Tíminn - 05.06.1968, Síða 3
MIÐVIKUÐAGUR 5. jtíní 1968
TIMINN
Laxveiðar hafnar
Laxveiði hófst í Norðurá i Borg
arfirði fyrsta þessa mánaðar.
Fyrstu tvo dagana komu sjö lax
ar á land og var þyngdin að meðal |
tali 10 pund. Stangaveiði hefst;
svo í öðrum ám alveg á næstunni.
Enn mun vera hægt að fá veiði
leyfi i Norðurá.
Erla Harðardóttir ein framreiðski
slúlkan í búningi, sem hún teikn
aði sjálf og saumaði.
Bodan Wodiczko hljómsveitarstjóri er nú á förum til heimalands síns.
Hann hefur stjórnað Sinfóníuhljómsveit íslands fjögur starfsár, og búið
hér á landi í síðustu þrjú ár, Menntamálaráðherra hélt honum kveðjuhóf
í Ráðherrabústaðnum í gær og við það tækifæri var Wodiczko sæmdur
fálkaorðunni. Hann mun nú taka við stjórn útvarps- og sjónvarpshljóm-
sveitinni í Varsjá. Myndin er tekin er menntamálaráðherra afhenti
Wodiczko fálkaorðuna. (Tímamynd GE)
Myndina tók GE í sýningardeild Hampiðjunnar á sýningunni íslendingar og hafið.
HAMPIÐJAN BAUÐ 100
GESTUM AÐ SJÁ SÝN-
INGARDEILD SÍNA
Á laugardaginn bauð Hampiðjan
um 100 úfgerðarmönnum, skip-
stjórum, netagerðarmönnum,
ásamt blaðamönnum að sjá sjávar
útvegssýninguna „íslendingar og
hafið“, en Hampiðjan hefur sýn-
'ingu á framleiðsluvörum sinum
í samvinnu við efnaiðnaðanfyrir-
tækið Hoecihst, sem bauð hópcium
upp á veitingar eftir að sýningin
hafði verið. skoðuð.
Svo til öll gerviefnin, sem Ha-mp
iðjan nptar til framleiðslu sinnar
eru frá Hoechst, V-Þýzkalandi, en
það er með stærstu fyrir tækjum
í efnaiðnaði í Evrópu og heims
þekkt.
Árið 1064 varð almenn og skynd.
leg breyting á efnisnotkun í
botnvörpur og önnur veiðarfæri,
sem gerðu vélar Hampiðjunnar 'úr
eltar. Var þá um tvennt að velja,
að hætta starfseminni, eða að
kaupa vélar til fuillvinnslu á gervi
efnum. Eftir ítarlegar rannsóknir
og kostnaðaráætlanir var ráðizt í
að endurnýja allan vélakost Hamp
iðjunnar og voru nokkrar hinna
nýju véla teknar i notkun í árs-
lok 1966.
j Við umrædda gjörbreytingu á
I vélakosti Hampiðjunnar reyndist
j Hoeöhst, öðrum fremur ráðgefandi
| um tæknileg atriði og voru nokkr
j ir starfsmenn Hampiðjunnar send
‘ ir til Frankfurt am Main til þjálí
junar í meðferð slíkra véla.
i Árið 1967 var framleiðsla Hamp
j iðjunnar samtals 480 tonn, þar af
'243 toun vörur úr gerviefnum. Mun
framleiðsla úr gerviefnum f’ara
vaxandi með vélum, sem nú er
verið að taka í notkun.
Til framleiðslu Hampiðjunnar
eru aðeins notaðir beztu gæðafilokk
ar hráefnis og hafa sjómenn tek
ið hinni nýju framleiðslu vel. Til-
raunir með fiskilínur ú rgerviefn
um hafa staðið yfir s. L tvö ár
og hefur Hampiðjan notið ieið-
sagnar athugulla skipstjóra, sem
þaulvanir eru línuveiðum. Árang j
urinn er nú að koma fram í j
„Trevira PP“ fiskilínunum, sem !
útlit er fyrir að flestir skipstjórar j
taki upp notkun á í náinni fram
tíð.
Vð framleiðslu veiðarfæra er
meirihluti kostnaðar innlend
vinna, orka og lögboðin gjöld og
þar af leiðandi mikill gjaldeyris
sparnaður af starfsemi Hampiðj
unnar, að sögn forsvarsmanna
hennar.
800 METRA HLAUPI
ÐKH-Reykjavík, þriðjudag.
Hinar árlegu hvítasunnukapp-
reiðar Fáks fóru fram á annan
dag hvítasunnu á skeiðvelli fé-
lagsins við Eiiiðaár. Áhorfendur
voru með langflesta móti, enda
var veður blýtt og úrkomulítið.
Skei'ðvöllurinn sjiálfur var blaut-
ur og þumgur af undanfarandi
rigningum, svo að ekki náðust
sérlega góðir tímar í hlaupunum.
Veðbanki var starfandi á kapp-
reiðunum og gengu veðmálin fjör
ugt, þó ekki skiptu veðin þúsund
u.m, þeir heppnustu fengu 150
kr. fyrir 25 kr.
Þylur Sveins K. Sveinssonar lét
ekki að sér hæða í 800 metra
hlaupinu og vann hann það nú í
þriðja skipti og fékk að launum
Björnsbikarin.n til fullrar eignar
auk 8 þús. kr. peningaverðlauna.
Það vakti athygli á kappreiðun
um, að Kolbrún Kristi'ánsdó.ttir.
sú, sem veitir forstöðu reiðskóla
Fáks, hleypti þrem gæðingum til
sigurs að þe^su sinni og sést á
því, að það er ekki sama, hver
situr hestinn.
Það þykir kostur hvcrjum hesti
að vera vel ættaður og hestamönn
um til gamans skal það tekið
fram, að gæðingar þeir, sem sigr
uðu i 250 m. fola'Maupi og 350
metrunum, þeir Kommi og Faxi,
eru báðir undan Glettu Sigurðar
Ólafssonar, sem allir hestamenn
þekkja af orðspori.
í sambandi við k'appreiðarnaf
fór fram keppni um bezta alhliða
gœðingin.n. góðhestakeppni. Titil-
inn „Bezti gæðingurinn 1968“
hlaut Grani Leifs Jóhannessonar
og fékk hann auk þess að launum
Viceroy-bikarinn svokallaða, en
það er fairandibikar. Nr. 2 var
Óðinn Gunnars Tryggvasonar og
þriðji bezti gæðingurinn var út-
Framhald a bls 14
Fyrsta diskotekið opnaö
GÞ'E-Reýkjavík, þriðjudag.
Fyrir helgina var fréttamönn
um boðið að sjá hinn nýja diskótek
skemmtistað Las Vegas að Grens
ásvegi 12, sem tók til starfa í gær.
Þgð er sameignarfélagið Rjá, sem
á og rekur þetta diskotek, það
fyrsta hér á landi, en slíkir
skemmtistaðir hafa þrifizt mjög
vel erlendis. Staðurinn er opinn
öllum, sem náð hafa 18 ára aldri,-
svo fremi að þeir séu „í takt við
20. öldina“, að því er eigendur stað
arins tjáðu blaðamönnum.
Þetta er mjög nýtízkulegur stað
ur og glæsilegur og tekur hann
200 manns. Salurinn er allur
klæddiur með rauðu skilkifóðri,
og ljósin mjög dempuð. Lýsingu
og skreytingu annaðist Lovísa
Ohristiansen innanihússarkitekt, og
hefur henni farizt það verk ágæt
lega úr hendi.
Til að byrja með verður Las
Vegas opið flest kvöld frá kl. 20.30
til 1 og 2 eftir miðnætti. Engar
vínveitingar verða á boðstólum
heldur einvörðungu gosdrykkir og
léttir réttir, sem bornir verða
gestum af ungum stúlkum, sem
ekki eru einkennisklæddar eins og
flestar aðrar gengilbeim,ir, hcldur
klæddar samkvæmt eigin smckk
og nýjustu tízku. Þetta eru allt
bráðfallegar stúlkur, enda voru
þær valdar úr stórum hóp um-
sækjenda. Þær mega fá sér snún
ing á dansgólfinu öðru hverju.
Tveir stórir plötuspilarar leika
viðstöðulaust nýjustu dægurlögin,
og er þeim stjórnað af ungri
stúlku, sem starfað hefur við disko
tek í London. Eigendur Las Veg
as hafa gert sérstaika samninga við
plötufyrirt'æki í London og New
York um að senda flugleiðis nýj
ustu plöturnar jafnsikjótt sem
þær koma á markaðinn, þannig að
hinn nýi staður mun geta boðdð
upp á „topp" lögin hverju sinni.
Olympíufarar fóru í gær til Frakklands
Hsím.-þriðjudag.
Olympíumótið í bridge, sem
hefjast á 5. júni, verður eftir allt
háð í frönsku hafnarborginni Deau
ville eins og upphaflega var ákveð
ið. Vegna hins ótrygga ástands í
Frakklandi var um tíma ákveðið
að mótið skyldi háð í Sviss, og
ætlaði bandarískur auðj'öfur að
greiða allan kostnað, sem sú breyt
ing kynni að hafa í för með sér.
Frakkar brugðust hins vegar reið
ir við og niðurstaðan varð, að
mótið verður í DeauvMle. íslaud
tekur þátt í mótinu og hinir _ís-
lienzku þátttakenidur í því Ás-
mundur Pálsson, Eggert Benónýs; i
son, Hjalti Elíasson, Símon SiWín; %
arson, Stefián Guðj'Ohnsen, Þorgeir | ;ysi
Sigurðsson og fararstjórinn Þórð-
ur Jónsson flugu utan í morgun,
en muau ekki koma við í París
eins og upphaflega var ákveðið,
heldur í Briissel og þaðan með
langferðabíl til hinnar frönsku
borgar. Um 40 þjóðir höfðu til-
kynnt þátttöku á mútið. en ekki
er vitað á þessu stigi rhálsins,
hvort einhverjar þeirra kunna að
hafa dregið sig til baka
stundu.
síðustu
Sigurvegarinn i 300 metra hlaupinu,
(Tímamynd GE)
ÞYTUR SIGRAR ENNI