Lesbók Morgunblaðsins - 16.05.1965, Qupperneq 10
SÍMAVIÐTALID
Úthreiðslan hefst úti á landi
12210.
— Vikublaðið Fáikinn.
— Er ritstjórinn við? .
— Sigurjón Jóhannsson.
— Góðan dag, þetta er hjá
Lesbók Mbl. Hvernig gengur
að auka sölu blaðsins?
— Eigendaskiptin urðu í lok
október, en það var ekki fyrr
en í byrjun febrúar, að fram-
kvæmdar voru þær breytingar,
sem unnið hafði verið að um
nokkurra vikna skeið. Svo fór
salan að aukast í lok þess mán-
aðar og hefur haldið áfram sið-
an. Fyrst urðum við varir aukn
ingar úti á landi, en síðar í
Reykjavík.
— Hver er skýringin á því?
— Reykjavík er erfiðari
markaður en landsbyggðin. Hér
er meira við að vera og þar
lesa menn blöð af meiri ná-
kvæmni og taka því fyrr eftir
Svavar Gests skrifar um:
YJAR PLOTUR.
NÝJAR PLÖTUR. Það er
af sem áður var þegar það
þótti merkisviðburður ef
hljómplötur með enskum
hljómsveitum eða söngvur-
um komust á hinn svonefnda
vinsældalista í Bandaríkj-
unum. Það var í mesta lagi
á 2—3 mánaða fresti að ein
og ein ensk plata skaut upp
kollinum, platan hans Cliffs
Richards, „Living doll“, frá
því fyrir fimm árum var m.
a. ein þeirra.
Nú hefur þetta alveg snú-
izt við. Af tíu mest seldu
(og þá um leið vinsælustu)
plötunum í USA um siðustu
helgi voru hvorki meira né
minna en níu með enskum
hljómsveitum og söngvurum.
f efsta sæti var „Mrs. Brown
you’ve got a lovely daught-
er“ með Herman’s Hermits,
en hljómsveitin nýtur gífur-
iegra vinsæida í USA um
þessar mundir, var þar á
hljómleikaferðalagi fyrir
nokkru. í þriðja sæti er
nýjasta Beatles-platan „Tic-
ket to ride“, í fjórða er
Wayne Fontana með lagið
„Game of love“ og í fimmta
sæti Seekers með lagið „I’ll
never find another you“. í
sjötta sæti er svo Petula
Clark með lagið „I know
why“, sem hefur tekið við
af „Downtown" og síðan
kemur Herman’s Hermits
aftur og nú með lagið „Silh-
ouettes" og þá Freddie and
the Dreamers með „I’m tell-
ing you now“, þá koma Roll
ing Stones í níunda sæti með
lagið „The last time“. í tí-
unda sæti er svo brezk hljóm
sveit, sem heitir Sounds Or-
chestral með lagið „Cast
your fate to the wind“. Allt
eru þetta brezkir kraftar
nema Seekers, sem eru frá
Ástraliu, en hiutu reyndar
frægð og frama eftir að þeir
settust að í Bretlandi. Eini
Ameríkumaðurinn, sem á
plötu í einu af tíu efstu sæt-
unum, er Gary sonur Jerry
Lewis gamanleikara með
lagið „Count me in“. Frami
brezkra hljómsveita hefur
heldur betur aukizt fyrir til-
stilli Beatles og ekki nóg
með það, í næstu fjörutíu
sætum eru um tuttugu plöt-
ur brezkar.
Platan, sem er í efsta sæti
með Herman’s Hermits hef-
ur verið efst í tvær vikur,
en búast má við því að ann-
aðhvort Gary Lewis eða
Beatles fari upp fyrir hana
í næstu viku. Platan hans
Gary er búin að vera á vin-
sældalistanum í sex vikur,
var fyrir þremur vikum í 11
sæti svo sjöunda og núna
öðru. En „Ticket to ride“
var þá í 59. sæti síðan 18. og
nú þriðja svo það verður
sennilega hún, sem komin
verður í efsta sætið þegar
þetta birtist á prenti.
Mikill meirihluti þessara
hljómplatna hefur fengizt í
verzlunum hér, ýmist í Fálk
anum eða HSH Vesturveri,
innflutningi hagar orðið
þannig, að nýjar plötur
koma vikulega og hefur
Fálkinn heldur betur tekið
sig á í þeim efnum. Hér eru
plötur með enskum söngvur
um og hljómsveitum mest
keyptar. Amerískir kraftar
seljast illa og hvergi heyr-
ist lengur mirmzt á Elvis
Presley. Síðasta plata hans,
„Do the elam“, var ekki góð.
Hann er samt ekki af baki
dottinn og er með nýja
plötu á vinsældalistanum,
hún er í 39. sæti og fer sér
hægt, þar er hann aldrei
þessu vant með gamalt lag,
sem hann reynir að endur-
vekja „Crying in the chapp-
el“. Gaman verður að fylgj-
ast með því hvernig honum
tekst til. En Elvis kallinn er
svo sem ekki í neinum vand
ræðum, plötur skipta hann
áreiðanlega ekki máli leng-
ur. Hann leikur í 3—4 kvik-
myndum á ári og fær senni-
lega góðan skilding fyrir!
essg.
breytingum á þeim, hvort sem
þær eru til hins betra eða
verra. Við fáum einnig hlut-
fallslega fleiri bréf frá lesend-
um úti á landi, þar sem blað-
inu er ýmist hælt eða það gagn
rýnt. Þessi bréf eru okkur mik-
ils virði. Það er mjög gaman
að finna lifandi áhuga lesend-
anna.
— Hafið þið stuðzt við bréf-
in í nokkrum breytingum á
blaðinu?
— Já, við höfum stundum
haft hliðsjón af þeim í efnisvali.
í fyrstu áttum við oft mjög erf-
itt með að gera okkur grein
fyrir því, hvernig við ættum að
hafa hlutfallið milli léttmetis
og fræðandi og vandaðra efnis.
Ýmsar ábendingar hafa hjálp-
að okkur nokkuð.
— Hvert finnst þér hlutfall-
ið eiga að vera?
— Stefna okkar er sú, að
þar sem þetta er heimilisblað,
þá eigi allir meðlimir fjölskyld
unnar að geta fundið í því eitt-
hvað við sitt hæfi. Við höfum
í huga að stækka blaðið í haust
upp í 52 síður til að auka fjöl-
breytnina og auka rými fyrir
auglýsingar, svo að eðlilegt
hlutfall verði milli þeirra og
lestrarefnis.
— Æskilegt er að hafa sem
mest af innlendu efni í blaðinu.
Við fengum til dæmis teikni-
myndasögu af Sæmundi fróða
eftir Harald Guðbergsson, sem
teiknar Ása-Þór í Morgunblaðs-
lesbókinni. Þá ætlar Gisli J.
Ástþórsson að teikna syrpu af
myndum fyrir okkur með text-
um frá sjálfum sé. Hefst birt-
ing þeirra í næsta blaði með
teiknimyndinni „Kokkteil-
partí“. Við erum hreyknir af
því að geta birt þetta efni,
sem er að mínu áliti mjög vel
unnið.
— Hve margir vinna á rit-
stjórn Fálkans?
— Við erum þrjú, Steinunn
S. Briem, Ragnar Lárusson,
teiknari, og ég.
SUNNUDAGUR
Framhald af bls. 9
nú kyrrt oig ládauður sær, en þegar
það æeist upp af stórviðri, gjörir það
þennan stað dulúðugan og geigvænleg-
an. Skammt er milli fjallsróta og sjáv-
ar. Bærinn í Kolbeinsvík hefur verið
reistur uppi við hraunröndina við tæra
lind, sem sprettur fram undan hraun-
Inu. Hefur þar verið nokkurt afdrep
fyrir sviptivindum, sem þama eru feiki-
legir.
Sú saga er um tilkomu hraunsins, að
til forna hafi búið í fjallinu tröllkona
er hafði ímugust á bóndanum og vildi
hann á burt, en það vafðist fyrir henni.
Ákvað hún þá að spyrna stykki úr
fjallinu yfir bæinn, og þar með tor-
tíma bónda og hyski hans. Nótt þá, er
þetta skyldi framkvæmt, gisti hjá bónda
Guðmundur góði Hólabiskup; verður
hann var við hvað til stendur, og er
hann heyrir hávaðann fer hann út, og
breiðir faðminn mót skriðunni:
„Hjálpa hér, Drottínn, eigi má vésa-
lingur minn“.
Á sömu stundu er þetta var mælt,
stöðvaðist grjóthrunið.
3ærinn mun hafa staðið undir hraun
veggnum við lindina, sem Guðmundur
góði hefur sennilega vígt neytendum
vatnsins til blessunar. Þess er ekki get-
ið að óhapp hafi hent byggð né búend-
ur í Kolbeinsvík.
Er við stöndum á grónum rústunum,
þar sem við vitum að fólk hefur búið,
er sem við heyrum skóhljóð kynslóð-
anna, nemum gleðihljóð þeirra sem
hamingjan var hliðholl, þrumurödd leið
toganna og stunur og ekkasog hinna
sjúku og öidnu. Við reynum að skyggn-
aot með sjónum andans inn í myrkur
liðinna kynslóða, en í gegnum þann
þétta skóg eru aðeins strjálir og fáir
geislar, sem birtast í sögunum. Megin-
mörkin eru myrkvuð. Svo er um flesta
þá er dvalið hafa í Kolbeinsvík. En aug-
ljóst er, að þeim hefur verið skorinn
þröngur stakkur í landrými og lífskjör-
um. Ég sé í anda fámennan hóp heima-
fólks, sem dvelur í lítilli, dimmri bað-
stofu. Úti fyrir er norðanhríð og fann-
kyngi, svo kofarnir eru að fara í kaf.
Veðurofsinn dunar í fjallaskörðunum,
en hafaldan biltist að hleinunum með
Iheljarafli, svo jörðin titrar. Ég skynja
vorið í töfrum sínum, bjart, kyrrt, loft-
ið mettað af angan og ilmi vallargróð-
ursins.
Og miðnætursólin sindrar á haffletin-
um og byggir brú úr geislum sínum
um kvikan hafflötinn frá hleinunum
fyrir neðan túnið til himins.
Er ég snéri frá bæjarrústunum, og
lindinni var sem til mín væri talað:
Hver verður hlutur þinn, 20. aldar mað-
ur?
Þetta var sem viðlag frá liðnum öid-
um.
Bifreiðin rann hægt og mjúkt inn 4
þjóðveginn, þar var hraði hennar auk-
inn.
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS.
18. tbl. líKíS