Lesbók Morgunblaðsins - 22.10.1972, Side 14
I Grjótaþorpinu, á næsta bæ
við Morgnnblaðið, er kjallari
með dálítið útlenzkulegu nafni:
Gallery Grjótaþorp. I»ar hafa
verið haldnar smásýningar á
myndlist öðru hvoru, en núna
stendur þar yfir sýning á ljós-
myndum eftir Markús Jó-
hannsson. Hann tekur og vinn-
ur þesskonar myndir, að ugg-
laust flokkast það einnig und-
ir myndlist. Munurinn er ein-
ungis sá, að Markús notar —
eins og fleiri — myndavél í
stað blýants eða lita.
I»essi sýning heitir „Undir
hálfu tungli“, hvað sem það á
nú annars að tákna, þvi hér
er ekki um neinar tunglskins-
myndir að ræða. Markúsi verð-
ur annars margt að myndefni
og er ekki hægt að segja að
hann hafi meiri mætur á einu
en öðru. Enda gildir hér það
sama og um aðra myndlist;
sjálft viðfangsefnið eða stefn-
an skiptir ekld mestu máli,
heldur hvernig listamaðurinn
ræður við það sem hann
spreytir sig á. Hér á landi eru
margir áhugaljósmyndarar, en
sýningar á ljósmyndum eru
hins vegar fremur fátiðir at-
burðir.
Að ofan: Ást og ástarsorg. Til
vinstri: Kennslustund. Myndin
er tekin i kennslustund f
Myndlista- og handiðaskólan-
um. Til hægri: Vizkutréð.
UNDIR
HÁLFU
TUNGLI
Markús
Jóhannsson
sýnir
ljósmyndir
milli hinna ýmsu deilda stoín-
unarinnar, án þess að ég væri
nokkum tíma kvaddur til ráðu
neytis, og búið var að skera
af henni eitt og annað hér og
þar, var vist orðið svo lítið eft
ir af henni, að leifarnar fóru
hljóðalaust í hið óseðjandi melt
ingarfæri hinnar alþjóðlegu
skriffinnsku — pappirskörf-
una.
Ég fékk aldrei að heyra eitt
einasta orð um örlög áætlunar
innar, en frétti þó smám saman
um gang málsins. Ég tðk því
upp beint samband við Þjóð-
verja, og þess vegna voru að
minnsta kosti nokkrir liðir
hennar framkvæmdir.
Hvort ég hafi verið vonsvik-
inn? Já, svo sannarlega. Árs
vinnu var kastað á glæ með
öllu, sem henni fylgdi.
Hið eina, sem þetta skildi eft
ir, var dýrkeypt reynsla af
þeim leik, sem var og er leik-
inn undir yfirborði hins sak-
leysislega, en kæfandi alþjóð-
lega skriffinnskuveldis.
14