Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1982, Qupperneq 2
I
Einar G. Sveinbjörnaton
Einbýlishúsiö, sem þau Hj'ördís og Einar byggöu viö jaöar Bokskogen, skammt utan viö Malmö.
Með bogann á strengjunum
í allt ad 50 tima á viku
r
í
i
!
í
i
i
Þótt útivistin sé
orðin löng hjá
þeim Hjördísi
og Einari er
ævinlega töluö
íslenzka á
heimili þeirra.
Rætt við hjónin Hjördísi Vilhjálmsdóttur
íþróttakennara og Einar G. Sveinbjörnsson,
konsertmeistara í Malmö,
en Einar verður einleikari
á tónleikum Sinfóníunnar
í Háskólabíói 25. þessa mánaðar.
Þau hafa búiö í Svíþjóð í næstum
átján ár, — og öll þessi ár hefur Einar
veriö konsertmeistari hjá sinfóníunni
í Malmö. Hjördís er íþróttakennari og
hefur fengið starf viö íþróttakennslu.
En heimili þeirra er íslenzkt; þau
hjón tala ævinlega íslenzku saman
og ugglaust er þaö þessvegna, aö
ekki heyrist hjá þeim urmull af þess-
um sönglanda eöa sérstaka hreim,
sem íslendingar búsettir í Svíþjóö
eiga til aö fá, — jafnvel eftir skamm-
an tíma. Hitt er svo annaö mál, aö
maður með annaö eins músíkeyra og
Einar Sveinbjörnsson, á líklega auð-
veldara meö aö forðast allt slíkt.
Þau Einar og Hjördís hafa líka
ræktað sambandið við skyldmenni
og kunningja á íslandi; komiö „heim“
eins og þaö heitir, annað veifiö og
mun þéttar nú í seinni tíö. Þau voru á
ferðinni um jólin og þá hitti Lesbókin
þau að máli. Og nú gerist skammt
milli íslandsferöa; Einar veröur ein-
leikari með Sinfóníuhljómsveit ís-
lands á hljómleikum í Háskólabíói 25.
febrúar. Hjördís sleppir aö sjálf-
sögðu ekki svoleiðis tækifæri og
kemur einnig.
Þaö er ævinlega forvitnilegt aö hitta
aö máli íslendinga, sem búiö hafa um
áratugi erlendis. Flestir útflytjendur hafa
tekiö þann kostinn að hreiöra um sig í
skjóli sænsku velferöarinnar; sumir snú-
iö heim á nýjan leik, en aðrir ílenzt. Eftir
næstum átján ár má búast við að fólk sé
farið aö skjóta allkyrfilega rótum og þau