Lesbók Morgunblaðsins - 20.02.1982, Síða 9
_ jjp! '44MMWKHF W "iJlipsÉiji...
Flekaaigling á Jamaica — um leid eri þú oröinn „hvíti maðurinn hans“.
Jamaika Cayman-
eyjar
Áður fyrr var Jamaika eins og Kúba
einn af eftirsóttustu áningarstöðum efn-
aðra amerískra ferðamanna. Þar er nátt-
úrufegurð mikil, fossar og breiö fljót,
skógivaxnar hlíöar og sykurreyrekrur, en
þar hefur veriö tekin allt önnur pólitísk
stefna en hjá hinum rauöa nágranna
hennar. Félagslegar umbætur ganga
hægt, 35 af hundraöi eru atvinnulausir
og kosningabarátta hefur veriö háö meö
vopnum. Borgirnar á Jamaika og þá sér-
staklega Kingston, höfuöborgin, hafa því
oröiö háskastaöir. „Daily Gleaner",
dagblaö höfuöborgarinnar, segir nær
daglega frá sex til átta ránum og morð-
um og ööru ofbeldi. Skrifstofum sendi-
ráöanna er lokaö snemma dags, svo aö
starfsfólkiö geti komizt heim til sín fyrir
myrkur, og þróunarmiöstöö Sameinuðu
þjóöanna hefur bannaö starfsfólki sínu
aö vera á götum úti eftir aö skyggja tek-
ur.
Þátttakendur í hópferöum veröa tæp-
ast varir viö þá spennu, sem þar rikir, því
aö þeir búa að jafnaði á fyrsta flokks
hótelum á norðurströndinni, og um þau
er haföur sérstakur vöröur. Strendur
eyjarinnar eru meðal hinna fegurstu á
Vestur-lndíum aö flestra dómi.
200 km
Vestan viö Jamaika liggja Cayman-eyj-
ar, þrjár litlar, flatlendar sólbaöseyjar,
sem heyra undir brezku krúnuna. íbú-
arnir eru um 17.000, en heimkynni þeirra
eru skattaparadís Vestur-lndía. Á smá-
eynni Grand Cayman eru 350 bankaúti-
bú hvaöanæva aö úr heiminum, og velta
þeirra er um 60 milljaröar dollara á ári. í
feröabæklingum eru Cayman-eyjar kall-
aöar köfunarparadís, en þaö er ekki
lengur rétt. Neöansjávar er ekki oröiö
margt aö finna, því Ameríkumenn eru
búnir aö tæma hafið umhverfis eyjarnar
með skutlum.
Haiti,
Dóm-
inikanska
lýðveldið og
Puerto Rico
„Perla Antilles-eyja“ stendur á núm-
eraskiltum bifreiöa á Haiti, en svo nefn-
ist landið á vesturhluta eyjarinnar Hisp-
aniola. Hiö löggilta sjálfshól á rétt á sér,
A n 1 i
að svo miklu leyti sem þaö varðar nátt-
úrufegurö landsins, sem enn hefur lítt
spillzt af feröaútvegi. Strendurnar eru
ekki aðgengilegar yfirleitt og sandurinn
grófur, en þó eru til nokkur falleg og vel
rekin strandhótel í fögru umhverfi.
Haiti er land feröalaga inn í fortíð
Vestur-lndía, til hinna gömlu verzlunar-
borga ríkustu nýlendu Frakklands, sem
einu sinni var, til hallar og virkis svarta
keisarans í Haiti, eöa bara til eins af
þorpunum, sem ekki hafa breytzt í 100
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Uppá síókastið hafa verið gerðar tilraunir til að rjúfa þá einhæfni, sem ríkir í hótelbygg-
ingum. Hár eru gömul mexíkönsk áhrif stílfærð á nútímavísu í nýjum hótelum.
9