Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.1956, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
115
IMYUIMGAR
getur haft tvenns konar afleiðing-
ar. Sums staðar batna löndin, en
annars staðar gengur sjór á þau.
Og margar hafnarborgir, sem nú
eru, mundu sökkva í sæ, ef allir
jöklar bráðnuðu.
Mikil áherzla verður lögð á rann-
sókn háioftanna. Bandaríldn ráð-
gera að senda á rannsóknaárinu
helmingi í'leiri rákettur upp í há-
loítin, heldur en þangað hafa verið
sendar seínustu 20 árin. Sumum
verður skotið frá jörðínni, aðrar
verða sendar frá flugvélum og
flugbelgjum hátt í lofti. Er það
gert til þess að spara það afl, er
ráketturnai- þurfa til þess að kom-
ast upp úr þéttasta Ioftslagínu.
Sumar þessar rákettur eiga að
komast í 300 km. hæð, en gerfi-
tunglin (þau verða að minnsta
kosti tólf) eiga að komast í 1200
—1300 km. hæð.
Eitt af því, sem rannsaka skal,
eru þau loftfyrirbæri, er valda út-
varpstruflunum, ýskrið og smell-
irtiir sem stafa af raímagni í loft-
inu og .standa ef til vill í sambandi
við jai'ðsegulmagn og norðurljós.
Hreyfingar jarðar eru óstöðugar,
svo að hún hefur flýtt sér um 1/30
úr sekúndu inn 1-. október, en hefur
seinkað sér jafnmikið 1. júní. Þetta
er reglulegt, en svo eru aðrar
hreyfingar hennar óreglulegar, ef
borínn er saman miðtími og tungl-
tími (reiknaður eftir umferðartíma
tunglsins). Nú sem stendur er
tunglið á undan miðtíma.
★
Almenningi kann nú að virðast
sem það sé harla smásmuglegt að
fást við slíkar rannsóknir sem þess-
ar, og'alveg gagnslaust. Það sögðu
menn lika fyrst um stærðíræði-
reglu Einsteins um efni og orku á
sinum tíma. En hún varð þó til þess
að menn beizluðu kjarnorkuna.
VIÐTÆKI MEÐ SÓLARORKU
Nýiega hefir Admiral Córpora-
tíon í Chicago fundið upp viðtöku-
tæki, sem styðst við sólarorku og
nota má alls staðar þar sem sól
skín. Tækið er annað hvort notað
þannig, að sol er Iátin skina á það
meðan það skilar af sér útvarpi,
eða þá að sólin er látin hlaða litla
rsEnlöðu, sem er í tækinu sjálfu,
og þá má alveg eins nota það í
myrkri.
DARLAN
Nú er komið á markaðinn vestan
hafs alveg nýtt gerviefní, sem
nefnist Darlan. Það er fundið. upp
hjá Goodrích Chemical Co. í Ohio.
Sagt er að nota megi það í alls-
konar fatnað, dýrindiskápur
kvenna og karla, peysur og alls
konar prjónles. Sagt er að það sé
ólíkt öllum öðrum gerfiefnum, sem
áður hafa verið fundin upp.
MIKILL KULDI
Arthur D. Little, Inc. í Cam-
bridge í Massachusetts hefur fram-
Ieitt nýa tegund kæliskápa, gjör-
ólíka þeim kæliskápum, sem nú
eru tíl. Þar er ekki notað rafmagn,
heldur segulmagn til að framleiða
kuldann. Og kuldinn er miklu
meiri en dærai þekkjast til áður,
eða allt að 500 stig á Fahrenheit.
en það svípar til þess kulda er
menn halda að sé í geimnum
SÓLAROFN
Amerískur maður, dr. Lof, fiefir
fundið upp nýan sólarofn. Er
hann í laginu eins og regnhlíf á
hvolfi. Efnið í honum er þannig,
að sólargeislarnir endurkastast og
lenda allir á einum stað, og verð-
ur þar svo mikill hiti að hægt er
að sjóða mat við harrn. Þegar dr.
Lof er á ferðalagi sér til gamans,
hefir hann þennan ofn með sér, og
á áningarstöðum setur hann oín-
inn, opinn mót sól, og sýður þar
mat sinn eða hitar sér kaííi. Það
er álitið að þessi oín muni gera
mikið gagn í heitum löndum, þar
sem hætt er við skógarbruniun,
því að fjölmargir skógarbrunar
staia af því að ferðafólk fer gálaus-
lega með eld. En nú þarf það ekki
að taka upp eld, það setur ofninn
aðeins í sólskinið og segir „Sjóddu
pottur litli sætan graut“, og pott-
urinn hlýðir.
EINFALT SENDITÆKI
Fimdið hefur verið upp mjög
einfalt senditæki, og er það svo
lítíð að koma má þVí fyrir í túðu
á venjujecu símatóli. Það þarf ekki
á neinu rafmagni að haída, heldur
er sendikrafturinn aðeins hljóð-
bylgjur þær sem myndast þegar
talað er í tækið. Rödd talandans
er orkugjafinn, um leið og hún út-
tfarpar sér. Tæki þetta er enn á
býrjunarstigi, en tékizt hefur að
útvarpa á 600 feta lengd. Með ofur-
litlum breytingum er talið að hægt
muni að utvarpa um kílóméters
leið.
N-GEISLA KVIKMYND
Generai Electric Co. hefir fund-
ið upp vél. sem tékur k\*íkmyndir
við g'egnuml; singu. Notaðir eru
venjujegif Röntgengeíslar, en
kvikmyndir má taka af sjúkling-
um í allskonar stellingum, stand-
andi, sitjandi eða liggjandi. Vél
þessi getur tekið mýndir með 30
sinnum meiri hraða heldur eti
venjuleg ljósniyndavél og hún er
þannig útbúin að hún getur jafn-
framt temprað það geislamagn er
sjúklingur verður fyrir.