Lesbók Morgunblaðsins - 16.06.1984, Síða 7
Frummyndin af „Svörtu Madonn-
unni“ er geymd í Jasna Góra í
Póllandi — í 600 ára gamalli
kirkju við borgina Czestochowa
en þar er höfuðborg Póllands í kirkju-
legum skilningi.
Jasna Góra er einn örfárra heimsfrægra
kraftaverkastaða á borð við Lourdres í
Frakklandi, Loretto á Ítalíu, Fatima í
Portúgal og Guadeloupe í Mexíkó. Nafnið
Jasna Góra þýðir „hin bjarta hæð“.
Sagan segir að guðspjallamaðurinn Lúk-
as hafi málað þessa mynd á borðplötu í
húsi heilagrar Maríu og Jósefs í lifanda
lífi þeirra. Árið 1927 var myndin hins veg-
ar rannsökuð og við aldursgreiningu kom í
ljós að hún er frá 6. öld og máluð á svæði
austurkirkj unnar.
Nafnið „Svarta Madonna" er til komið
vegna þess að andlit Maríu guðsmóður
hefur dökknað mjög í aldanna rás þar sem
sót af kertum sem kveikt hafa verið fyrir
framan hana, hefur fest á myndinni. Við
hreinsun sem nú fer fram á henni kemur í
Ijós að andlitsliturinn hefur upprunalega
verið gullinbrúnn.
En snúum okkur aftur að sögunni.
Hún segir að heilög Helena hafi komið
með myndina til Konstantínópel á 4. öld. Á
10. öld er myndin komin í kastala skammt
frá borginni Lwow, sem þá tilheyrði Pól-
landi en er nú Rússlandsmegin við landa-
mærin.
Á síðari hluta 14. aldar var mikill yfir-
i
Bænagjörd
gangur tatara á þessum slóðum sem fóru
ránshendi um kirkjur og klaustur. Wlad-
islav fursti óttaðist að helgimyndin yrði
fyrir barðinu á þeim, svo hann ákvað árið
1382 að hún skyldi flutt til Slask-héraðs
þar sem öruggara væri að varðveita hana.
Furstinn tók sjálfur þátt í þeim leið-
angri, sem var erfiður fyrir margra hluta
sakir. Leiðangursmenn lentu í margs kon-
ar hættum og komu úrvinda til borgarinn-
ar Czestochowa. Þar ákváðu þeir að taka
sér hvíld skammt frá Jasna Góra, en þá
vitraðist María guðsmóðir þeim og gaf
þeim merki um að þar vildi hún vera.
Myndinni var þvi komið fyrir í Jasna Góra
og afhent munkunum í klaustrinu þar þ.
26. ágúst 1382.
Árið 1430 voru ræningjar enn á ferðinni
í Czestochowa og stálu myndinni ásamt
öllum dýrgripum kirkjunnar. Síðar fannst
myndin skammt frá Czestochowa þar sem
nú er kirkja heilagrar Barböru og kom þá
í ljós að ræningjarnir höfðu rist með
sverðum sínum sjö skurði í myndina —
m.a. einn á háls heilagrar Maríu og tvo á
vanga hennar undir hægra auga.
Munkarnir sem falið hafði verið að gæta
myndarinnar fóru nú með hana til Krakau
þar sem var aðsetur Wladislavs Jagiello
konungs og Jadvigu drottningar hans. Hún
var menningarlega sinnuð og lét til sín
taka á því sviði. Og það var henni að þakka
að gert var við myndina eins og kostur var.
Skurðina á andliti Maríu má þó enn greina
og gera þeir það reyndar að verkum að
Pólverjum er hún þeim mun ástkærari.
Þeir tengja þessa helgimynd baráttu og
hörmungarsögu Póllands og Pólverja og
því höfðar hún enn sterkar til þjóðernis-
vitundar þeirra.
Síðan myndinni var komið fyrir í Jasna
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 16. JÚNl 1984 7