Lesbók Morgunblaðsins - 23.07.1978, Page 7
fyrir frumstæðustu lífsnauðsynjum og
heilan frumskóg af skilningsleysi, fordóm-
um og beinni andúö, átti eflaust mikinn
þátt í aö stuöla aö hinum hörmulegu
endalokum hans. Á þessum dögum
örbirgöar og þrenginga voru Felix Mottl
og tónskáldið Adalbert de Goldschmidt
fyrstir til aö rétta honum hjálparhönd með
því aö útvega honum nemendur sem hann
kenndi heima hjá sér á fiðlu og píanó.
Nemendurnir voru sjö og átta ára gömul
börn. Hugo var lélegur kennari enda stóö
hugur hans til annarrra afreka og
vinnuálag hans var geysileg. En meö
þessum hætti gat hann leyft sér þann
munaö aö eta eina máltíö á dag þegar
bezt lét. Þrældómurinn gekk svo nærri
honum aö um skeið var hann kominn á
fremsta hlunn meö aö flýja til Ameríku.
Þa
var áriö 1881. En þá útvegaði Gold-
schmidt honum stööu sem aðstoðar-
hljómsveitarstjóri viö söngleikahús í
Salzburg. Þar fékkst Hugo við að æfa
kóra úr óperettum eftir Strauss og
jmkil%öcker. Hann vann vel og samvisku-
samlega í nokkrar vikur en gafst þá upp
úr leiðindum og kom aftur til Vínar.
Hann var þegar byrjaöur aö fikra sig
áfram meö tónsmíðar. Unglingur samdi
hann drög aö óperu, König Albion, og
skyssur aö sinfóníu og píanósónötu. Hugo
var aöeins fimmtán ára er hann tók aö
semja sönglög. Elztu tiiraunir hans frá
árinu 1875 voru til í handriti í vörslu
frænku hans en hurfu í stríðinu. En til eru
nokkur lög viö kvæöi eftir Göethe sem
Hugo hefur númeraö op. 3. Þaö er
athyglisvert aö hann bindur þau í flokk en
þaö átti eftir aö veröa eitt helzta sérkenni
hans sem tónsmiös. Frá árinu 1876 eru
varðveitt nokkur lög viö Ijóö Heine og þaö
ár samdi Hugo Wolf Ein Grab viö Ijóö
vinar síns og er elzta lagiö sem hann
kæröi sig um aö gefa sjálfur út meðan
hann lifði. Þaö kom ásamt ellefu öörum
lögum í hefti sem nefndist Lieder aus der
Jugendzeit og var prentað 1887. Flest
lögin eru frá árunum 1877—78. Þá var
Hugo Wolf ástfanginn í fyrsta sinn og
hafði sú reynsla góö áhrif á sköpunargáfu
hans. Hún hét Vally Franck og var af
frönskum ættum og þótti vænt um Hugo.
Sjálfur áleit hann 1878 tímamótaár í
lagagerö sinni, „samdi ég þá gott lag
daglega, stundum meira aö segja tvö“.
Fyrir utan lög viö Ijóö eftir Heine og Lenau
geröi hann músik viö kvæöi eftir Hebbel,
von Fallersleben og Július Sturm.
Háttur Wolfs aö nýta út í æsar einfalda
tónhugsun er þegar orðin áberandi. í
þessum æskuverkum t.d. Uber Nacht
(Sturm 1878). Eftirspiliö í píanóinu er síöar
varö eitt algengasta, áhrifaríkasta og
frumlegasta listbragö hans er í kvæöinu
Ja, Die Schönst! (Fallersleben 1878) í
fyrsta sinn aöalatriöi allrar tónhugsunar-
innar og lykillinn aö sálfræöilegri innsýn
og tilfinningajegum skilningi tónskáldsins
á Ijóöinu. Örstutt lag, Liebesfriihling
(Fallersleben 1878), aöeins 27 taktar,
dregur fram blæ Ijóösins meö nákvæmri
skarpskyggni, án allra málalenginga. Hinn
ungi Hugo Wolf stefndi markvisst að því
sem er aðall allra góöa sönglagasmiöa:
gagnyröingu, samþjöppun og meitlaðri
smámynd.
Snemma árs 1880 birtist nafn Eichen-
dorfs í fyrsta sinn á handriti frá hendi
Hugos Wolfs (Nachruf) og um svipaö leyti
keypti hann eintak af Ijóðum Mörike.
Þessi tvö skáld, sem segja má aö hafi
ákvarðaö örlög hans sem ligtamanns,
virðast því hafa vakiö athygli hans á sama
tíma þegar hann var tvítugur. í upphafi
skírskotaði Mörike þó ekki mikiö til hans.
Á þessum hörðu dögum baráttunnar fyrir
brauöinu er skiljanlegt aö hiö innhverfa,
djúpsæja og sálskyggna skáld, hafi ekki
gripið huga hans jafn skjótt fanginn sem
hinn hárómantíski Eichendorf. Arið 1881
samdi hann sex kórsöngva viö Ijóð hins
síðarnefnda. Þaö voru andleg kvæöi og
fornleg aö stíl og hugsun. En næstu árin
Hugo woif ðsakaði
Brahms ffyrir ófrumleika,
skort á Þrótti og sannri
lífsfyllingu. En fyrst og
fremst leit hann á Brahms
sem höfuðpaur afturhalds-
samrar tónlistarklíku er
fyrirleit Wagner, Bruckner
og Mahler og ofsótti alla
brauðryðjendur nýrra hug-
mynda og ferskrar tjáningar
í lífi sem líst.
samdi Hugo Wolf allmörg lög viö hin
lýrískari Ijóð Eichendorfs. í þeim lýsir
hann þjáningum, vonbrigðum, baráttu og
auðmýkingu unglingsára sinna blátt áfram
og eðlilega á sama tíma og nær öll
tónskáld hins rómantíska skóla bókstaf-
lega vældu og veinuöu í Hollywood-stíl.
Þó er eina tónaljóð hans fyrir hljómsveit,
Bentheselia, sem hann samdi 1883 dálítiö
litaö gráti og gnístran tanna í bland viö
sjálfsdekurslegt algleymi. En þaö er þó
miklu hófsamara en t.d. skrúömælgi
Richards Strauss. Strengjakvartett Wolfs
í d-moll frá 1883 er aftur á móti
stórfrumlegt og merkilegt tónverk. Robert
Reinick, sem Schumann mat mikils, kom
einnig talsvert viö sögu Hugo Wolfs á
þessum árum. Þau lög birta hina íhugulu,
angurværu og elskulegu hliöar hans, en
skapgerð Hugo Wolfs var kynleg blanda
af ofurnæmri viökvæmni og heiftúölegri
árásargirni og óstýrlæti. Reinick-ljóöin er
hægt aö líta á sem lokaáfanga í
þroskasögu Hugo Wolfs því þegar hann
kemur fram fyrir alvöru meö Mörike-ljóö-
unum 1888, má hann kallast fullkominn
meistari með vald á öllum þáttum
tónrænnar Ijóösköpunar. En hann bjó
einnig yfir andlegu næmi og innsæi til aö
sjá inn í aöra heima. Og hann lýsti því sem
hann sá og heyröi meö þvílíkum guðamóði
aö þaö var sem aðrar raddir yröu hjáróma
og utangátta.
Áriö 1884 varö Hugo Wolf tónlistar-
gagnrýnandi viö ómerkilegt æsi- og
tízkufréttablaö í Vín, Salonblatt. Greinar
hans frá 1884—87 ólga af lífskrafti,
skörpum árásum og beittu háöi. Hann
sagöi skoðanir sínar af miklu hugrekki og
hreinskilni. Fyrst og fremst barðist hann
með oddi og egg fyrir Wagner og tónlist
hans, iofsöng gömlu meistarana Gluck,
Mozart og Beethoven, hélt uppi vörnum
fyrir Bruckner og hyllti Berlioz, en gerði
gys aö ítölskum óperutónskáldum sam-
tímans og réöist harkalega og tæpitungu-
laust á Brahms sem var mesta átrúnaðar-
goö Vínarbúa. Varla er hægt aö neita því
aö Hugo Wolf var haldinn fordómum og
ósanngirni í garö Brahms. En þeir sem
hafa hugrekki til að leita nýrra leiða í
listsköpun og áræöi til að berjast fyrir
hugsjónum sínum er líka frjálst aö
skjátlast. Og oft er þaö svo aö þeir sem
mest og bezt vinna í þágu sannleikans
henda jafnframt stærri hrasanir og mistök
en menn lítilla sanda og lítilla sæva. Mér
finnst meira til um djörfung Hugo Wolfs
og réttsýni á menningarstrauma samtíðar
sinnar í heild en einstaka hvatvísa dóma
er hann kvaö upp yfir Brahms og fleirum.
Sú staöreynd gleymist líka oft aö Brahms
var allt annaö en hliöhollur þeim ungu
tónskáldum er lögöu grundvöll aö tón-
hugsunum tuttugustu aldar. Hann var til
dæmis Gustav Mahler æöi þungur í
skauti. Og hann notfæröi sér aöstööu sína
blygöunarlaust sjálfum sér til framdráttar
í krafti frægöar sinnar. Hann komst þaö
sem hann vildi með þögulli og haröri
íhaldsemi. Ég held aö Hugo Wolf hafi
unnaö Brahms meira sannmælis en gamli
meistarinn hinum ungu nýjungamönnum.
Hann haföi dálæti á sumum verka hans,
einkum kammertónlistinni, en haföi illan
bifur á sinfóníunum og blöskraöi hirðu-
leysi Brahms í sönglagagerö: Hroðvirkni
lagraddarinnar og þykkt útflúr píanósins.
Þessi afstaöa er skiljanleg þegar höfö er
í huga hin gífurlega áherzla sem Hugo
sjálfur lagöi á algjöran samruna Ijóös og
lags, söngraddar og hljóðfæris í smáatriö-
um.
Hugo Wolf ásakaöi Brahms fyrir
ófrumleika, skort á þrótti og sannri
lífsfyllingu. En fyrst og fremst leit hann á
Brahms sem höfuðpaur afturhaldssmrar
tónlistarklíku er fyrileit Wagner, Bruckner
og Mahler og ofsótti alla brautryöjendur
nýrra hugmynda og freskrar tjáningar í lífi
sem list. Enginn vafi er á aö þetta
sjónarmið var aö mestu leyti rétt. Og þó
Brahms hafi í raun verið hátt yfir
aödáendur sína hafinn, bæöi sem maöur
og listamaöur, hafi hann ekki hugrekki til
aö slíta sig frá þeim og vera þaö sem hann
var: Síöasti fulltrúi lífsstefnu er runnið
haföi skeiö sitt á enda. Brahms las greinar
Wolfs en árásir hans röskuöu ekki ró og
spekt þessa fáláta einfara. En áhangendur
hans, minni spámennirnir, gátu aldrei
fyrirgefið Hugo Wolf. Einn forhertasti
hatursmaður hans, hljómsveitarstjórinn
Hans von Bulow — einns konar Karajan
þeirra tíma — lét þessi ódauölegu orö
falla er gætu veriö einkunarorö aftur-
haldssemi í listum á öllum öldum: Aö
andúö á tónlist Brahms væri „guölast
gegn heilögum anda sem ekki veröur
fyrirgefið." Tónlistarfélag eitt í Vínarborg
tók Pentheselia til athugunar. Og þaö var
æft og flutt, góöborgurum er viöstaddir
voru til mikillar skelfingar og hneysklunar.
Þegar verkinu lauk snéri hljómsveitar-
stjórinn sér aö áheyrendum og sagöi:
„Herrar mínir! Ég biöst forláts aö hafa
leyft aö leika þetta verk til enda. En mig
langaði aö kynna ykkur háttvísi þessa
náunga er dirfist aö skrifa aörar eins
svívirðingar um meistara Brahms“. Og
gagnrýnandi skrifaði: „Hugo Wolf hefur
upp á síðkastið vakiö ómótstæöiiegan
hiátur meöal tónlistarunnenda meö blaöa-
Hugo Wolf var örvæntingu
næst er sköpunarmáttur
hans virtist hafa porrið allt í
einu og fyrirvaralaust. Hann
skrifaði vini sínum Oskar
Grohe 2. maí 1891: „Ég hef
alveg gefizt upp við tón-
smíðar. Hamingjan má vita
hvernig petta endar. Biddu
ffyrir minni aumu sál“.
mennsku sinni. Einhver stakk því upp á
því aö hann ætti fremur að freista
gæfunar sem tónskáld. En þaö hefur nú
sannast aö þessi velmeinta ráölegging var
út í hött. Hann ætti aftur aö snúa sér að
blaðamennsku”. Er aö furöa þó ungur
snillingur sem þessar og aðrar auömýk-
ingar varð aö þola hafi undan sviöið og
höggiö hart aö þeim mönnum er notaðir
voru sem refsivöndur á sjálfan hann?
Árin 1887 og 1888 uröu þáttaskil í ævi
Hugo Wolfs. Fyrra áriö dó faðir hans,
aöeins nokkrum vikum áöur en fyrsta
sönglagahefti sonarins kom á prent, en
mjög kært var meö þeim feögum þó ólíkir
væru. Þaö var líkt og söknuðurinn yfir
fööurmissinum og fögnuöurinn yfir því aö
hafa loks tekizt aö koma hugsunum sínum
á framfæri hafi eflt Hugo til dáöa. í
ársbyrjun 1888 flutti hann í sumarhús
vinar síns, Dr. Heinrich Werners, í litlu
þorpi, Perchtoldsdorf, skammt fyrir
sunnan Vín. í húsi því sem nú er
Wolf-minjasafn (opnaö 1973) nr. 26 viö
Brunnargasse, samdi Hugo Wolf á þremur
mánuðum fjörutíu og fjögur Mörike-
Lieder. Þar með hófst straumur hinna
miklu meistaraverka. Síöar á árum lét
Hugo þess getið að þessi tími heföi verið
mesta hamingjuskeiö ævi sinnar, því þá
uppgötvaði hann til fulls snilligáfu sína
eftir langa og örvæntingarfulla leit aö
sínum innsta manni. Þaö var sem
flóögáttir himinsins heföu opnast. í
fullkomnu sjálfgleymi og upphafningu
samdi Hugo hvert lagið á eftir ööru. Hann
var sjálfur undrandi og jafnvel hræddur
viö yfirþyrmandi sköpunarmátt sinn. Hann
skrifaði vini sínum: „Nú er klukkan sjö að
kvöldi og ég er sælli en hinn lukkulegasti
kóngur. Annaö nýtt lag. Ef þú vissir hvaö
mér bærist í brjósti ... myndir þú glaður
ofurselja þig fjandanum". Seinna. „Enn
tvö ný lög annað hljómar svo skrýtiö og
óttalega aö ég er skelfingu lostinn. Þaö á
enga hliöstæöu. Hamingjan hjálpi því
vesalings fólki sem mun heyra það
einhvern tíma“. í þessu lagi, Zur warnung,
er Hugo Wolf að fást viö áþekkar aöferöir
og Alban Berg mörgum áratugum seinna.
Og enn skrifar Wolf: „Ef þú gætir heyrt
síöasta lagiö mitt, ættir þú aðeins eina
ósk — aö deyja.“
Hugo Wolf haföi varla lokiö Mörike-ljóö-
unum en hann tók til viö Göethe. Á þrem
mánuðum (des. 1888 — febr. 1889) lauk
hann viö Göethe-Lieberbuch. Hún hefur
aö geyma fimmtíu og eitt lag, þar á meöal
nokkrar stærstu og stórkostlegustu
smíöar er Hugo Wolf samdi. Sumarið
1888 haföi hann einnig gefiö sér tíma til
aö semja lög við allmörg Ijóö eftir
Eichendorf (Eichendorf-Lieder) sem hann
gaf út ásamt nokkrum eldri lögum viö
kvæöi sama skálds 1889. Sumariö 1889
uröu til sex lög, Alte Wisen, viö Ijóö
svissneska skáldsins Gottfried Keller. Um
haustið hófst Hugo Wolf handa við að
tónsetja Spönsku Ijóöabókina í þýöingu
Gibel og Heyse er út kom 1854. í apríl
1890 haföi hann samið 44 lög. Hann var
haldinn svipuöum eldmóöi og er hann var
aö skapa Mörike-ljóðin: „Þaö sem ég er
nú að semja er samið fyrir framtíöina. Frá
dögum Schuberts og Schumanns hefur
ekkert þessu líkt veriö skrifaö“. Haustiö
1890 byrjaði Hugo á frumlegasta
meistaraverki sínu ítölsku Ijóöabókinni í
þýöingu Heyse.
En þá var sem andi hans heföi brunniö
út. Hann gat ekki meira. Á hálfu þriöja ári
hafði fhann skapaö um tvö huneruö
Mörike-Lieder, Eichendorf-Lieder,
Göethe-Liederbuch, Alte Wiesen,
Spanisches Liederbuch og fyrri hluta
Italinanischer Liederbuch, eöa nær allt
sem frægð hans tíma hvílir á sem eitt
mesta — ef ekki allra stærsta —
sönglagatónskálda allra tíma. Ferill Hugo
Wolfs er einhver sá sérstæöasti og
ótrúlegasti í listasögunni. Og hann segir
okkur eitt og annað um leyndardóma
sköpunargáfu stórra snillinga.
Framhald á bls. 13