Lesbók Morgunblaðsins - 12.02.1994, Blaðsíða 4
VETRAR-OLYMPÍULEIKAR í LILLEHAMMER
SAGA NOREGS í
LISTRÆNNI ÚTFÆRSLU
Guðmundur Jónsson arkitekt, sem býr og starf-
ar í Osló, hefur eiginlega orðið þekktur fyrir
að vera „arkitektinn sem vinnur samkeppnirn-
ar“. Því miður hafa þær ekki allar orðið að
veruleika, samanber sýningarskála íslands í
Sevilla, og tónlistarhúsið í Reykjavík á enn
eftir að rísa. Síðasta samkeppnin þar sem
Guðmundur vann fyrstu verðlaun, var um
tilhögun á Noregssögusýningu í Lilleham-
mer og verður lausn hans lítillega kynnt hér.
Það hefur víst ekki farið framhjá mörgum,
að vetrar-olympíuleikar era að hefjast í Lille-
hammer í Noregi. Þangað mun kastljósi
fréttamiðlanna verða beint á næstu dögum
og Norðmenn ætla að nýta sér það vel.
Veralegum fjármunum hefur verið varið til
nýrra bygginga í Lillehammer; meðal ann-
ars-var af þessu tilefni byggt nýtt listasafn.
Norðmenn ætla með öðram orðum að láta
það sjást að í þessum fallega bæ sé fleira
hægt að gera en að renna sér á skíðum -
eða horfa á aðra renna sér. Listasafnið og
Noregssögusýningin eiga að gefa mótsstaðn-
um menningarlega áherzlu.
Ekki þurfti að byggja sérstakt hús vegna
sýningarinnar. Henni er komið fýrir í safn-
amiðstöð sem fyrir var í bænum. Yfirskrift
sýningarinnar er: „Langsomt ble landet várt
eget“ sem má útleggja: „Með tíð og tíma
varð iandið okkar“. Talað er um að tjaldað
verði til 12 ára, en meiri líkur era þó á því
að sýningin fái fastan samastað þarna. Þetta
er eins og nærri má geta yfirgripsmikil sýn-
ing á samtals 1200 fermetram.
Guðmundi var sá vandi á höndum, að hér
þurfti að koma til móts við þá sem viija fara
fljótt yfir sögu, - en einnig hina, sem vilja
fara ýtarlegar yfir. Loks er komið til móts
við „nemandann" sem vill nota tækifærið og
kynna sér ákveðna sýningarhluta rækilega.
hl þess að sinna slíkum nemendum bjó
Guðmundur til textaupplýsingar, sem komið
er fyrir í minni rýmum á milli aðalsýning-
anna og því íþyngja þau ekki öðrum gestum.
Þeir kapítular í Noregssögunni, sem fjall-
að er sérstaklega um era: Isöld, steinöld,
bronsöld, járnöld (vflángatíminn), hámiðald-
ir, seinni miðaldir (svartidauði) tími danskra
yfírráða íNoregi, Eiðsvallasamningm-inn við
Svía 1814, fískimannasamfélagið á Lofoten,
nýir uppgangstímar, sambandsslitin við Svía
1905, seinni heimsstyijöldin, eftirstríðsárin
og loks eru tvö hlið inn í framtíðina: Hinn,
breiði og greiði vegur, og hinn þröngi vegur
skynseminnar.
GS.
Öldin okkar: Séð inn um eldhúsgluggann í verkamannabústaðnum. Örvinglaður
heimilisfaðir heldur á lilkynningu um uppsögn á starfi sínu í verksmiðjunni. Á
gólfinu stendur kona hans við uppþvottinn og dóttir hans situr ráðvillt án þess að
skilja tilfulls alvöru'málsins. íútvarpinu heyrist úrvarpsræða þáverandi forsætisráð-
herra Noregs, Nygárdsvolds, um nauðsvn á aðhaldi í samfélaginu.
Öldin okkar: Séð frá iðnbyltingartímanum inn í deild seinni heimsstyrjaldarinnar.
Varnargarður úr sandpokum og aragrúi byssuhlaupa vafin gaddavír mynda ógn-
andi inngang. I þessari deild eru teknir fyrir ýmsir þættir stríðsins í Noregi, svo
og erlendis. Stríðinu er lýst í skuggamyndasýningu með samrunatækni þar sem
myndirnar fléttast hver inn í aðra. Gestir fá sér sæti á skotfærakössum og untíir
broti úr ræðu Hitlers, birtist hann í einu horninu með sérstakri tækni. Á þennan
hátt vill Guðmundur sýna framá þá hættu, sem ennþá stafar af nasisma. Hverri
sýningu Iýkur með því að sprengju er varpað yfir Norður-Noregi. Við það hrislist
allt og skelfur og má búast við að sumum bregði.
Sýningargestir ganga í upphafi inn í ís-
öldina. Þar mætir þeim kuldagjóstur og
til beggja handa er ísveggjaskúlptúr, sem
Guðmundur hefur hannað. Þessi deild
ergerð sem afstrakt íshellir og á gólfinu
er marmari. Eina birtan er ístílá skíma
sem seitlar inn á milli skáhallandi
veggja. Ljóstæknin byggist á ótal Ijós-
leiðurum og mismunandi lituðu selló-
fani, sem varpar blámanum bakatil á
handslípaðar akrýlplötur. Bergmálstón-
ar frá dropahelli eru látnir skapa hina
réttu kuldastemmningu. Þessi deild var
svo flókin í útfærslu, að Guðmundur
varð að vinna verkið sjálfur með hjálp
góðra smiða.
GUÐMUNDUR JÓNS-
SON arkitekt vann
samkeppni um tilhögun á
veglegri sýningu, sem sett
er upp í tilefni
vetrarolympíuleikanna, en
á síðan að standa áfram.