Lesbók Morgunblaðsins - 15.10.1961, Qupperneq 8
460
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Stórfuröuleg aldursákvöröun
IMú er talið að beinin ur Afríkumanninum, Zinjantrophus,
sé að minnsta kosti 1,750,000 ára gomul
Leakey með hauskúpu Zinjantrophus
FYRIR rúmu ári (11. sept.), var
í Lesbók grein, sem hét „Fundin
600.000 ára hauskúpa. Var vagga
mannkynsins í Afríku“. Þar er
sagt frá nær 30 ára rannsóknum
dr. L. S. B. Leakey og konu hans
á fornminjum í hinni svokölluðu
Olduvai-gjá í Tanganyika í aust-
anverðri Afríku. Þar höfðu þau
meðal annars fundið hauskúpu af
frummanni. „Ég kalla hann Zinjan-
trophus, eða Austur-Afríkumann-
inn. Hann var uppi fyrir rúmum
600.000 árum“, sagði dr. Leakey í
skýrslu sinni. „Varla þarf að leiða
neinum getum að því hvað beinin
séu gömul. Þar eru til vitnisburðar
beinin af hinum stóru útdauðu dýr
um, sem við fundum þarna. Þessi
dýr voru uppi á ,,pleistocene“-öld,'
eða fyrir 600.000 árum. Um nafnið
á honum, Zinjantrophus, er það að
segja, að til forna nefndu Arabar
Afríku (austurhluta hennar) Zinj,
og anthrophus er gríska og þýðir
maður“.
Þetta var hin fyrsta aldurs-
ákvörðun beinanna og þótti
furðulegt að maður hefði ver-
ið uppi fyrir svo löngum
tíma. En nánari aldursákvörð-
un var þó nauðsynleg og varð hún
að gerast á berglögum þeim, sem
beinin fundust í og berlögum þar
fyrir ofan og neðan. Hvernig átti
að gera slíka aldursákvörðun? Hér
kom ekki til mála að nota kol-
efni-14 aðferðina, því að hún getur
ekki náð lengra aftur í tímann en
svo sem 50.000 ára. En nú var kom
in upp ný aðferð til aldursgrein-
ingar, hin svokallaða „potassium-
argon“ aðferð, en með henni hafa
bandarískir vísindamenn mælt ald-
ur á loftsteinum, sem eru rúmlega
4000 míljóna ára gamlir.
Sýnishorn af berglögum úr
Olduvai-gjánni, voru nú send til
háskólans í Kaliforníu og rannsök-
uð í jarðfræðadeild háskólans af
þeim dr. Jack F. Evernden og dr.
Garnish H. Curtis.
„Jarðfræðingum kemur margt á
óvart og þeir eru ekki vanir að
kippa sér upp við það, en ekkert
hefir jafn furðulegt komið fyrir
okkur eins og að komast að því, að
fyrir 1.750.000 árum hafi verið
uppi menn, sem gátu búið sér í
hendurnar. Allt fram á þetta ár
hafa vísindamenn haldið að það
væri ekki meira en svo sem milljón
ár síðan menn komust upp á það
að gera sér verkfæri. En svo er
„potassium-argon“ aðferðinni fyrir
að þakka, að nú þurfum vér ekki
að vera í vafa um hve langt er
síðan“, segir Curtis. Og í bréfi til
dr. Leakey segir hann: „Rannsókn