ára er talan 31% og á aldr-
inum 40—45 ára er talan 63%.