Lesbók Morgunblaðsins - 09.04.1994, Blaðsíða 6
Rannsóknir á íslandi
Umsjón: Sigurður H. Richter
Heimilisgarðrækt
Eftir MAGNUS
ÓSKARSSON
Vegna fólksins sem
. „ræktar garðinn sinn“
hafa um árabil verið
gerðar matjurtatilraunir á
Hvanneyri.
Kartöflur
Erlendis kemur árlega
fram mikill fjöldi nýrra
afbrigða af kartöflum.
Rík áhersla er lögð á
að nýju afbrigðin séu
ónæm fyrir alls konar
sjúkdómum. Þess vegna
er erfðaefni úr jurtum, skyldum kartöflum,
komið fyrir í nýju afbrigðunum. Neytendur
una þessu misvel og
telja að kartöflur eigi
að vera kartöflur, með
kartöflubragði, en
ekki afkvæmi kyn-
blendingsjurta. Þetta
kann að vera mikil-
vægt fyrir kartöflu-
ræktendur í framtíð-
inni vegna þess að vin-
sælustu afbrigðin á
Islandi eru rauðar ís-
lenskar og gullauga, sem eru raunverulegar
kartöflur (Solanum tuberosum). Þær hafa
sennilega borist til Norður-Evrópu fyrir
mörgum árhundruðum.
I tilraunum á Hvanneyri hafa rauðar ís-
lenskar fengið betri einkunn fyrir bragðgæði
en gullauga. En gullauga hefur hins vegar
gefið meiri uppskeru, einkum í erfiðum ánim.
Rauðar íslenskar gefa af sér fleiri og smærri
kartöflur eins og sjá má á súluritunum.
Á íslandi er algengt að of mikið sé borið
á kartöflur. Það hefur þau áhrif að þær verða
vatnsmeiri og bragðgæðin þar með lakari.
Tilraunir frá Hvanneyri og fleiri stöðum
benda til þess að í sæmilega frjóa garða sé
nóg að bera 830-1.250 grömm af blákomi
eða græði la á 10 m2.
Gróðurhlífar (plast eða trefjadúkur) flýta
sprettu kartaflna, auka uppskeru og gera
hana árvissari. Tiiraunir sem gerðar voru
árin 1975-1976 sýndu að ef ekkert plast var
notað var kartöfluuppskeran 1,4 kg af einum
fermetra. Ef glært plast var haft yfir kartö-
flugrösunum í 23-28 daga var uppskeran 2,2
kg á fermetra. Hins vegar var uppskeran
3,0 kg af jafnstóru garðlandi þar sem glært
plast var haft yfir beðunum allt sumarið. Þá
voru klippt göt á plastið fyrir grösin. Svart
plast eykur ekki uppskeru að ráði, enda hitn-
ar jarðvegur mjög lítið undir því. En svart
plast er góð vöm gegn iilgresi.
Kál
Ræktun matjurta misheppnast allt of oft
hjá fólki vegna þess að það er með óhentuga
Mergja (grasker) ræktuð í óupphituðu gróðurhúsi úr plasti.
Lj6snf.:Magnús Óskarsson.
Blóm á jarðarberjajurt.
stofna. Þess vegna verður hér gefið stutt
yfirlit yfir þá kálstofna, sem best hafa reynst
í tilraunum á Hvanneyri. Slíkur listi breytist
frá ári til árs, enda em stöðugt að koma fram
nýir stofnar. Vaxtadagar era taldir frá því
að plöntunum er plantað út, en þá hefur
uppeldið í gróðurhúsi tekið 4-6 vikur.
(Tafla um stofna af káli.)
' Kínakál og blaðkál (á ensku Pak Choi) era
gamlar matjurtir frá Austur-Asíu, sem era
tiltölulega nýlega komnar á markað í Evr-
ópu. Kínakál hefur á skömmum tíma orðið
algeng salatjurt á íslandi. Tilraunir hafa
verið gerðar á Hvanneyri með blaðkál síðan
1985. Það er ákaflega fljótvaxin salatjurt.
Vegna þess hve blaðkál er stutt í jörðu er
ekki unnt að beita eiturefnum til að veija
það fyrir kálmaðki.
Blaðkál á að taka upp
þegar það er 350-400
g að þyngd, þá er það
ljúffengast. Á sumár-
hótelinu á Hvanneyri
hefur blaðkál þótt
gott og fallegt í hrá-
salat. Það er fuli
ástæða til þess að
rækta þessa jurt í
meira mæli á Islandi,
til að hafa gott salat
á borðum snemma
sumars.
Góðir stofnar af
spergilkáli era Clip-
per Fl, sem myndar
marga litla 'spergla
og hentar því ágætlega fyrir
heimilisgarðrækt. Stofninn
Neptune F1 myndar fáa, en
stóra og fallega spergla.
Gulrófur Og
Gulrætur
Þeir stofnar af gulrófum
sem neytendum virðist falla
best í geð era íslenski stofn-
inn kálfafellsrófur og norski
stofninn Vige. Þeir era báð-
ir fjólubláir að ofan og
mynda litlar en ljúffengar
rófur.
Gulrætur era til af mörg-
um gerðum og hver gerð
hefur sitt vaxtarlag. Af al-
gengustu gerðunum era til
mörg afbrigði. Sú gerð sem
er mest notuð hér á landi
heitir Nantes, svo að líklega
er hún í hugum okkar flestra
„venjuleg gulrót“. Af Nantes má mæla með
stofnunum Napoli F1 og Tamino Fl. Amst-
erdam er önnur gerð, sem er nokkra grennri
og styttri en Nantes. í bragðprafum sem
gerðar vora á þessum tveimur gerðum taldi
fólk Amsterdam ljúffengari. Gott afbrigði af
Amsterdam-gulrótum er Mokum. Þess má
geta að erlendis er dálítið ræktað af litlum
hnöttóttum gulrótum í heimilisgörðum, af
gerð sem heitir Parísar-gulrætur. Margir
telja Parísar-gulrætur sælgæti.
Jarðarber
Á Hvanneyri hafa verið gerðar tilraunir
með jarðarber síðan árið 1977. Berin hafa
verið ræktuð undir plastskýlum eða í óupp-
hituðum plastgróðurhúsum. Hér verða
nefndir þeir stofnar sem hafa þótt bestir.
Glima og Zephyr koma oftast með ber um
mánaðamótin júlí-ágúst. Glima er sennilega
harðgerðasta afbrigðið sem við höfum reynt.
Berin af Glima era minni en af Zephyr en
samt er uppskeran venjulega meiri. Um það
bil tíu dögum síðar koma ber á Jonsok og
hálfum mánuði eftir það á Senga-Sengana.
Það síðasttalda gefur litla uppskera í slæmu
árferði en góða uppskeru ef sumur era löng.
Ber af öllum þessum afbrigðum era bragð-
góð.
Höfundur er búfræðikandídat
Bændaskólann á Hvanneyri.
og kennari við
Rauðar íslenskar
0,15
0,12
Rými f fermetrum
0,10
Gullauga
■ llndir 25 g
0 26-40 g
011 41 -60 g
^ yfir 60 g
0,1$ 0,12 0,10
Rýml f fermetrum
Uppskera af jarðarberjum.
Meðaltal áranna 1984-1987 og 1990-1992.
Stærðarflokkun kartafla, sem ræktaðar
voru undir plasti, árin 1979 og 1981.
GUÐJÓN LEIFUR
GUNNARSSON
Vetraróður
Þú helkaldi gramur sem hramminum
slærð
og heimslífi öllu á valdið þitt nærð.
Forystuleiðtogi íreðinna valda
er fönninni þeytir um hauður og lá
og hylur öll lýti með hreinasta snjá
hvítur, sem brimandi sævarins alda.
Sú meinleysis-ásýnd er
margþúsundföld,
og mennina tælir og glepur.
Því þrátt fyrir fegurð er klóin þín köld
og kvalarfullt lífsandann lepur.
Styrkw þú sverfw til fírði og fjöll
og fannfergi drífur um voga og völl.
Hví ertu öllu svo beisku og bitur,
— þú bölvísi harri sem deyðir allt líf.
Hvaðan er runnið það heiftuga kíf,
og hvenær var blásinn sá örlaga-þytur.
I þokka þín einfóldum, fjölbreytnin felst
er folduna fjötrum þú reyrir.
Svo fógrum að ónauðug seilinni selst,
sálan er krumlan þín dreyrir.
Þú ert víst dauðans og Ulskunnar ári,
óvættw neðan úr niflheima fári.
I friðarins líkn máttu leiða til náða,
lífsandans glæðw og kæfa það ljós,
sem sefw und hulunni hjarna og snjós
hvar hendur þín dauða og lífi þess ráða.
A vorin þú varlaus til fjallanna flýrð
því frosthörkur sumarið fælir.
I haustinu árlega aftw þó snýrð
og ánýjar völd þín og stælir.
Höfundur stefnir að námi i læknisfræöi.
STEINÞÓR JÓHANNSSON
Ég man
Ég man eina hönd
mjúka og hlýja
fara um mig allan
sem straumur væri.
Ég man þegar
syrti í kokkálinn
þú sagðist hafa séð
fegurri og matmeiri físka.
Ég man hvemig kossar þínir
klæddu kuldann af okkur.
Ég man bros þitt
og breiða faðminn
svala einsemd.
Ég man alla biðina í umferðinni
eftir óuppfylltum óskum.
Ég man þegar lagt var upp
án markaðs fyrirheits
þú gafst til kynna
hvert skyldi haldið
en alla leiðina
vissi ég ekki
hvort þú varst að koma eða fara.
Samfella
Undarleg tilfínning ástin
unaðw gleði frygð blíða
góðra vina fundw
hlýorðaflaumur.
Ánægja yfir samfundum
sæluhrollur nærverunnar
snerting velkomin.
Eitt orð gleðigjafí
augnatillit hlátur orkustreymandi
upphefjandi hugann örvandi hjartað.
Sálartetrið orðið að
unaðsheimum ástarinnar
upplýstum af tendruðum tilfmningum.
Æ hvað dagurinn er bjartur
og heimurinn fagur.
Við höfum umskapað
hvort tveggja.
Njótum þess að unnast
og ylja okkw við hita tilfínninganna
fegurð heimsins
og hina sólbjörtu daga.
Höfundur er húsasmiðameistari og hefur
gefið út fjórar Ijóðabækur.