Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1982, Blaðsíða 8
Nassau Beach á Bahamaeyjum: S6I og sjór, hótel, sem virðast allsstaðar eins, en
rúlettan á fullu og calypso-músík.
Bahama-
eyjar
Frá Miami á Flórída er 20 mínútna flug
til Nassau, höfuðborgar Bahama-eyja.
Þær eru eins og forleikur að Vestur-
Indíum, ekki eins tilbreytingaríkar og
óútreiknanlegar og Litlu- og Stóru-
Antilleyjar og þar er ekki alveg eins mikil
regla á hlutunum og í Flórída.
Aöaleyjarnar, Grand Bahama, New
Providence, Paradísareyja og litlu eyj-
arnar i kring, eru vandlega skipulagðar
8
til að þjóna feröamönnum, og þar er allt
miðað við lífs-, matar- og innkaupavenj-
ur bandarískra viðskiptavina. Næturlíf
og spilamennska tilheyrir í þeim efnum.
Hagnaöurinn er öllu ofar, og á mörgum
hótelum verður gesturinn aö greiöa fyrir-
fram.
Á nágrannaeyjunum n'kir annar andi,
á Ytri-Bahamaeyjum. Á sumum hinna
litlu eyja, en flestar eru óbyggöar, eru
hótel, þar sem ekki er einu sinni lykill
fyrir herbergjunum. Þar er og lítið við að
vera og ekkert annað en endalausar,
breiðar, flatar og hvítar strendur og
kristaltær sjórinn.
Kúba
Hin rauða Kúba Castrós er stærsta
eyjan í Karabíska hafinu. Að flatarmáli
nemur stærð hennar helmingi allra
Vestur-lndía. Um nokkurt skeið hefur
Kúba sýnt tilburði til að freista ferða-
manna frá kapítalískum löndum. Um
árabil hafa Kanadamenn verið fasta-
gestir á sykureyjunni og ekki látiö
kommúnistafæð Bandaríkjamanna á sig
fá. Það, sem laöar þá fyrst og fremst að
eynni, er sólskin, baöstrendur og romm,
og af því öllu er nóg fyrir sumarleyfis-
gesti.
Margir hrífast einnig af því, sem hinn
kúbanski sósíalismi hefur af að státa,
þrátt fyrir alla efnahagsörðugleika: Þar
eru engin fátækrahverfi og engir at-
vinnuleysingjar, þar er heilbrigðisþjón-
usta í góðu lagi, ungbarnadauði lítill og
ólæsir eru ekki lengur nema 3,9 af
hundraöi, að því er skýrslur herma. (Á
Haiti eru 85 af hundraði ólæsir.) Þessi
félagslega þróun, sem ekki á sinn líka í
Suður-Ameríku, hefur þó orðið á kostn-
aö alls óhófs, munaöar og ytri Ijóma.
Hinn vestræni ferðamaöur getur „ekki
einu sinni" fariö á þriggja stjörnu veit-
ingastað, næturbar eða diskótek að
kvöldi dags, en slíkar skemmtanir eru
sjálfsagðar hvarvetna annars staðar á
Vestur-lndíum.
Á höfuöborgina, Havana, sem einu
sinni var kölluð „París Vestur-lndía“,
hefur falliö ryk hins sósíalíska hvers-
dags. Það er aöeins í „Cabaret Tropic-
ana“, sem lífiö gengur jafnglatt og fyrir
byltingu, hvaö skemmtiatriði varöar.
Meöal hinna samfélagslegu ávinninga
má einnig telja þaö, að Kúba er sú eyja í
Karabíska hafinu, þar sem glæpatíðni er
minnst. Þar er ekki ráöist á menn, þar
eru engir vasaþjófar, svo að feröamenn
eru algerlega óáreittir.
Hinir frjósömu dalir Kúbu, víðu sléttur
og þéttu skógar hafa aö geyma ósnortna
náttúru utan við hina stóru ríkisbúgarða,
lausa viö bárujárnsþök og auglýs-
ingaspjöld. Að vísu eru hinar löngu
strendur vart aðgengilegar ferðamönn-
um. Við Trinidad á suðurhluta eyjarinnar
er ein fegursta strandlengja landsins,
Playa Ancon, og þar er gert ráð fyrir
dagsdvöl í hringferð um Kúbu. Um hinn
þekkta baðstaö, Varadero-skagann, á
noröurströnd eyjarinnar, hefur mið-
ameríski rithöfundurinn og presturinn
Ernesto Cardenal sagt: „Mér viröist, eins
og við séum aö baða okkur á strönd
annarrar reikistjörnu." Svo ómenguð er
ströndin og ósnortin, svo hreinn og tær
er sjórinn.
Einstaklingsferöir til Kúbu eru hugs-
anlegar, en stjórnvöld eru ekki hrifin af
þeim feröamáta.
■
«1 mM
m
r
nss»
■■ am
■u ................
NYJAR FERÐASLOÐIR ISLENDIN
EYJARNAR
KARABISK
i
HAFINU
Pálmar á Kúbustri
Einu sinni var Hav
köllud París Vestur-ln
en nú hefur tallió á h
ryk hins sósíah
hversdags.
200 km
I —■
Canaveral
Groai Abaco &
>aWau Sfouthsr* /
éiNew 1 O
iProvidbnca s\Catl
y“\SanSalvaa<ir
* »Rum Cay
Exumaf:
itl
Long t.
^Crook&dt,
Wckiinsh
émCayman i.
MontegoBaj
Nogril,"
JAMAIKÁ
%B|bQchoiftios M I
Jí^0r,Anl0ni0
»*Km§slon I