Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.1980, Side 10
Kona i brúðarskarti. John
Cleveley teiknaði 1772. Talií
er að hér sé amtmannsírúin.
Sigríður Magnúsdóttir.
Island
á
átjándu
öld
Fljótt á litið gæti virzt, að hér hefði
Cleveiey teiknað almyrkva á sólu, eða
eina af „svörtu holunum“ í geimnum. En
svo er nú ekki; þetta er Geysisskálin, séð
ofan frá, hvernig sem listamaðurinn
hefur nú farið að því.
Sir Joseph Banks
Banks fæddist í Lincolnshire árið 1743
og ólst upp við öll þau forréttindi og
þægindi sem heldra fólk í landeigendastétt
átti aö venjast. Hann naut tilsagnar
heimiliskennara þangað til hann innritaðist
í Etonskóla þrettán ára aö aldri. Þar lukust
augu hans fyrst upp fyrir fegurð og undrum
náttúrunnar, og hann ákvað að helga sig
náttúruvísindunum. Hann stundaði fram-
haldsnám viö Christ Church í Oxford fram
til ársins 1764, og skömmu síðar lagöi
hann upp í fyrstu könnunarferö sína og hélt
til Nýfundnalands. Tveimur árum síðar fór
hann með Cook um Kyrrahafiö, og síöan
tók við íslandsleiðangurinn árið 1772.
Þessar rannsóknarferðir urðu honum mjög
til lofs og frægðar. Hann komst í mikið álit
sem merkur vísindamaður og var kjörinn
forseti Hins konunglega vísindafélags.
Þaöan í frá var Sir Joseph Banks mestur
áhrifamaöur um vísindi í Englandi um
fjörutíu og tveggja ára skeið.
Tilviljun réð því að Banks tókst ferð sína
til íslands á hendur. Það hafði ekki síst
verið framtaki hans að þakka að fyrsti
leiöangur Cooks tókst svo vel sem raun
varð á. Banks hafði á eigin kostnað látið
búa skipiö vísindalegum tækjum og fengið
hæfa náttúrufraeðinga og snjalla listamenn
til ferðarinnar. í þessari fljótandi vísinda-
stofu rannsökuðu þeir og skráðu á skýrslur
og myndir lífið í sjónum og dýralíf,
jurtagróður og lifnaðarhætti manna í þeim
löndum sem leiö þeirra lá til. Hin fjölmörgu
sýnishorn úr framandi lífríkjum sem þeir
fluttu heim með sér vöktu gífurlega athygli,
og sama máli gegndi um dagbækurnar
sem Banks hafði haldið um leiöangurinn.
Til stóð að farin yröi önnur slík ferð, og
Banks lagöi mikla rækt við að undirbúa
hana sem best. En á síðustu stundu reis
ágreiningur um vísindalegan útbúnað á
skipinu, og Banks hætti við að taka þátt í
ferðinni. Þess í staö ákvað hann að halda
sjálfur í leiðangur til íslands með þann
mannafla og útbúnaö sem hann hafði
þegar viðað að sér.
Að ísland skyldi verða fyrir valinu er
skiljanlegt ef þess er minnst að enskir
náttúrufræöingar voru mjög ófróðir um
landiö og að áhugi á eldvirkni færðist mjög
í aukana um þetta leyti. Það var í von um
að fá að líta „logandi fjall" að leiöangurs-
menn, fjörutíu talsins, lögðu úr höfn í
Cravesend á 190 tonna briggskipi, Sir
Lawrence, kl. 11 e.h. hinn 12. júlí 1772. Á
skipinu voru meðal annarra Daniel C.
Solander, einn af fremstu náttúrufræöing-
um Svía, sem hafði veriö meö Banks á
Endeavour, James Lind, ungur læknir,
áhugasamur um stjörnufræði og notkun
vísindatækja, Uno von Troil, sænskur
fræðimaður, sem fékk að slást í förina til
að læra íslensku og birti fimm árum síöar
frásögn af leiöangrinum í Brófum frá
íslandi, og þrír kunnir myndlistarmenn
bræðurnir James og John Frederick Miller
og John Cleveley, Jr.
Um þetta leyti, eins og svo oft fyrr og
síöar, áttu íslendingar í vök aö verjast í
þrotlausri lífsbaráttu sinni. í landinu bjuggu
einar einustu 45.000 sálir, sem auk þess að
veröa með erfiðismunum að afla sér
viðurværis við sömu óblíðu skilyrði og
endranær, þurftu nú að þola sífelldar
blóðtökur af hálfu dönsku einokunarinnar.
Einokunarkaupmenn keyptu allar útflutn-
ingsvörur landsmanna, mestmegnis fisk og
sauöfjárafuröir, á lægsta veröi en fluttu
aftur inn frá Danmörku korn og aðrar
lífsnauösynjar, iðulega skemmdar eða af
lakasta tagi, og seldu á veröi sem bændum
og flskimönnum var oft um megn að
greiða. Þessir verslunarhættir samfara
eyöandi náttúruöflum ollu því aö lands-
menn bjuggu hvarvetna viö harðindi og
sára fátækt. Hörmungarnar sem yfir ísland
dundu á átjándu öld — stóra bóla 1707,
eldgosin 1727, 1755, 1766 og loks Skaftár-
eldar 1783, ásamt jarðskjálftum og vetrar-
harðindum 1784 — ollu því að ísland hefur
aldrei veriö eins illa statt og síðasta einn og
hálfan áratug 18. aldar.
John Thomas Stanley
John Thomas Stanley var eins og Banks
af efnuðu fólki kominn, hann var sonur og