Lesbók Morgunblaðsins - 09.01.1982, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 09.01.1982, Page 2
Bæjarstæði og byggingarstíll í sveitum 3. og síðasti hluti Byggt á einni hœð þœgindanna vegna — en skúrþökin eru alveg úr sögunni — Rætt viö Gunnar M. Jónasson, forstöðumann Bygg- ingarstofnunar landbúnaðarins Gunnar M. Jónasson. Ætla mætti að fáir arkitektar væru í annarri eins aðstöðu til aö setja svip sinn á byggðir landsins, ef svo mætti segja, eins og þeir sem starfa hjá Byggingarstofnun landbúnaðar- ins og áður hét Teiknistofa landbún- aöarins. Bændur munu undantekn- ingalítiö notfæra sér þá þjónustu sem þar er á boðstólum, — og hún er ekki amaleg, því þeir fá teikningar svo að segja ókeypis. Þetta er ekki fjölmenn eða stór stofnun. Gunnar M. Jónasson arki- tekt veitir henni forstööu og hefur gert frá ársbyrjun 1972. Það skrifast því á hans reikning, sem byggt hefur verið í sveitum síðasta áratuginn, — en „ekki eru allar syndir guði að kenna“ og Gunnar bendir á, að tími hans fari mjög í stjórnunarstörf eins og verða vill í stofnunum og sjálfar teikningarnar lendi á öðrum arkitekt, sem þar starfar. Gunnar á hinsvegar sinn þátt í stefnumótun að svo miklu leyti sem hægt er að tala um slíkt og þá komum viö að kjarna málsins. Peningamálin ráða útlitinu að mestu, en til sveita er byggt á svo ódýran hátt, að húsbyggjendur í kaupstöð- um ættu ugglaust bágt meö að trúa því. Menn vilja byggja á einfaldasta hátt, því það er ódýrast; þeir vilja byggja á einni hæð uppá þægindin og því eru háreist ný hús sjaldséö. Og það sem verra er: Ýmislegu smá- legu frá hendi Byggingarstofnunar- innar, sem ætlað er að bæta útlitið, er hreinlega sleppt. Þetta og margt fleira bar á góma, þegar rætt var við Gunnar M. Jónasson, forstöðumann Byggingarstofnunar land- búnaðarins. í framhaldi af því spurði ég hann, á hvað hann legði einkum áherzlu, þegar íbúðarhús í sveit væri teiknað. „Ekki á neitt sérstakt," sagði Gunnar. „Við erum ekki að reyna að koma á nein- um sérstökum arkitektúr og sjálfur hef ég ekki neina hugsjón um ákveöiö útlit Teikning frá 1929: Grund í Kolbeinsstaðahreppi, Hnappadalssýslu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.