Lesbók Morgunblaðsins - 30.11.1958, Page 11
LESBÓK MORGUN BLAÐSINS
627
frá þeim, en mér var þó ekki rótt.
Áhöfn flugvélarinnar var svo vin-
gjarnleg að leyfa að ég
færi niður í kjallarann eins
oft og mig lysti, en þeir
vöruðu mig við að koma við stöng,
sem þar var, því að þá mundi gólf-
ið opnast og eg og breiðnefirnir
þeytast út í loftið eins og tappi úr
kampavínsflösku.
Fyrst í stað gekk allt vel. En svo
komu breiðnefirnir út úr,,búrum
sínum og syntu eins og óðir í vatns
geyminum, sem þar var. Það var
auðséð að þeir höfðu orðið hrædd-
ir við hvininn í skrúfunum. Ég gat
ekkert gert, og svona létu þeir til
Fiji-eyja. Þegar við höfðum lent
þar, kom kyrð á þá aftur.
Um náttbil lögðum við svo á stað
þaðan. Það er sá tími er breiðnefir
koma venjulega úr holum sínum.
En nú bar ekkert á þeim. Þeir
héldu kyrru fyrir inni í búrunum.
Ég kom oft að vitja um þá um nótt
ina, en það var sama sagan. Voru
þeir dauðir? Ég gat ekki gengið úr
skugga um það.
Þannig var haldið áfram til
Hawai-eya. Þar kom nýtt vanda-
mál að höndum. Yfirvöldin kröfð-
ust þess að brenna allt sem breið-
nefirnir höfðu haft með sér, meira
að segja moldina úr búrum þeirra.
Ég opnaði búrið og fór að moka
út moldinni með fingrunum. Þá
varð ég var við eitthvað loðið sem
hreyfðist. Einn var þó lifandi! Já,
þeir voru allir lifandi. Og þegar ég
sá það, brosti ég í fyrsta sinn eftir
að við lögðum á stað frá Sydney!
Komið var með nýtt hey og nýa,
sótthreinsaða mold, og búið um þá
að nýu.
Fimm stundum seinna var lagt
á stað, og nú var ferðinni heitið til
Los Angeles, en þangað er 11%
stundar flug. Breiðnefirnir voru
mjög miður sín á leiðinni, og ég
átti von á að þeir dræpust á hverri
stundu. \
Merkisdagar
Fullveldisdagurinn 1. des.
Nú eru liðin 40 ár síðan sambands-
lögin gengu í gildi. — í júlímánuði
1918 sat sambandslaganefndin, skipuð
fulltrúum íslendinga og Dana, á fundi
í Reykjavík og samdi frumvarp til
sambandslaga. Þar var ísland viður-
kennt sem frjálst og fullvalda riki, en
ríkisborgararéttur skyldi vera gagn-
kvæmur, Danir og Islendingar skyldu
hafa sama konung og Danmörk fara
með utanríkismál íslands í umboði
þess. Þessum samningi mátti segja
upp eftir árslok 1940, og ef nýr samn-
ingur yrði þá ekki gerður, gæti hvort
ríki samþykkt að samningurinn væri
úr gildi fallinn. — Aukaþing var kvatt
saman í Reykjavík í september og frv.
þar samþykkt með 37:2 atkv. I októ-
ber fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla og
greiddu 12411 atkv. með frv., en 999
á móti. Tæpur helmingur kjósenda
Þegar til Los Angeles kom, varð
ég að vera eins og hani í kringum
búrið, til þess að varna ljósmynda-
smiðum að taka myndir. Einn
blossi hefði nægt til að gera út af
við þá.
Svo komst ég í farþegaflugvél
til New York. Forstöðumenn dýra-
garðsins tóku á móti okkur á vell-
inum, og nú var ekið í skyndi til
Bronx. Þar voru breiðnefirnir sett-
ir í gamla breiðnefabúrið, en þá
voru þeir svo langt leiddir, að ég
er viss um að þeir hefðu ekki þolað
nokkurra klukkustunda flug í við-
bót.
Viku seinna höfðu þeir þó náð
sér, og þá afhenti ég þá opinber-
legp. Við það tækifæri var þar
fjöldi blaðamanna og dýragarðs-
gesta, og varð aðsóknin svo mikil,
að dýragarðsverðinum ofbauð, svo
að hann rak alla út. Ávarp mitt við
afhendinguna var stutt: „Takið við
þeim. En í svona ferðalag fer ég
aldrei framar“.
í desember
greiddi atkvæði. í þjóðþingi Dana var
frv. samþykkt með 100:20 atkv., og í
landsþinginu með 42:15 atkv. — Lögin
tóku gildi 1. desember, en lítið var um
mannfagnað hér, því að þá geisaði
„spánska veikin“. — íslendingar sögðu
samningnum upp á réttum tíma, og
hann var ekki framlengdur.
Jólasveinar og jólameyar
Það var víða siður fyrrum að skrifa
á miða nöfn allra þeirra gesta, sem
komu á jólaföstunni. Það heita jóla-
sveinar og jólameyar, en eiga ekkert
skylt við aðra jólasveina. Á aðfanga-
dag var svo dregið um þessi nöfn.
Drógu stúlkur nöfn pilta, og voru það
þeirra jólasveinar. En piltarnir drógu
nófn stúlkna, og voru það þeirra jóla-
meyar. Stundum var svo allt gefið
saman og fór sú athöfn fram á þann
hátt, að einhver opnaði ljóðabók af
handahófi og las þá vísu er hann hitti
á. Varð oft mikið gaman úr þessu.
Þessi leikur var kallaður „að draga
jólasveina og jólameyar".
Kvöldskattur
Hann var jafnan gefinn eitthvert
kvöldið í fyrstu viku jólaföstunnar.
Húsmóðirin skammtaði þá heimilis-
fólki sínu með leynd á stór föt eða
diska allt það bezta, sem búið átti til:
hangikjöt, magál, sperðil, bringukoll,
hákarl, pottbrauð og flatbrauð og nóg
af floti og smjöri við. Þótti mest til
þess koma að þetta kæmi fólkinu að
óvöru, enda varð uppi fótur og fit er
sendingar komu inn. — Þar sem margt
var vinnufólk, gerði það sér og hús-
bændum sínum þann glaðning að gefa
kvöldskatt líka. Lögðu þá oft saman
tveir og þrír, til þess að skatturinn
gæti orðið sem myndarlegastur. Urðu
þannig oft margir kvöldskattar á stór-
um heimilum, en allir urðu þeir að
vera á jólaföstunni. — Þetta helzt víða
fram um seinustu aldamót.
Veðráttuboðar
Hér á við að minnast ó ýmislegt,
sem gamlir menn tóku mark á og
töldu veðurboða að vetrarlagi:
Ef forustukindur standa fram við
dyr í húsi á morgnana, veit það á gott