Vísir - 25.07.1977, Side 1
Allt um íþrótto-
viðburði helg-
arinnor í dag
fsland hafnaði í 2. sœti
Frá Birni Blöndal,
fréttamanni Vísis á Kalott-
keppninni í Satkomo í
Finnlandi:
Islenska landsliöiö i frjálsum
iþróttum náöi 2. sæti i hinni ár-
legu Kalott-keppni sem fór fram
hér um helgina. Sá sigur byggöist
fyrst og fremst á ágætri frammi-
stööu kvennaliösins sem hafnaöi i
2. sæti i kvennakeppninni, en i
karlakeppninni varð Island i
þriöja sæti. Finnska liðiö sem var
mjög sterkt hér á heimavelli sigr-
aði 1 kvennakeppninni hlaut 146
stig, tsland 138, Noregur 124,5 og
Sviar ráku lestina með 105 stig.
Finnarnir sigruöu einnig i
karlakeppninni, þeir hlutu 220
stig, Norðmenn voru með 168,5
stig, ísland 164 og Sviar með 142,5
stig.
Samtals hlaut finnska liðið 366
stig, ísland 302, Noregur 293, og
Sviþjóð 243 stig.
Tvö tslandsmet voru sett i
keppninni. Óskar Jakobsson gerði
sér litið fyrir og bætti met sitt i
spjótkastinu úr 75,86 metrum i
76,32 metra, og þaö þótt hann æfi
þessa grein sama og ekkert. Þá
bætti Sigrún Sveinsdóttir met sitt
i 400 metra grindahlaupi, hljóp á
65,1 sek og varð i þriðja sæti.
Thelma litla Björnsdóttir vakti
mikla athygli hér fyrir frammi-
stöðu sina i 3000 metra hlaupinu,
og þessi kornunga stúlka — 13 ára
— setti glæsilegt telpna- og
meyjamet, hljóp á 10,33,2 min og
hafnaði i 6. sæti. Sænsk stúlka
sem fylgdi henni eftir nær allt
hlaupið ætlaði fram úr Thelmu i
siðasta hringnum, en það var
sama hvað sú sænska bætti við
sig, alltaf lumaði Thelma á meiri
krafti og hún hreif áhorfendur
með dugnaði sinum. Þess má
geta að hún er á fyrra ári i telpna-
flokki, svo að framtiðin er björt
hjá þessari ungu hlaupadrottn-
ingu okkar.
Vilmundur Vilhjálmsson sýndi
á mótinu hversu gifurlega sterkur
hann er orðinn, og hann sigraði
með yfirburðum i 100 metra
hlaupinu. Hann fékk timann 10,4
sek, en næsti maður var Sigurður
Sigurðsson sem hljóp á 10,9. Þá
var Vilmundur hinn öruggi sigur-
vegari i 200 metra hlaupi, hljóp á
21,5.
Vilmundur var einnig á ferðinni
i 400 metra hlaupinu þar sem
hann varð i 2. sæti eftir hörku-
keppni og fékk timann 48,0. Og
Vilmundur var i boðhlaupssveit-
unum bæöi i 4x100 og 4x400 metr-
um. í 4x100 metrum sigraði is-
lenska sveitin örugglega, og jafn-
aði Islandsmetið. Sveitina skip-
uðu auk Vilmundar þeir Sigurður
Sigurðsson, Magnús Jónasson og
Björn Blöndal.
1 4x400 metra hlaupinu varð is-
lenska sveitin i 2. sæti eftir hörku-
keppni við Finna, islenska sveitin
fékk timann 3,18,8, en sú finnska
3,18,0 minútur.
Einvigi Hreins Halldórssonar
og hins fræga finnska kúluvarp-
ara Stalberg var hápunktur
keppninnar, og Finninn sterki bar
sigur úr býtum, kastaði 20,48
metra. Hreinn kastaði 19,81 sem
er nýtt Kalott-met, en Stalberg
keppti aðeins með sem gestur.
Ingunn Einarsdóttir var mikið i
sviðsljósinu eins og vænta mátti
og var drjúg við að hala inn stig-
in. Hún sigraði i 100 metra
grindahlaupi á 14,4 sek. sem er
Kalott-met, og þar náði Lára
Sveinsdóttir öðru sætinu með
mikilli hörku, fékk timann 14,5
sek.
1 100 metra hlaupinu sigraði
Ingunn einnig fékk timann 12,1 og
Sigurborg Guðmundsdóttir kom
skemmtilega á óvart, fékk tim-
ann 12,5 sek. — og fjórða sæti.
Þá var Ingunn i öðru sæti i 200
metra hlaupinu er hún hljóp á 24,8
sek. og Sigurborg hreppti þriðja
sætið, fékk timann 25,6 sek.
Ingunn var hinsvegar öllum
sterkari i 400 metra hlaupinu,
fékk timann 55,7 sek. og enn náði
Sigurborg i dýrmæt stig, hafnaði I
4. sæti á 58,1 sek.
Ingunn keppti einnig i lang-
stökki og varð þar i 5. sæti með
5,22 metra stökk, en Lára Sveins-
dóttir varð þriðja, stökk 5,32
metra.
Hundur beit Gunnar
Það gekk á ýmsu hjá islensku
keppendunum I Kalottkeppninni
i Finnlandi um helgina. Eftir
iangt og strangt ferðalag til
Sotkamo hugðust nokkrir
keppendanna hlaupa dálitið úti
og liðka sig, og I þeim hópi var
Gunnar Páll Jdakimsson.
Sennilega hefur Gunnar ekki
vitað hvað beiö hans I Sotkamo
þetta kvöld, en það var stór og
mikill hundur sem veittist aö
honum og beit hann hressilega!
Gunnari varð þó ekki meint af,
og daginn eftir náði hann sinum
besta tima i 800 metra hlaupinu
Fara til Danmerkur
Flestir Islensku keppendanna
I Kalott-keppninni koma heim i
dag, en nokkrir fara þó til Kaup-
mannahafnar og dvelja þar I
viku. Það eru tugþrautarmenn-
irnir Jón Sævar, Björn Blöndai
og Þráinn Hafsteinsson, og
fimmtarþrautarkonurnar Ing-
unn Einarsdóttir, Maria Guðna-
dóttir, og Þórdis Gfsladóttir.
Þessi hópur keppir I lands-
keppni viö Noreg, Danmörku og
Tékkóslóvakfu um næstu helgi.
Landinn fámennur!
islenská liðið i Kaiott-keppn-
inni var langfámennast allra
þátttökuliðanna, aðeins 35
keppendur. Hinsvegar voru
Norðmcnn fjölmennir, alls 65.
Sviar sendu 55 keppendur og
Finnarnir voru með 56.
Þetta kom sér að sjálfsögðu
mjög illa og þurfti t.d. sjúkra-
þjálfari liðsins, Halldór
Matthiasson, aö bregða sér i
iþróttagallann til að ná i stig i
3000 metra hindrunarhlaupinu.
Og fleira mætti nefna.
Þorvaldur Þórsson keppti i
fyrsta skipti á ævinni i sleggju-
kasti til að ná stigi, kastaði 21
metra!
Jón Sævar varð að hætta I
stangarstökkinu þegar hann
haföi stokkið 3 metra, vegna
þess að hann þurfti að keppa i
110 metra grindahlaupinu á
sama tima!
\
Og Ingunn var að sjálfsögðu i
sveit íslands sem fékk 2. sætið i
4x400 metra boðhlaupinu á 3,53
min. svo að sjá má að hennar
hlutur var stór i keppninni.
Jón Diðriksson hljóp á sinum
besta tima i 800 metra hlaupinu
og sigraði, hann fékk timann
1,50,9 min. og Gunnar Páll
Jóakimsson náði sinum besta
tima 1,51,9 min. og náði 2. sæti.
Eru vist örugglega ár og dagar
siöan Island hefur átt sigurveg-
ara i þessari keppni.
Friðrik Þór Óskarsson sigraði i
langstökki, stökk 7,08 metra, en i
þristökkinu varð hann að gera sér
þriöja sætiö að góðu, stökk 14,75
metra.
Þórdis Gisladóttir náði i mikil-
væg stig þegar hún sigraði i há-
stökki, stökk 1,75 metra sem er
Kalott-met.
Lilja Guðmundsdóttir hreppti 2.
sætið i 800 metra hlaupi kvenna
eftir mikla baráttu við norska
stúlku. Lilja fékk timann 2,09,7
min. en Aðalbjörg Hafsteinsdóttir
varð 7.
Lilja var einnig á ferðinni i 1500
metra hlaupinu og þar réði eng-
inn neitt við hana. Hún fékk tim-
ann 4,29 min. Aftur var Aðalbjörg
i 7. sæti.
Hlutur okkar manna i lang-
hlaupunum var ekki stór frekar
en venjulega. Ágúst Þorsteinsson
setti þó unglingamet i 10 km
hlaupinu, fékk timann 32,23 min.
Sigfús Jónsson varð i 7. sæti i 5
km hlaupinu og Siguröur Sig-
mundsson rak þar lestina, en i
1500 metra hlaupinu varð Jón
Diðriksson i fimmta sæti og Agúst
Asgeirsson i 6. sæti.
Guðrún Ingólfsdóttir varö
fimmta i kringlukasti með 36,04
metra og Maria Guðnadóttir 4. i
spjótkasti með sinn besta árang-
ur, 38,74 metra. 1 hástökkinu varð
Guðmundur Guðmundsson 6. með
1,90 metra og Þráinn Hafsteins-
son 8. meö 1,85 metra. Þorvaldur
Þójsson varð 4. i 400 metra
grindahlaupi, en i 110 metra
grindahlaupi ráku islensku
keppendurnir lestina, Jón Sævar
og Björn Blöndal hlutu báöir tim-
ann 15,6 sek.
Guðrún Ingólfsdóttir sigraði
örugglega i kúluvarpi með 12,25
metra kasti, en Erlendi Valdi-
marssyni gekk ekki eins vel hér i
Finnlandi. Hann kastaði aðeins
Óskari Jakobssyni gekk illa i
kúluvarpi og kringlukasti á
Kallott-leikunum en i spjót-
kastinu hleypti hann f sig
mikilli hörku og sigraði á
glæsilegu islandsmeti.
53,32 metra i kringlukastinu og
varð i 2. sæti, Óskar Jakobsson
þriðji með 53,22 metra. Báðir
talsvert frá sinu besta.
1 sleggjukastinu kastaði
Erlendur 50,64 og varö 5.
Það gekk þvi á ýmsu hjá is-
lensku keppendunum, en á heild-
ina litið má vel viö árangurinn
una.
Gerir Símon Fram að
stórveldi í körfunni?
Það iná eiginlega orða það þannig
að það reki á fjörur Framara I
körfuboltanum þessa dagana.
Það er ekki á hverjum degi sem
félag fær til sin e.t.v. fjóra lands-
liðsmenn. Það er nú þegar ákveð-
ið að Simon Ólafsson, hinn
frábæri leikmaður Armanns,
leikur með Fram næsta keppms
timabil. Einnig hefur heyrst að
landsliðsbakvörðurinn Guðsteinn
Ingimarsson, sem lék með
U.M.F.N. síðasta vetur, hyggist
ganga yfir i Fram og að eigin
sögn eru á þvi mjög sterkar lfkur.
Einnig er vitað að Geir Þor-
steinsson flytur búferlum til
höfuðborginnar i haust og höfum
við heyrt aö hann hyggist leika
annaðhvort með Fram eða
Armanni. Sá fjórði sem er að
hugsa til brottfarar þessa dagana
er Björn Magnússon Armenn-
ingur, en heyrst hefur að hann
ætli að leika með Fram næsta
vetur,en er Visir ræddi við.hann I
gærkvöldi vildi hann ekkert um
málið segja.
Það er þvi ljóst að ef af þessum
félagaskiptum verður, þá eru það
Armenningar sem verst veröa
úti, en þeir Simon og Björn hafa
verið með betri mönnum liðsins
undanfarið.
,,Ég vil fyrst og fremst kenna
rótleysi Simonar sjálfs um af-
stöðu hans. Hann veit ekki hvað
hann vill. E.t.v. finnur hann eitt-
hvað I Fram sem hentar honum,
en ég stórefa þaö,” sagði Jón
Sigurðsson, fyrirliði Armanns, er
Visir ræddi við hann I gærkvöldi
um félagaskiptin sem að framan
er getið.Ljóst er að fái Framarar
alla þessa menn til liös við sig,
ætti Gunnari Gunnarssyni U-L
þjálfara sem nýlega hefur skrifaö
undir samning hjá Fram um
þjálfun liðsins næsta keppnis-
timabil ekki að verða skotaskuld
úr þvi að gera Framliðiö að stór-
veldi i íslenskum körfuknattleik I
nánustu framtiö.