Lesbók Morgunblaðsins - 25.05.1969, Blaðsíða 8
JOHN GALSWORTHY
sjálfur að hálfu Forsyte
Það á við um verk Galsworthys, jafnvel fremur en um
flesta höfunda aðra, að þau voru sótt í reynslu og umhverfi
hans eigin lífs. Líkt og Forsyte-fjölskyldan í sögu hans, var
hann af bændafólki kominn, en forfeður hans fluttust síð-
an til Lundúna og græddist brátt fé. Hann stundaði nám í
Harrow og New College, Oxford, og gerðist síðan lögfræð-
ingur. En hann fékk aldrei áhuga á því starfi. Þrátt fyrir
það, að hann var sæmdur einu æðsta heiðursmerki Breta
og Nóbelsverðlaunum fyrir bókmenntir, var hann fyrr á
árum talinn hættulegur maður; atkvæðamikili gagnrýn-
andi þeirrar yfirstéttar, sem hann var sjálfur kominn af.
„Hann var sjálfur að hálfu Forsyte — auðugur maður,
sem naut forréttinda og hafði eðlislæga andúð á breyt-
ingum. í hina röndina var hann ungur, ástríðuþrunginn
maður, sem varð ómótstæðilega ástfanginn af giftri konu
og varð hennar vegna að þola þær óhjákvæmilegu félags-
legu afleiðingar, sem því fyigdi í þann tíð“, segir ævisögu-
ritari hans, Marrot. eÞssi kona, Ada, sem síðar varð eig-
inkona hans, hafði djúpstæð áhrif á rithöfundarferil hans;
vegna kynna sinna af henni breyttist Galsworthy úr til-
tölulega lítt þekktum smásagnahöfundi í föður Forsyte-
ættarinnar. Sú saga skipaði honum í fremstu röð sam-
timamanna í heimi enskra bókmennta, enda er sagan eins
iíkleg til að standast tímans tönn og hver önnur saga á
enska tungu.
Kvikmyndun Forsytesögunnar
Donald Wilson þaulkannaði allt verkið — sex langar
skáldsögur og fáeinar smásögur — með sjónvarpsfram-
leiðslu í huga. Fjárhagsáætlunin var samin, svo og áætl-
anir um leikara í aðalhlutverk, smærri hlutverk, aðstoð-
arhlutverk o.s.frv.; áæilað var, hve oft hver leikari kæmi
fram; hve mikinn sviðsbúnað þyrfti í hvert skipti og hve
oft mætti nota sama sviðsbúnað að einhverju eða öllu
leyti; nákvæmur Iisti var dreginn upp yfir magn og gæði
búninga, hárkollur, barta, skartgripi, hanzka, sólhlífar,
göngustafi o.s.frv.; það magn af filmum, er á þyrfti að halda,
var nákvæmlega áætlað í spólum og yördum; loks var
gerð tímaáætlun um myndatöku utandyra, sem tók fullt
tillit til duttlungafullrar nátúru hins enska loftslags.
FORSYTE
5AGAN
OG LEIKARARNIR
í SJÓNVARPSMYNDINNI
Ymis atriði úr persónulegu lífi þeirra
PUND
Á
ORÐIÐ
Enda þótt það hafi verið á almannavitorði að Forsyte-sagan væri dýr-
asta sjónvarpskvikmynd, sem nokkru sinni hefur verið gerð á vegum
BBC, (ekki sízt vegna búninganna), kom niðurstaða eins blaðamanns
í Fleet Street nokkuð á óvart. Hann tók sig til og reiknaði kostnaðinn
nákvæmlega á ýmsar einingar, og reyndist kostnaðurinn vera eitt sterl-
ingspund (214 kr. ísl.) á orðið.
Joseph O’Connor,
ættarhöfðingi hinnar
höfðinglegu Forsyte-
ættar
,01d ,Tclyon“, tekaupmaður
og stjórnarformaður mar.gra fyr
irtækja, er höíuð Forsyteættar-
innar. í þessu mikilvæga hlut-
verki er Joseph O'Connor, íri,
fæddur og uppalinn í Dyflinni.
Joseph 0‘Connor
Þrátt fyrir að O'Con'nor er
þarna í hlutverki áttræðs
manns, er hann, þótt furðulegt
sé, nokkrum árum ynigri en
Kenneth Moore, sem leikur
„Jolion unga“ sem er rétt á
fertugsaldri þegar sagan byrj-
ar.
Joseph 0‘Connor reyndist lít
ill vandi að fást við hiran átt-
ræða öldung. þrátt fyrir aldurs-
muninn á þeim tveimur. Líkt og
Eric Porter, sem í hlutverki
sínu sem Soames eldist frá tutt-
ugu og níu ára aldri til sjöt-
ugs í sögunni, hefur O'Connor
mikla reynslu í að leika hlut-
verk sér miklu eldri manna.
Hanm hefur á leikferli sínum
farið með hin fjölbreytilegustu
hlutverk, allt frá Shakespeare
til nútíma lei'khúsverka.
Kenneth Moore —
frægðarferill, en
ekki án fyrirhafnar
Kenneth Moore þurfti ekki
mikið fyrir lífinu að hafa í
bernsku. Fjölskylda hans var
vel efnum búin: hann fékk þá
beztu menntun, sem völ var á.
Samt sem áður var leikferill
hans þyrnum stráð braut fram-
an af: en um það bil sem hanm
var rúmlega á fertugsaldri var
Kenneth Moore
hann langsamlega tekju'hæsti
leikari á Bretlandseyjum. En
það varð ekki án fyriríhafnar.
Eftir margra ára þrotlausa
viðleitni á leiksviðinu kom
seinni heimsstyrjöldin og Moore
var kvaddur í flotann, þar sem
hann gegndi herþjónustu á her-
Skipum á Miðjarðarlhafi og
Kyrrahafi í sex ár.
Fyrsta tækifærið eftir stríð-
ið kom í leikriti sem kallaðist
„Power without Glory“ sem
var fært upp í litlum leik-
klúbbi. Nöfn aðalleikendamna í
þessari uppfærslu hljóma kunm-
uglega í eyruim oikkar nú orðið:
Diek Bogardt og Kenmeth
Moore. Bogarde fék'k kvik-
myndasaimmmg eftir leik sinm í
þessu ver'ki, en Moore fékk
heimsókn frá Noel Coward og
boð um að taka þátt í nýju
leikriti eftir hanm, „Peace in
Our Time“.
Þetta leiddi til hvers hlut-
verksinis öðnu stærra á leik-
sviði, þar til aðalhlutverkið í
kvikmyndinmi „The Deep Blue
Sea“, tók að mala honum gull
svo um munaði Um líkt leyti
fékk hanin sitt fyrsta hlutverk
í kvikmyndum, í myndinni „Gen
evive“. Eftir það átti hanin vísa
framtíð í kvikniyndum. Næstu
sjö árin jók hann stöðugt vin-
sældir sínar með mynduim eine
og „Our Girl Friday", „Rais-
ing á Riot“ „Deep Blue Sea“,
„Reach fOr the Sfcy“, „A
Night to Remember", „The
Sheriff of Fractured Jaw“, og
síðast „Sink the Bismark".
En um það leyti sem hann
stóð á fimmtugu, komu þrjú
mögur ár. Þar sem 'hanm var
ekki lengur fær um að leika
uniga ofurlhuga var en/gin eft-
irspurn eftir honum í kvik-
myndum og hanm mátti skyndi-
lega sitja auðum höndum. Þetta
hefði hæglega getað orðið end-
irinn á leikferli hans: enbjart-
sýni Moores var ódrepandi.
í fyrstu lét 'hanm sér lynda
að snúa sér aftur að leiksvið-
inu, þótt engin stórhlutverk
væru í boði Því næst byrjaði
hann að taka þátt í sjónvarps-
leikritum — og sér til nokk-
urrar furðu komist hann að raun
um að það var hvort tveggja
spennandd og vel borgað — og
síðast enn ekki sízt, gaf hon-
um færi á að leika fyrir nýja
kynslóð áhorfenda.
Meira um Jolyon
Einkalíf leikaranis Kennetlhs
Moores og lífshlaup skáldsögu-
persóniunnar, hins umga Joly-
ons, sem hann lei'kur í For-
sytesögunni, ei næsta áþekkt,
a.m.k. í einu tilliti.
Sögupersóna Galswort'hys
verður ástfangin af yngri konu
og býr með henni, enda þótt
kona hans neiti honuim um
ákilnað.
Fyrir fimm árium varð Kenn-
eth Moore ástfanginn af leik-
konunni Angelu Douglas. Hann
yfirgaf konu og dóttur til þess
að hefja nýtt líf með Anigelu.
Lenigi vel nei'taði eiginkona
hans honium uim skln,að.
„Við Jolyon höfum vissulega
átt við svipuð vandamál að
stríða, hvað konur snertir. Það
var mér ekki auðvelt að yfir-
gefa konu míma, svo að é.g vissi
nákvæ-mlega hvernig Jolyon var
innan/brj ósts.
„Þar fyrir held ég, að við
séum ekiki mijög svipaðir per-
sónuleikar. Auðvitað vildi ég
gjarnan ímynda mér að ég væri
líkur Jolyon. En ef ég á að
vera fyllilega hreinskilinn, veit
ég, að hann er miklu urnburð-
arlyndari en ég er.“
Nyree Dawn Porter
sem Irene „Ný Helena
af Trojuborg“
„John Galsworthy skóp sögu-
Irene á blómaskeiði sínu.
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 25. maí 1969