Lesbók Morgunblaðsins - 02.09.1962, Qupperneq 5
s Mýrdal
AtTSTAN að Herjólfsdal í Vest-
mannaeyjum er fjallið Há. Er bað hátt
og svipmikið og blasir við úr kaup-
staðnum.
Dr. Þ-orkell Jóhannesson tók saman
skrá um örnefni í Vestmannaeyjum og
cr það allmikil bók, gefin út af Þjóð-
vinafélaginu 1938. Þar segir svo um
|>etta fjall: Há, Háin, (í Tyrkjaráns-
sögu): Háeyin, Háeimur, Háenni, Háva-
enni; (í sóknarlýsinu séra Gissurar Pét-
urssonar): Háeyin, Háin. — Þetta nafn
ei einkennilegt og víst eitthvað aflagað.
Sýnist hér annað hvort, að niður hafi
fallið síðari liður í orði, er samsett var
af lýsingarorði og nafnorði: Há-. - Hafi
svo síðari liðurinn verið bættur upp
með viðskeyttum greini: Há-in. Eða hér
Ihafi orðið stytting. Háeyin og Háenni
í T og hjá GP sýnast vera tilraunir til
sð skýra þetta óvenjulega orð. Hvort
tveggja gæti verið rétt, þó fremur hið
síðara: Háenni. — Há-Há er stundum
kallað til aðgreiningar frá Austur-Há
eða Hánni, sem nú er venja að kalla
svo, þótt það nafn sé réttar haft sem
heildarheiti um allt fjallig fyrir austan
Herjólfsdal. Er fjallið hæst hér, svo sem
nafnið bendir til. Sumir kalla hér líka
Blá-Há (bls. 48-49).
I lýsingu Vestmannaeyja eftir
Jóh. Gunnar Ólafsson (Árbók Ferða-
fél. íslands 1935), er nánari lýsing á
fjallinu:
— Þar sem Háin ber hæst vfir
Herjólfsdal eða Dalinn, heitir MoldL
Sunnan við Molda er geysistór grasfláki
utan í hamrinum, og er hann í daglegu
tali nefndur Mikitakstó. Menn hafa
ekki orðið á eitt sáttir um, hver
væri rétt mynd örnefnisins. Hefir
því verið haldið fram, að hún
héti Mykjuteigstó eða Miðdegistó.
Frá Ofanleiti var hún notuð sem
eyktarmark. Var rétt hádegi þegar sól
skein í tóna. Mikið verpir í tónni af fýl
og lunda. Syðsti hluti Háar heitir Fisk-
hellar og efsta nefið Fisk'hellanef, en
Vaðhorn, þegar miðað er við bað á sjó.
Fiskhellarnir eru hátt og fagurt fjall.
Þeir draga nafn af því, að frá fornu fari
var matfiskur hertur þar og geymdur.
Slútir bergið fram yfir sig, svo að regns
gætir lítið, en alltaf leikur súgur um
bergið. í berginu er hver hillan upp af
annarri og er hægt að fara vaðarlaus
langt upp í bergið, hillu af hillu. Á hill-
umar hafa fyrri alda menn hlaðið úr
aðfluttu grjóti lítil grjótbyrgi til þess
6ð varðveita fiskinn í. Byrgi þessi eru
mörg talsins, og eru sum þeirra á hill-
um og nefjum, sem ókleif eru með öllu.
egar Tyrkir rændu árið 1627
leitaði margt manna í Fistohella að felu
stað. (Einn maður, Oddur Pétursson,
ialdi sig uppi á Há, líklega á Háhánni,
og var þar til þriðjudagsins 17. júlí er
Landakirkja var brennd. Flýði hann þá
burt af Hánni og á annan stað. Hann
var síðan kallaður Oddur á Hánni og
var talinn merkismaður — Innskot).
Ofan af Fiskhellanefinu er sigið á bjóð-
hátíðum til þess að sýna bjargsig. Það
er tilkomumikil sjón.
Úr Herjólfsdal er hægt að fara upp á
EFTIR
ÁRNA ÓLA
Há. Þá er gengin upp austanverð gras-
bretokan. Þegar upp er kömið tekur við
Há-Háin. Austur úr henni gengur
Blá-Há. Hún er úr stuðluðu blágrýti, og
dregur nafn af því. Norðan undir Blá-
Hánni er grasbrekka, sem nefnd er
Kaldakinn. Hún veit við norðri. Nær
hún fram á brúnir á Langabergi. Beint
austur af Blá-Hánni eru Skiphellar.
Þeir hafa fengið nafn af því, að fyrrum
var þar gert að skipum, og unnið að
nýsmiði. Skip voru einnig sett þangað
til varðveizlu yfir sumartímann. Slútir
bergið svo fram, að regns gætir þar
ekki. í austanáttum, sem eru tíðastar í
bruninni, og „spranga" unglingarnir i
því, þ. e. varpa sér í bandinu út frá
berginu og taka löng eða stutt rið eftir
því, hvaðan farið er úr berginu. Þykir
unglingum mikil skemmtun að þessum
reik, og fá þeir mikla leikni í bví að
snúast ekki í loftinu og spyrna á réttan
hátt við berginu, þegar komið er úr
riðinu.
Af Há-Hánni er ýmist hægt að ganga
norður í Náttmálaskarð, fram hjá
Hellu, klettabrík neðan við skarðið, og
siðan niður sandskriðuna ofan á Flat-
írnar, eða suður Há og niður á Austur-
Há. Hún er múli, sem gengur til austurs
frá Há-Hánni. Milli Austur-Háar og
Skiphella eru Jólaborðin, klettabríkur
úr mógrjóti. Sunnan í Austur-Hánni er
Hásteinn. Stendur hann uppi í brekk-
unni norðan við veginn sem liggur inn
í Herjólfsdal.
----0----
A. f þessari lýsingu verður ekki
neitt ráðið um það hvernig stendur a
nafni fjallsins. En það er auðséð, að höf
undur telur hvorki Háey né Háenni
koma til greina. Hann heldur fast við
nafnið Há, en notar það með greini,
eins og títt er. Og rétt er að vekja at-
hygli á því, að i sumum örnefnum felst
upphaflega nafnið óbreytt, eins og i Há-
Há og Blá-Há. Því að eflaust er rétta
nafnið á fjallinu Há. Það er fornt og
hefir verið flutt hingað til lands í önd-
verðu.
í Fornaldarsögum Norðurlanda kem-
ur nafnið fyrir á einum stað. Há er
nefnd ey, þar sem háð var furðulegasta
orusta, sem sögur fara af og kölluð hef-
ír verið Hjaðningavig. Þar börðust þeir
Héðinn og Högni eins og segir í sögu
þeirra. Var sú orusta með þeim ósköp-
um, að fallnir menn risu upp jafnharð-
an og tóku að berjast að nýju. Er sagt
að orusta þessi hafi staðið í 143 ár sam-
íleytt. Nafn eyjarinnar hefir orðið
frægt af þessari orustu eins langt og
sagan um hana barst. En um merkingu
nafnsins er þó ekki vitað að heldur.
Miklar lítour eru til þess, að ör-
nefnið Há sé víðar til á íslandi en í
Vestmannaeyjum. Á einum stað hefir
það gleymzt og þokað fyrir öðru nafni.
í Sturlungu segir: „Eftir andlát Jóns
undar og Sigurðar Ormssonar. Þeir
deildu um arf þess manns er Glæðir
hét. — Sigurður varð sekur á Þing-
skálaþingi, og eftir það safna hvorir
tveggja liði af nýu. Varð Sæmundur
iniklu fjölmennari. Sigurður fær tvö
hundruð manna, og er hann fréttir, að
Sæmundur hefir sjö hundruð manna,
íer hann upp í Eyna há með lið sitt og
býst_ þar fyrir“. (Sturlungasaga II. bls.
16. íslendingasagnaútgáfan 1954).
Hér mun vera um mistök að ræða
þar sem stendur „Eyna há“, stór stafur
settur þar sem hann á ekki að vera,
en lágstafur settur þar sem stór stafur
á að vera. Hér mun eiga að lesa
„eyna Há“ (sbr. það sem stendur í
Héðins sögu og Högna: „Á fyrsta án
ríkis Ólafs konungs (Tryggvasonar) er
sagt, að hann kæmi vig eyna Há“). Er
þetta skiljanleg villa, en þó bagaleg.
Hvergi annars staðar í íslendingasög-
um er nafns þessa getið, en nú nefnist
þetta fjall etoki lengur Há, heldur Pét-
ursey. Bær, sem stóð austan undir fjall-
inu hét Ey, en nafnið hefir einhvern
tíma verið lengt og orðið Pétursey, og
nefir það nafn svo færzt á fjallið. Eru
menn ekki sammála um hvernig á þess-
ari nafnbreytingu hefir staðið.
SJ
O umir halda að her se kennt við
Pétur postula, og draga þá ályktun af
því, að kirkja var forðum í Ey, og muni
það hafa verið Péturskirkja. Það er
ekki óeðlilegt, að menn álykti sem svo,
því að margar kirkjur voru upphaflega
helgaðar sankti Pétri. Samkvæmt rit-
gerð Guðbrands Jónssonar í Safni til
sögu Islands V., hefir Pétur verið nafn-
dýrlingur 46 kirkna og þar að auki
verndardýrlingur 27 kirkna. Eru þessar
kirkjur taldar þar með nöfnum, en ekki
er kirkjan í Ey þar með, enda mun það
rangt að Pétursey sé kennd við Pétur
postula, því að langt fram yfir siða-
skipti heitir bærinn Ey.
Kirkju í Ey er aðeins getið í kirkna-
tali Páls Jónssonar (um 1200) og er
hún þar nefnd „eyin há“. Þetta hefir
verið prestskyldarkirkja. í máldaga
kirkjunnar í Keldudalsholti (nú Holti
í Mýrdal), sem talinn er vera frá
1179, er sagt að prest skuli sækja
í „eyuna há“. Seinna er kirkjan lögð
undir Sólheima, því að í máldaga frá
1340 segir að þangað liggi ein al-
kirkja, og getur þar ekki verið um
aðra kirkju að ræða. Meira er svo
fekki vitað um kirkju í Ey.
Á ýmsum yngri heimildum sést að
bærinn og jörðin hefir heitið Ey fram
á 17. öld. Árið 1519 seldi ögmundur
ábóti í Viðey, í umboði Árna ábóta í
Veri, Snorra djákna Hjálmarssyni 20
hndr. í jörðinni Ey „sem liggur í Mýr-
dal í Sólheimakirkj usókn“, fyrir 20
hndr. í Egilsstöðum í Flóa (D. I. VIH).
f skiptabréfi eftir Pál lögmann Vig-
fússon, sem gert var á Alþingi 1570,
fær Guðríður Vigfúsdóttir meðal ann-
ars í sinn hlut 20 hndr. í jörðinni Ey
í Mýrdal. (Alþingisbækur I).
1- landamerkjagerð milli Ytri Sól-
heima og Eystri Sólheima 1573 segir
að landamerkin sé úr fossi í Merki-
gili „rétt sjón'hending og suður í Eya-
holrn (eða hólinn) svo langt suður á
merkiaurinn sem skilst land milli Sól-
heima og eyar“. (Hóllinn er einkenni-
legur toppmyndaður hóll sunnan við
eyna og heitir Eyarhóll).
f hreppstjóradómi 1617 um fram-
færslu o. fl., segir að hreppaflutning-
ur sé fró Hvoli til Eyjar (Alþb. IV).
Enginn veit hverjum kirkjan í Ey
var helguð, en á þessu má sjá, að
jörðin hefir haldið nafni sínu óbrjál-
uðu langt fram yfir siðaskipti. Er ó-
líklegt að menn hafi eftir það farið
að kenna hana við Pétur postula. Hitt
mun sönnu nær, að farið hafi verið
að kenna hana við einhvern Pétur,
sem þar bjó (og átti jörðina). Ber
og á það að líta að löngum var marg-
býli í Ey og margir bæir. Er þá ekk-
ert eðlilegra en að hvert býli hafi
verið kennt við þann er þar bjó til
aðgreiningar frá hinum býlunum, og
seinast hafi það svo orðið ofan á að
eitt bæjarnafnið, Pétursey, færðist yf-
ir á allt hverfið. En samkvæmt elztu
heimildum hefir bærinn upphaflega
vérið kenndur við fjallið, sem kölluð
hefir verið eyjan Há fram á 13. öld.
Þess finnast dæmi, að nöfn kirkju-
dýrlinga hafi komizt inn í íslenzk
bæjanöfn. í ritgerð sinni um bæja-
nöfn (Safn IV) telur dr. Finnur Jóns-
son ýmis býli, sem kennd eru við
Pétur, en ekkert þeirra telur hann þó
kennt við Pétur postula, heldur við
menn sem þar hafa búið.
Há í Mýrdal (Pétursey) er ein-
stakt fjall, sem rís upp af jafnsléttu
austan Sólheimasands. Er hún talin 275
m. á hæð og er umgirt háum hömrum
í brúnum víðast hvar, einkum að sunn-
an. Er hún tíguleg tilsýndar hvar sem
á hana er litið. Undir henni stóðu einu
sinni 8 bæir, en nú eru þeir fjórir og
standa sunnan og austan undir henni.
Þeir heita Eyjarhólar (fyrst reistir
árið 1829), Nikhóll, Neðri Pétursey og
Efri Pétursey. Sunnan undir eynni er
Framh. á bls. 15
Péturscy í Mýrdal
Vestmannaeyjum, er logn undir Skip- Loftssonar tóku til deilur þeirra Sæm-
hellum. Syðst í Skiphellum æfa
unglingar bjargsig. Bandi er fest uppi á
21. tölublað 1962
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 5