Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1982, Blaðsíða 6
Margeir Pétursson
Jafntefli kom
ekki til greina
SKAK
Þegar tvær umferöir voru til loka á al-
þjóðlega skákmótinu í Saloniki í Grikklandi
í október voru tveir ungir og efnilegir
skákmenn jafnir og efstir á mótinu, 23 ára
gamall Bandaríkjamaöur, John Federow-
icz, og 21 árs Englendingur, James Plask-
ett. í næstsíðustu umferö áttu þeir síöan aö
tefla innbyröis og þeirrar viöureignar var
beðiö meö mikilli eftirvæntingu af þeim
sem meö mótinu fylgdust. Það var nefni-
lega ekki bara efsta sætiö sem var komið
undir þessari skák, heldur átti sá þeirra
sem sigraöi möguleika á aö ná stórmeist-
araárangri með því að sigra einnig í síöustu
umferö.
Fyrir báöa var því að duga eöa drepast
og jafntefli haföi sömu þýöingu og aö báðir
töpuðu. Skákin sjálf einkenndist af þessari
aðstöðu. Plaskett sem haföi svart, svaraði
rólegri byrjun Federowicz á óvenjulega
hvassan hátt, sem hann haföi reyndar gert
áöur meö góöum árangri gegn Norður-
landameistaranum Helmers frá Noregi.
Hernaöaráætlun Bandaríkjamannsins
var hins vegar aö tefla rólega og láta
Plaskett sprengja sig og gjalda þannig fyrir
hvassan skákstil sinn. Byrjanaval enska
meistarans sýndi að þetta haföi tekist.
Federowicz haföi einmitt séö skák þeirra
Plaskett og Helmers og lumaði á endurbót,
sem vinur hans og landi, alþjóöameistarinn
Jonathan Tisdall hafði Ijáö honum. Þaö fór
heldur ekki framhjá áhorfendum að Plask-
ett haföi veriö komiö í opna skjöldu. Eftir
aö hafa teflt byrjunina hratt og með greini-
legu sjálfstrausti, sem er reyndar einkenn-
andi fyrir skapgerð unga enska meistar-
ans, lagöist Plaskett í þunga þanka, á með-
an andstaeöingur hans lék leikjum sínum
allt aö því viðstöðulaust.
Hvítt: Federowicz (Bandar.)
Svart: Plaskett (Engl.)
Drottningarindversk vörn
1. d4 — e6, 2. Rf3 — Rf6, 3. c4 — b6, 4. g3
— Ba6,
Vinsælt afbrigði nú á dögum. Svartur
losnar við þreytandi vörn eftir 4. — Bb7, 5.
Bg2 — Be7, 6. 0-0 — 0-0, 7. Rc3 (7. d5!?)
— Re4, 8. Dc2.
5. b3 — d5l?
Plaskett hefur ákveðið framhald í huga
meö þessum leik. Hér eöa i næsta leik
heföi hann getaö sætt sig viö hiö rólega
framhald 5. — Bb4+, 6. Bd2 — Be7.
6. Bg2 — dxc4l? 7. Re5 — Bb4+, 8. Bd2
8. Kf 1 er að öllum líkindum veikara fram-
hald í stööunni. Framhaldið í skákinni Kur-
ajica — Karpov, Bugojno 1980, varö 8. Kf1
— c6, 9. bxc4 — 0-0, 10. Bb2 — Dc7, 11.
Dc2 — Hd8, 12. Rd3 — Ba5 og svartur
haföi komiö ár sinni vel fyrir borö.
— Dxd4,
______________J
Einn vinninga sinna fékk Federowicz á
auöveldan hátt, þar eö Albaninn Muco
mætti ekki til leiks af pólitískum ástæó-
um.
Eftir skákina töldu báöir teflendur aö
svar Federowicz viö þessum leik hrekti
hann. Hugsanlega veröur svartur því í
framtíðinni aö reyna 8. — cxb3l? í stööunni
meö framhaldiö 9. Bxb4 — b2, eöa 9. axb3
— Bxd2+, 10. Dxd2 — Rd5, í huga.
9. Bxb4 — Dxa1, 10. Bc3 — Dxa2, 11.
Bxc4!
í skák þeirra Plasketts og Helmers á
móti í Noregi í vor varö framhaldiö 11.
Bxa8 — cxb3, 12. Rd2 — Ra5, 13. Bxd5
— exd5, 14. Rxb3 — 0-0, 15. Rc1 — Da3,
16. Dd2 — Dd6, og svörtu peðin uröu brátt
ógnandi.
Tisdall, sá sem nefndur er hér í formál-
anum, rannsakaði þessa skák gaumgæfi-
lega og komst aö þeirri niöurstööu aö hvít-
um lægi ekkert á með aö taka hrókinn.
— Bxc4, 12. Rxc4 — c6?
Svartur bjargar hróknum og hefur hrók
og þrjú peö fyrir tvo menn, en gefur hvítum
kost á aö ná mjög öflugri sókn. Skárra var
12. — Dxc4, 13. Bxa8 — 0-0, 14. Bxf6 —
gxf6, þó svörtu peðin séu ekki nærri eins
ógnandi og í skákinni viö Helmers.
13. Rd6+ — Ke7, 14. e4
Sterkara en 14. Bb4 — c5, 15. Ba3 —
Hd8.
— Rbd7,15. 0-0 — g6
Einkennilegur leikur, en hvítur hótaöi 16.
e5 — Rd5, 17. Dh5 o.s.frv.
16. Rb7! — Re8, 17. Bxh8
Svörtum hefur tekist aö bjarga hróknum
á a8, en nú fellur hínn hrókurinn í staöinn.
— Da6, 18. Bb2 — Dxb7, 19. Ba3+ — Kf6,
20. Rd2 — Kg7, 21. Rc4
Línurnar eru aö skýrast. Svartur hefur
þrjú peö fyrir menn sem mjög oft er nægi-
legt, en hér hefur hvítur biskupapariö og
öfluga sókn.
— Dc7, 22. Bb2+ — Kg8, 23. Dd4 — Rdf6,
24. Hd1 — b5, 25. Re5 — c5, 26. De3 —
Hc8, 27. g4 — c4, 28. Hc1 — a5, 29. g5 —
Rh5, 30. Rg4 — b4, 31. Be5!
Hvítur veröur aö tefla nákvæmt, því
svörtu peöin eru komin af staö. Eftir 31.
Dd4 — e5! er staðan allt annaö en einföld.
— Dd8, 32. Rh6+ — Kf8, 33. h4 — c3, 34.
Bf1!
Hvítur hótar nú einfaldlega aö lagfæra
stööu sína meö 35. Bb5 og 36. Bb3. Plask-
ett grípur því til örþrifaráöa.
— Dd2, 35. Da7! — Rc7, 36. Bxc7 — Hxc7,
37. Dxc7 — Df4 og svartur gafst upp um
leiö.
6