Lesbók Morgunblaðsins - 29.11.1980, Side 11
erfingi Sir Johns Thomas stanleys, sjötta
barónetts í þeim ættlegg, á Alderley Park í
Cheshire, eins auöugasta manns í Eng-
iandi. Hann var fæddur í Alderley áriö1766
og hlaut bestu menntun sem auöur gat
aflaö, gekk fyrst í einkaskóla í Greenwich
en var síöan sendur, fjórtán ára aö aldri, í
hringferöina miklu um meginlandið, með
einkakennara sér til fylgdar. Næstu sex
árin ferðaðist hann þar um, stundaöi nám í
Neuchatel í Sviss, Montpellier í Frakklandi
og Torino og víöar á ítalíu og notaði þar
tækifæriö til aö ganga á bæöi Etnu og
Vesúvíus. Á þessum árum vaknaði hjá
honum áhugi á vísindalegum efnum, og
þegar heim kom stundaöi hann vísindanám
viö háskólann í Edinborg í tvö ár. Stanley
haföi það umfram Banks aö vera ágætur
málamaður og var altalandi á frönsku,
þýsku og ítölsku. Kynni hans af rannsókn-
arleiðöngrum Banks og förinni í norðurveg
1772 beindu athygi hans aö íslandi, og
hann ákvaö, þá aðeins tuttugu og tveggja
ára gamall, aö standa sjálfur fyrir leiðangri
af sama tagi.
Veturinn áöur en lagt skyldi upp var
Stanley í Skotlandi við aö búa til ferðarinn-
ar skip sem hann haföi tekið þar á leigu.
Hinn 23. maí 1789 lagði svo John, 160
tonna briggskip, úr höfn í Leith meö tíu
leiöangursmenn og þrettán manna áhöfn
um borö. Auk Stanleys má nefna þar til
sögunnar Pierie sjóliösiautinant, sem var
skipstjóri, John F. Crawford, meðeiganda
aö skipinu, John Baine, stærðfræðikenn-
ara í Edinborg, sem var lærður stjörnu-
fræðingur og landmælingamaöur og ágæt-
lega drátthagur (hann lagði til, ásamt
Stanely og Pierie, skissur sem síöan urðu
sannfræðileg undirstaða að myndum Poc-
ocks og Dayes), James Wright, læknanema
sem gegndi störfum læknis og grasafræð-
ings í ferðinni, Isaac S. Benners, son
dansks plantekrueiganda í Vestur-lndíum,
og Alexander Colden, unglingspilt á sex-
tánda eöa sautjánda ári, sem slóst óboðinn
í feröina sem laumufarþegi. Á skipinu voru
einnig tveir hundar, Crab og Ferryland,
sem sjaldan gleymdist aö hafa meö á
myndum eöa geta um í dagbókum leiðang-
ursmanna. Ákveðið var aö Wright, Baine
og Benners skyldu halda dagbækur og
afhenda þær Stanley í lok feröarinnar.
Eftir nokkurra daga viðdvöl í Færeyjum
kom John til Hafnarfjarðar hinn 4. júlí 1789
(38. mynd). Aö frátalinni smávegis sjóveiki
og þeim afglöpum matsveinsins aö fleygja
fyrir borð einhverju af dýrmætum silfur-
boröbúnaöi, virðist feröin hafa gengið
slysalaust. Hins vegar vakti koma skips
undir breskum fána nokkurn óhug og
grunsemdir, því sífelldar erjur voru meö
Dönum og Englendingum. Skömmu eftir aö
skipiö lagðist í höfn, kom maður úr landi á
skipsfjöl og tjáöi Staniey á frönsku, án
þess að segja til nafns, aö hann væri
umboðsmaður stiftamtmanns, Levetzows
greifa, landstjóra Dana á íslandi. Þegr hann
haföi rætt nokkuð viö komumenn og
gengið úr skugga um aö þeir færu meö
friði, lét hann uppi aö hann væri enginn
annar en stiftamtmaðurinn sjálfur og bauö
þeim nú til kvöldveröar meö sér aö
embættissetri sínu aö Bessastöðum (39.
mynd).
Á þeim tveim mánuöum sem leiöang-
ursmenn stóöu viö, fóru þeir ríðandi aö
skoöa hverina í Krýsuvík (41. mynd), sigldu
vestur á Stapa (42.-45. mynd) og gengu á
Snæfellsjökul, heimsóttu Ólaf Stephensen
að Innra-Hólmi (46. mynd) í leit að fleiri
hestum til ferðarinnar og héldu síðan
austur yfir fjall, að Reykjum í Ölfusi, Heklu
(47., 48. mynd), Skálholti (51. mynd), Geysi
(5. mynd) og Þingvöllum og lokst aftur til
Reykjavíkur um Mosfellsheiöi. Ef frá er talin
ferðin á Snæfellsnes, þræddu þeir að
mestu sömu slóðir og Banks. Rannsóknir
þeirra voru einnig mestmegnis af sama
tagi: landmælingar og mælingar á eldfjöll-
um, hæð vatnssúlunnar og hléum milli
gosa í hverum, hita hveravatns o.s.frv. Þeir
tóku einnig meö sér sýni af hveravatni til aö
efnagreina síðar, en það hafði Banks ekki
gert. Jafnframt því að safna jurtum og
steingervðum jurtaleifum og öörum steina-
sýnum, teiknuðu þeir fjölda mynda og
héldu ítarlegar dagbækur.
m.
8.35 LCtt morgunlög.
Promenade-hljór
Berlln leikur^ "
stj.
9.00 Morg^tóni
Concert
eftir
Kam
leiku
b. Kj
fyri
ha
Baráttan fyrir nýju útvarpshúsi er .
best kynnta hagsmunamál opinberr-
ar stofnunar um þessar mundir. Um
heigina 15. og 16. nóvember var
einkennileg þverstæða í fréttum
útvarps og sjónvarps um málefni
Ríkisútvarpsins. í sjónvarpinu á
laugardagskvöldiö var harmsögunni
um nýja útvarpshúsiö haldiö áfram
meö viötölum og myndbirtingum. í
hádeginu á sunnudeginum skýröi
útvarpið frá því í fréttum sínum, að
Ríkisútvarpiö væri svo báglega statt
fjárhagslega, aö líklega yrði innlend
dagskrárgerö ekki nema svipur hjá
sjón á næstunni. Ef ég man rétt var
sagt, aö milljarö vantaði til aö endar
næöu saman í rekstri stofnunarinn-
ar. Auk þess kom fram, að leikarar
bönnuöu nú endurflutning á öllu
efni, þar sem þeir kæmu við sögu,
og ætluöu ekki aö vinna aö nýju efni
nema gengiö yrði aö kröfum þeirra í
kjaradeilu viö Ríkisútvarpiö.
Þetta eru hvorutveggja alvarlegar
fréttir og hefði ef til vill átt að flytja
þær samtímis, því aö varla þjónar
miklum tilgangi að ráöast í byggingu
stórhýsis fyrir Ríkisútvarpiö, ef fyrir-
tækiö hefur ekki fjárhagslegt bol-
magn til annars en aö flytja hljóm-
plötur og símaviötalsþætti, eða inn-
fluttar kvikmyndir auk frétta og
samtalsþátta. Framfarir í allri fjar-
skiptatækni, búnaði segulbanda,
grammófóna og annarra slíkra hluta,
sem nauðsynlegir eru til frumstæö-
asta útvarps, hafa veriö mjög örar
og leitt til þess, aö slík tæki verða
sífellt fyrirferðarminni.
Vandræöi Ríkisútvarpsins stafa
ekki af því, aö þaö hafi oröið undir í
einhverri samkeppni, því aö fyrir-
tækiö hefur einokun á öldum Ijós-
vakans. Ekki hefur verið ráöist í að
reisa útvarpshúsiö vegna þess að
fjármunir í framkvæmdasjóði duga
ekki til aö Ijúka byggingunni á
hæfilegum tíma fyrir utan efasemdir
mann um nauðsyn þess aö sexfalda
þaö húsrými, sem stofnunin hefur nú
til umráöa. Rekstrarerfiðleikarnir
stafa af því aö afnotagjöldin eru í
vísitölunni og þess vegna mun út-
varpsdagskráin halda áfram aö
versna meöan haldið er fast íþá trú,
aö unnt sé að lækka veröbólguna
með því aö auka taprekstur opin-
berra fyrirtækja. Þótt ríkisútvarpiö
hafi einokun á öldum Ijósvakans,
keppir það við aöra fjölmiðla um
auglýsendur. Hafa ráöamenn fyrir-
tækisins verði tregir til aö láta verö á
sjónvarpsauglýsingum haldast í
sama hlutfalli og auglýsingataxta
dagblaöanna og var þegar starfsemi
sjónvarpsins hófst. Auglýsingaverö
sjónvarps eöa útvarps hefur ekki
áhrif á vísitöluna.
os
cajpel]
swtin
an
infóij
og se
istian
meiderlj
ubner
uhljómj
aul Sac
ettukonsj
eftir Wc
ozart.
með
nni i Vínj
stj.
tir.
nr. 5
torelli.
Ilóvakfu
thal stj.
li A-dtlr
eftir Jo-
Wolf-
3g Niku-
fa með
Itinni I
stj. c.
|í A-dúr
íg Ama-
bd Prinz
Jrmoniu-
|1 Munch- j
Veður-|
tJt
jn jarðeðhs
tfrá jerðalaei sinu tíT
Friðrii
lum.
í sar
AspreS
2. þ.m.). PT
Grimur Grlmsson.
leikari: Kristján Sigtryggs^
son.
Ég kann því illa, aö helstu frétta-
tímum útvarpsins skuli hafa veriö
breytt í sambland af fréttaflutningi,
athugasemdum einstakra frétta-
manna og samtalsþáttum um hin
ólíklegustu efni. Þetta er ósiður, sem
vafalaust á sér erlendar fyrirmyndir,
en hefur aö því er virðist einna helst
rutt sér rúms í útvarpinu vegna
Útþynnt
dagskrá og
stórhýsi
samkeppni fréttastofunnar viö þætti
í útvarpinu eins og morgunpóst og á
vettvangi. í þessu sambandi má geta
þess, að BBC World Service notar 9
mínútur í hvert sinn, sem heims-
byggöinni eru fluttar erlendar fréttir
og 6 mínútur, þegar fluttar eru
breskar fréttir. Er þar leitast við að
segja aöeins kjarna hvers máls,
frekari skýringar eöa ítarlegri fréttir
eru síöan fluttar í sérstökum
fréttaskýringaþáttum. Má skipta
þeim þáttum í tvö flokka eftir því
hvort fréttamenn BBC flytja þá eöa
leitaö er til sérfróöra aðila utan
stofnunarinnar. Aö meginefni snúast
slíkir þættir yfirleitt um einhver þau
málefni, sem hæst ber í heimsfrétt-
um á hverjum tíma.
Oft hvarflar aö manni, aö þaö sé
fréttamönnum Ríkisútvarpsins mikil
þraut aö fylla út í þann tíma, sem
þeim er ætlaöur í dagskránni, á
þetta bæöi viö um útvarp og sjón-
varp. Sé af þeim sökum gripiö til
þess þess ráðs að flytja þar alls kyns
Liuoviksdottir. Aöstoöar-
Guðmundur
eiSSFT^Mfc^son.
9.50 HarmoniluQMÞir. Högni
ónsson kynnir.
Innan stokks'^^k utan.
urtekinn þátti^®sem
veig Jónsdóttir^fcrn-
1. þ.m.
rá tónlistarháti^®ii
Nordisk Musik 19:
nki i mái sl. Kyni
r R. Magnússon.
’ eftir Kaiju Saaria
tinnlandi. b. Fjö
g eftir Hjálm
rsson við ljóð efti
Hörð Grímsson
etto, fyrsti þáttuj
u nr. 1, eftir La
ard frá Danmörk]
21.® ífljö ljóð eftir fjög
skáld. Jóhann
minsson les eig
gar.
21.® frelUdla og fúga í e-
5 eftir Felix Men
n. Rena Kyriakou 1
pianó.
Að tafli. GuJ^Khdur
la u gs s os^rf1vtu r
þátt.
eðujá^nir. Fréttir.
morgundagsins.
völdsagan: Reisubók
ns Ólafssonar, Indiafara.
langlokur eða viðtöl, sem ekkert
segja hlustandanum og draga at-
hygli hans frá þeim aöalatriðum,
sem eölilegur fréttaflutningur ! út-
varpi og sjónvarpi á aö snúast um.
Ríkisútvarp verður aö vera á veröi,
þegar um þaö er aö ræöa aö veita
einstaklingum, hvort sem þeir eru
fréttamenn eöa aðrir, aðgang aö
fréttatímum sínum undir skoöanir og
mat á atburöum. Þá er ekki veriö aö
segja fréttir heldur halda að hlust-
endum ákveönum sjónarmiðum á
þeim tíma, sem þeir telja sig vera aö
fá staöreyndir. Ég held, aö skyn-
samlegt sé aö stytta fréttatíma og
binda þá viö staöreyndir og leyfa
síöan fréttamönnum og öörum aö
koma sjónarmiöum sínum á fram-
færi í þar til gerðum þáttum. Til
dæmis um þær ógöngur, sem
fréttastofa útvarpsins er komin í, get
ég ekki látiö hjá líöa aö nefna aö
eftir aö Ronald Reagan haföi náö
kjöri sem Bandaríkjaforseti var í
kvöldfréttatíma haft samband viö
Steinunni Sigurðardóttur í Stokk-
hólmi og hún las yfir hlustendum
neikvæö ummæli í ieiöurum
sænskra blaða um Reagan. Hvers
vegna? Hvaöa þörf var á því aö fá
álit sænskra blaöa á nýkjörnum
Bandaríkjaforseta lesiö í fréttatíma
útvarpsins? Hvers vegna var ekki
lesiö úr New York Times eöa
Washington Times? Hvaö um kynn-
ingu á viöhorfum allra helstu blaöa
Evrópu?
Skrifandi um forystugreinar og
fréttastofu útvarpsins get ég ekki
oröa bundist um misþyrmingu stofn-
unarinnar á leiöurum íslenskra
blaöa. Ég vara hlustendur eindregið
við að hlusta á útdrættina úr forystu-
greinunum vegna þeirra ranghug-
mynda, sem þeir geta gefiö. Annaö
hvort á aö lesa greinarnar í heild eöa
hætta þessari ómynd.
Björn Bjarnason.