Lesbók Morgunblaðsins - 22.08.1981, Qupperneq 16
Krossgáta
Lesbókar
Morgunblaðsins
Lausn
á síðustu krossgátu
\ O F u H n £ N N T '7 * Á P: \J e
é 9 £ X A F v': L L \£ r? F l £>
K R A N K A R : L i a L L
í U 3) 4 ’/'v 1 D A R A R K A L L A
\ y £'.‘ 4 é 'o A ! 'o M 1 L A
5 T Á L F H £ L I N Ai R H
A T A F L A ð> A R AJ £ 1 T A
L ’o F A N U R e 1 R u O 4.
■ ’u' A L l R. L.v:./ 6 A u F fí R O F T a.
~'r. M U 5 A r (T A R. / A S £ T A
4 ss A F A ■'T, L M A £ Z A S>
fZ u L L u A P A d A u Ð l
A n L * o £> A R A R A AS N '4 £
9. 'o T a R '£> i M N í? A £ A 5 T
Stigin og titlarnir
vinna ekki skákirnar
Þad var einkennandi fyrir Politiken-
skákmótið í Kaupmannahöfn um daginn,
aö stórmeistararnir á mótinu, þeir Jansa
frá Tékkóslóvakíu og Búlgararnir Radu-
lov, Kirov og Spassov komu nánast
ekkert viö sögu í baráttunni um efsta
sætið. Aö vísu tókst Jansa með góðum
endaspretti að ná sjö vinningum af tíu
mögulegum og verða aöeins hálfum
vinningi á eftir sigurvegurunum, en þaö
var bezti árangur sem hann gat vonazt
eftir aö ná eftir slaka byrjun sína á
mótinu. Hinir stórmeistararnír náðu ekki
verðlaunum. Radulov hlaut sex vinninga,
Kirov fimm og Spassov aöeins fjóra og
hálfan vinning.
Slíkar ófarir stórmeistara eru síöur en
svo neitt einsdæmi í hinum fjölmörgu
skákmótum sem nú eru háö á ári hverju og
þeim virðist sérstaklega hætt á opnum
mótum, svipuöum Politiken-mótinu.
Orsakirnar fyrir slíkum óvæntum úrslitum
geta auövitaö verið margbreytilegar.
Stórmeistarar heyrast oft kvarta undan því
aö aðrir þátttakendur beiti sér sérstaklega
gegn þeim og á þetta sér vafalaust
einhverja stoö, því fáir eru kærulausir eöa
vanmeta andstæöinginn þegar þeir tefla
viö stórmeistara. Þá er því einmitt tjaldaö '
sem til er.
Þá er líkt og sumir stórmeistarar beri
einvöröungu viröingu fyrir kollegum sínum,
en fyllist andvaraleysi þegar þeir eiga í
höggi viö skákmenn sem lægra standa í
metorðastiganum.
í skákinni, sem hér fer á eftir, á þó
líklega hvorug þessara skýringa viö. Búlg-
arski stórmeistarinn Nino Kirov haföi horft
upp á ófarir kollega sinna í fyrstu umferð-
unum á Politiken-skákmótinu og þessa
—
SKAK
/
Eftir MARGEIR
PÉTURSSON
skák teflir hann sérlega varfærnislega,
jafnvel svo að fram úr hófi keyrir.
Andstæöingur hans, alþjóölegi meistar-
inn Tom Wedberg, er einn af mörgum
efnilegum ungum skákmönnum sem Svíar
eiga um þessar mundir. Hann er sérstak-
lega þekktur fyrir sókndirfsku sína og þessi
skák hans viö Kirov var af flestum talin
skemmtilegasta skákin á Politiken-mótinu.
Hvítt: Wedberg (Svíþjóö)
Svart: Kirov (Búlgaríu)
Sikileyjarvörn
I. e4 — c5, 2. Rf3 — Rc6, 3. d4 — cxd4, 4.
Rxd4 — e6, 5. Rc3 — a6,
Nú er komið upp Paulsen-afbrigðiö,
kennt við bandarískan skákmeistara sem
uppi var á seinni hluta nítjándu aldar.
6. g3 — Dc7, 7. Bg2 — Rf6, 8. 0-0 — Be7, 9.
He1 — 0-0,
Miklu vinsælla hefur veriö upp á síökast-
iö framhaldið 9. — Rxd4, 10. Dxd4 — Bc5.
10. Rxc6 — dxc6,
Ein regla segir, aö drepa skuli aö
miðboröinu, en hér heföi 10. — bxc6
verulega tafiö liðsskipan svarts.
II. e5 — Hd8,
Þessi millileikur er bráönauösynlegur,
því 11. — Rd5 býöur strax hættunni heim
vegna 12. Dg4! og hótunin 13. Bh6 veldur
svarti þegar erfiöleikum.
12. Df3 — Rd5, 13. h4 — Rxc3, 14. Dxc3
Hvítur stendur tvímælalaust nokkru bet-
ur í þessari stööu vegna yfirburöa sinna í
rými. Svartur hefur þó þegar létt mikið á
stööunni og ætti meö nákvæmri tafl-
mennsku aö geta haldið sínu.
—- h6,
Hvítur hótaöi 15. Bg5, því uppskipti á
svartreitabiskupum eru honum í hag.
15. Be4 — c5, 16. Df3 — Ha77
Til þess aö geta haldiö áfram undirbún-
ingi aö uppskiptum á hvítreitabiskupum,
meö b7-b6 og síöan Bc8-b7, þurfti svartur
auövitaö aö flytja þennan hrók, en 16. —
Hb8 var miklu betri kostur, því í framhald-
inu lendir svartur í vandræðum vegna
sambandsleysis á milli svörtu hrókanna,
sem heföu betur valdaö hvorn annan.
17. Dg4 — Kh8,18. Bg5l
Fyrsta þruman. Þennan biskup veröur
svartur aö láta eiga sig, því eftir 18. —
hxg5, 19. Dh5+ verður hann mát.
— b5,19. Had1 — a5,
Leikiö án áætlunar, en eftir 19. — Bb7,
20. Hxd8+ — Dxd8, 21. Hd1 — Dc7, 22.
Bxe7 — Dxe7, 23. Hd6 skipta yfirráð hvíts
yfir d-línunni sköpum. Af þessu afbrigði
sést hversu mikilvægt þaö var í 16. leik aö
hafa hrókinn áfram á áttundu línunni.
20. Df4! — Kg8,
Eftir 20. — hxg5, 21. Dxf7 á svartur
ekkert fullnægjandi svar viö hótuninni 22.
Dh5+ — Kg8, 23. Bg6 o.s.frv.
Bezta vörnin. 21. — gxh6, 22. Dxh6 —
f5, 23. exf6 — Bf8, 24. Dg6+ — Kh8, 25. f7
var lakara.
22. Hxd1 — gxh6, 23. Dxh6 — f5, 24. oxf6
(framhjáhlaup) — Bf8, 25. Dg6+ — Kh8,
26. Dh5+ — Kg8, 27. Hd5l
Skemmtilegur endir á vel tefldri skák af
hálfu hvíts, þar sem hann nýtti sóknar-
möguleika sína til hins ýtrasta. 27. Bg6 var
önnur vinningsleiö. Svartur gafst upp.
Þaö þarf engan aö undra, aö Wedberg
var einn af þremur sigurvegurum á mótinu
ásamt þeim Taulbut frá Englandi og
Búlgaranum Velikov, sem leiddi mótiö
lengst af.
16